Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 10
26 - ÞRIÐJUDAGUR 18.NÚVEMBER 1997
Xhyptr
LÍFIÐ í LANDINU
L
Kyndugt bátslag
Þeir segja að á sýningunni í Frankfurt hafi verið erfitt að slá Peugout 806 Runa-
bout út í skringilegheit-
um.
Það er dálítið bátslag
á bílnum sem byggður er
á 806 minivan þó þeir
líkist nú lítið. Runaba-
out, eða Ferðalangurinn,
er frekar blanda af pall-
bíl og blæjubíl, með
mildu af tekki og ryðfríu
stáli til að samræmast
hinu kynduga bátslagi
sem einkennir bílinn.
Oll fjögur sætin snúast
og í farþegahurðinni er
kæliskápur.
Nýir sýndir í
Fraiikfiirt
Kátir frá Toyota
Toyota sýndi þrenningu í Frankfurt. Þrjá
bíla sem allir eru byggðir á sama undirvagni
en gert er ráð fyrir að hann fari í fram-
leiðslu í nýrri verksmiðju í Frakklandi árið
2.000. Þeir kallast Funcope, Funcargo og
Funtime eða í lauslegri þýðingu: Sportkátur,
Hlaðkátur og Kátur.
Þessir bílar voru hannaðir í hönnunar-
deild Toyota í Brussel og verða búnir nýrri
gerð véla og skiptingar þegar þeir verða
framleiddir.
Kátur (Funtime) er fimm dyra hlaðbakur
og minnir svolítið á Ford Ka og Bens A-
class, Sportkátur (Funcoupe) er tveggja
dyra sportbíll og Hlaðkátur
(Funcargo) er tveggja dyra
fjölnotabíll.
Olgeip Helgi
Ragnarsson
skrifar
Iitíllálbíll
Audi sýndi smábíl í Frankfurt sem er kallaður AI 2, en AI stendur
fyrir ál, enda bíllinn að mestu úr áli. Þetta er frumgerð bíls sem
líklegt er að muni kallast A2 þegar fram líða stundir. Hjólhafið er tiltölulega langt,
en þetta er fjögurra manna bíll og minnir á Mercedes Bens A-class.
Þakið er úr gegnsæju plasti en bfllinn úr áli og vegur aðeins ríflega 800 kíló og
gæti orðið léttari þegar hann kemst í fram-
Ieiðslu. Frumgerðin er knúin 1200 rúmsentí-
metra, þriggja strokka 75 hestafla bensínvél
með 15 ventlum og beinni innspýtingu. Gert
er ráð fyrir að bjóða bílinn einnig með sam-
bærilegri Túrbó díselvél.
Bensínvélin er sögð sérlega sparneytin og
skila bílnum úr kyrrstöðu í 96 km (60 mílna)
hraða á innan við 12 sekúndum og á hámarks-
hraðinn að vera meira en 160 kílómetrar á
ldukkustund.
Þessi litli Audi er með hliðarlíknarbelgjum í hnakkapúðunum fram í auk höfuð-
líknarbelgja í þakpóstunum fyrir alla sem í bílnum eru.
Meðal tæknilegs búnaðar má nefna sjálfvirka þ'arlægðarstýringu, siglingakerfi og
fimm gíra beinskiptingu án kúplingar.
Hér koma tvær ábendingar frá lesendum
varðandi þvotta. Báðar varða þær þvotta-
efnið Sólskinssápu eða Sun light, sem
hefur fengist hér um áratuga skeið. Ef
skyrtukragi er bleyttur og sólskinssápu
nuddað í hann, þá er skyrtan sem ný eftir
þvott. Engar fiturákir festast í henni. Og
með barnaföt með blettum. Ef þau eru
bleytt og sólskinssápa sett á blettinn, flík-
in síðan látin út í sólskin, helst látin
liggja á grasi í nokkra klukkutíma, þá fara
verstu blettir. Meira að segja föt sem orð-
in eru ljót og blettótt eftir langa notkun
verða mjög góð eftir svona þvott.
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA
Lengi í burtu
Sæl Vigdís. Ég bý á Akureyri og þannig
háttar til að maðurinn minn er oft lengi
fjarri heimilinu vegna únnu. Þegar hann
svo kemur loks heim, þá eru börnin oft
lengi að venjast því að hafa hann heima
og svo þegar þau hafa rétt vanist því, þarf
hann að fara aftur. Er eitthvað sem þú
getur ráðlagt til að stytta „aðlögunartím-
ann“?
Þú nefnir ekkert hversu lengi hann er í
burtu, ef hann er einhverja mánuði, þá
getur þetta verið erfitt, sérstaklega ef
hann stoppar svo stutt. Mér dettur í
hug að þið gætuð tekið upp video-
myndir þar sem hann talar skilaboð til
krakkanna, svo hann sé ekld alveg eins
ókunnur. Auðvitað þarft þú svo að
ræða mikið um hann þegar hann er í
burtu. En hafið þið hugleitt að flytja
nær vinnunni hans? Að því tilskyldu
auðvitað að hann sé ekki á sjó eða við
þannig vinnu að hann sé á sífelldu
flakki. Svo fyndist mér alveg koma til
greina að maðurinn skipti bara um
vinnu. Börnin hans stækka og fara og
þegar að því kemur þá sér hann eftir
því að hafa ekki eytt meiri tíma með
þeim.
Vigdís svarar í símann!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í simauu kl. 9-12.
Simiun er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfaug: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Húsgögn
Áttu húsgögn sem
þú vilt losna við?
Til dæmis skrif-
borð, hillur eða
annað sem hentar í
barnaherbergi?
Það er fjölskylda
sem getur alveg
notað slík húsgögn
og þau vantar líka
borðstofuborð og
stóla. Síminn hjá
þeim er 462-5433.
Lax eða eldislax?
M frí Spurt var um hvort það væri
einhver munur á næringar-
gildi eldislax og þess sem
syndir villtur um ár og haf. Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræðingur
svaraði þeirri spurningu svo: „Eldislax-
inn er feitari og öðruvísi, þetta er ekki
sama vara, en hvað næringu snertir er
ekki hægt að slá því föstu að hann sé
betri eða verri en hinn. Það hlýtur að
ráðast af því sem Iaxinn fær að borða.
Feitari lax hefur ef til vill meira D-
vítamín en sá magri“.
Svo mörg voru þau orð og hollustan í
laxinum rétt eins og með annan mat,
fer eftir því hvað í hann er látið.