Dagur - 27.11.1997, Qupperneq 12
12- FIMMTUDAGVR 27.NÓVEMBER 1997
ÍÞRÓTTIR
L A
KAuppí
2. sætið
KA og Víkingur mættust í síð-
asta leik 10. umferðar í hand-
boltanum í gærkvöld. Óhætt er
að segja að KA menn hafa feng-
ið erfiðari andstæðinga norður.
Lokatölur 32-20. Víkingar skor-
uðu að vísu fyrsta niark leiksins
en síðan sáu þeir röndóttu ekki
til sólar. Með frábærum fyrri
hálfleik Sigtryggs í markinu og
góðum varnarleik völtuðu KA
menn yfir Víking og þegar flaut-
að var til leikhlés var staðan orð-
in 20-10 heimamönnum í vil.
Sigtryggur varði 1 5 skot í hálf-
leiknum og gerði sér lítið fyrir og
skoraði mark yfir endilangan
völlinn.
Það var því nánast formsatriði
fyrir heimamenn að klára seinni
hálfleikinn. Ungu strákarnir í
KA liðinu voru flestir komnir
inn á þegar um 1 5 mínútur voru
eftir af leiknum og kláruðu þeir
hann nokkuð auðveldlega.
Allt KA liðið spilaði vel í þess-
um leik og erfitt að taka ein-
hvem sérstakan út. Sigtryggur
var frábær í fyrri hálfleik eins og
áður sagði og Karim Yala var
góður í sókninni. Sævar Arna-
son spilaði vel og skoraði sex
mörk úr jafnmörgum skotum.
Erlingur spilaði sinn annan leik
á þessu tímabili og bindur hann
vörnina vel saman. KA vörnin er
ekki árennileg með þá Goldin,
Erling, Þorvald og Sverr-
i eins og stóran vegg.
Víkingsliðið átti afleitan dag
og með svona spilamennsku bíð-
ur ekkert nema fall í aðra deild
fyrir þá. Birkir Guðmundsson
var þó ágætur í markinu í fyrri
hálfleik og varði þá 11 skot og
bjargaði félögum sínum frá verri
niðurlægingu!
Mörk KA: Yala 8, Sævar 6, Jó-
hann 4 og aðrir minna. Sigtrygg-
ur varði 21 skot.
Mörk Víkings: Rögnvaldur 6
Július 3, Níels 3 og aðrir minna.
Birkir varði 14 skot.
Staðan er nú þessi:
UMFA 10 80 2 257:241 16
KA 10 7 1 2 290:249 15
FH 10 7 1 2 280:239 15
Stjarnan 10 7 0 3 276:257 14
Haukar 10 5 2 3 271:252 12
Fram 10 6 0 4 271:255 12
Valur 10 5 1 4 236:231 11
ÍBV 10 4 I 5 282:284 9
ÍR 10 3 1 6 245:267 7
HK 10 3 0 7 249:255 6
Víkingur 10 1 1 8 237:276 3
UBK 10 0i 0 10 227:309 0
Tap hjá
Juventus
Juventus tapaði óvænt 2-0 fyrir
Feyenord í Meistardeildinni í
fótbolta í gær. Þessi úrslit þýða
að Man. Utd eru nánast öruggir
áfram úr riðlakeppninni. 6 leikir
voru í gærkvöld og 6 leikir verða
í kvöld.
Urslit leikja í gærkvöld og
leikimir í kvöld.
A-riðilI
Dortmund-Galatasary
Parma-Sparta Prag
B-riðiII
Man.Utd-Kosice
Feyenord-Juventus
C-riðilI
D. Kiev-PSV Eindh.
Barcelona-Newcastle
D-riðilI
Rosenborg-Real Madrid
Porto-Olympiakos
E-riðill
Gautaborg-Paris SG
Besiktas-Bayern M.
F-riðiIl
Monaco-Lissabon
Lierese-B. Leverkusen
í kvöld
í kvöld
í kvöld
2-0
í kvöld
1-0
í kvöld
í kvöld
0-1
0-2
3-2
0-2
íslenska landsliðid í körfubolta sútti ekki gull í greipar þess hollenska í gærkvöld en bjartsýni ríkir fyrir næstu leiki liðsins.
mvnd: bg
Spennaí
HöUinni!
Hollendingar unnu íslendinga í
mjög jöfnum og spennandi
landsleik í körfubolta, 83:87.
Leikurinn var í járnum frá fyrstu
til síðustu mínútu og það sem
fyrst og fremst lagði grunninn að
sigri Hollendinganna í þessum
leik var að þeir spiluðu afar agað-
an og kerfisbundinn körfubolta
þar sem öll leikkerfi þeirra
byggðust á að koma boltanum
inn á miðherjann, Gert
Hammick, sem skoraði hvorki
meira né minna en 34 stig í þess-
um leik.
Islendingarnir áttu í miklum erf-
iðleikum með að stöðva þennan
mann enda leikur hann á allt
annarri hæð en íslensku lands-
liðsmennirnir eru vanir að kljást
við. Guðmundur Bragason barð-
ist þó feiknalega vel í vörninni og
gerði hollensku risunum oft lífið
leitt. Þá áttu Teitur Örlygsson,
Herbert Arnarson og Hermann
Hauksson allir mjög góðan leik í
kvöld og Helgi Jónas Guðfinns-
son stóð sig mjög vel þær fáu
mínútur sem hann fékk að
spreyta sig. Islensku landsliðs-
mennirnir voru afar óheppnir
með villur í þessum leik og fengu
dæmdar á sig 27 villur í leiknum,
meðan dæmdar voru 1 5 villur á
Hollendingana.
En þegar á Ieikinn er litið þá
verður ekki annað sagt en að
þetta sé sigur fyrir íslenskan
körfubolta og íslenska landsliðið
getur farið bjartsýnt í næstu leiki
sína.
Þessir skoruðu stigin:
Island:
Herbert Arnarson 18, Teitur Ör-
lygsson 17, Guðmundur Braga-
son 16, Hermann Hauksson 15,
Guðjón Skúlason 8, Falur Harð-
arson 3, Helgi Jónas Guðfinns-
son 2 og Friðrik Stefánsson 2.
Holland:
Gert Hammick 34, Mike Nahar
21, Okke De Valde 9, Mario
Bennes 8, Virgil Ormskerk 6,
Bas Du Voogd 4, Gees Van Root-
selaar 3. — GÞÖ
Þorvaldur Makan
á leið til Öster?
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson,
markahæsti og besti leikmaður
Leifturs á siðasta keppnistíma-
bili, er á leiðinni til úrvalsdeild-
arliðsins Öster í Svíþjóð til æf-
inga. Öster er að hefja æfingar
fyrir komandi keppnistímabil og
mun Þorvaldur æfa með liðinu á
næstunni. Síðan mun koma í ljós
hvort liðið vilji semja við fram-
herjann. Annar Islendingur,
Skagamaðurinn Stefán Þórðar-
son, leikur með Öster. Tvö önn-
ur úrvalsdeildarlið í Svíþjóð eru
einnig sögð hafa áhuga á að fá
þennan unga markaskorara til
æfinga.
Stoke bauð reynslusamnmg
Þorvaldur er nýkominn frá
Englandi þar sem hann dvaldist í
tæpan mánuð við æfingar. Þar
æfði hann með þremur I. deild-
arfélögum, QPR, Sheffield Utd.
og Stoke. Með Stoke spilaði
hann tvo æfingaleiki og skoraði 1
mark. A endanum bauð liðið
honum mánaðar reynslusamning
en sá samningur freistaði ekki og
er Þorvaldur því á leið til Sví-
þjóðar. Einnig er lið frá ísrael
búið að setja sig í samband við
drenginn en það er víst ekki á
dagskrá að fara þangað!
Þorvaldur sagði í samtali við
Dag að hann vonaðist til að ein-
hvern tímann eftir áramót kæmi
mynd á hlulina. Hvort hann
fengi almennilegan samning í
Svfþjóð og þá í framhaldi af því
hvort hann myndi spila hér á
landi næsta sumar. Nokkur lið
eru sögð hafa áhuga á að krækja
í Þorvald fyrir næsta sumar og
eitt er víst að öll Iið hér heima
gætu notað þennan skæða sókn-
armann. -jj
Þorvaldur Makan.
Uppselt í kvöld?
Forsala á landsleik Islands og
Júgóslava sem hefst í Laugar-
dalshöll kl. 20:15 hefur gengið
mjög vel. Að sögn Arnar Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra HSÍ,
var búið að selja rúmlega fimm
hundruð miða í gærdag og sagð-
ist Örn gera sér góðar vonir um
að uppselt verði í Laugardals-
höllina. Höllin tekur rúmlega
þijú þúsund áhorfendur, en þess
má geta að rúmlega tvö þúsund
áhorfendur fylltu íþróttahúsið
við Kaplakrika þegar Islendingar
tóku á móti Litháen fyrir mánuði
síðan.
Þurfiun okkar besta leik
„Við þurfum að ná okkar besta
leik og það er mikilvægt að Ieik-
menn komi sæmilega afslappaðir
til leiks, þó mikið sé í húfi. Sá
stuðningur sem við fengum í síð-
asta leik, gegn Litháen, var mjög
mikilvægur og ég vonast til þess
að við fáum sama stuðning í
kvöld," sagði Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari.
„Við vitum það eftir margra ára
baráttu við Júgóslava að þeir þola
illa mótlæti og við munum reyna
okkar besta til þess að þeir verði
fyrir miklu mótlæti í leiknum.
Við þurfum að ná hörkuvörn og
helst að nýta okkur hraðaupp-
hlaup,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Skafmiðar fylgja með
HSÍ hefur á undanförnum lands-
leikjum staðið fyrir sölu á skaf-
miðum, en nú hefur verið ákveð-
ið að tvær slíkir fylgi með hverj-
um „fullorðinsmiða'1 sem keyptur
er á leikinn og einn með hverjum
barnamiða.
Fá bara að sjá fyrri hálf-
leik
Islensku landsliðsmennirnir voru
á myndbandsfundi í gærkvöld og
munu verða á öðrum slíkum í
dag. Sýndar eru myndir af jafn-
teflisleikjum Júgóslava við bæði
Svisslendinga og Litháen. Þá
hefur íslenski hópurinn einnig
undir höndum myndband af leik
þjóðanna á HM sl. sumar, þar
sem ísland vann níu marka sigur.
Þorbjörn Jensson Iandsliðsþjálf-
ari hefur þó meinað mönnum að
horfa á síðari hálfleikinn í þeim
leik, hann væri ekki hollt sjón-
varpsefni, en sem kunnugt er var
júgóslavneska liðið tekið til bæna
af því íslenska f síðari hálfleikn-
um.
Spænskir dómarar
Spænsku dómararnir Vicente
Breto og Jose Antonio Huelin
munu dæma leik tslands og
Júgóslavíu í kvöld. Parið kemur
frá Barcelona og er talið það
þriðja sterkasta á Spáni. Eftirlits-
maður EFH kemur hins vegar frá
Noregi.
Tvísýu staða
Tvö efstu Iiðin í hverjum hinna
tíu riðla komast í Iokakeppni
Evrópumótsins sem fram fer á
Ítalíu á næsta ári. I riðli 2 eiga öll
fjögur liðin möguleika á því, en
línur munu örugglega skýrast
eftir leiki kvöldsins. Svisslend-
ingar taka á móti Litháum og ís-
Iendingar mæta Júgóslövum.
Staðan er nú þessi í riðlinum:
Júgóslavía 4 2 2 0 111:93 6
ísland 4 2 1 1 110:104 5
Litháen 4 1 1 2 98 :108 3
Sviss 4 0 2 2 99 :115 2