Alþýðublaðið - 14.12.1966, Qupperneq 7
14. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐt ^
MYVERZLUIM!
Verzlunin
VALBJÖRK
Laugavegi 103
Reykjavik
Nýtízkuleg húsgögn frá VALBJÖRK, |
Akureyri, í nýrri verzlun í Reykjavík.
Ýmsar nýjungar í húsgagnaframleiðslu,
fyllilega samkeppnisfærar því bezta
í verði, útliti og gæðum.
Tlie Pawnbroker. Bandarísk frá
19G3. Laugarásbíó. Leikstjórn:
Sitlney Lumet. Framleiðandi:
Wortliington Miner. Handrit:
David Friedkin og Milton line
cftir sögu Edward Lewis Wall-
ant. Kvikmyndun: Boris Kauf-
man. Klipping: Ralphl Rosen-
blum. Tónlist: Quincy Jones.
115 mín.
Fyrir nokkrum mánuðum sýndi
Stjörnubíó áhrifadrjúga kvikmynd
um hugsanlega kjarnorkustyrjöld
vegna mistaka. Kvikmynd þessi
bar nafnið Öryggismarkið (Fail
Safe) og var leikstjóri hennar
Sidney Lumet.. Þessi ágæti leik-
stjóri hefur aftur skotið upp koll-
inum og nú í Laugarásbíó, þar
sem yfir standa sjmingar á mynd
hans Veðlánarinn (The Pawn-
broker). Og það undrar mann
ekki, eftir að hafa séð þessa kvik
mynd, hvers vegna Lumet yfir-
gaf Hollywood með öllu sínu
fegurðarskarti og dollarafíkn, því
Veðlánarinn stendur sem óhagg-
aður stólpur hátt uppi yfir öll-
um lygasögum og glansfígúru-
breiðtjaldsdýrkun þeirra Holly-
woodbúa. Sidney Lumet tekur
fyrir í þessari kvikmynd örlög
Gyðings, er missti nánustu ætt-
ingja í stríðinu á svo sannmann-
iegan hátt, að það má vera fremur
daufgerður áhorfandi, sem ekki
hrífst af að einhverju bragði.
Gyðingurinn Sol Nazerman er
veðlánari og hefur aðsetur sín-
ar í spænska hluta Harlem-hverf
is í New York. (Kvikmyndin er
tekin í raunverulegu umhverfi).
Sol er fálátur maður, hann hirðir
hvorki um samúð gagnvart mann
fólkinu eða kærleika, né heldur
hatur. Hann iætur sér fortölur
viðskiptavinanna, sem venjuleg-
ast eru harðsvíraðir bófar, mellu
dólgar, skækjur og annað úrhrak
þjóðfélagsins, engu varða; lífið
ið er honum sem grár veggur,
hann er í rauninni lifandi dauður.
Mörg atvik í lífi hans verða til að
endurvekja minningarnar um
liðna tíð. — Þegar hann var tek-
in til fanga af Þjóðverjum í síð-
ari heimsstyrjöld. Negrastúlka,
sem raunar er vinkona aðstoða-
manns Nazermans, bíður honum
blíðu sína igegn borgun. Það rif-
jar upp fyrir honum þau hryggi-
legu örlög er hann var nauðbeygð-
ur vitni að því, þegar nazistar
nauðguðu eiginkonu hans. Andlit
aldurhniginna manna í neðan-
jarðarlestinni minna á, þegar
hann var fluttur með fjölskyldu
sinni í gripalest á leið til fanga-
búðanna. Hann fyllist hatri til
þess tíma, þegar hann missti bæði
börn sín og konu í grimmilegum
örlagaleik styrjaldarinnar.
Aðstoðarmaður hans, Jesus
Ortiz, ber í fyrstu virðingu fyrir
honum og lítur á hann sem sinn
læriföður. En þegar Nazerman
segir honum að hann sé honum
einskis virði, leitar Ortiz á náðir
fyrri félaga, en þeir skipuleggjá í
sameiningu rún á hendur Nazer
mann. Það fer þó á annan veg ,en
ætlað var; Ortiz verður fyrir ban-
vænu skoti og þá loks yfir deyj
andi vini sínum skilst Nazerman
live hann hefur verið ómannúð
legur gagnvart því fólki, sem haiin
hefur umgengizt. Loks skilst hon-
um, hve bróðurkærleikurinn er
mikils virði. Þessi lokaatriði eru
eitt það áhrifaríkasta, er sézt hef-
ur í kvikmynd.
Veðlánarinn eftir Sidney Lumet
verður ógleymanleg kvikmynd.
Hún er í senn sterk og mögnuð,
þrungin mannlegum örlögum. Lum
et sannar enn, hversu góður leik
stjóri hann er. Lýsingin á persón
unni Sol Nazerman stendur manni
mjög nærri. Samskipti hans við
aðrar persónur og þá einkanlega
hugrenningar hans (flash-baek)
eru gerðar með miklum ágætum,
svo magnaðar í hrjúfum sannleika
sínum, að grípur áhorfandann föst
um tökum. Þegar atburðir frá lið
inni tíð, harmleik stríðsins, fara
að rifjast upp í liuga Nazermans,
notar Lumet fyrst snöggar mynd
ir, en smám saman skýrast endur
minningar hans og standa loks ljós
lifandi fyrir augum okkar. Ógjör-
legt er að telja út í hörgul hvert
smáatriði í svo stuttri grein, en
nefna mætti sem dæmi eitt atriðið
er vanfær og daufleit stúlkukind
kemur til Nazermans til að veð
setja demantshring, að hún held-
ur. Nazermann lítur á hringinn og
segir: ,,Hann er úr gleri.“ „Hann
sagði að hann væri ekta.“ svarar
stúlkan í umkomuleysi &>nu. Um
leið og Nazermann horfir á hring
inn, rifjast upp fyrir honum atvik
úr stríðin, þegar nazistarnir hirtu
hvern einasta hring af höndum
fanganna.
Veðlánarinn er markvert lista
verk. Hún er í alla staði mjög vönd
uð að gerð. Allar umhverfislýsing
ar, kvikmyndun og klippingar eru
frábærlega vel úr garði gerðar.
Einnig tónlistin skapar sín áhrif.
Það er erfitt að lýsa álirifum mynd
arinnar til hlítar, menn verðaj áð
sjá hana. Mann skortir nógu kröft
ug lýsingarorð yfir túlkun Rocl
Steiger í hlutverki Sol Nazermans
sem er í senn svo mannleg og raun
veruleg, að vart hefði á betri Læg
verið kosið. Aðrir leikendur s|efa
allt sitt bezta og hér kcmur, áíl
nýrri hlið í snilld Lumets — vákl
hans yfir leikendum sínum, liversu
sterk svipbrigði hann nær úr þeim
einkanlega er varðar nærmynda-
tökur. Ég hika ekki við að segja,
að Veðiánarinn sé meðal merkileg
ustu bandarískra kvikmynda, er
gerðar hafa verið hin síðari ár og
Sidney Lumet þar með einn bezti
kvikmyndaleikstjóri þeirra þjóðá í
dag.
Framhald á 10. síðú.
Nýjasta bók
SNORRA HJARTARSONAR:
LAUF
OG
STJÖRNUR
ÓSKABÓK ALLRA LJÓÐAVINA