Alþýðublaðið - 26.01.1967, Side 9
skot í myrkri
SKOT í MYRKRI. A shot in
the dark. Bandarísk frá 1964.
Leikstjóri og framleiðandi:
Blake Edwards. Handrit: Blake
Edwards og William Peter
Blatty. Tónlist: Henry Mancini.
Tónabíó. íslenzkur texti: Loftur
Guðmundsson. 101 mín.
Blaki Edwards er anzi fjölhæfur
leikstjóri. Skemmst er að minnast
ágætrar myndar hans um hroða-
legar afleiðingar ofdrykkju, Dag-
ar víns og rósa, en auk þess gerði
hann sakamálamyndina Á valdi
ræningja (Experiment in Terror,
Stjörnubió), betur gerð en margar
aðrar af því tagi. Þá má ekki
gleyma því, að hann stjórnaði
einnig Bleika pardusnum, ein-
hverri skemmtilegustu grínmynd,
sem gerð hefur verið hin síðari
ár. Og nú hefur undanfarið birzt
í kvikmyndasal Tónabíós Skot í
myrkri, sem er eins konar fram-
liald af Bleika pardusnum. Þar er
að vísu ekki eins mikið bragð
að skopinu og í þeirri fyrri, og
að líkindum verða þessar Clouse-
au-myndir orðnar hvimleitt fyrir-
brigði á kvikmyndamarkaðnum,
ef til lengdar lætur.
Upphaf: Maður er drepinn. —
(Ósköp algengt fyrirbæri í glæpa
myndum). Clouseau lögreglufull-
trúa (Peter Sellers) er falin rann-
sókn málsins. Þrennt er drepið
í-viðbót, án þess hann fái að gert.
Ung og fögur stúlka, Maria Gam-
brelli (Elke Sommer), er grunuð
um morðin. Clouseau verður hrif-
Framhald á 10. síðu.
Crabb enn á lífi?
Breski froskmaðurinn Lionel
Crabb, sem hvarf á dularfullan
hátt fyrir um 10 árum síðan, er
enn á lífi og býr í Austur-Þýzka-
landi. Þetta var upplýst- í blaðinu
Östpreussenblatt, sem gefið er út
í Hamborg. Samkvæmt frásögn
blaðsins vinnur Crabb við að
þjálfa frosknjen'n fyrir austur-
þýzka flotann í Boltenhagen við
Eystrasalt. Augljósf er að Crabb
er undir stöðugu eftirliti sovézku
. leyniþj ónustunnar.
Crabb, sem nú er 57 ára að ald
ri, hvarf í aprílmánuði 1957 Vann
hann þá fyrir brezku leyniþjón-
ustuna og var að athuga botninn
á nýjasta orustuskipi Rússa, Ord-
shonikidse, en skipið var búið sór-
stökum tækjum til að breyta segul
sviði. Skip'ið kom til Englands með
þá Bulgarin og Krustjov í opin-
bera heimsókn á sínum Mma, og
lá það í Portsumouthhöfn þegar
Crabb fór í rannsóknarleiðangur
sinn. En hann kom ekki til .baka
og var álitið að annað hvort hefði
Framhald á 10. síðu.
NEW YORK
Loftleiðir ætla að ráða á næstunni nokkra íslendinga —
menn og konur — til starfa við farþegaafgreiðslu á Kenn
edyflugvelli í New York.
Helztu ráðningarskilmálar eru:
1. Umsækjendur séu á aldrinum 20-25 ára, liafi góð'a al-
menna menntun, gott vald á enskri tungu, en auk þess
sæmilega kunnáttu í dönsku eða öðru Norðurlandatungu
máli. Þýzku- eða frönskukunnátta að auki er æskileg, en
ekki nauðsynleg
2. Umsækjendur séu vel til manns komnir, hafi þægilegt
viðmót, jafngeðja og treysti sér til að' vinna á vöktum,
jafnvel við' erfiðar aðstæður.
3. Umsækjendur þurfa að sækja undirbúningsnáinsskeið í
Reykjavík á kvöldin í febrúar nk., en ráðningin gildir
frá 1-. marz n.k.
4. Byrjunarkaup er U.S. $ 440, sem hækkar upp I U.S.
$ 457 eftir 6 mánuði og U.S. $ 473 eftir eins árs starf.
5. Ráðningartíminn er bundinn til haustsins 1969.
Umsóknareyð'ublöð fást í afgreiðslum og skrifstofum Loft-
leiða, og skulu umsóknir hafa borizt ráðningardeild félags
ins fyrir 1. febrúar 1967.
loFTLEIDIR
SKÁK
Skákkeppni stofnana hefst um miðjan febrúar.
Þátttaka tilkynnist til Jóns Kristinssonar í síma
19927 eða í pósthólf 674 fyrir 5. febrúar n.k.
Stjórn Skáksambands íslands.
LOFTHITARAR -
LOFTRÆSTIVIFTUR
nýkomnir lofthitarar fyrir heitt vatn, sérlega
hentugir fyrir iðnaðarhúsnæði og bílskúra.
Loftræstiviftur fyrir iðnaðar- og gripahús.
ALUMINIUM- og BLIKKSMIÐJAN HF.
Skeifan 8, sími 33 5 66
Laugavegur 103, sími 1 12 25
Aðalsafnaðarfundur
Dómkirkjusafnaðórins
í Reykjavík verður haldinn í Dómkirkjunni
sunnudaginn 29. jan. 1967 kl. 5 síðdegis.
SÓKNARNEFNDIN.
Áskriítasíminn er 14901
26. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $