Alþýðublaðið - 26.01.1967, Page 2
Staðgengill Kys
sviptur embætti
I.AK>Dí€i.C.!SC<-T-Zu/\N ,
sem stjórnin
anir
SAIGON, 25. janúar (NTB-
AFP) — Varaforsætisráðherra
Suður-Vietnam, Huu Co hershöfð-
tngja, var opinberlega tilkynnt í
Hongkong í dag, að honum hefði
verið vikið úr embætti og yrði
e-tefnt fyrir herrétt ef hann sneri
aftur til Saigon.
Co og kona lians eru sökuð
um spillingu. Samkvæmt góðum
heimildum ákvað herforingja-
stjórnin í Suður-Vietnam að setja
Có af fyrir rúmri viku.
Um leið samþykkti stjórnin, að
gripið skyldi til ýmissa ráðstaf-
ana gegn 30—40 öðrum foringj-
um hersins, aðallega stuðnings-
mönnum Cos, hermir AFP Tveir
liðsforingjar liafa verið hand-
teknir, en aðrir hafa verið svipt-
ir ferðafrelsi
Reuter hermir, að Co hershöfð-
ingi, sem átti mikinn þátt í falli
Diemstjórnarinnar 1963, hafi ver-
ið einn af fáum sunnanmönn-
um“, sem enn sátu í herforingja-
stjórninni. Flestir ráðherrarnir
erú fæddir í Norður-Vietnam.
Fiestir hinna 30—40 liðsforingja,
hefur gert ráðstaf-
gegn, eru einnig fæddir í
Suður-Vietnam. Oft hefur kast-
azt í kekki með norðan- og sunn-
anmönnum í suður-vietnömsku
stjórninni.
Aðgerðirnar ‘gegn Co og félög-
um hans geta orðið upphafið
að víðtækum breytingum á stefnu
stjórnarinnar, að sögn Reuters.
En AFP hermir. að brottvikning
XIMIIIIIII t lllll IIIIIIIII111111111IIIII lllllll IIIII11111111111111111111
1 •• H
| Omurlegt |
| ástandí |
1 Brasilíu I
1 RIO DE JANEIRO, 25. jan.
| (NTB-Reuter) — Ömurlegir
H timar bíffa liinna fjögurra
1 milljóna íbúa Rio de Janeiro
| vegtna flóðanna þar. Búizt er
1 yið langvarandi skorti á vatni
I matvælum og rafmagni. 300
| —600 manns hafa farizt í
1 náttúruhamförunum og óvíst
| fer livenær ástandið kemst í
I eðlilegt horf.
Talið er, að viðgerðir á
| jþjóðvegunum muni taka þrjá
| imánuði. Stór svæði ræktaðs
| lands eru undir vatni og enn
1 er leitað að fólki undir leir-
| skriðum. Enn tók að rigna í
H Rio í kvöld og olli það ótta \
! meðal íbúanna, en spáð var |
j betra veðri. Fólki er ráðlagt \
! að láta bólusetja sig gegn |
| |augaveiki.
iiiiiiu ii 11111111 n n n iiiiiiiiiiiiii n imiiiiiiiMi ■■11111 iii n iiiiii
2 26. janúar 1967 —
Cos hershöfðingja muni ekki leiða
til alvarlegra erfiðleika. Bent er
á, að Co njóti víðtæks stuðnings
meðal þjóðarinnar.
Co hershöfðingi hefur verið í
heimsókn ó Formósu og kom við
í Hongkong á heimleiðinni. Sam-
tímis þessu er Ky forsætisráð-
herra í heimsókn í Nýja Sjálandi.
Kunnugir telja, að Ky hafi vilj-
að að Co dveldist erlendis með-
an hann væri sjálfur fjarverandi.
Aðalmálgagn norður-vietnamska
kommúnistaflokksins sagði dag,
að Ky hefði vikið Co frá af ótta
við að hann gerði byltingu
20.000 flýja
til Rússlands
MOSKVU, 25. janúar (NTB) -
Sovézka blaðið ,,hiteraturnaja
Gazeta“ staðjcsti í dag, að mjög
alvarlegt ástand ríkti á landamær-
um Kína og Sovétríkjanna. Kós-
akkar, Kirgísíumenn og jleiri
þjóða menn eru ajtur steknir að
Sviptingar á
Rauðatorginu
MOSKVU, 25. jan. (NTB-AFP) —
Kínverska sendiráðið í Moskvu
bar í dag fram harðorð mótmæli
við Sovétstjórnina vegna árekstra
kinverskra stúdenta og sovézkrar
lögreglu á Rauða torginu í morg-
un. Fjórir eða fimm kínverskir
stúdentar munu hafa særzt.
Kínverslc heimild hermir, aff
hópur stúdenta, sem eru á heim-
leiff frá Vestur-Evrópu, hafi liald-
iff til Rauffa torgsins aff votta Len-
ín og Stalín virðingu sína. Stúd-
entarnir gengu fylktu Iiði aff graf-
hýsi Leníns og múrum Kremls,
þar sem Stalín Ilggur nú grafinn,
en þcgar þeir tóku aff syngja „In-
ternationalinn" réðist sovézk lög-
regla á þá.
Sovézkur talsmaður t/saði stað-
hæfingum Kínverja á bug og kall-
Framhald á 15. síðu.
jlýja jrá Sikiang til rússnesku
Mið-Asíu til að forðast nauðung-
arflutninga og jangabúðir.
Margir flóttamanna, þeirra á
meðal herforingi nokkur, segja að
andsovézk stefna Kínverja sé nú
komin á nýtt og alvarlegt stig.
Kinverjar gera tilkall til stórra
landsvæða, í Sovézku Mið-Asíu. Að
undanförnu liafa ýmsir sovézkir
ráðherrár, embættismenn flokks-
ins og herforingjar ferðazt um Sov
étríkin til að skýra frá kínversku
hættunni. Kosygin forsætisráð-
herra og Dimitri Polyansky, hinn
náni samstarfsmaður hans, fóru
nýlega í eftirlitsferð um landa-
mærahéruðin lengst í austri og í
Mið-Asíu.
Þetta er í fyrsta sinn sem sov-
ézk blöð segja frá því, að kínversk-
ir flóttamenn hafi beðið um hæli
í Sovétríkjunum. Um 20.000 Kín-
verjar munu hafa flúið yíir landa-
mærin til Sovétríkjanna.
Hér mun einkum vera um að
ræða fólk af þjóðum, sem búa
beggja megin landamæranna. Einn
flóttamannanna, Balchasj Bafan-
dan ofursti, hefur sagt, að nokkr-
ir kósakkskir menntamenn (haft
sætt gagnrýni þar sem þeir vildu
stofna sérstakt riki allra þeirra
Ujgura, Kósakka og Kirgísa sem
búa í Kína, Sovétríkjunum og Mon
gólíu. Kínverskir leiðtogar hafi
viljað sanna, að þessar þjóðir
væru kínverskar og ættu ekkert
Framhald á 15. síðu.
''+rZvþM'
v .. %
,
Slf, flugvél Landhelgisgæzlunnar, fór í ískönnunarflug í fyrradag.
Hafísinn var þá á svipuffum slóffum og áffur.
Aðalfundur Verkakvennafél.
Keflavíkur og Njarðvíkur
Affalfundur Verkakvennafélags
Keflavíkur og Njarffvíkur var
haldinn í Aðalveri, Kefíavík sl.
sunnudag.
Þar sem frk. Vilborg Auðuns-
dóttir, _ fráfarandi formaður gat
ekki verið viðstödd sökum sjúk-
leika setti varaformaður frú Anna
Pétursdóttir fundinn, og tiinefndi
hún frú Ólafíu Guðmundsdóttur
fundarstjóra. Mikið fjölmenni var
á fundinum og ýmis mikilvæg mál
tekin til 1 umræðu. Stjórnakosn
ing fór fram og hlutu eff.irtald
ar konur kosningu: Formaður var
kosin frú Þóra Gísladóttir, vara-
formaður frú Anna Pétursdóttir,
ritari frú Ólafía Guðnnmdsdóttir,
gjaldkeri frú Guðrún Jónsdóttir,
fjármálaritari frú Ásta Kristjáns-
Smjörneyzla eykur ekki chole-
sterin-innihald blóðsins
dóttir. í varastjórn voru kosnar frd
María L. Jónsdóttir og frú Stein-
unn Jónsdóttir. Ákveðið var að
efna til framhaldsaðalfundar, þar
sem ekki var hægt að taka af-
stöðu til ákveðinna mála fyrr en.
síðar. Verður sá fundur haldinn
seinna í vetur. Allar upplvsingar
varðandi félagsstarfsemina veitir
formaður félagsins, frú Þóra
Gísladóttir, Túngötu 20, Keflavík,
sími 1348,
Tveir þýzkir næringarefnafræð-
ingar, sem rannsakað hafa áhrif
smjörfitu og jurtafitu á manns-
líkamann segja, að smjörfitan sé
betri en jurtafeiti í næringu
manna, en fyrir nokkrum árum
var skýrt frá því, að hættulegt
væri að borða of mikið smjör
vegna þess að það yki cliol-
esterol-innihald blóðsins, aftur á
móti væri jurtafeiti holl og stuðl
aði fremur að eyðingu fyrrgreinds
efnis I blóðinu. Efnafræðingarnir
segja, að jurtafeitin sé svo auðug
af linolsýru, að verkanir hennar
geti haft óholl áhrif á mannslík-
amann, ef aðgæzla er ekki við-
höfð
Rannsóknir þeirra hafa sýnt, að
sé smjörs neytt minnki cholester-
olmagn blóðsins en ekki hið gagn
stæða. Rannsóknir þessar fóru
fram í Kiel og sönnuðu, að chol
esterolmagn blóðsins minnkaði við
smjörneyzlu, og að æða- og hjarta
veilur eiga á engan hátt rót sína
að rekja til smjörneyzlu. í Ijós
kom, að í Þýzkalandi voru það
smjörlíkisframleiðendurnir, sem
höfðu komið á framfæri þeirri
staðhæfingu, að dýrafita gæti or-
sakað hjarta- og æðasjúkdóma.
Fyrrgreyndar upplýsingar komu
fram í Búnaðarblaðinu Frey, 1.
tbl. 1967.
Bonnstjórnin
vingast við
Rúmeníustjórn
BONN, 25. jan. (NTB-Reuter) —
Corneliu Manescu, utanrifcisráff-
heiTa Rúmeníu, kcmur til Bonn
á mánudaginn til viðræffna við
| vestur-þýzku stjórnina. Þessar við
! ræður leiffa sennilega til þess aff
l Vestur-Þýzkaland og Rúmenía
i taka upp stjórnmálasamband, sam-
1 kvæmt áreiöaniegum hcimildum 1
i Bonn.
Svipuð þróun virðist vera að ger
j sat í sambúð Vestur-Þjóðverja oj
Ungverja. Ráðuneytisstjóri vestur-
þýzka utanríkisráðuneytisins, Rolf
Lahr, dvelst um þessar mundir í
Búdapest. Bonnstjórnin stefnir nú
markvisst að því að bæta sambúð-
ina við ríkin í Austur-Evrópu, og
getur það orðið til þess að Ul-
brichtstjórnin í Austur-Þýzka*
landi lækki enn í áliti. ,
ALÞYÐUBLAÐIÐ