Alþýðublaðið - 21.12.1966, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 21.12.1966, Blaðsíða 3
„Gilda eftirlætis- hlutverkið mitt" - segir söngkonan Mattiwilde Dobbs EINS OG KUNNUGT er af frétt- um í blöð'unum í gær kom liingað í fyrradag söngkonan Mattiwilda Dobbs, en hún mtui syngja aðal- Eltingaleikur viö drukkinn ökuþór Rvík, — SJÓ í fyrrinótt átti lögreglan í mikl- um eltingarleik við drukkinn öku þór, sem ók með miklum hraða frá Ártúnsbrekkunni, þar sem elting- arleikurinn hófst, og austur Suð- urlandsveg, igegnum Árbæjar- hverfi. Endaði för þessi á þann liátt, að ökumaður missti vald á bifreiðinni og ók út af veginum vestan við Rauðavatn,og lenti bif- reiðin þar í grýttri urð. Var tals- verð hálka á veginum. Reyndist ökuþór þessi vera all mjög við skál. Talið var í fyrstu, að einn farþeganna ásamt ökumanni væru eitthvað slasaðir, en það reyndist ekki alvarlegs eðlis, eftir því, sem síðar kom í ljós. Alls voru fjórir farþegar í bifreiðinni, sem var af Ford-gerð. hliitverkið í jólaóperu Þjóðleik- hússins, Mörtu. Blaðamönnum gafst í gær tækifæri til að ræða við söngkonuna að viðstöddum Þjóðleikhússtjóra, Guðlaugi Rós- enkrans og leikstjóranum Erik Schack. — Óperan Marta var fyrsta óp- eran, sem ég sá, þá 10 ára gömul, segir Dobbs. Ég hef aldrei sungið í þeirri óperu, svo að ég syng að- alhlutverkið í Mörtu í fyrsta skipti 'hér á íslandi. — Mér finnst íslenzku söngvar- arnir vera góðir og ég skil ekki, hvernig þeir fara að því að gera hlutverkunum svo góð skil, þar sem þeir hafa ekki sungið í óperu í langan tíma og þeir koma beint úr öðrum störfum, það hlýtur að vera mjög erfitt. Og það er leiðin- legt, að þeir skuli ekki geta helg- að sig söngnum, þið hafið góða söngvara hérna, en missið alla beztu söngvarana úr landi, þar sem ekki er hér ópera. — Óperan Marta er mjög heill- andi ópera og ég trúi ekki öðru en íslendingar kunni vel að meta hana. Eftirlætishlutverk mitt er Gilda í Rigoletto og ég hef sung- ið það mörgum sinnum, en finnst það alltaf jafn skemmtilegt. Mattivvilde Dobbs á blaðamannafundi í gær. (Mynd: Bjarnl ) Mattiwilda Dobbs kemur hing- að frá Stokkhólmi, en hún er gift sænskum manni, og búa þau í Svíþjóð. Mattiwilda hefur nýlega sungið í óperunum Rigoletto, Rak- aranum frá Sevilla og Ævintýrum Hoffmanns við Stokkhólmsóper- una ,en eins og kunnögt er hefur Mattiwilda Dobbs sungið við ým- is helztu óperuhús heims. Mattiwilde Dobbs og Sigurveig Hjaltested, sem tek ir við hlutverki hennar. (Mynd: Bjarnl) Wílson ómerkir fyrri tilboð til Smiths LONIÍON, 20. des. (NTB-Iteuter) — Brézki fcrsætisráðherrann, Har- old Wilson, tilkynnti formlega í Neðri málstofunni í dag, að Rho-! desía fengi ekki sjálfstæði fyrr en ' niynduð hefði verið stórn í nýlend unni', sém meirililuti íbúanna styddi. Wilson sagði enn fremur, að öll fyrri tilboð til stjórnar Ian Smiths um stjórnarfarslega lausn væru nú dauð og ómerk. Með því að gefa xessa yfirlýs- ingu efndi Wilson loforð, sem hann gaf forsætisráðherrum sám- veldislandanna á samveldisráð-' stefnunni í Lundúnum í septemb- er. Þá hét Wilson því, að ef Smith gerði ekki ráðstafanir til að binda enda á deiluna við Breta fyrir ára- mót, mundi hann draga aftur öll fyrri tilboð Breta, er hefðu það í för með sér, að stjórn, sem nyti ekki stuðnings meirihluta íbúanna fengi sjálfsforræði. JOLAMATUR Hangikjöt: Læri Frampartar Úrbeinaðar hangirúllur |[ Guðla'iVíjur Rósinkrane Bkýiiði svo frá, að Þjóðleikhúsið hefði valið óperuna Mörtu til upp- færslu vegna þess m.a. að ópera eftír Flotow hefði ékki verið færð þar upp áður. Einnig yrði að miða óperuval Þjóðleikhússins við, hvaða söngvurum væri á að skipa í hlutverk. Þjóðleikhússtjóri tók sem dæmi, að þó að vilji væri fyrir hendi t.d. að sýna Wagner óperu, væri það ekki hægt eins og er vegna þess að hér væru ekki nægir söngvarar, einnig væri ekki hægt að koma fyrir nógu stórri hljómsveit. Það væru ákaflega fá- ar óperur, sem hægt væri að koma upp með 20 manna hljómsveit. Með aðalhlutverk í óperunni Mörtu fara Mattiwilda Dobbs, sem syngur á fyrstu fimm sýningun- um, en síðan tekur Svala Nielsen við aðalhlutverkinu, Guðmundur Jónsson, sem sungið hefur í öll um óperum Þjóðleikhússins, Guð- mundur Guðjónsson, Sigurveig Hjaltested, Hjálmar Kjartansson og Kristinn Hallsson. Leiktjöld og búninga hefur Lárus Ingólfsson gert. Hljómsveitarstjóri er Boh- dan Wodiczko. í óperunni eru nokkrir dansar og hefur Fay Wer- ncr æft dansana. Frumsöning óperunnar verður 26. desember og er uppselt á þá sýningu. Svínakjöt: Steikur Kódilettur Hamborgalirykkur Léttreykt læri Bretar efna nú þetta loforð sitt tæpri viku eftir að Öryggisráð SÞ samþykkti að herða 'á hinum efnahagslegu refsiaðgerðum gegn stjórn hvíta minnihlutans í Salis- bury, sem lýsti yfi rsjálfstæði 11- nóvcmber í fyrra. 21. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.