Alþýðublaðið - 26.01.1967, Síða 10
KastEjés
Framha'd aí 6. síðu.
ir, að tyrkneskum eyjarskeggjum
bærust ný vopn.
Gríska stjórnin hefur miklar á-
hyggjur af ástandinu. Paraskevop
olos forsætisráðherra athugar nú
möguleika á því hvort hann skuli
kalla krúnuráðið saman, en það
er skipað konunginum, leiðtogum
stjórnmálaflokkanna otg fyrrver-
andi forsætisráðherrum til að á-
kveða, hvort viðræðurnar við
Tyrki um Kýpurmálið skuli halda
áfram eða ekki.
Bæði Georg Papandreou og Kan
ellopolos, leiðtogar Miðflokkasam
bandsins og Róttæka þjóðarsam-
bandsfns (íhaidsflojkiísins), haifa
fallizt á, að þetta yrði góð lausn
á erfiðleikum bráðabirgðastjórnar
innar. en enn sem komið er hefur
prófessor Paraskevopoulos ekki
tekið ákvörðun. Ýmsir halda því
fram, að 'hann verði að hafa Mak
arios forseta með í ráðum og for
setinn ætti að sitja hvern þann
fund, sem ráðið kynni að lialda
um Kýpurmálið.
Róbert
Framhald af 7. síðu.
ihjónanna sérstaklega til að sjá
Róbert, 'og þar á meðal margir
jfuglafræðingar og vísindamenn,
Ijósmyndarar og blaðamenn. Ró-
.bert tók vel á móti öllum og
Ikvakaði glaðiega. Veiðimenn,
sem höfðu kynnzt Róbert, sögðu,
-<ð þeir myndu aldrei aftur geta
drepið lynghænur.
Róbert kunni vel við önnur
dýr. Hvolpur var meðal beztu vina
hans. Þeir léku sér saman x>g ef
að hvolpurinn sofnaði, læddist
Róbert bak við hann og goggaði
í rófuna á honum og virtist Ró-
bert hafa ósköp gaman af því,
þegar hvolpurinn vaknaði með
andfælum við þessa hrekki. En
Róbert var hræddur við aðra
fugla, sérstaklega máva.
Blaðsíðurnar í gestabók Ró-
berts fylltust nöfnum og kveðjum,
Róbert birtist á póstkortum, hann
sat fyrir hjá myndhöggvurum og
hann var beðinn að koma til New
York til að koma þar fram í sjón-
varpi. En Kienzle hjónin þvertóku
fyrir það. Þau höfðu heyrt að
páfagaukur nokkur, sem kom
fram í sjónvarpinu hefði veikzt
af hinum sterku Ijósum, og hvern-
ig myndi þá Róbert litlr þola
þau?
Það var aðeins elnu slnnl, sem
Róbert var óþægur viljandi, það
var þegar sonur Kienzle hjónanna
kom til að dvelja á heimilinu um
stundarsakir með fjölskyldu sína.
Róbert sá þá fósturforeldra sína
aðeins við máltíðarnar og hann
varð afbrýðisamur. Við borðið
fannst honum hann vera utanveltu
og gleymdur, þar sem hann var
á sínum stað með fræ, ávaxta-
safa og grænmeti í kringum sig,
þá flaug hann upp. Hann settist
fyrst á ábætinn og tróð á honum,
þar til fósturmóðir lians fór með
hann fram í eldhús til að þvo
lionum um fæturna. Þegar hann
kom inn aftur flaug hann beint
í fatið með káljafningnum og not-
aði nú bæði vængi og fætur við
að úða honum í kringum sig.
Þegar Róbert var þriggja ára
gamall fékk hann augnsjúkdóm og
hann átti einnig erfitt með að
kyngja. Það dró smám saman af
honum, en jafnvel síðasta dag-
Kaupum hreinar
léreftstuskur
%
Prenismiðja
Alþýðublaðsins
bi^oið:
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÓLK I
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ, I. og U.
HVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
NJÁLSGÖTU
LAUFÁSVEG
LANGAGERÐI
RAUÐARÁRSTÍG
GRETTISGÖTU
ESKIHLÍÐ
10 26. janúar 1,967 - ALÞÝÐUBLAÐLf)
in, sem hann lifði stóð hann fyrir
framan útvarpstækið og kvakaði
og hoppaði í takt við miðdegis-
tónleikana eins og hann var vanur
að gera. Klukkan 7 um kvöldið
fór hann eins og venjulega að
sofa á lambsullinni í litla kassan-
um sínum hjá hitalampanum,
og það kvöld í fyrsta skipti stakk
hann höfðinu undir væng eins og
fugla er siður, áður en hann sofn-
aði. Hann lá í þeirri stellingu, er
að honum var komið morguninn
eftir. Hann var dáinn.
Kvikmyndir
Framhald Úr opnu.
inn af henni og ætlar sér að verja
hana. Honum tekst það. Fjögur
morð — fjögur morð + fjögur
morð eru framin í viðbót, áður en
málið er til lykta leitt. Endir:
Koss (Ósköp algengt fyrirbæri í
gamanmyndum).
Ekki er hægt að segja um mynd
þessa, að maður hafi eins mikla
skemmtan af henni og Bleika
pardusnum. Helzt kemur þar til,
að túlkun Peter Sellers er of svip-
uð frá fyrri mynd; taktar hans
og hrakfarir of keimlíkt. Allt um
það er leikur Sellers með ágætum,
en kímnin nær samt ekki alltaf
settu marki. Bezti hluti myndar-
innar er eiginlega ekki sjálf kvik
myndin, lieldur teiknimynd, sem
á undan kemur; nokkurs konar
formáli við myndina. Af haglega
gerðum atriðum sjálfrar kvik-
myndarinnar kemur fyrst í hug
atriðið á einum skemmtistaðnum,
er morð nr. 5 er framið; einkar
smekklega unnið atriði.
Af . öðrum leikendum fer kyn-
þokkadísin Elke Sommer með
stórt hlutverk í myndinni, en leik-
ur hennar er ekki umtalsverður.
Herbert Lom fer sæmilega með
hlutverk Dreyfus lögreglustjóra.
SigurSur Jón Ólafsson.
Crapp
B'ramhald úr opnu.
hnnn drukknað eða að skipverjar
á herskipinu hefðu náð honum.
Blaðið sem birti fréttina um að
Crabb væri enn á lífi, segir að ó-
tilgreindur aðili hafi boðið því háa
peningaupphæð ef ekki yrði sagt
frá að Crabb væri á lífi og hvar
hann væri niðurkominn. Síðan
froskmaðurinn hvarf hefur sá
kvittur oft komið upp að hann
æri lifandi og fullyrt er að til séu
myndir af honum í rússneskum
flotabúningi.
Oldin
Framhald úr opnu.
við tilboði um uppgjöf. Þegar á i
árinu 1948 kom til blóðsúthellinga
í Palestínu milli Araba og Gyðinga
þá tók Bernadotte að sér það erf
iða hlutverk að gerast Sáttasemj
ari fyrir hönd Sameinuðu þjóð-
anna í þessari harðvítugu deilu.
Fylgdarmaður hans á leiðinni á
sáttafundinn hafði áður verið yf-
irmaður flughers Frakka.
Lík þeirra voru smurð og flutt
flugleiðis til Rhodos, en síðan sitt
með hvorri flugvélinni til Frakk-
lands og Sviþjóðar.
MARGIR HAFA
FALLH).
Eins og seglr að framan þá hafa
margir þjóðhöfðingjar og framá-
menn fallið fyrir morðingjahendi
á þessari öld. Þ.á.m. þessir: Me-
Kinley Bandar.fors. 1902, Alexand
er konungur og Draga drottning
í Belgrad árið 1903, Bobrikov,
Finnlandi 1904, Carlos konungur
í Portúgal og ríkisarfi hans í
Lissabon 1908, Georg Grikkjakon
ungur 1913, Franz Jósef erkiher-
togi og kona hans í Sarajevo 1914.
Stjórnmálamaðurinn Jean Jaurés
í París 1914, Raspútin í Moskvu
1916, Þýzki utanríkisrá^herrann
Ratenau í Berlín 1922, Rosa Lux
embourg og Karl Liebknecht í Ber
lín 1919. ítalski stjórnmálamaður
inn Matteotti 1924, Paul Doumer
forseti Frakklands 1932. Dolfuss
ríkiskanzlari, Austurríki 1934. A1
exander af Júgóslavíu og franski
utanríkisráðherrann Bartouh. Mar
seille 1934, Huey Long öldungar
deildarþingmaður USA 1934, Trots
ky Mexíkó 1940, Heydreic, „vernd
ari ríkisins" Prag 1942, Gandhi
Nýju Dehli 1948, Abdullah kon
ungur Jórdan í Jerúsalem 1951,
Folke Bernadotte í Jerúsalem 19
48, Feisal konungur írak, ríkisarfi
hans og forsætisráðherra í Bag
dad 1958, úkraínski stjórnmálamað
urinn Bandera í Miinchen 1959,
Lumumba forsætisráðherra í Leo
poldville 1961, John F. Kennedy
Bandaríkjaforseti 1963, Lalewa
forsætisráðherra Lagos 1966, og
Verwoerd forsætisráðherra Suður
Afríku í Jóhannesarborg 1966.
Sigríður Þorvaldsdóttir leikur
nú aðalhlutverkið í barnaleiknum
Galdrakarlinn í Oz, í stað Margrét-
ar Guðmundsdóttur, en Margrét
varð fyrir því óhappi að slasast á
fæti á sýningu í Þjóðleikhúsinu
fyrir nokkru. Margrét leikur um
þessar mundir í þremur leikritum
og varð að æfa aðrar leikkonur í
hlutverkum hennar.
Uppselt hefur verið á allar sýn-
ingar á Galdrakarlinum í Oz, og
verða næstu sýningar á leiknum
n.k. laugardag og sunnudag kl. 3
báða dagana. Myndin er af Sig-
ríði Þorvaldsdóttur í hlutverki
sínu í Galdrakarlinum í Oz.
GNOÐARV OG
SÓLHEIMA
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, EFRI
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLEN
HRINGBRAUT
FRAMNESVEG
Úr dönsku söngvamyndinni Leðurblakan, sem Bæjarbíó sýnir um
þessar mundir. Á myndinni sjást aðalleikendurnir Lily Broberg,
Poul Reichardt og Ghita Nörby, en auk þess koma fram í þessari
kvikmynd íslenzku listdansararnir Jón Valgeir og Margrét Brands
dóttir.
SÍMI 14900
Auglýsið í Alþýðublaðinu