Dagur - 11.11.1997, Blaðsíða 2

Dagur - 11.11.1997, Blaðsíða 2
18 - Þ RID J U DAGU R ll.NÓVEMBER 1997 LÍFIÐ í LANDINU rD^tr Dagur • Strandgotu 31 • 600 Akureyri og Þverholti 14 • 105 Reykjavík Foreldrar: forvarnir eru á ykkar ábyrgd. Slysið á Stöovarfirði Opið bréf frá foreldrum Aðfaranótt 26. október varð gas- bruni í geymsluskúr á Stöðvar- firði. Fjórir unglingar voru staddir í skúrnum og brenndust þrír þeirra alvarlega á höndum, fótum og andliti, en einn slapp án meiðsla. Ibúar í Sætúni, ásamt fleiri heimamönnum, hjálparsveitar- menn og hjúkrunarfræðingur frá Fáskrúðsfirði hlúðu að ungling- unum og unnu ómetanlegt starf sem kom í veg fyrir að verri meiðsl hlytust af. Vegna misvísandi fréttaflut- ings af slysinu, viljum við for- eldrar unglinganna koma eftir- farandi á framfæri: Gaskútar voru ekki geymdir í skúrnum þar sem slysið varð og ekki gasleka um að kenna, held- ur komu unglingarnir með kút- inn þangað í þeim tilgangi að sniffa gasið. Við teljum að myndbirtingar af unglingunum sem birtust á Stöð 2 hafi verið ótímabærar og komu þaer illa við þá sem til þekktu. I ljósi þessa alvarlega slyss, væri við hæfi að ábyrg um- ræða hæfist á meðal foreldra og unglinga. Æskilegt væri að for- eldrar hefðu meira samstarf sín á milli. Þannig yrðu þeir færari um að veita unglingum stuðning við að vinna á uppbyggilegan hátt úr öllum þeim áreitum sem þeir verða að takast á við. Okkur finnst að það þurfi almennt að mæta unglingum án fordóma og með jákvæðara hugarfari. Við hvetjum jafnframt alla þá sem á einhvern hátt fjalla um vímuefni og forvarnir á opinber- um vettvangi, til að taka sniffið, sem virðist vera vaxandi vanda- mál, meira inn í umræðuna og huga að lyrirbyggjandi aðgerð- um í samstarfi við foreldra og unglinga. Við foreldrar ungling- anna sem Ientu í þessu slysi, viljum koma þakklæti okkar á framfæri til allra þeirra sem veitt hafa hjálp sína og sýnt nærgætni og hlýhug. F.h. foreldra, Sólrún Friöriksdóttir, Rtkharður Valtingöjer. Þessir hringdu Hryllileg stjömuspá „Eg verð að kvarta undan þess- ari hryllilegu stjörnuspá ykkar á blaðinu. Þetta er tómt rugl og kjaftæði. Stjörnuspá er ekkert grín, þarna á viska frá fornu fari að koma fram. Er ekki nóg af helvítis fíflalátum í þjóðfélaginu. Þið hljótið að geta komið með betri stjörnuspá," sagði karlmað- ur frá Akureyri sem hringdi í blaðið. „Það er ekkert að marka þótt einhverjar útvarpsstöðvar séu að lesa þetta upp og þyki vinsælt. Það eru djöflastöðvarnar eins og ég kalla þær, þar sem allt gengur út á firringu, heimsku og vit- leysu. Verst er að Rás 1 er líka að verða dálítið biluð,“ bætti les- andinn við. Segðu eitthvað fallegt - og faðmaðu mig! 4 Síminn hjá lesendaþjónustunni: S63 1626netfang : ritstjori@dagur.is Simbréf: <aa nim eða ■ 460 6171 551 6270 Bréf úr... Eyjafiröi Það býr svolítið kraftaeverk I einlægu faðmlagi. líka á götum úti, í sjoppunum o.sv.frv. Röddin, faðmlagið og snertmgin „Þegiðu þarna helvítis geðveiki auminginn þinn“ er alls ekki óalgengt svar við athugasemd- um sem virðast saklausar. Högg í bringuna eða spark í aftur- enda að tilefnislausu má líka „Þegiðu þama helvítis geðveíki auminginn þinn“ eralls ekki óalgengt svarvið athugasemdum sem virðast saklausar. sjá hvar sem er og enginn segir lengur „fyrirgefðu" þótt hann/hún stigi á fæturna á ein- hverjum í biðröð við að kaupa popp í bíó. Menn olnboga sig áfram og láta sem þeir sjái ekki náungann - þegar best lætur. Hvað veldur? Ég varpaði fram einhverjum atriðum hér í upp- hafi, en hygg að margt fleira komi til. Þar er kannski eftst á blaði skortur á hlýju og snert- ingu. Ja, mín bara væmin í dag! Nei, hreint ekki. Ykkur er óhætt að trúa því að með vís- indalegum könnunum hefur verið sýnt fram á að þroski og tengsl taka stökk fram á við þegar fólk verður aðnjótandi blíðu og snertingar. Það býr svolítið kraftaverk í einlægu faðmlagi, hverju hlýju orði sem kemur frá hjartanu, í hverju brosi sem nær til augn- anna. Þetta eru gjafir sem við getum gefið hvert öðru á hverj- um degi, án þess að hreyfa við seðlaveskinu, sem er nú líka fskyggilega oft tómt hvort eð er. Faðmlag kostar ekkert og hlý- legt orð ekki heldur. Og þá má ekki gleyma raddbeitingunni, sem er nú alveg kapítuli út af fyrir sig. Röddin, hljómur hennar, getur virkað sem árás, alveg án tillits til orðanna sem fram ganga af munni þess er í hlut á. Ég viðurkenni luslega að sumir einstaklingar hafa slíka raddbeitingu að mér finnst þeir alltaf vera að skamma mig í hvert sinn sem þeir opna munninn. Og ég er nú komin af barnsaldri og hef séð sitt Iítið smálegt um dag- ana. Rólegar fyrirmyndir Ég held að við þurfum að Iækka róminn aðeins og athuga hvaða orð við notum við börn, unglinga og sem fullorðið fólk við hvert annað. Við þurfum meiri kyrrð og ró í sálirnar okk- ar og umhverfið. Við þurfum að slökkva á síbylju fjölmiðla (ég þori ekki að fara út í að ræða um fólk sem mætir í stúdíó glaðbeitt á hverjum degi og treystir því að það verði „bara alveg gasalega skemmtilegt" og geti sagt setningar eins og „Pocahontas - svaka montrass" á 5 mínútna fresti, eins og ég heyrði um daginn í útvarpi!) - Ef við kyrrum okkur svolítið, þá gæti verið að við yrðum sú fyr- irmynd sem unga fólkið okkar virðist vanta svo sárlega í dag. Þá gæti verið að við þyrftum ekki að horfa upp á sex ára börn sem í upphafi skólagöngu kunna fúkyrðafirn og hlaupa á hvert annað - ekki í barnslegum leik, heldur af fullkomnu tillits- leysi við meðbræður sína. Og hananú! Það er þetta með ofbeldið hjá okkur. Mér gengur hreint ekkert að láta mér standa á sama um það. Vissulega eru uppi ýmsar til- gátur um hvernig það hafi þróast og hverju megi kenna um, en það eitt og sér leysir engan vanda. Einhvers staðar stendur að það að vita en aðhafast ekki jafngildi því að vita ekki. Kvik- myndir hafa verið nefndar, myndbönd, tölvuleikir, fjarvera foreldra í þessum vinnubúðum sem við nefnum íslenskt samfé- lag o.fl. o.fl. Ég held að það sé ýmislegt til í þessu öllu, en ekk- ert gerist ef ekkert er aðhafst. Nú hef ég aldrei haft sérstakt orð á mér fyrir að vilja ofur- stjórnun og eftirlit; er í raun dálítið á móti eftirliti með lífi fólks og persónuþróun. En samt er svo komið að ég held að við þurfum e.t.v. á einræði að halda. Þótt tílefnið sé lítið Ég vil einfaldlega láta herða og það all verulega allt eftirlit með því efni sem boðið er upp á bæði í sjónvarpi og á mynd- böndum - og sama gildir um tölvuleiki. Hafa menn almennt gert sér grein íyrir að þeir felast ákaflega margir í að hafa ein- hvern undir? — Og svo eru menn undrandi á að börnin í skólum landsins vilji endilega „hafa einhvern undir". Næstum daglega horfi ég á algerlega óþarfa pústra, hrindingar og högg; hlusta á fáránleg gífur- yrði sem eru ekki í neinu jafn- vægi við tilefnið hverju sinni. Þetta er ekki eitthvað sem ég sé bara innan skólaveggja heldur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.