Alþýðublaðið - 08.12.1966, Blaðsíða 3
Ný AB-bók:
Þorsteinn Gíslason -
Skáldskapur og stjörnmál
Hinn 26: janúar nk. eru hundr-
að ár liðin frá fæðingu Þor-
steins Gíslasonar, skálds og rit-
sjtóra. Að því tilefni hefur Al-
menna bókafélagið sent frá sér
allmikið rit og veglegt, sem ber
ofanskráð heiti og sækir megin-
efni sitt í skáldskap Þorsteins,
bréf, ritgerðir og blaðagreinar.
Þorsteinn Gíslason kom víða
við sögu í íslenzku þjóðlífi, enda
var hann um áratuga skeið einn
af svipmestu forustumönnum sinn
ar samtíðar. Strax á námsárum
sínum í Kaupmannahöfn vakti
hann alþjóðar athygli fyrir ein-
arðleg blaðaskrif, þar sem hann
m. a. hreyfði fyrstur íslendinga
fullum skilnaði við Dani og bar
einnig fram fyrstur manna kröfu
um innlendan háskóla í fjórum
deildum Sjálfur hafði hann val
ið sér að námsefni íslenzkar bók
menntir síðari alda, en hvarf frá
prófi, þegar heimspekideild Hafn
ar-háskóla, og síðar einnig
kennslumálaráðuneytið danska
felldi þann úrskurð, að þær
væru alltof fátæklegar til að geta
talizt verðugt rannsóknavefni í
prófritgerð. Ákvað Þorsteinn þá
að snúa sér að blaðamennsku.
Gerðist hann snemma atkvæða-
mikill brautryðjandi á því sviði
og ritstjóri varð hann lengur sam
fellt en nokkur annar fram um
hans daga. Af blöðum þeim, sem
hann stjórnaði má nefna Óðinn,
sem þá var vandaðasta mynda-
blað landsins í þá daga og flutti
margt ævisagna og skáldskapar,
og Löréttu, sem um langan aldur
var eitt stærsta og éhrifamesta
stjórnmálablaðið, auk þess sem
hún lét bókmenntir og menning
armál til sín taka umfram flest
blöð önnur. En jafnframt þessu
var Þorsteinn alla tíð mikilsvirt-
ur sem ljóðskáld og afkastasamur
þýðandi margra öndvegisrita.
Skáldskapur og stjórnmál voru
þannig þeir megindrættir í æVi
Þorsteins Gíslasonar, sem bók sú,
er að ofan getur, dregur nafn af
og henni er ætlað að spegla. Auk
úrvalsljóða og sjálfstæðs kafla úr
óprentaðri skáldsögu, er þar að
finna bréf og ritgerðir um marg
vísleg efni, þar á meðal hina
gagnmerku og bráðskemmtilegri
sögu íslenzkra stjórnmála frá
1896 til 1918, sem skráð er af
nánum persónulegum kunnugleik,
enda sígilt heimildarrit um menn
og viðburði þessa afdrífaríka tíma
bils, og þá ekki hvað sízt um
hin margslungnu og leynilegu á-
tök, sem um æðilangt skeið áttu
sér st.að að baki hinnar eiginlegu
sj álfstæðisbaráttu.
Þorsteinn Gíslason var víðsýnn
menningarmaður, hófsamur og
góðgjarn, í hvívetna.
NÝTÍZKU
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
Amerískar og þýzkar.
Sýnishorn af eldhúsi fyrirliggjandi.
Stuttur afgreiðslutími.
Önnumst skipulagningu yður að kostnaöarlausu.
.RHalhingarvprur sf
Bergstaðastræti 19 — Sími 15166.
Sýning
Eyborgar
Undanfarna daga hefur staðið
yfir sýning á Mokka á geometrísk
um myndum eftir Eyborgu Guð-
mundsdóttur. Mun sýningin standa
idir fram að næstu helgi.ö Allar
myndirnar eru til sölu og er verð
inu stillt í hóf. Eyborg hefur und
anfarin sex ár dvalist erlendis og
tekið þátt í f jölda samsýninga og
fengið góða dóma fyrir.
Vietcong myrðir
stjórnmálamann
Þorsteinn Gíslason
Saigon 7. 12. (NTB -Reuter)
Tvítugur Vietnami var handtekinn
í Saigon í dag, ákærður fyrir morð
á óþekktum óháðum, suður-viet
nömskum stjórnmálamanni í morg
un. Tilræðismaðurinn sem var hálf
blindur á öðru auga, játaði að
Vietcongmenn hefðu þjálfað hann
til að fremja morðið á stjórnmála
manninum, Tran Vo Van.
Morðinginn ók upp að bifreið,
Tran Vans og skaut þremur skot
um á hann í bakið. Tran Van var
58 ára að aldri og eigandi hrís
grjónaekru á Mekongósasvæðinu.
Hann lézt á leiðinni í sjúkrahús.
Hinn handtekni sagði, að Viet
cong hefði sent hann til Saigon
fyrir einni viku að fremja morðið
á Van, en Vietcong hefur reynt
a ðmyrða hann í margar vikur.
Þjóðþingið sleit fundi sínum í
morgun þegar kunnugt varð um
morð Vans, en kom aftur saman til
sérstaks aukáfundar eftir hádegi.
Samþykkt var að skipa nefnd til að
leggja hart að stjórninni að fyrir
skipa nákvæmari rannsókn. Nguy
en Cao Ky forsætisráðherra sagði
í kvöld að hann hefði gefið örygg
issveitum skipun um að gera allt
sem í þeirra valdi stæði til að
rannskana málið ofan í kjölinn
þannig að morðinginn fengi fljót
lega þá hegningu sem hann ætti
skilið.
Bandarískur talsmaður sagði í
Saigon í dag, að bandarísk her
skip og flugvélar hefðu á ný ráð
izt á norður-vietnömsk skip á Ton
kinflóa. Skotið var á 15 flutninga
ferjur undan Dong Hoi.
í Saigon fundu öryggissveitir í
dag 28 kíló af sprengi efni, sem
Vietcong hafði komið fyrir í skot
færa geymslu flugvallarins.
Hæstu vinningar í
happdrætti SÍBS
5. desember var dregið í 12.
flokki um 2000 vinninga að fjár-
hæð kr. 5.001.000.00. Þessi númer
hlutu hæstu vinningana.
1.500.000.oo nr. 47099 Hafnarf.
200.00.oo nr. 53241 Hafnarfirði
100.000.oo 29458 Austurstræti 6
100.000.oo nr. 55580 Borgarnes.
Birt án ábyi-gðar.
Ætlaði Hitler ekki aö
jafna París viö jöröu?
Bonn 7. 12. (NTB-Reuter)
Walter Warlimont hershöfðingi,
einn af æðstu herforingjum Þjóð
verja í heimsstyrjöldinni síðari,
ságði í dag að skipun Hitlers um
að París skyldi brennd hefði
byggzt á hernaðarlegu mati og að
ekki hefði verið um skemmdarverk
að ræða.
En.Warlimont hershöfðingi ját
aði ,að aðstoðarforingi kynni að
hafa sagt „Brennur París?“ í sím
tali við yfirmann þýzka setuliðsins
í París, Dietrich von Choltitz hers
höfðingja, og gert það að skipun
Iíitlers.
Reuter hafði viðtal við Warli
mont hershöfðingja vegna athygli
i þeirrar sem kvikmyndin „Brennur
París?“ hefur vakið. Hershöfðing
inn var varaforseti þýzka herráðs
ins á stríðsárunum.
Hann segir, að Hitler hafi gef
ið út tvær skipanir um varnir Par
ísar, en hvorug hafi verið á þá
leið að brenna skyldi París til
grunna. Orrustan um París bar þá
hæst í umræðum okkar um hernar
arástandið, en ég heyrði aldrei að
Hitler hefði á það minnst að
brenna ætti borgina.
í kvikmyndinni sem nú er sýnd
um allan heim, er von Choltitz hers
höfðingi sýndur sem maðurinn
sem óhlýðnaðist fvrirmælum Hitl
ers og einnig er sýnt hvernig hann
setti sig í samband við frönsku
Framhald á 14. siðu.
SPENNANDI
SÖGUR, SÖNN
ÆVINTÝRI J
Barry
SAGA AF ST. BERNHARDSt
HUNDI.
Sagan gerist í hinum hrika-
legu Alpafjöllum, þar sem
ævnitýrin freista hinna hug-
rökku_
128 bls. kr. 172,— *
★ <
Atli og Una
KLIFRA FJÖLL Á ÍSLANDI
og fara í veiðiför og standa
saman í blíðu og stríðu.
Þessi ágæta unglingasaga er
eftir Ragnheiði Jónsdóttir en
teikningar í bókina gerði Sig
rún, dóttir hennar. 131 bls.
kr. 182,75.
*
A leið til Agra
segir frá furðum Austurlandá
og hefur þegar verið þýdd á
17 tungumálum og hlotið 10
verðlaun í 7 þjóðlöndum.
Spennandi heillandi, hrífandi
saga fyrir unga og gamlá.
126 bls. Kr 166.65.
★
Gleymið ekki NONNA-bók-
uniim og bókum STEFÁNJjJ.
JÓNSSONAR („Hjalta“-bók-
unum o. fl.)
| Isafold
8. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
1