Dagur - 27.11.1997, Blaðsíða 8
8- FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997
Bgiim mðdð úrval varahlnta og
aukahluta í bíla og Imvólar
VHftarata®w
IShME’SSsMí’ líSŒBHjglígl1
Sralisgæff [Pseœff œg lp@
Mspffiffipffl1
&WIÍMÍ1Í® iMi&lppil
VÉLAR&
ÞJéNUSTAhF
JÁRNHÁLSI 2, 110 REYKJAVlK, SÍMI 587 6500, FAX 567 4274
ÓSEYRI 1A, 603 AKUREYRI, SIMI 461 4040, FAX 461 4044
FRÉTTIR
L.
Bretar daprir
vegna deibia
uin niinnis-
varöami
Margir aðstandendur
látinna sjómanna
við íslands strendur
yrðu miður sín ef
deilur um staðarval
á minnisvarða hafa
áhrif á tilganginn
með verkinu.
Bæjaryfirvöldum í Grimsby
finnst miður að ekki hafi náðst
almennt samkomulag um hvar
mínnisvarði skuli standa sem
borgaryfirvöld í Aberdeen,
Grimsby, Fleetwood og Hull
hyggjast láta reisa á Islandi í
minningarskyni um drukknaða
breska sjómenn.
í fréttatilkynningu frá hlutað-
eigandi segir að vonast sé til að
íslendingar skilji að eini tilgang-
ur borganna fjögurra sé að
heiðra minningu þeirra sjó-
manna sem farist hafa við ís-
-;-:---------—..
Auktu framleiðnina
með
í
INTERROLL
joKi
Færibanda- li
2 3
2 I
mótorar,
flutningsrúllur,
flutningskerfi,
lagerkerfi.
Viðurkennd gæðovara.
SHÉÐINNS
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Frá Patreksfirði. Bæjarstjóra
Vesturbyggðar finnst tilhlýðilegt að
minnisvarði um drukknaða sjómenn
standi í bænum. Egiii Ólafsson á Hnjóti
er ekki sama sinnis.
lands strendur sem og að sýna
íslensku þjóðinní virðingu og
þakklæti fyrir björgun á lífi er-
Iendra sjómanna. „Við vonum að
rökræðan um staðsetningu
minnismerkisins verði nú sett til
hliðar, þannig að athyglin verði
ekki dregin frá tilgangintfm sjálf-
um. Margar fjölskyldur hér yrðu
miður sín ef deilurnar myndu
hafa áhrif á virðingarvott þeirra
gagnvart látnum aðstandend-
um,“ segir í yfirlýsingu frá tals-
manni verkefnisins.
Gæti orðið að engu
„Já, ég hef heyrt að mönnum
þykir dapurlegt hvernig þetta
mál hefur þróast en þetta er
hlutur sem þeir ráða ekki við.
Hins vegar ætla þeir ekki að hafa
bein afskipti til að hafa áhrif á
staðsetninguna. Ef þeir færu að
blanda sér í þetta innbyrðis mál
íslendinga gæti það orðið til
þess að samstarfið hjá þessum
borgum yrði að engu og hug-
myndin falla um sjálfa sig,“ seg-
ir Jón Olgeirsson, ræðismaður
íslendinga í Grimsby.
Hægt að gera báðum
til liæfis
Egill Olafsson á Hnjóti vill að
minnisvarðinn standi þar til að
minnast 1 1 sjómanna sem fórust
með togaranum Sargon árið
1948. Viðar Helgason, bæjar-
stjóri Vesturbyggðar, telur það
hins vegar óeðlilega kröfu og vill
að minnismerkið standi í Pat-
reksfjarðarbæ sjálfum. Jón Ol-
geirsson segir það persónulega
skoðun sína að minnismerkið
ætti fremur að standa á Hnjóti
en í yfirlýsingu borganna fjög-
urra segir að vel sé við liæfi að
reisa mínnisvarðann í bænum
sjálfum en einnig sé áhugi á
samstarfi við Egil Olafsson á
Hnjóti vegna þess að á næsta ári
verða 50 ár liðin frá því að togar-
inn Sargon fórst þar. Kostnaður
við minnismerkið er um ein og
hálf milljón íslenskra króna og
stendur til að vígja minnisvarð-
ann á sjómannadaginn 1998.
- BÞ