Dagur - 22.10.1997, Page 10
26 - MIÐVIKUDAGUR 22.OKTÓBER 199 7
LÍFIÐ í LANDINU
VÍSINDI
Risaeðlur voru með gigt
Liíandi Vísindi
GUÐRUN
HELGA
SIGURÐAR-
DOTTIR
SKRIFAR
Nýtt tímarit, Lifandi Vísindi, er að hefja
göngu sína hér landi og er ritstjóri þess
Guðbjartur Finnbjörnsson. Fiann segir
að vísindamenn þurfi að kynna það sem
sé að gerast innan vísindageirans því að
margt spennandi sé að gerast. Vísinda-
menn verði mjög ánægðir þegar þeim
og þeirra starfi sé veitt athygli. Nýja
tímaritið verður gefið út í samvinnu við
erlenda tímaritið Illustreret Videnskab,
sem gefið er út á mörgum tungumálum,
auk þess sem reynt verður að fjalla um
íslenskar rannsóknir. Hér koma nokkur
dæmi um efni í blaðinu.
Risaeðlur með gigt
Gigt er kvalafullur sjúkdómur, sem
hijáir spendýr, skriðdýr og fugla. En nú
gefa slitmeiðsl á steinrunnum beinum
úr risaeðlunni R.rex til kynna að einnig
risaeðlur hafi verið hxjáðar af sjúk-
dómnum. Slitið verður til við það að
oddlaga kristallar úr þvagsýru myndast í
liðunum.
Borg úr Bibliimni fundin
Samkvæmt Biblfunni færðu vitringarnir
þrír Jesúbarninu reykelsi og myrru auk
gulls. Nú telja fornleifafræðingar sig
loksins hafa fundið staðinn þar sem
verslað var með reykelsi og myrru, ein-
hveijar verðmætustu verslunarvörur
fyrri tíma. Arið 1992 fundu fornleifa-
fræðingar fornsögulegu borgina Ubar,
sem er í Óman. I gömlum heimildum
er því lýst að borgin hafi verið fræg fyrir
verslun með reykelsi. Nýr leiðangur
hefur nú leitt í ljós að rústir nokkurra
víggarða og vegvísa, sem hafði verið að
finna á Ieiðinni á milli Ubar og Jemen,
á suðurhluta Arabíuskagans.
ískristallar endurkasta Ijósi
Hvers vegna eru hringir umhverfis
tunglið?
Tunglið er með hringi rétt áður en
úrkoma verður. Háu skýin sem birtast á
undan óveðri eru samsett úr ískristöll-
um sem endurkasta ljósi þannig að
hringur myndast umhverfis tunglið.
Hvernig er hægt að losna við hvít-
laukslykt?
Enn sem komið er verða hvítlauks-
ætur að láta sér lyktina lynda þó að sagt
sé að klórófyltöflur geti dregið Iítils
háttar úr lyktinni. Það er þó einungis ef
töflurnar eru teknar á sama tíma og
hvítlauksins er neytt. Menn telja sig þó
hafa fundið nokkur ráð til að vinna á
lyktinni.
Það er þekkt húsráð að steinselja
eyði hvítlaukslykt en engar vísindalegar
rannsóknir styðja þetta.
Verst við svita
Það er brennisteinsefnasamband, sem
kallast díally-dísúlfíð, sem veldur hvít-
Iaukslykt en þetta samband verður til
þegar hvítlaukurinn hefur verið saxað-
ur, tugginn eða marinn. Lyktin er svo
sterk að þegar brennisteinssambandið
leysist upp í svita getur allur líkaminn
lyktað af hvítlauk.
Þó virðist einstaklingsbundið hversu
mikil lyktin verður. Nýjar rannsóknir
sýna að hvítlaukslyktin eykst vegna
efnaskipta líkamans. Hvítlaukurinn
breytir efnaskiptunum og þá verða til
hrein efnasambönd í blóðinu. Þessi
efnasambönd valda lyktinni og hún fer
ekki að dofna fyrr en eftir 30 tíma.
Hvítlauksunnendur gæta þó kæst þvi
að hvítlaukur hefur gagnleg áhrif á
ónæmiskerfið og kólesterólmagn líkam-
ans minnkar þegar hvítlaukur er borð-
aður.
Uppdrif oghringsm'uiingur
Bjúgverpill snýr alltaf aftur til þess sem
kastaði honum. Hvernig ætli standi á
því?
Bjúgverpli má líkja við flugvélar-
vængi. Þegar honum er kastað myndast
uppdrif, sem nánast sýgur hann upp og
heldur honum á lolti. En þar sem hann
hringsnýst líka í loftinu myndast svo-
nefnd snúðspólvelta. Þessi orka, ásamt
uppdrifinu, þvingar hann inn á hring-
laga braut. Án hringsnúningsins myndi
bjúgverpillinn aldrei snúa aftur.
VIGDIS
SXEFANS
DÓTTIR
SKRIFAR
Valdabarátta er allt of algeng í sambönd-
um fólks. Fólk reynir stöðugt að vera sá
aðilinn sem fer með sigur af hólmi í öll-
um málum, ekki bara til að sigra, heldur
til að láta hinnn aðilann viðurkenna sig
sem sigurvegara. En verðið er hátt og
kernur fram í sársauka, spennu og erfið-
ari samskiplum. I stað þess að reyna sí-
fellt að vinna, er betra að láta undan.
Hvaða máli skiptir þó þið farið á þetta
veitingahús í stað hins? Og stóllinn sem
hann elskar, þó hann sé ljótur, gerir
nokkuð til þó hann fái að vera í horninu?
Það er svo sem ekkert öryggi fyrir því að
hinn aðilinn muni bregðast eins við, en ef
látið er undan stöku sinnum, eykur það
til muna líkurnar á því að sambandið
haldist gott.
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA
Mér leiðist
Við vorum að tala saman nokkur hjón og
auðvitað voru börnin okkar aðalumræðu-
efnið eins og gengur. Og þá kom þessi
spurning upp:
Hvernig stendur á því að barn sem á
allt, hefur aðgang að ótal sjónvarpsstöðv-
um, tölvuleikjum og er þar að auki í
íþróttum íyrir utan að eiga marga vini,
getur látið sér Ieiðast? Og hvað geta for-
eldrar sagt eða gert í málinu?
Hver hefur sagt að börnum megi ekki
Ieiðast? Það er þeim bara hollt og
hvetur þau til að finna sér verkefni við
hæfi. Foreldrar eiga ekki að sjá börn-
um sínum fyrir sífelldum skemmtun-
um, það er nóg að veita börnunum at-
hygli og sinna þeim. En fari þetta
óskaplega í taugarnar á ykkur, þá er til
einfalt ráð. Búið til hæfilega langar og
Ieiðinlegar sögur um það hvernig þið
þurftuð sem krakkar að ganga 20 km. í
hríðarbyl í skólann daglega, vinna alla
daga við eitthvað hrútleiðinlegt og það
án þess að fá Iaun. Þegar börnin hafa
heyrt þessa sögu nokkrum sinnum er
það víst að þau verða fljót að forða sér
og finna sér eitthvað að gera er frá-
sögnin hefst.
Vigdís svarar í sírnann!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Síminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Neytendavænt
Það er mikið um að fólk
kaupi vörur heima hjá sér, í
svonefndri húsgöngu- eða
fjarsölu. Vegna sérstöðu
slíkrar sölumennsku er ekki
víst að allir geri sér grein
fyrir því að neytandinn
hefur 10 daga skilafrest
eða umhugsunarfrest, þó
svo ekkert sé að vörunni.
Reglan gildir frá þeim degi
að neytandi tekur við vör-
unni eða verulegum hluta
hennar og neytandi þarf að
tilkynna seljanda með ábyrgð-
arbréfi frá því að hann hyggist
falla frá kaupunum. Falli
neytandi frá kaupunum er seljanda skylt
að endurgreiða honum í pening-
um og neytandinn þarf
ekki að afhenda vöruna fyrr
en hann hefur fengið end-
urgreiðsluna í hendur. Neyt-
andi verður þó að gæta þess
að varan sé í sama ástandi
og þegar hann tók við
henni. Seljanda er skylt að
upplýsa neytanda skriflega um þennan
skilarétt. Þar skulu meðal annars koma
fram dagsettar upplýsingar um nafn og
heimilisfang aðila sem unnt er að snúa
sér til með uppsögn samnings.
Nýttlíf?
Þú þarft nauðsynlega að breyta um lífs-
háttu ef:
1. Starfsfólkið hjá Macdonalds er farið
að þekkja þig með nafni.
2. Það koma rykbólstrar úr æfingamott-
unni þinni, þegar þú tekur hana
fram.
3. Þú óskar þess að það sé kominn
föstudagur á mánudegi.
4. Þú hel’ur litla þolinmæði með börn-
um þínum og samstarfsmönnum.
5. Það eru tvö ár síðan þú prófaðir nýtt
ilmvatn/rakspíra.
6. Þú talar stöðugt um að fara á nám-
skeið, en kemur því aldrei í verk.
7. Þú gerir ekkert annað á laugardög-
um en að snúast í ýmsum óloknum
verkefnum.
8. Fagurt sólarlag hefur engin áhrif á
þig lengur.