Dagur - 27.11.1997, Page 11
X^nr
FIMMTUDAGUR 27.NÓVEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L U
Tony Blair baðar sig í hyiii almennings, en fjármáiaráðherrann hans, Gordon Brown, boðar um ieið óvinsæiar aðhaldsaðgerðir.
Já, fjármála-
ráðherra
í fjármálum ríMsins
fylgir breska stjómin
í meginatriðum að-
haldsstefnu forvera
síns, íhaldsflokksins.
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra í bresku ríkisstjórninni,
boðaði í vikunni til mikilla breyt-
inga á breska velferðarkerfinu
þar sem einkum verði reynt að
útrýma því „vinnuletjandi" kerfi
sem Iáglaunafólk býr við, en um
leið lagði hann áherslu á það
markmið ríkisstjórnarinnar að
halda verðbólgu í lágmarki með
því að hvetja til þess að hægt
verði farið í launahækkanir til
langs tíma litið.
Brown var að gera grein fyrir
fyrstu hugmyndum að fjármála-
frumvarpinu sem ríkisstjórnin
mun leggja fram á næsta ári.
Hann hélt því fram að vel værí
hægt að komast hjá miklu at-
vinnuleysi án þess að kveikja upp
í verðbólgunni að nýju. Til þess
að ná því markmiði þyrfti hins
vegar að taka bæði skattakerfið
og bótakerfið í gegn og binda
endi á „skammsýni" bæði verka-
manna og fyrirtækja.
„Því meir sem við tökum upp
langtímasjónarhorn á það hvað
efnahagurinn leyfir, því frekar
verðum við fær um að skapa at-
vinnu og halda verðbólgu og
vöxtum í lágmarki," sagði Brown
í ræðu sinni á þinginu.
í fótspor íhaldsflokksins
Þessi ræða kemur á sama tíma
og Tony Blair forsætisráðherra
situr undir ámæli frá flokks-
bræðrum sínum fyrir að vilja
ekki verja mun meira fé til heil-
brigðis- og menntamála og lyrir
þá ákvörðun sína að halda
ótrauður áfram skerðingu bóta
til einstæðra foreldra.
Ríkisstjórn Blairs hefur heitið
því að fylgja í meginatriðum
þeim markmiðum sem fyrrver-
andi ríkisstjórn Ihaldsflokksins
hafði sett sér í ríkisútgjöldum.
En vegna sterkrar stöðu efna-
hagslífsins hafa ýmsir af þing-
mönnum Verkamannaflokksins
krafist þess að ríkisstjórnin slaki
svolítið á þeirri stefnu og veiti
meira fé til félagsmála og
menntamála.
Brown hefur reynt að sefa
þessar gagnrýnisraddir með ýms-
um smærri útgjaldanýjungum,
allt frá styrkjum til eftirlauna-
þega til að standa straum af hita-
kostnaði þeirra nú í vetur til
fimm ára áætlunar um að auka
barnagæslu fyrir einstæðar
mæður. En heildarboðskapur
hans staðfestir þá meginstefnu
sem hann og Blair hafa fylgt frá
því Verkamannaflokkurinn vann
kosningasigur sinn í maí síðast-
liðnum, sem byggir á aðhaldi í
ríkisfjármálum og að tekjuskatt-
ar verði ekki hækkaðir.
„Abyrgð í launamálum borgar
sig til þess að fá ný atvinnutæki-
færi sem fyrst og velmegun til
lengri tíma litið,“ sagði Brown.
Veit hvað hanu vill
Ræða Browns staðfesti það að
hann er fremstur meðal jafningja
í ríkisstjórninni. Sem fjárjnála-
ráðherra er hann vitaskuld sá
sem mest hefur að segja um
mótun efnahagsstefnu stjórnar-
innar, og hann hel’ur verið sá
ráðherranna sem mest og hæst
hefur talað fyrir því að Bretland
taki um síðir þátt í evrópska
myntbandalaginu sem á að kom-
ast á laggirnar árið 1999.
En Brown gegnir einnig lykil-
hlutverki í stefnu ríkisstjórnar-
innar í innanlandsmálum, ekki
síst þeim sem lúta að velferðar-
kerfinu. Hann hefur því orðið sá
ráðherranna sem mest er áber-
andi í fjölmiðlum og upp á
síðkastið er það ekki síður hann
en Tony Blair sem svarað hefur
fyrir stefnu stjórnarinnar.
Brown virðist vera maður sem
„veit hvað hann vill gera við þau
völd sem hann hefur fengið, og
það er meira en hægt er að segja
um alla þingmenn Verkamanna-
flokksins," segir Roderick Nye,
sem er yfirmaður samtaka í
London sem nefnast „The Social
Market Foundation“.
Kafar ofan í smáatriðin
Samskipti Blairs og Browns
þykja heldur flókin. Báðir ólust
þeir upp í Bretlandi eftirstríðsár-
anna, þeir voru samherjar f bar-
áttu sinni fyrir umbótum á
Verkamannaflokknum undanfar-
inn áratug eða svo. Framan af
þeirri baráttu var Brown greini-
lega í fararbroddi, en 1994
skaust Blair fram fyrir hann þeg-
ar hann var kosinn leiðtogi
flokksins. Ekki er laust við að
nokkur spenna ríki á milli þeirra
þótt þeir starfi náið saman.
Blair er eldhugi, klár í kosn-
ingabaráttu og duglegur að út-
skýra fyrir almenningi hugmynd-
ir sínar um nýja tíma í Bretlandi.
Brown er hins vegar sá sem fer
ofan í smáatriðin og hefur tök á
helstu flækjum efnahags- og
innanríkismála. Hann hefur
unnið meir en aðrir ráðherrar að
því að styrkja stöðu sína innan
ríkisstjórnarinnar og jafnvel
komið sér upp neti stuðnings-
manna í helstu ríkisstofnunum.
Þótt Brown hafi unnið með
Blair að breytingum á Verka-
mannaflokknum á hann þó dýpri
rætur í vinstri væng flokksins og
í ræðum sínum reynir hann
greinilega að taka tillit til sjónar-
miða beggja flokksvængjanna.
- The Washington Post.
GIÆSILEG
Leðuridjan Atson Laugavegi 15 Rv!k.
Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík.
SuNNEVA DESIGN HVANNAVÖLLUM ÍR AK.
Alnæmi mun útbreiddara en talið var
Meira en 30 milljónir manna í heiminum eru nú smitaöar af alnæm-
isveirunni (HIV), og um 16 þúsund smitast í viðbót á degi hverjum,
að því er segir í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Samkvæmt
þessari skýrslu var útbreiðsla sjúkdómsins vanmetin um þriðjung í
fyrri tölum. Sérstaklega er ástandiö í Afríku sunnan Sahara verra en
talið var, en þar eru rúmlega sjö prósent fólks á aldrinum 15-tiI 49 ára
smituð af HlV-veirunni. A þessu ári er talið að 2,3 milljónir manna
láti lífið af völdum alnæmis, þar af um helmingurinn konur og 460
þúsund á barnsaldri.
Bamfóstrudómniun
áfrýjað
BANDARÍKIN - Ákærendur í máli Louise
Woodward, bresku barnfóstrunnar sem dæmd
var fyrir manndráp af gáleysi, áfrýjuðu í gær
dómnum til hæstaréttar í Massachussetts.
Verjendur barnfóstrunnar hafa einnig sagst
ætla að áfrýja dómnum. Fram kom í vikunni
að barnfóstran er, ásamt föður sínum, flutt inn
á heimili eins af lögfræðingum síns í úthverfi
Boston vegna þess að þeim hafi ekki þótt við
hæfi að verja gjafafé til að greiða dýra hótel-
reikninga.
Louise
Woodward.
Skortur á vtnnuafli
NOREGUR - Allt bendir til þess að Norðmenn þurfi að fá aðflutt
vinnuafl á næstu árum, a.m.k. 20 þúsund manns frá 1999. Ted Han-
isch, yfirmaður norska vinnumarkaðseftirlitsins, segir í viðtali við
Dagens Næríngsliv að mikill skortur sé að verða á vinnuafli í mörg-
um atvinnugreinum og engin merki um að úr þeirri þróun dragi á
næstunni. Af þeim sökum hafi Norðmenn eflt leit sína að fólki til
hinna ýmsu starfa erlendis, m.a. á Íslandi.
Saab hættir vlð framleiðslu
SVIÞJOÐ - Sænsku flugvélaverksmiðjur Saab fyrirtækisins hafa til-
kynnt að hætt verði við framleiðslu á tveimur tegundum farþegaflug-
véla, Saab 340 og Saab 2000, innan tveggja ára þrátt fyrir að pantan-
ir liggi fyrir. Þar með tekur fyrirtækið áhættu á að ríkisstyrkir upp á
milljarða sænskra króna verði afturkallaðir, en fyrirtækið segir tapið á
framleiðslunni hafa verið það mikið að sú áhætta sé réttlætanleg.
Karlakórinn Geysir 75 ára
Kór eldri Geysisfélaga
heldur afmælistónleika í Akureyrarkirkju
laugardaginn 29. nóvember kl. 17.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn
og forsala í Bókvali.
Verð: Kr. 1000,-
Kópavogslistinn
Opinn borgarafundur um bæjarmálefni í Kópavogi
fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs.
Undirbúningshópur nýs bæjarmálafélags, Félags um
jafnaðarstefnu, félagshyggju og kvenfrelsi, boðar bæjarbúa
til kynningar- og málefnafundar um sameiginlegt
framboð í Kópavogi.
Á fundinum verður fjallað um aðdraganda, tilgang og markmið
sameiginlegs framboðs til bæjarstjórnar Kópavogs, einnig
verður fjallað um málefnaáherslu og fundargestum gefst kostur
á að skrá sig til þátttöku í málefnastarfi og stefnumótun.
Fundurinn er opinn öllum Kópavogsbúum sem hafa áhuga
á að taka þátt í starfi og stefnumótun Kópavogslistans.