Alþýðublaðið - 21.12.1966, Side 7

Alþýðublaðið - 21.12.1966, Side 7
 Jólatré >au, sem hingað flytjast eru aðallega rauðgreni. Þeim hætt ir til að missa barrið er þau standa lengi í heitum stofum við mikinn loftþurrk. Erlendis er það Eiður að lienda jólatrjám út fyrsta eða annan jóladag. Hér á landi vilja menn láta þau standa inni sem allra lengst. Til þess að svo megi verða eru þessi ráð: Tr'éð skal geyma úti fram á aðfangadag. Það verður að vera á skjólgóðum stað, t.d. á svölum, þannig að ekki-næði um það. Bezt er að láta það liggja og ýra það ineð köldu vatni þegar frostleysa er. En allra bezt er að hreiða striga yfir það og halda Ihonum ávallt vel rökum. Eftir að tréð er komið inn er sjálfsagt að loka fyrir hitann í stofunni um nætur og gæta þess, að loftið sé rakt með því að hafa opin vatnsílát við miðstöðvarofn- ana. Einnig má fá -sérstaka fæt- ur undir trén, þar sem þau standa í vatni. Slíkir fætur auka á end- jngu trjánna, svo fremi sem þess er gætt, að vatnið gufi aldrei upp. Þinir þeir, sem ýmsir kaupa, þótt þeir séu um 6 sinnum dýrari en venjuleg tré, halda barri sínu lengi. Samt er ráðlegt að fara eins með þá, svo og þau jólatré önnur sem sprautuð hafa verið í þeim tilgangi að þau haldi barri lengur en ella. Blaðfóturinn á þeim þorn ar nærri jafnhratt og á óspraut- uðum trjám, og þá fellur barrið. Um þinina er það annars að segja, að þeir eru alveg ilmlaus- ir og greinar þeirra ekki eins stíf ar og á rauðgreni. Því bera þau tré minna skraut. Og ennfremur skal þess gætt, að þau eru miklu eldfimari en venjuleg tré þegar þau ná að þorna. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa látið þau drekka í sig áður en þau eru sett upp. Tónverk eftir Skúla Halldórsson Rvík, — SJÓ Skúli Halldórsson, tónskáld, hyggst hefja útgáfu eigin tón- vcrka við Ijóð þekktra íslenzkra höfunda. Það fyrsta er þegar kom ið á markaðinn og er það lag við Ijóð Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok, sem Skúli samdi 1953. Mun nótnaheftið verða til sölu í Hljóðfæraverzlun Poul Bernburg að Vitastíg 10. Skúli Ilalldórsson sagði frétta- mönnum, að þetta nótnahefti væri gefið út til reynslu. Mundi hann halda slíkri útgáfu áfram, ef kleift væri, og gæfi þá út tónverk við ljóð eftir Jón Thoroddsen, Einar Benediktsson Örn Arnar, Tómas Guðmundsson o.-fl. Sagði hann, að af nógu væri að taka. Skúli kvaðst mundu verja listamannalaunum Framhald á 10, síðu. jólamatinn trá Alikáifakjöt Steikur — buff — lundir — filé Svínakjöt Kótilettur — hamborgarhryggir — vafðar steikur læri — bógar — reykt flesk — skinkur — hnakkar lundir — svínakjötshakk. Dilkakjöt Hfyggir — læri — frampartar — kótilettur. Reykt dilkakjöt Lambahamhorgarhryggir og læri — hamborgarsteikur útbeinuð og vafin reykt læri og frampartar — hangi- kjöt mtc Kjúklingar Hænsni Gæsir SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Matardeildin, Hafnarstræti 5. Sími 11211 Kjötbúð Vesturhæjar, Bræðrab.stíg 43. Sími 14879 Matarbúðin, Laugavegi 42. Sími 13812 Kjöthúðin Skólav.stíg 22. Sírni 14685 Kjöthúðin Grettisgötu 64. Sími 12667 Kjötbúðin Brekkulæk 1. Sími 35525 Kjörhúð S.S., Álfheimum 4. Sími 34020 Kjörhúð S.S., Laugarásvegi 1. Sími 38140 Kjörbúð S.S., Laugavegi 116. Sími 23456 Kjörbúð S.S., Háaleitisbraut 68. Sími 32372 Matarbúð S.S., Akranesi. Sími 2033 21. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ f

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.