Alþýðublaðið - 22.01.1967, Blaðsíða 9
9
Surínudágs Afþýðubla'ðið - 22. Janúar 1967
Sergei Witte
f t
og var meðal vaídamestu manna
ríkisins, en keisarinn vann gegn
honum á margar lundir á bak við
tjöldin, þótt. hann léti oft líta
svo út á yflrborðinu, sem hann
styddi Witte heils hugar.
Witte var rótgróinn fylgismaður
einveldisins og hann hafði megn-
ustu fyrirlitningu á lýðræðisskipu-
lagi því, sem þá var í bernsku í
Englandi og Frakklandi. A hinn
bóginn var hann ekki andvígur
breytingum, og honum var vel
Ijóst, að Rússland kæmist aldrei
jafnfætis öðrum ríkjum, nema þar
yrði ör félagsleg og efnahagsleg
framþróun. Witte vildi þó halda
breytingunum í skefjum, og þær
endurbætur, sem hann kom á,
stöfuðu fremur af hagkvæmnis-
sjónarmiðum en mannúðarhug-
sjón. Þannig lét hann til dæmis
stytta vinnuviku verkamanna nið-
ur í IIV2 stund á dag, af því að
hann taldi að afköst yrðu þá
meiri og því hagur af stytting-
unni. Hann var einnig andvígur
Gyðingaofsóknum þeim, sem inn-
anríkisráðuneytið og lögreglan
stóðu fyrir með samþykki keis-
arans, ekki af því að honum væri
neitt sérlega hlýtt til Gyðinga
sjálfum eða hann væri andvígur
kynþáttafordómum sem slíkum,
heldur benti hann á, að þar eð
útilokað væri að útrýma Gyðing-
um með öllu væri hagkvæmara
að fá þá til að falla inn í rúss-
neska þjóðfélagið á jafnréttis-
grundvelli við aðra.
Þegar Witte tók við embætti
fjármálaráðherra var Rússland
mjög skammt á veg komið félags-
lega og efnahagslega, og þótt það
teldist til stórvelda álfunnar, var
það sannkallaður risi á leirfótum.
í Krímsstríðinu hafði það greini-
lega komið í Ijós, hve völtum fót-
um Rússland raunverulega stóð,
og það hafði leitt til þess að
bændum væri gefið frelsi að
nafninu til, en þeir höfðu áður
verið raunverulegir þrælar góss-
eigenda og aðalsmanna. Einnig var
farið að leggja járnbrautir um
landið og var gert ráð fyrir að í
kjölfar þeirra gæti átt sér stað iðn
þróun í landinu, því að þar með
aðamyndunar og flutninga. Fjár-
magnið til þessara framkvæmda
væri skapaður grundvöllur mark-
var þó að mestu leyti erlent — og
/fengið með mjög óhagstæðum
kjörum. og rússneskir athafna-
menn sýndu lítinn lit á að fram-
leiða vörur fyrir innanlands-
markað.
Til þess að bæta úr þessu lagði
Witte á háa innflutningstolla, og
varð það til að ýta undir inn-
lenda framleiðslu. En fleira varð
að koma til, til þess að rétta f.jár-
haginn við. Rússneskir peninga-
seðlar stóðu langt neðan nafn-
virðis, og erlendir fjármálamenn
fengust ekki til að leggja fjár-
magn í framkvæmdir í Rússlandi,
nema með afarkostum. Fyrir-
rennarar Wittes í embætti fjár-
málaráðherra höfðu gert tilraun-
ir til að treysta gjaldmiðilinn, en
þær tilraunir höfðu ekki tekizt.
Witte tókst hins vegar að safna
gullíorða, sem gerði honurri
kleift árið 1887 að láta nýja gull-
tryggða rúblu koma í stað eldri
pappírspeninga. Þessi endurbót á-
samt góðu sambandi Wittes við
fjármálamenn í Evrópu gerði rúss-
nesku stjórninni kleift að fá hag-
kvæm uppbyggingarlán í Evrópu,
aðallega Frakklandi og Belgíu.
Vegur Wittes hjá keisaranum
fór hins vegar síminnkandi. —
Witte átti sífellt í árekstrum við
innanríkisráðuneytið, en keisar-
inn dró yfirleitt taum þess. Drottn
ingin var einnig andvíg Witte, en
Nikulás II., sem var veikgeðja og
ístöðulítill maður, fór iðulega að
hennar ráðum um stjórnarathafn-
ir. Þá lék keisaranum hugur á
að efla álit landsins með styrj-
öldum, en Witte lagði kapp á a'ð
viðhalda friði til þess að koma
fjárhagnum i gott horf. Er Kína
hafði beðið ósigur fyrir Japönum
árið 1895, hafði Witte ráðið því,
að Rússland tók Kína undir vernd-
arvæng sinn, og í staðinn fékk
hann ítök og verzlunarfríðindi í
Mansjúríu. Þegar önnur ríki ætl-
urðu að notfæra sér veikleika Kína
til að ná svipuðum ítökum, voru
ráðin hins vegar tekin af Witte
og sú stefna tekin, að taka þátt í
kapphlaupinu og reyna að hrekja
hina burtu. Þetta tókst í svip, og
það hvatti keisarann til að beita
sömu aðferð gegn Japönum, sem
voru teknir að búa um sig í Kína
og Kóreu. Witte var leystur frá
störfum, en afleiðing þessarar
stefnu var styrjöld Rússa og Jap-
ana 1904—5.
Styrjöldin varð mikið áfall fyr-
ir Rússa. Rússnesku hershöfðingj-
arnir sem fáum árum áður höfðn
brytjað niður kínverska sveita-
menn af miklum hetjumóð, reynd-
ust lítils megnugir, þegar til
Framhald á 10. síðu.
Nikulás III.
Afmælisútsala
Vegna 35 ára starfsafmælis sem garðyrkjumað
ur, gef ég 10% <afslátt þessa 'viku af öllum vör
um og blómum í Blómaskála mínum í Hvera-
gerði og Blómaverzlun Michelsens Suðurlands
braut 10.
Næg bílastæði. — Sími 31099.
PAUL MICHELSEN.
Þorramatur
í öskjum fyrir tvo.
16 tegundir í hverri öskju.
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178 . Sími 34780
Aðalbókarasta5a
Stórt fyrirtæki óskar eftir 'að ráða aðalbókara
sem fyrst. Umsækjendur leggi inn nafn ásamt
upplýsingum um fyrri störf og kaupkröfur
merkt ,,Aðalbókari“ fyrir 4. febrúar n.k.
Algerri þagmælsku heitið.
SAMVINNUSKÓLINN BIFRÖST
Stúlku vantar að Samvinnuskólanum.
Upplýsingar í símstöðinni að Bifröst, Borgar-
arfirði.
Samvinnuskólinn Bifröst.
SÖLARKAFFI
ísfirðingafélagsins verður að Hótel Sögu,
Súkiasal, miðvikudaginn 25. janúar kl. 8.30
e. h. — Góð skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag kl. 4-6 í and
dyri Súlnasals. Borð tekin frá á sama tíma.
STJÓRNIN.
Frá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
Andrés Ásmundsson, læknir
hættir störfum sem heimilislæknir frá 1. febr-
úar nk. Samlagsmenn sem hafa bann sem
heimilislækni, snúi sér til afgreiðslu samlags-
ins, sýni samlagsskírteini og velji lækni í hans
stað.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Frá friðarráðstefnunni eftir styrjöldina við Japan,