Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 2

Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 2
2 - MIÐVIKVDAGUR 31. DESEMBER 1997 Tkgur . FRÉTTIR Hlé imlli lægða fyrir brennur og nugelda Veðurstofan gefur vonir um hlé milli lægða svo laudsmenn ná vonandi að sýna 1.500 erlendum ára- mótagestum flugelda sína og brenur. Grenjandi íslenskt rok og rigning breytti áætlunum margra erlendra ferðamanna sem komnir eru að kynn- ast íslenskum áramótum. Aramóta- gestirnir eru á fimmtánda hundrað að jjessu sinni, eða álíka margir og um síðustu áramót, að mati Magnúsar Oddsonar ferðamálastjóra. Þeir tóku því með jafnaðargeði að aflýsa þurfti fyrirhuguðum skoðunarferðum í gær. Spámenn Veðurstofunnar gefa vonir um nægilega langt hlé á milli lægða á gamlársdag og nýársnótt til að lands- menn geti sýnt þeim sínar „heims- frægu“ áramótabrennur og hvernig þeir „fíra“ svona 1 50 tonnum af flug- eldum upp í himingeiminn. Góðar vonir um gamlárskvöld „Við gerum ráð fyrir að á gamlársdag verði veðrið nú bara glettilega gott miðað við það sem er í dag og verður á nýársdag," sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í gær. Hann reiknaði þá fastlega með að viðri til að brenna og skjóta í kvöld. Einar spáði því að veðrið gangi niður síðdegis í dag, gaml- ársdag og fram yfir miðnættið a.m.k. Attin verði á sunnan eða suðaustan, kaldi eða stinningskaldi (4-6 vindstig), hiti um eða ofan við frostmark víðast hvar á landinu, einhver úrkoma í formi slyddu eða slydduélja, en að öllum lík- indum úrkomulaust á Norðurlandi og Vestfjörðum. Um nýársdaginn sagði Einar flest óljósara en útlit fyrir meiri úrkomu og hvassara. Óvedur líka spennandi Um þriðjungur áramótagestanna kem- ur á vegum Ferðaskrifstofu Guðmund- ar Jónassonar og ætlar sá hópur að fagna nýju ári í Perlunni. Flestir komafrá Bandaríkjunum, en líka Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Japan og víðar að. Og fyrirvarinn var ekki langur hjá öllum. „Við fengum síðustu bókun- ina 26. desember," sagði Marta Björns- dóttir. Vegna veðurs sagði hún að þurft hefði að aflýsa skoðunarferðum í gær, m.a. um Vesturland. Fólk hafi al- mennt tekið þessu með jafnaðargeði, enda gerir það sér grein fyrir að það er komið til Islands þar sem allra veðra er von. Þannig að á vissan hátt sé það kannski að kaupa þessa áhættu með í pakkanum. Margir hafi líka farið í jeppaferðir í staðinn og fundist þetta bijálaða veður bráðspennandi. „Japön- unum fannst t.d. mjög gaman að kynnast þessu líka,“ sagði Marta. A gamlársdag væru fyrirhugaðar ferðir til Gullfoss og Geysis og í Bláa lónið einnig á nýársdag og anna'n. - HEI Útspil Davíðs þegar hairn upp- lýsti að ráðherraskipti væru á döfinui eftir nokkra mánuði hef- ur vakið verðskuldaða athygli í heita pottinum. En þó Davíð hafi aðeins lögsögu í sínum eigin flokki virðist þetta hafa orðið til þess að setja allt á hreyfingu í þingflokki framsóknar líka. Þar telja menn sig vita að Guðmundur Bjarnason hafi haft áhuga á að taka við af Steingrími í Seðlabank- anum, en nú sé sú ráðstöfun í uppnámi þar sem Halldór formaður hafi lítinn áliuga á að láta for- spár Davíðs ganga cftir hvað framsókn varðar... Engu að síður hafa hugsanlegir kandídatar íyrir ráðherrastól vað- ið fyrir neðan sig og eru famir að vinna að sínuin máluin á fullu. Þeir sem einkum eru sagðir ætla að blanda sér í ráðherraslaginn í framsókn eru þau Siv Friðleifs- dóttir, Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson. Öll hafa þau ýmls kjördæmarök með sér auk þess sem þær Val- gerður og Siv munu njóta þess að vera konur. Fjórði maðurinn sem líklegur er til að blanda sér í slaginn er Gunnlaugur Sigmundsson, en hann á þó á brattan að sækja því hann er hæði nýr og kemur ekki úr sterku og fjölmennu kjördæmi... Guömundur Bjamason. V Davlð Oddsson leikur cinleik víðar en í ráðherramálum, sam- kvæmt því sem fullyrt er í pottin- um. Þannig mun hann sjálfur hafa boðað Guðrúnu Pé á sinn fund í Ráðherrabústaðnum til að bjóða hemú 8. sætið í Reykjavík án þess að hafa um það nokkurt samráð við Áma Sigfússon. Hvað þá Kjartan Magnússon sem lenti í hinu sívinsæla 8. sæti í prófkjörinu. Þetta þykir ekki síst athygl- isvert í Ijósi stuöningsyfirlýsingar Davlðs við Áma fyrir prófkjörið... Davíð Oddsson. Reykjavík Fim Fös Lau Sun m J ll - NNV4 NNV5 VNV6 SSV6 ASA5 V3 NV5 V4 SA4 Akureyri_____________ "9 Fim Fös Lau Sun mm 5_j— — --- ----- -- ANA3 N3 S2 S3 SSA2 SV2 V3 ANA2 S2 Stykkishólmur N4 N7 NV6 S5 A5 NNV4 NNV7 N4 ASA5 Egilsstaðir Fim Fös Lau Sun m \ -S • SA4 NNV2 SV2 SSV2 NNV2 SSV3 V3 SSV3 VSV2 Bolungarvík NNA6 NNV6 NNA5 ANA3 Kirkjubæjarklaustur V2 VNV3 V1 VNV3 SV3 ASA3 VSV3 SSA2 Blönduós Stórhöfði 9 Fim Fös Lau Sun mm_ NA2 N4 N2 S3 ANA2 ANA1 NV4 NA2 SA2 VNV5 NV10 VSV11 SA8 Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir. hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Austan og suð- austanátt, all- hvasst við Suðurströndina en víða kaldi annars staðar. Skúrir eða slydduél sunnan- lands, og einnig á Austfjörðum seinnipartinn, en úrkomulítið annars staðar. Hiti 0-5 stig Færð á vegum Allir Jijóðvegir landsins, sem á annað borð er haldið opnum, eru færir, en hálkublettir kunna að vera á hæstu fjallvegum, s.s. Öxnadalsheiði, Holtavörðu- heiði og Hálfdán á Vestfjörðum auk Isafjarðardjúps. Hringvegurinn er allur fær og vel fært um ströndina til Vopnafjarðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.