Alþýðublaðið - 17.01.1967, Qupperneq 2
Banaslys a
dráttarvél
Flateyri, — HH — SJÓ
Það slys vildi til á laugardag
fnn um kl, 2 að bóndi á Ytri-Veðr
á. Guðmundur Majasson varð und
ir dráttarvél og beið bana.
Erfiður rekstur
brezkra togara
Brezkir togarar eiga nú við
mikla fjárhagserfiðleika að stríða.
Hafa nokkrir útgerðarmenn lent í
svo miklum vanskilum, að hið op
inbéra White Fish Authority hef-
ur teki ðtogara þeirra upp í skuld
ir. Fýrir nokkrum dögum skýrði
stórblaðið Guardian svo frá að
þessir togarar hefðu nú verið seld
ir, en svo lítið verð fékkst fyrir
skipin að hið opinbera varð fyrir
stórfelldu tapi.
White Fish Authority (sem
mætti kalla Bolfiskráð, en í Bret
Framhald á 15. síðu.
Gerðist slysi’ð er Guðmundur var
á leið frá Flateyri við Önund
arfjörð, eftir að hafa skilað mjólk
í Djúpbátinn, sem kemur þar tvis
var í viku til að sækja mjólk.
Mjög hált var á veginum og er
álitið að dráttarvélin hafi runn
ið til í hálkunni með þeim afleið
ingum að hún fór útaf veginum og
hvolfdi og varð Guðmundur und
ir henni. Tveim tímum siðar eða
um kl. 4 kom svo maður að Guð
mundi, þar sem hann lá undlr
dráttarvélinni. Hringdi hann þeg
ar til Flateyrar frá næsta bæ og
komu tveir bííar honum til að
stoðar. Var Guðmundur látinn, er
að var komið og hefur svo að lík
indum verið, er fyrrnefndur mað
ur kom að honuffi.
Atburður þessi gerðist við Sela-
ból miðja vegu miUi Flateyrar og
Ytri Veðrár. Svo hált var á veg
inum'að ekki var fært nema jepp
um með keðjum á öllum hjólum.
Guðmundur bjó að Ytri-Veðrá á-
samt móður sinni og annarri aldr
aðri konu.
Vörukynning á súpum í Lidokjöri
í gær var vörukynning í verzluninni Lídókjör á ýmiss konar sósum, einnig grænmetissalati, sem fram-
leitt er í verzluninni sjálfri Fjölda margar húsmæð r notfæröu sér þessa kynningu og fengu sér að
smakka á hinum ljúffengu sósum. Næsta þriðjudag mun svo verða önnur vörukynning í verzlunlnnl og
þá á ýmiss konar salötum. Fyrirhugaö er, að hafa /örukynningar í verzluninni einu sinni í viku.
ABF gert aoalmenn-
ingshlutafélagi
Reykjavík, EG.
Stjórn Ahnenna byggingarfé-
lagsins hf. hefur ákveðið að breyta
félaginu í almenningshlutafélag
Það er allt á floti viðar en hér á Islandi. I heimsm
að vita hvenær því linnir, svo að dýrin í örkinni fái
að það flóð sé búið aö standa svo lengi, að þau hafi
lunum stendur yfir sannkallað Nóaflóð, og ekkert
fast land undir fætur á ný. Annars segja nú sumir,
aldrei vitað hvað þurrlendi er.
Býrjum aftur á félagsvistinni fimmtudaginn 19. janúar. Hún
hefst kl. 8.30 í Lídó. Húsið opnað kl. 7.30. Veitt verða verð-
laun frá síðustu þriggja-kvöldkeppninni auk kvöldverðlauna.
Óttar Yngvason, framkvæmdastjóri flytur ávarp og töfra
maðurinn Tom Miller skemmtir.
Dansað til kl. 1. Illjómsveit Ólafs Gauks ásamt söngvurunum
Svanhildi Jakobsdóttur og Birni R. Einarssyni. Athugið: Þeir
sem mæta fyrir kl. 8.30 þurfa ekki að greiða rúllugjaldið.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
og mun lilutafjárútboð fara fram
nú alveg á næstunni, eða þegar
gengið hefur verið frá formsat-
riðum. Formaður stjórnar félags-
ins, Björn Ólafssoíi fyi-rverandi
ráðherra skýrði frá þessu á fundi
með ftéttamönnum í gær. Þar
skýrði Árni Snævarr framkvæmda
stjóri félagsins einnig frá ýmsum
verkefnum, sem það hefur annazt
I á undanförnum árum. í gær voru
26 ár liðin frá stofnun félagsins.
Björn Ólafsson lét svo um mælt
við fréttamenn í gær, að félagið
vildi nú rísa undir nafni, og hefði
stjórn þess nýlega ákveðið að efna
til hlutafjárútboðs meðal almenn-
ings og gera félagið þannig að al-
menningshlutafélagi, en Slíkt
hefði ekki oft verið gert hérlend-
is áður, Hann kvað stjórn félags-
ins telja að það gæti orðið merk-
ur brautryðjandi, ef tækist að efla
það á þennan hátt og kvaðst vona
að þetta hlyti góðar undirtektir
meðal almennings.
Árni Snævan- framkvæmdastjóri
félagsins rakti sögu félagsins í
stuttu máli, en í gær voru ná-
kvæmlega 26 ár síðan það var
stofnað. Fyrsti formaður stjórnar
þess var Ilörður Bjarnason, húsa-
meistari ríkisins, en fyrsti fram-
kvæmdastjóri Gústaf E. Pálsson,
borgarverkfræðingur. Á fyrsta
áratugnum annaðist félagið stækk-
un Ljósafossstöðvar, byggingu
orkuvers í Andakíl, og byggingu
síldarverksmiðju á Skagaströnd
og á Siglfirði. Síðar varð félagið
aðili að sameinuðum verktökum
og var lengi vel einn stærsti aðili
þeirra samtaka. Um svipað leyti
hóf það samvinnu við erlend fyr-
irtæki um hönnun áburðarverk-
smiðjunnar og sementsverksmiðji
unnar.
1957 hófst samvinna Almenna
byggingarfélagsins og danska verk
takafyrirtækisins E. Phil & Sön
um byggingu Steingrímsstöðvar og
var Efrafall stofnað upp úr því.
Þá hefur félagið haft með höndum
rannsókn og hönnun Sundahafn-
,ar, stækkun landshafna í Þorláks-
höfn og Njarðvík, vegalögn um
Ólafsvíkurenni o. fl. Stærsta á-
takið, sem félagið hefur ráðizt í
er þriðjungsaðild þess að bygg-
ingu orkuvers við Búrfell. Síðan
sagði Árni Snævarr:
Stjórn ABF hefir fullan hug á
að sníða félaginu þann stakk, að
það 'geti i framtíðinni sem hing-
að til vaxið og verið virkur þ'átt-
takandi i uppbyggingu landsins.
Til þess að svo megi verða ber,
að dómi stjórnar félagsins, nauð-
syn til að auka eigið fjármagn
þess, svo að það að því leyti til
verði þess umkomið að takast á
við hin stóru verkefni.
í samræmi við þetta hefur síð-
asti aðalfundur félagsins samþykkt
að gera félagið að almennings-
hlutafélagi á þann liátt, sem hér
segir: i
a) Að bjóða út nýtt lilutafé í fé*
laginu til sölu á almenmml
markaði við nafnverði.
b) Að hlutafé það, sem fyrir er f
félaginu, njóti réttar til tvö-
faldrar arðgreiðslu, en hafi eng-
in önnur forgangs- eða sérrétt—
indi.
Eigið fé félagsins er nú í ársbyrj-
Framhald á 15. síðu.
250 skip í Færeyjum
í færeyska flotánum voru nú um
áramótin 205 skip, en voru 215 ár
ið áður. Á síðasta ári voru keypt
þrjú ný skip til Færeyja. Eitt af
þeim, 340 tonna flutningaskip var
byggt í Færeyjum. 724 tonna skut
togari var keyptur til Færeyja, og
var liann byggður í Þýzkalandi.
Af skipaflotanum eru 170 fiski
skip, 11 farþegaskip og 14 ílutn
ingaskip.
2 17. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ