Alþýðublaðið - 28.12.1966, Blaðsíða 3
Reykjavík OÓ
Ekki hefur verið leitað að vél-
bátnum Svani RE 88 siðan á að-
fangadag og er talið fullvíst að
hann hafi farizt með sex manna á-
angeSsi
PLYMOUTH, 27. des. (NTB-
Reuter) — Þyrlur frá hernum
voru í dag notaðar við leit að
nokkrum hinna mörgu fanga,
sem flúöu frá ýmsum brezkum
fangelsum um jólin. í kvöld
liafði enn ekki tekizt að finna
13 liinna 23 fanga, sem flúðu,
en leitinni er lialdið áfram.
Rannsóknarnefnd undir for-
sæti Mounhattens lávarðar, fv.
yfirmanns brezka heraflans,
lýsti því yfir í síðustu viku, að
ekkert fangelsi í Bretlandi
væri mannhelt. Nefndin sem
var skipuð til að rannsaka ör-
yggismál brezkra fangelsa,
lagði til að reist yrði mannhelt
fangelsi á Wright-eyju fyrir sér
staklega hættulega fanga.
Flótti stórnjósnarans George
Blakes fyrir tveimur mánuðum
beindi athygli manna að ástand
inu í brezkum fangelsum, en
talið er að i-úmlega 500 fang-
ar hafi flúið á þessu ári. Fyrir
tveimur vikum flúði Frank Mit-
chell, lífstíðarfangi sem geng-
ur undir nafninu „brjálæðing-
urinn með öxina“ úr Dartmoor-
i brezk
m r mm
jolsn
fangelsi. Eftir það greip um
sig mikil reiði vegna ástandsins
í fangelsunum,
í gær fiúðu fimm fangar úr
Dartmoor-fangelsi, sem er á
Suðvestur-Englandi. Fimm-
menningarnir yfirbuguðu fanga
verðina og klifruðu yfir fang-
elsismúrana. Þyrlur sveimuðu
í dag yfir hinu eyðilega mýra-
svæði umhverfis fangelsið, og
fjöldi manns búinn ,,labb-rabb“
tækjum tók þátt í leitinni, sem
bar engan árangur.
taldir af
var hann eini báturinn frá Hnífs-
dal sem ekki kom að landi og hófst
þegar víðtæk leit að honum, en
hún bar ekki árangur eins og fyrr
er sagt.
Gabbaði slökkvi-
liðið á jóladag
Rvík, SJÓ
Á jóladagsmorgun var hringt í
Slökkvilið Reykjavíkur og því tjáð
að kviknað hefði í Brekku við
Vatnsendahæð. Fór slökkviliðið
þegar á staðinn. Veður var mjög
slæmt, hríðarbylur og vegatroðn-
ingar þar mjög slæmir. Eftir árahg
urslausa leit komust slökkviliás-
menn að því, að hér væri um gaf>b
að ræða. Hafði 8 ára gamall drepg
ur orðið sekur að þessu gabbi. Sem
að líkum lætur var slikt mjög baga
legt fyrir slökkviliðið, þar eð fæVð
um þessar slóðir er liin erfiðasta.
Annars var rólegt hjá slökkvi-
liðinu yfir jólahátíðina, en tölu-
vert var um sjúkraflutninga. <
Sex menn af Svani
Reykjavík OÓ
Brezki togarinn Bostön Well-
vale er enn á strandstað við Arn-
arnes í ísafjarðardjúpi og hefur
engin tilraun verið gerð til að ná
skipinu út. Leki kom að togaran-
um þegar hann strandaði, en sjór
er hvergi nema í vélarrúmi.
Skipstjórinn er enn á Isafirði
en ekki er búizt við að sjódómur
verði haldinn þar, heldur í En'g-
landi þegar skipstjórinn kemur
þangað. Umboðsmaður frá eig-
endum skipsins og tryggingarfé-
lagi eru væntanlegir til landsins
strax með fyrstu flugvél sem kem
ur að utan eftir jól. Taka þeir
væntanlega ákvörðun um hvort tfl
raun verður gerð til að bjarga tog
aranum, en fyrr verður ekkert
gert. Skipsmenn af varðskipi fóru
um borð í togarann í fyrradaig og
virtist hann þá ekki vera mikið
sÆemmdur, nema að vélarrúmið
var fullt af sjó. Fjaran þarna er
mjög stórgrýtt en sæmilegt veður
hefur verið allt síðan skipið strand
aði en búast má við að hann fari
ilía ef veður versnar.
Lerrti í um-
ferðarslysi
Dr. Jakob Jónsson varð fyrir
slysi á Þorláksmessu. Var það' í
umferðinni við Miklubraut. Prest
ur var á leið yfir götu, er liann
datt um taug, sem lá milli tveggja
bifreiða. Hlaut hann áverka á fæti
og var fluttur á slysavarðstofuna
þar sem gert var að meiðslum
hans. Hefur hann legið rúmfastur
síðan os verður frá störfum næstu
vikur.
Dr. Jakob hefur beðið blaðið að
koma þeim orðum til bifreiða-
stijóranna á bifreiðunum, sem taug
in lá á milli, að gera svo vel og
| hafa samband við hann í síma
115969.
*>--,-----—---------------
höfn. Báturinn týndist s.l. fimmtu
dag út af Vestfjörðum er hann
var á leið til lands í vonzkuveðri.
Umfangsmikil leit var gerð á
Þorláksmessu og aðfangadag, en
þá var veður bjart og gott til leit-
ar. Um 20 skip og þrjár flugvél-
ar tóku þátt í leitinni, sem var
mjög gagnger og er talið að leitað
hafi verið af sér allan grun um að
báturinn væri ofansjávar eða að
skipverjar hafi komizt i björgun-
arbát. Brak fannst úr bátnum og
einnig fannst gúmmíbjörgunarbát
ur og lóðabelgúr og björgunar-
hringur, merkt Svani.
Skipverjar á Svani voru Ásgeir
Karlsson skipstjóri, Einar Jó-
hannsson stýrimaður, Friðrik Mar
íasson 1. véistjóri, Jón Helgason
2. vélstjóri, Jóel Einarsson mat-
sveinn og Hermann Lúthersson.
Voru þeir allir frá Hnífsdal, nema
sá síðastnefndi var úr Kópavogi,
en trúlofaður stúlku frá Hnífsdal.
Allir voru skipverjarnir ungir
menn með fjölskyldur, nema Jóel
Einarsson var miðaldra maður og
ókvæntur.
Síðast heyrðist til bátsins um
miðjan fimmtudaginn 22. þ.m. Þá
var hann staddur utan við ísa-
fjarðardjúp á leið til lands, og
var allt með felldu. Um kvöldið
Litlu næturgalarnir komu í gær
Franski söngkórinn, Litlu
næturgalamir, komu hingað til
iands í gærdag og héldu fyrstu
söngskemmtunina í gærkvöld
kl. 7 í Háskólabíói. í kórnum
eru 33 drengir á aldrinum 10
til 20 ára. Kórinn er frá borg-
inni Roubaix í Norður-Frakk-
landi og stjórnandi kórsins er
Braure ábóti. Kórinn hefur
starfað í 14 ár. Kórinn átti að
koma hingað til lands 1 fyrra-
dag, en flugvélin gat ekki lent
vegna veðurs og seinkaði því
komu kórsins um hálfan sólar-
hring. Kórinn mun dveljast hér
til '3. janúar. Önnur söng-
skemmtun kórsins verður í
Landakotskirkju í kvöld og er
uppselt. Kórinn^mun syngja í
Kópavogskirkju annað kvöld
kl. 9 og í Bæjarbíói í Hafnar-
firði á laugardag.
Leitinni hætt
SJÖDÖMUR EKKI
HÁLDINN H
28. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3