Dagur - 18.11.1997, Síða 7

Dagur - 18.11.1997, Síða 7
Tfe^ui' ÞRIÐJUDAGUR 18.XÓVEMBER 1997 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Óskar bróðir kom einn til greina hafi verið að framundir morgun. „Já, ég var búin að eiga heima í þrettán ár í Noregi, en sjálf er ég úr Reykjavík. Við Jón Fjölnir kynntumst úti, en hann var ytra í þrjú ár,“ segir Fanney. - Þau hafa nú komið sér ágætlega fyrir á Egilsstöðum, en þaðan er ætt- bogi Jóns Fjölnis. Hann starfar nú sem yfirmaður byggingavöru- deildar Kaupfélags Héraðsbúa. Fanney er hinsvegar heimavinn- anndi húsmóðir og gætir tveggja stráka, þeirra Daníels Smára, sem er 5 ára, og hún átti sjálf fyrir hjónaband, og Markúsar Víðis, eins árs, sem þau Jón Fjölnir eiga saman. -SBS. Móðir Theresa bj argaði llfL hennar Amanda Mays fæddist handa- laus og var átta mánaða gömul þegar hún var skilin eftir í vöggu sinni við dyr munaðar- leysingjahælis Móður Theresu í fátækrahverfi Kalkútta. Móð- ir Theresa tók litlu stúlkuna að sér og fann henni fósturfor- eldra í Bandaríkjunum. Am- anda er nú tvítug og um það bil að heija starf í banka. Hún segist ekki kvarta vegna fötl- unar sinnar, hún hafi lært að takast á við hana. Fósturmóðir Amöndu segir dóttur sína trúa því staðfast- lega að Móðir Theresa sé verndarengill sinn. „Mér finnst eins og Móðir Theresa fylgist með mér frá himnum. Eg veit að hún elskar mig,“ segir Amanda. „Eg sé kær- leiksríkt andlit hennar í draumum mínum og er um- vafin hamingju." Amanda segist \ilj;i fylgja fordæmi Móður Theresu og starfa að mannúðarmálum. „Eg er góð manneskja en ég gæti orðið enn betri,“ segir hún. „Móðir Theresa kenndi okkur að við berum ábyrgð á velferð náungans." Amanda er nú tvítug hamingjusöm stúika þrátt fyrir fötlun sína og trúirþví að Móð- ir Theresa vakiyfir henni. Móðir Theresa með Amöndu sem fæddist handalaus. Jón FjölnirAlbertsson og Fanney Kr. Inga- dóttir voru gefin sam- an í Egilsstaðakirkju í júnísl. afbróðurbrúð- arinnar, sr. Óskari Inga Ingasyni. „Það kom ekkki annað til greina en fá hann bróður minn til að gefa okkur saman,“ segir Fanney Kr. Ingadóttir á Egilsstöðum. Hún og Jón Fjölnir Albertsson voru gefin saman í Egilsstaða- kirkju þann 21. júní á liðnu sumri af Oskari Inga Ingasyni, bróður hennar, sem er prestur í Búðardal. „Athöfnin í kirkjunni hófst síðdegis og Óskari bróður tókst vel upp með hana,“ segir Fann- ey. Brúðhjónin héldu veisluna um kvöldið í félagsheimilinu á Skriðdal og sóttu hana alls um 100 manns. Þar af komu um 20 Norðmenn, þar á meðal nánasta fjölskylda Fanneyjar, sem búið hefur ytra í þrettán ár. Fanney segir að þau brúðhjónin hafi far- ið heim úr veislunni kl. 1:30 um nóttina, en hinir glaðværustu Bryndís og Skúli Gefin voru saman í Áskirkju í Reykjavík þann 21. júní sl. af sr. Sigurfinni Þorleifssyni þau Bryn- dís Sigurðardóttir og Skúli Gunnlaugsson. Heimili þeirra er í Reykjavík. (Ljósmyndarinn Lára Long) Brynhildur og Guðmundur Gefin voru saman í Hafnarfjarð- arkirkju þann 10. maí sl af sr. Sigurði Helga Guðmundssyni þau Brynhildur Ingihjörg Hauks- dóttir og Guðmundur Ingvar Sveinsson. Heimli þeirra er að Brautarlandi 19 í Reykjavík. (Ljósmjmdastofan Mynd í Hafn- arfirði.) Stjórn listamannalauna Auglýsing um starfslaun listamanna árið 1998 Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum árið 1998, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum, þ.e.: 1. Launasjóði rithöfunda. 2. Launasjóði myndlistarmanna. 3. Tónskáldasjóði. 4. Listasjóði. Umsóknir einstaklinga skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þartil gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16 mánudaginn 15. desember 1997. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna 1998“ og til- greina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu. Heimilt er að veita starfslaun til stuðnings leikhópum enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Umsóknir leikhópa skulu berast Stjórn listamannalauna, mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16 mánudaginn 15. desember 1997. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna 1998 - ieikhópar". Um- sóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu. Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn lista- mannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Vakin er athygli á að hægt er að ná í umsóknareyðublöð á Inter- netinu á heimasíðu Stjórnar listamannalauna. Slóðin er: http://www.mmedia.is/listlaun. Athygli er vakin á að umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 15. desember nk. Reykjavík, 14. nóvember 1997. Stjórn listamannalauna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.