Áramót - 01.11.1905, Síða 7

Áramót - 01.11.1905, Síða 7
stendur yfir á djöfullinn aö vera bundinn, svo að það verði blessaður hvíldartími fyrir hinn kristna söfnuð á jörðinni og hinn síðasti náðartími fyrir þá, sem enn hafa ekki veitt fagnaðarerindinu viðtöku. En þegar það tíma- bil er á enda, verður djöfullinn leystur aftur stutta stund og gjörir hina síðustu svæsnu árás á riki guðs á jörð- inni. Og svo kemur endirinn, og hann verðivr bundinn um eilífð fOp. 20, 7—io). — Þessi lærdómur um iooo ára rikið er yfir höfuð að tala torskilinn, og fullkominn skilning á honum fáum vér ekki fyrr en tímar fullkomn- unarinnar renna upp. 3. Eftir upprisuna kemur dótnurinn. Hann er sagð- ur fyrir svo viða í nýja testamentinu, að það er óþarft að tiltaka sérstaka staði. Það er Jesús Kristur, sem á að dæma heiminn, og hann dæmir hvern mann eftir verkum hans, þ. e.: eftir þvi, hvernig lífsstefna hans og líf hefir verið hér á jörðinni. Við dóminn verður gjörður eilífur greinarmunur á góðum mönnum og vondum, þeim, sem hafa viljað þiggja hjálpræði Jesú Krists og láta anda hans ráða lifsstefnu sinni, og þeim, sem hafa ekki viljað þetta. Þá verða hinir vondu um eilifð reknir burtu frá guði, og tilvera þeirra eftir það verður sú vansæla, sem er óumflýjanleg afleiðing þeirrar syndar, sem ekki er fyrirgefin. Þetta hlutskifti hafa þeir sjálfir kosið sér, jþví fyrirgefningin, náðin, stóð þeim til boða, en þeir vildu ekki þiggja hana. Um þetta vansælu-ástand talar ritningin alt af í likingum, svo að vér getum ekki gjört oss ljósa grein fyrir því, í hverju það er fólgið; og cg vona, að enginn af oss fái nokkurn tíma að þekkja það. Mannlegan huga hryllir, eins og eðlilegt er, við

x

Áramót

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Áramót
https://timarit.is/publication/247

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.