Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 1
Menn fóru sér hægt við að skipa upp úr Helgafellinu í Reykjavík í gær.
Útvarps-
stjórí öðm
sinni
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
skipaði í gær
Markús Orn
Antonsson út-
varpsstjóra Rík-
isútvarpsins frá
1. janúar. Þetta
er í annað sinn
sem Markús
Örn er skipaður
útvarpsstjóri.
Þegar Davíð
Oddsson hætti sem borgarstjóri
og gerðist forsætisráðherra, fékk
hann Markús Örn til að hætta
sem útvarpsstjóra og gerast borg-
arstjóri. Skömmu fyrir borgar-
stjórnarkosningar 1994 var fylgi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
orðið svo lítið í skoðanakönnun-
um að Markús Örn kaus að segja
af sér sem borgarstjóri og tók því
ekki sæti á lista flokksins. Þá tók
Arni Sigfússon við forystuhlut-
verki flokksins í borgarstjórn en
flokkurinn varð að lúta í lægra
haldi fyrir R-listanum í kosning-
unum vorið 1994.
Markús Örn
Antonsson,
útvarpsstjóri.
Sex reknir fyrir að
fylgj a samningum
Danskur skipstjóri á
leiguskipi Samskipa
rak 6 íslenska undir-
meun fyrir að neita að
standa vaktir imi borð
í skipinu í höfn yfir
jólin. Nokkrir þessara
sjómanna voru á Dís-
arfellinu þegar það
fórst.
„Mennirnir voru ekki að gera
annað en fara eftir gerðum kjara-
samningum. Islenskum far-
mönnum ber ekki að standa vakt-
ir um borð í skipunum yfir hátíð-
arnar og þess vegna voru þeir í
fullum rétti að neita kröfu dans-
ka skipstjórans um að standa
vaktir yfir hátíðarnar," sagði
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, um
þann furðulega atburð þegar 6
íslenskir undirmenn á Helgafell-
inu, leiguskipi Samskipa, voru
reknir fyrirvaralaust úr starfi á
mánudag fyrir að neita að standa
vaktir um borð f skipinu
yfir hátíðarnar.
Þetta mál mun draga
dilk á eftir sér. Jónas segir
að Sjómannafélag Reykja-
víkur muni beita öllum
mætti sínum og áhrifum
til að fá leiðréttingu á
máli sjómannanna. Þá er
Verkamannafélagið Dags-
brún komið í málið.
„Það sem við getum
gert er að boða afgreiðslu-
bann á skipið en það tekur viku-
tíma að undangengnum samn-
ingaviðræðum. Við höfum til-
kynnt Samskipum að fái sjó-
mennirnir ekki leiðréttingu sinna
mála munum við boða af-
greiðslubann. Þetta skip verður
hér ekki lengi ef á að koma svona
fram við mannskapinn," sagði
Halldór Rjörnsson, formaður
Dagsbrúnar.
Þá hefur Dagur heimildir fyrir
því að hafnarverkamenn í
Sundahöfn muni ekki
flýta sér neitt við að af-
greiða skipið. Eins er AI-
þjóða flutningaverka-
mannasambandið komið í
málið en það getur lokað
fyrir afgreiðslu skipsins í
erlendum höfnum.
„Þetta er mjög erfitt
mál, en við munum gera
allt sem við getum til að
ná samkomuíagi. Danski
skipstjórinn segir að mennirnir
hafa brotið danskar reglur og það
er staðreynd að þeir eru ráðnir til
danska útgerðarfyrirtækisins og
verða því að fara eftir dönskum
samningum. Við gerðum ekki
annað en tilnefna þá við útgerð-
ina þegar við tókum skipið á
Ieigu,“ sagði Kristinn Geirsson,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Samskipa, í samtali við Dag.
Hér er um að ræða 4 stöður
um borð, sem 6 menn sjá um svo
menn geti fengið eðlileg frí.
Meira að segja þeir tveir sem
voru í fríi í landi og vissu ekkert
um deiluna, voru reknir líka.
Nokkrir þessara sjómanna voru á
Dísarfellinu þegar það fórst í
fyrra.
Samkvæmt heimildum Dags er
danski skipstjórinn afleysinga-
maður sem vildi nota tækifærið
og sýna útgerðinni að hann hefði
bein í nefinu. Eftir að hásetarnir
neituðu að standa vaktirnar
krafðist sá danski þess að stýri-
mennirnir, sem eru íslenskir,
stæðu vaktirnar og gerðu þeir
það. - S.DÓR
Ingþór Bjarnason, Ólafur Örn Haralds-
son og Haraldur Ólafsson.
Um 60 km
frá Pólimm
Þremenningarnir Ingþór
Bjarnason, Ólafur Örn Haralds-
son og Haraldur Ólafsson voru í
gær í 60 km fjarlægð frá lokatak-
markinu, Suðurpólnum.
Sterkar líkur eru því á að þeir
nái á Suðurpólinn um áramótin
en þeir hafa gengið um 24 til 28
km á dag. Aðstæður hafa verið
mjög erfiðar, þungt að draga
sleðana vegna þess að snjórinn
hefur verið mjög gljúpur, þyngd
sleðanna allt að því tvöfaldast.
Engir aðrir leiðangrar eru í ná-
grenni við þá, næst er ásttalskur
leiðangur í um 150 km fjarlægð.
Á Suðurskautsjöklinum er
veður hins vegar fremur stillt og
28 stiga frost. Þegar takmarkinu
verður náð bíður þeirra flugferð
til Patriot Hill búðanna, þar sem
leiðangurinn hófst. — GG
msmmmmmmmm
BLACKdDECKER
Knndvefkfæri
SINDRI kjt
-sterkur í verki 1 3
BOBBARTÚUt 31 • SÍWI -iBg im • BMFFASlMI 552 1021
Þetta voru
Mammons-
jól
Bls. 10
1
1