Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 - 3 FRÉTTIR Steiner ennþá í felum Bardaginn hefur kostað milljónatugi Samkeppnin í innaniandsfiuginu hefur tekiö sinn toll og nú er komid ad þvíað fargjöld hækki á ný. Gifurlegt tap hefur orðið hjá Flugfélagi íslands hinu nýja fyrstu 6 mánuðina í starfsemi fé- lagsins. 24 starfsmenn Flugfélags Isiands hafa fengið uppsagnar- bréf. Frjálst innanlandsflug, sam- keppni við íslandsflug, hefur reynt á þolrifin í endurstofnuðu Flugfélagi íslands hf., sem hóf starfsemi að nýju í júní með hreint borð og góðan höfuðstól. Samkvæmt heimildum Dags hef- ur umtalsv'ert tap orðið á félaginu, sem nú hefur starfað í hálft ár. I flugheiminum í gær var sagt að tapið gæti orðið ailt að 300 millj- ónir. Páll Flalldórsson fram- kvæmdasljóri mótmælti því í gær. Vissulega hefði orðið tap á starf- seminni fyrstu mánuðina en ekk- ert í líkingu við þessa tölu. Páll Halldórsson framkvæmda- stjóri Fí sagði í gær að nú um ára- mót yrðu gerðar breytingar á nokkrum þáttum í rekstri félags- ins til að ná fram aukinni hagræð- ingu og að reynt yrði að tryggja áframhaldandi framboð á lágum fargjöldum innanlands. Uppsagn- ir 24 starfsmanna, 9% starfsliðs- ins, hafa vakið óróa á vinnustaðn- um. Þriðjungur þeirra mun fá endurráðningu til annarra starfa. Starfsfólkið sem fær reisupass- ann vinnur aðallega við flug- afgreiðslu, margt af því með mjög mikla reynslu, en fækkun á sér stað í öllum deildum fyrirtækis- ins. Tekið verður í notkun nýtt kerfi við innritun farþega og ný símatækni sem á að auðvelda meiri samnýtingu starfsfólks. Flugfélag íslands hefur kynnt ný fargjöld á helstu flugleiðum sínum, allflókið kerfi bónussæta, sparsæta, ferðasæta, vildarsæta og forgangssæta. Bónussæti til Akureyrar og til baka kostar 7.830 krónur, hækkar um 500 krónur frá í sumar, en síðan hækkar verðið eftir flokkum og kostar forgangssæti á þeirri leið 11.930 krónur. Til Vest- mannaeyja kostar 6.030 krónur ef setið er í bónussæti, - en vilji menn forgangssæti þá kostar það 7.930 krónur. Fargjöld til Egils- staða eru dýrust, bónussæti á 8.030 krónur og forgangssæti á 13.330 krónur. — JBP Franklin Kr. Steiner er enn ófundinn, en hann átti að gefa sig fram til að hefja afplánun á 20 mánaða fangelsisdómi á Þor- láksmessudag. Aður en hann hvarf kvartaði hann hástöfum yfir því að fá ekki frest fram yfir jólin. Af samtölum Dags við lög- reglumenn í Reykjavík og Hafn- arfirði má ráða að ekki er mikill viðbúnaður í gangi við leitina að Steiner. Engir lögreglumenn hafa það að sérstöku verkefni að grennslast íýrir um hann, heldur eiga menn „að hafa augu og eyru opin“. Þó hefur verið sérstaklega kannað hvort hann hafi farið úr landi í gegnum Keflavíkurflug- völl, en um það fundust engar vísbendingar. Steiner er ekki í farbanni. Fangelsismálastofnun beindi til- mælum til lögregluembætta landsins á aðfangadag að hafa uppi á Steiner, en helst er á mönnum að skilja að reiknað sé með því að hann gefi sig fram fljótlega. „Hvarfið" hefur ekki áhrif á refsilengd Steiners, hon- um verður með öðrum orðum ekki refsað sérstaklega fyrir að mæta ekki á réttum tíma til af- plánunar. — FÞG Finimtíu krakkar leitað liðsinuis á 5 dögum Starfsfólk Rauða kross hússins hefur verið dvenju önnum kafið að liðsinna krökkum vegna for- eldravandamála milli jóla og nýárs. Óvenju mörg börn og unglingar þurftu að leita liðsinnis starfs- fólks Rauða kross hússins vegna „foreldravandamála" helgina milli jóla og nýjárs að þessu sinni. „Núna milli jóla og nýárs hefur verið áberandi mikið um drykkju- og ofbeldisvandamál sem krakkar hafa verið að glíma við á heimil- um sínum. Bæði hefur verið mik- ið um símhringingar og mikið um að krakkar haf verið að flýja hing- að til okkar til að reyna að finna einhverja lausn á málunum," sagði Edda Hrafnhildur Björns- dóttir, kynningarfulltrúi Rauða kross hússins. Spurð um jólagesti sagði hún bara 2 ungmenni í húsinu á að- fangadagskvöld. Enda venjan, að örtröðin sé miklu meiri fyrir jól og eftir þau, því fölskyldur reyndu oft að halda friðinn og fá börnin sín heim yfir sjálfa hátíðardagana. En oft sæki síðan fljótlega í óefni á ný. I gær sagði Edda alls 50 börn og ungmenni hafa fengið einhverja hjálp frá starfsmönnum Rauða kross hússins frá því á að- fangadag, 24. desember. „Það er búið að vera rennerí svona 10 til 20 krakka, sem hafa komið og farið," sagði Gumnú í Götusmiðjunni í Fáxafeni. „Á að- fangadag var ekkert mætt klukkan 6 og sest að veisluborði - enda er þetta ekki sá markhópur. En við vorum með standandi mat og það má búast við að 10-15 krakkar hafi komið og látið sjá sig í ein- hverri mynd á aðfangadagskvöld." Sum þeirra áttu ekki í önnur hús að venda, sagði Gummi. En önn- ur hafi fremur verið að forðast óþægilegar aðstæður heima hjá sér. Síðustu daga segir hann að gestum hafi farið fjölgandi. - HEI LeiMélagið var sýknað Viðar Eggertsson vildi fá 12 milljónir vegna „ólögmætrar og ærumeiðandi“ upp- sagnar. Leikfélag Reykjavíkur var £ gær sýknað af kröfum Viðars Eggerts- sonar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sigurður Hallur Stefánsson hér- aðsdómari tók ekki til greina kröfu Viðars um tæplega 12 millj- ón króna skaðabætur. Viðar Eggertsson var ráðinn Ieikhússtjóri haustið 1995 af leik- húsráði, en ekki var gengið form- lega frá ráðningarsamningi. Þó var óumdeilt að ráðningin væri til fjögurra ára og að uppsagnarfrest- ur væri sex mánuðir. Viðari var hins vegar vikið úr starfi 12. mars 1996 og tilgreint að hann ætti rétt til launa í sex mánuði frá þeim tíma. I stefnu sinni bendir Viðar á að uppsögnin hafi verið ólögmæt og að hann hefði sagt upp annarri leikhússtjórastöðu, á Akureyri, til að gegn þessari, en ár var eftir af eldri samningnum. Hann telur að brottvikningin, sem framkvæmd var nánast í beinni útsendingu í fjölmiðlum, hafi verið ærumeið- andi og tilefnislaus. Dómarinn taldi hins vegar að LR hefði full- nægt öllum skilyrðum og skyldum í málinu og úrskurðaði að upp- sögnin væri lögmæt. - FÞG Mikil röskim á flugi Veðurofsinn í gær hafði mikla röskun á flugi í för með sér. Bæði hjá Flugfélagi Islands og íslands- flugi lá allt innan- landsflug niðri um daginn og útlitið allt annað en bjart þegar Dagur fór í prentun í gærkvöldi. Þó stóðu vonir til þess að Flugfélagið gæti flog- ið norður og hjá ís- landsflugi vonuðust menn til að geta flog- ið til Vestmannaeyja. Flugplön hátt á annað þúsund manns riðluðust vegna óveðursins og sá bópur stækkar þegar millilandaflugið bætist við. Þar urðu vélar sem voru að koma frá NewYork, Balitmore og Halifax að sleppa lend- ingu hér og fara beint til Glasgow og tafðist heimkoma 102 einstakl- inga vegna þessa. Þá tafðist brottför yfir 300 manna frá landinu vegna óveðursins. Dvr Landakixkju fuku upp Nokkrar skemmdir urðu á dyrum Landakirlyu í Vestmannaeyjum í óveðrinu í gær, en þær fuku upp og slógust fram og til baka. „Það cr mikill strengur sem myndast þarna í austanátt. Ég er ekld bú- inn að skoða skemmdirnar en ég vona að þær séu ekki miklar. Þá fauk um koll jólatréð, sem árlega er sett upp við kirkjuna. Hvað kirkj- una varðar þá brá manni við fréttirnar, því við erum að tala um 217 ára gamlan helgidóm og það hefði getað farið illa ef gluggar hefðu verið opnir og það hefði trekkt í gegn. Kannski sýnir þetta okkur bara að kirkjan hefur dyr sínar opnar undir öllum kringumstæðum,“ sagði sr. Bjarni Karlsson í samtali við Dag í gær. Stutt rafmagnsleysi á Suðurlandi Rafmagn fór af í Rangárvallasýslu og uppsveitum Arnessýslu í óveðr- inu í gærmorgun, en straumleysið stóð aðeins yfir í um 30 mínútur. Að sögn Lárusar Einarssonar hjá Rarik á Hvolsvelli er líklegt að veð- urhæðinni hafi verið um að kenna eða samslætti. Fyrst fór suðurlín- an frá Sigöldu að detta út en síðan sló út línan frá Búrfelli. Straumi var komið á eftir öryggisleiðum og leitað að bilun á línunni frá Búr- felli, en Ifkast til var um samslátt að ræða vegna veðursins. — FÞG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.