Dagur - 22.10.1997, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 22 .OKTÓBER 1997 - 23
FÍNA OG FRÆGA
Schwarzenegger
verður pabDi
Amold
Schwarzenegger varð
faðirífjórða sinn er
eiginkona hansMaria
Shriverfæddi son í lok
síðasta mánaðar. Fyrir
áttuþau hjón tvær
dæturog einn son.
Meðgangan var Maríu erfið og
laeknar sögðu hana vera að
leggja líf sitt í hættu með þung-
uninni. „En barnið var aldrei í
neinni hættu einungis ég, og ég
ákvað að taka áhættuna," segir
María sem er ákaflega sæl með
hinn nýja fjölskyldumeðlim, en
segir einnig að fleiri muni börn-
in ekki verða.
Schwarzenegger hefur ekki,
fremur en eiginkonan, verið
heill heilsu og gekkst nýverið
undir hjartaaðgerð. Hann mun
vera að ná sér og virtist hinn
sprækasti þegar ljósmyndari
festi mynd af honum og syni
hans Patrick.
Schwarzenegger er að jafna sig eftir hjartaað-
gerð en virðist hinn ánægðasti enda orðinn
pabbi í fjórða sinn.
fréttir
P I RT ÁN
ABYRGÐAR
Arfleiddi Jesú að
eigmun síiiiim
Earnest Digweed lést fyrir 21 ári
síðan. I erfðaskrá sinni mælti
hann svo fyrir að eignum hans,
sem metnar eru á rúmlega 26
þúsund pund eða sem svarar
tæplega þremur milljónum ís-
lenskra króna, skyldi ekki ráð-
stafað fyrr en að 80 árum liðn-
um. Ef svo færi að Jesús Kristur
sneri aflur á þeim tíma þá
skyldu allar eigurnar renna til
Hans.
Reyndar gerir bandarískur
sölumaður kröfu til arfsins, því
þegar hann bankar á dyr fær
hann ótrúlega oft sömu við-
brögðin: „Jesús Kristur, ekki þú
einu sinni enn!“
Fylgdi fordæmi
Tysons
Francisco Ambrosio, sem býr í
Mexíkóborg, var illa drukkinn
þegar hann kom heim til sín eitt
kvöldið. Þegar hann fékk að
heyra það frá konu sinni, Adelia
Oliveras Quintero, að enginn
matur væri á borðum, upp-
hófust slagsmál á milli þeirra
sem enduðu með því að hann
beit vænan bita úr hægra eyra
konunnar.
Svefniim yftrbiig-
aði innbrots-
þjófinn
Innbrotsþjófur í Kaliforníu, Jef-
frey Abbott að nafni, réð greini-
lega ekki við þreytuna þegar
hann var búinn að brjótast inn í
mannlausa íbúð og róta þar til í
öllu. Hann skreið því upp í rúm
og sofnaði. Þegar Vernon
Poochigian, 18 ára, kom heim
til sín fann hann Abbott hrjót-
andi hástöfum í rúminu og
stundi aðeins þegar reynt var að
vekja hann. Poochigian hringdi
að sjálfsögðu í lögregluna sem
tókst að vekja manninn og koma
honum á bak við lás og slá.
Vantaði hrein
nærföt
Annar innbrotsþjófur stal m.a.
hreinum nærfötum og hvítum
sokkum úr íbúð sem hann hafði
brotist inn í, og skildi eftir
óhreinu nærfötin sín og sokk-
ana. Að auki tók hann með sér
poka fullan af ýmsum öðrum
verðmætum. Hann var horfinn á
braut þegar lögreglan kom á
vettvang, en ekld er annað að sjá
en að hann hafi skipt um föt á
staðnum. „Kannski var þetta
heimilislaus flakkari sem fannst
hann þurfa að komast í hrein
föt.“
Krefst skaðabóta
fyrir setu á vara-
inaimab ekknum
Fyrrverandi hafnaboltaleikari í
Houston í Bandaríkjunum er
kominn í mál við skólann sinn
og nokkra af þjálfurum sínum
og vill fá 40 þúsund dollara í
skaðabætur frá þeim. Pilturinn
og foreldrar hans halda þvi fram
að brotið hafi verið á stjórnar-
skrárbundnum réttindum hans
vegna þess að hann var látinn
sitja á varamannabekknum í
mikilvægum úrslitaleik. Skaða-
bótakrafan miðast við skólastyrk
í háskóla og tapaðar tekjur af
hugsanlegum frægðarferli í
íþróttinni.
(c)Ovi’s World of the Bizarre, http://www.ovis.com/
Leikkonan Bai Ling
tekurmikla áhættu
með því að leika í
myndinni Red Comer
á móti Richard Gere.
I kvikmyndinni felst hörð gagn-
rýni á réttarkerfið í Kína, sem er
eins og allir vita ekki upp á
marga fiska. Aðalleikarinn, Ric-
hard Gere, er að mati kínverskra
yfirvalda hinn mesti skúrkur,
enda einkavinur Dalai Lama og
sá bandaríski listamaður sem
einna harðast hefur gagnrýnt
kvínversk stjórnvöld fyrir mann-
réttindabrot og fúlan yfirgang.
Bai Ling, sem leikur hlutverk
lögfræðings sem tekur að sér að
verja bandarískan verðbréfasala,
er 27 ára Ieikkona, fædd í Kína.
Hún gerir sér fulla grein fyrir
hugsanlegum afleiðingum af því
að Ieika í mynd sem felur í sér
harða gagnrýni á kínversk
stjórnvöld.
„Eg bið og vona að ekkert ger-
ist,“ segir leikkonan. „Eg geri
mér fulla grein fyrir alvöru máls-
ins. En ef eitthvað gerist þá verð
ég að lifa með því.“
Bai Ling fæddist í Kína í lok
menningarbyltingarinnar. For-
eldrar hennar voru kennarar og
fórnarlömb byltingarinnar og
Bai Ling ólst upp hjá ömmu
sinni. Hún gerðist leikkona og
skemmtikraftur. Þegar hún varð
vitni að fjöldamorðunum á Torgi
hins himneska friðar gat hún
ekki hugsað sér að búa lengur í
Ivína, varð sér úti um námsstyrk
og komst til Bandaríkjanna þar
sem hún hefur búið síðan. Einu
sinni á ári kemur hún til Kína til
að heimsækja ömmu sína. Vegna
þátttöku hennar í myndinni er
ólíklegt að kínversk stjórnvöld
leyfi að framhald verði á þeim
ferðum.
Bai Ling tók áhættuna og
spurð hvers vegna segir hún var-
færnislega: „Þetta er fal-
leg saga um kínverskt
fólk. Ef Kínverjar sjá
myndina munu þeir
verða sammála. Við erum
að gagnrýna réttarkerfið
og gerum við það í þágu
góðs málstaðar."
Orð persónu hennar í
myndinni gætu eins verið
hennar eigin orð. Þegar
persónan sem Gere leik-
ur spyr hvers vegna hún
hafi tekið að sér vörnina
og segir: „Það væri hægt
að flytja þig burt frá
heimili þínu, frá ömmu
þinni, og eitthvað verra
gæti gerst. Af hverju ertu
að þessu?" Hún svarar:
„Ég er að þessu vegna
þess að ég vil ekki þegja
lengur.“
Bai Ling. Eftir leik sinn í mynd með
Richard Gere er óvíst að hún fái að
heimsækja Ki'na eins og hún hefur
gert árlega.