Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 1
Fyrstu skáldsögu
EimrsMás
Guðmundssomr eftir
útkomu Engla
alheimsins hefurverið
beðið með óþreyju.
Nú erbókin komin.
í sögu sinni Fótsporá
himnum segirEimr
Márfrá lífsbaráttu
fjölskyldu á kreppu-
árunum íReykjavík.
„Rithöfundar verða að fylgja eigin áttavita. Þeir verða líka að vera viðbúnir að breyta til og gera eitthvað óvænt. Með vissum hætti er maður alltafað takast á við nýjan heim,
segir Einar Már. mynd: bg.
F ótspor Einars Más
„Þessi saga hefur íylgt mér mjög
lengi, var sífellt að koma til mín
og fara frá mér,“ segir Einar Már
Guðmundsson um fjölskyldu-
sögu sína Fótspor á himnum.
Nokkrar persónur sögunnar eiga
sér beinar fyrirmyndir úr fjöl-
skyldu höfundar. Þar á meðal er
ein fyrirferðarmesta persónan,
Ragnar, sem heldur til Spánar og
berst gegn fasistum í spænsku
borgarastyrjöldinni líkt og föður-
bróðir höfundar gerði á sínum
tíma.
Einar Már tileinkar söguna
ömmu sinni, Ingibjörgu Gísla-
dóttur, og þegar hann er spurður
hvort amma raunveruleikans og
amma sögunnar séu sama per-
sónan segist hann vissulega hafa
byggt á ákveðinni fyrirmynd en
skáldskapurinn hafi aukið við
myndina. „Ef amman í sögunni
gengi út úr bókinni þá væri hún
ekki alveg eins og amma mín en
færi nokkuð nærri því að ýmsu
leyti. Grunnþættirnir kæmu
heim og saman.“
I sögunni sinni sameinar Einar
Már beinan frásagnarhátt og
Ijóðrænu. „Fyrir mér er ljóðlistin
upphaf sögunnar. Allt á sér rætur
í ljóðinu," segir Einar Már. „Að-
greining ljóðs og sögu er marg-
faldlega staðfest en hefð hinar
ljóðrænu sögu er sterk. Annars
legg ég svo margháttaðan skiln-
ing í ljóðrænu. Fyrir mér er ljóð-
rænan ákveðin leit að sambandi
við heiminn."
Fótspor á himnum er fyrsta
skáldsaga Einars Más eftir út-
komu Engla alheimsins. Oneit-
anlega vaknar sú spurning hvort
höfundi þyki ekki erfitt að fylgja
því margverðlaunaða verki eftir.
„Það er ekki vafamál að horft
er á nýútkomin verk höfunda í
ljósi þess sem þeir hafa gert áður.
En það truflar mann ekki svo
mjög. Þegar maður hefur sent frá
sér bók horfir maður til baka og
þá virðast sálarkvalirnar og
vandamálin ekki hafa verið svo
ýkja merkileg," segir Einar Már
og bætir við: „Rithöfundar verða
að fylgja eigin áttavita. Þeir verða
líka að vera viðbúnir að breyta til
og gera eitthvað óvænt. Með viss-
um hætti er maður alllaf að
takast á við nýjan heim og um
leið er maður á vissan hátt að
brjóta þann gamla niður. Þetta er
eins og bygging sem hry'nur en
síðan raðast músteinarnir upp á
nýtt og þá má greina heildar-
mynd í höfu ndarverki n u. “
Þar sem Englar alheimsins og
Fótspor á himnum fjalla báðar
um fjölskyldu höfundar er freist-
andi að ætla að þriðja fjöl-
skyldusagan líti dagsins ljós og úr
verði trílógía. Höfundurinn á allt
eins von á því að svo verði. „I
þessari bók eru ákveðin mál til
lykta leidd," segir hann, „en það
er einnig margt sem á eftir að
segja. Efniviðurinn er nægur."
Veitum hagstæð
1 lán til kaupa á
i landbúnaðarvélum
Reiknaðu með
SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmuli 3 • 108 Reykjavik • Simi 588-7200 • Fax 588-7201
Þaö tekur aöeins 1 einn ■ ■ ■ virkan Grœnt
daa numer
aö koma póstinum þínum til skila pOotub oo sImi hf 800 70