Dagur - 26.11.1997, Page 3
•IIKnfííT
v««t ssaw.j’iö'í .ís HnaivauM.i'í .-91
MIÐVIKUDAGUR 2 6 .NÓVEMBER 1997 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Umhverfis landi
f ' ' .
á áttatíu símsk
Sisíurður Bojfi Sævarsson, slær á þráðinn ogkannar niannlífið í landinu
Meng
unin
Ég er svo
ópólitískur
- Jæja Geiri, ertu ekki á fullu í spilamennsku þessa dagana?
„Jú, nú er þetta allt á fullu. Eg var að senda frá mér plötu og fer
að vinna í að fylgja henni eftir. Ég hef mest verið að spila hér nyrðra
að undanförnu, en um sl. helgi var ég á Hótel Sögu og verð í Reykja-
vík næstu helgar."
- Segðu mér, þarf fólk ekki að koma í hléum á dansleikjum og tala
um landsins gagn og nauðsynjar?
„Nei, fólk hefur nóg annað að gera á dansleikjum en að tala við
mig um þjóðfélagsmálin. En annars stendur uppúr núna, finnst mér,
þetta upphlaup um daginn út af bankastjóralaunum. Það er allt í
lagi að borga banakstjórum góð laun, ef þeir bæru einhverja ábyrgð í
kerfinu. Það er af og frá að Jóhanna Sigurðardóttir geti hvítþvegið
sig í þessu sambandi, hún var í ríkisstjórn í mörg ár en gerði ekkert."
- Nú voruð þið að samþykkja sameiningu sveitarfélaga í Skaga-
firði?
„Já, það endaði nú með því að ég sagði já í kosningunum. En ég
var fullur efasemda og tók ekki endanlega ákvörðun fyrr en ég var
kominn inn í kjörklefann."
- Þú hefur ekki hingað til verið svona reikull í trúnni, hefur þú
ekki alltaf kosið Framsókn?
Þórunn Sigurdardóttir, ferðaþjónustu-
bóndi a Skipalæk i Fellabæ.
- Sæl Þórunn, mig langaði að
heyra í þér. Er eilthvað um að
vera fyrir austan. Þú ert nú með
puttann á púlsinum í gegnum
ferðaþjónustuna sem þú
starfrækir?
„Nú, hér er bara allt gott að
frétta. Svo ég segi þér nú fréttir
héðan frá Sldpalæk þá er hér
svolítið rennirí af ferðafólki. Síð-
an er þetta líka tilfallandi um-
ferð hér: til dæmis sölumenn á
ferð. Einnig er talsverð upp-
bygging hér, það er verið að
byggja hótel úti á Egilsstöðum
og Póstur og sími er að reisa
endurvarpsstöð á Eiðum og
þetta hefur skapað umsvif í
ferðaþjónustu á svæðinu. Við
þessar Iramkvæmdir eru tugir
manna í vinnu.“
- En annarsstaðar frá, hefur
þú til dæmis heyrt eitthvað neð-
an af fjörðum?
„Ja, það virðist nú bara að
síldin ætli að bregðast, eins og
hún hefur skipt miklu máli fyrir
atvinnulíf þar. Það er kvíði í
fjarðamönnum og ég get lfka
sagt þér að hingað austur er að
koma fólk með flugi og ætlar að
skella sér í síldina. Gistir hjá
mér og ætlar að í uppgrip í síld-
anánnu, einsog það hefur svo
oft komist í á haustin. En nú
kcmur fólkið fljótt til baka aftur
og er vonsvikið."
- Er ekki búið að vera ágætt
veður fyrir austan að undan-
förnu?
„Jú, hér hefur verið ágætt
veður. Að vísu hefur verið nokk-
uð vætusamt, en hlýtt. Mikið
væri annars búið að snjóa ef kalt
hefði verið í veðri.“
- En hvað er að frétta af
bændum og búaliði fyrir austan?
„Ja, nú eru bændur búnir að
rýja sauðfé sitt, og þar sem fé
hefur getað gengið úti er ullin
laus við húsaskít. Þá verður nll-
in verðmætust. En nú eru menn
farnir að rýja sauðfé sitt tvisvar á
ári, annars vegar í október og
síðan í maí. Þannig fæst besla
verðið fyrir ullina“
„Jú, það er alveg rétt. En mér finnst ég vera að verða eitthvað svo
ópólitískur því ... æi, ég veit ekki hvort ég á nokkuð að vera að tjá
mig um það. Eigum við ekki frekar að heyrast, á nýju plötunni
minni.“
leggst
yftr
Síldar-
fólker
von-
sviMð
Geirmundur Vaitýsson, tónlistarmaður og fjármálastjóri Kaupfélags Skagfiröinga á
Sauðárkróki.
Ási Markús Þórðarson, athafnamaður á Eyrarbakka, og Aðalheiður Sigfúsdóttir,.
eiginkona hans.
Áhugasamur u m
Árborg
- Sæll Ási Markús, mér datt í
hug að spyrja þig tíðinda af Eyr-
arbakka?
„Það er nú lítið að frétta og
það sem ég frétti má ég varla
segja. Það er helst þessi samein-
ingarmál, nú vilja menn sam-
eina Selfoss, Eyrarbakka,
Stokkseyri og Sandvíkurhepp.
Ég er nú bara frekar áhugasam-
ur um þetta og hef verið það al-
veg sfðan Guðmundur Daníels-
son fór fyrst að tala og skrifa um
að sameina öll sveitarfélög á
þessu svæði í það sem hann
kallaði Árborg.“
- Þú ert alltaf með gistiþjón-
ustu. Er einhver forretning
núna?
„Já, það er alltaf eitthvað.
Núna á ég von á Ameríkönum
sem ætla að vera hér á yfir jól og
áramót. Þeir búa hér uppi á lofti
í húsinu mínu, Garðbæ. En
annars er ég að koma upp gisti-
þjónustu í gömlum verkstæðis-
skúr hér á hlaðinu og hann ætti
að vcrða lilbúinn á næsta ári.“
- Heyrðu Ási, ég var að frétta
af því að um þarsíðuslu helgi
hefði verið merkileg bíósýning á
Eyrarbakka, þar sem sýndar
hefðu verið ýmsar gamlar bíó-
myndir úr sögu þorpsins. Hvern-
ig tókst til þar?
„Þetta tókst býsna vel, skal ég
segja þér. Þarna voru sýndar
kvikmyndir sem menn hér í
plássinu hafa verið að taka á síð-
ustu áratugum, til dæmis úr
frystihúsinu og úr Fiskiveri, af
kartöfluupptöku, laxveiði í net í
Olfusá, kvenfélagsfundi, barna-
skemmtun, frá sjómannadegin-
um og hátíðarhöldum á 17. júní.
Það var vel mætt á þessa sam-
komu og reyndar alveg fullt úr
úr dvrum í félagsheimilinu."
- Sæl Linda, mig langaði til að
heyra í þér því þú varst framar-
lega í flokki þeirra sem mót-
mæltu álveri á Grundartanga á
sínum tíma. Hvernig ifst þér á,
þegar byggingaframkvæmdir eru
langt komnar?
„Mér Iíst sem fyrr ekkert á
þetta. Þessu er hér þrýst ofan á
okkur og við getum engum vörn-
um við komið. Þeir ætla að opna
álverið í júní á næsta ári og þó
ég búi í sveit þá er ég ekki svo
græn að halda að kýrnar verði í
grænum haga við álversvegginn,
eins og við sáum í sjónvarps-
þætti frá Þýskalandi."
- En er álverið eldd hið besta
mál, skapar þetta ekki atvinnu
fyrir fólk á Hvalfjarðarströnd?
„Ég verð ekki vör við það.
Þeir sem eru að starfa við álvers-
framkvæmdir er að mestu leyti
aðkomufólk. í fljótu bragði man
ég ekki eftir neinum héðan úr
sveit sem er að vinna þarna. En
það má vera að þarna séu Akur-
nesingar við störf, og það voru
nú þeir sem mest börðust fyrir
því að fá álverið á sínum tíma.
Sjálf hygg ég að viðhorf breytist
þegar mengun fer að leggja frá
álverinu í austanátt, frá Grund-
artanga og fram og yfir Skipa-
skaga.“
- Síðan eru það Hvalljarðar-
göngin. Hvernig líst fólld þarna
um slóðir á þau?
„Ég á nú eftir að kynna mér
þessi göng áður en ég svara því.
Þetta verður framandleg nýjung,
sem verður mikil samgöngubót.“
- Er eitthvað annað í gangi
þarna við Hvalfjörðinn?
„Það er nú það. Jú, ég get
nefnt að hreppsnefndin okkar
lét byggja iðnaðarhúsnæði við
Hlíðarbæ, en með því á að laða
fólk til að hefja þar atvinnustarf-
semi. Þetta er líka gert lil þess
að stuðla að íbúafjölgun, en í
dag eru íbúar í hreppnum ekki
nerna rúmlega hundrað.“
Linda Samúelsdóttir, húsmóðir í Tungu f
Svínadal í Hvalfjarðar-
strandarhreppi.