Dagur - 13.01.1998, Qupperneq 3
Xfc^MT'
ÞRIÐJUDAGUR 1 3.JANÚAR 19 9 8 - 3
FRÉTTIR
LÍÚ vill verkbann
á allan flotaim
Kristján Ragnarsson segir deiluna horfa mjög illa.
Atkvæðagreiðsla uni
verkbann með gildis-
töku 9. febrúar nk.
Herskáir útvegsmenn.
Kemur vélstjórum
ekki á óvart. Sátta-
fundir í dag og á
morgun.
„Það er full ástæða til þess að
vera herskáir. Deilan horfir mjög
alvarlega og illa. Við ætlum að
verjast með öllum tiltækum ráð-
um,“ segir Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ.
Verkbann 9. febrúar
Stjórn LIÚ hefur ákveðið að
fram fari atkvæðagreiðsla meðal
félagsmanna um boðun verk-
banns á allan fiskiskipaflotann.
Stefnt er að því að niðurstaða í
atkvæðagreiðslunni liggi fyrir
síðar í vikunni. Verði verkbannið
samþykkt kemur það til fram-
kvæmda 9. febrúar nk. Það þýð-
ir að vélstjórar á fiskiskipaflotan-
um sem boðað verkfall Vélstjóra-
félagsins nær ekki til verða tekn-
ir af launaskrá viku eftir að boð-
að verkfall undir- og yfirmanna
kemur til framkvæmda þann 2.
febrúar nk., hafi ekki samist íyr-
ir þann tíma. Það hefur einnig
þau áhrif að ef undir- og yfir-
menn ákveða að fresta boðuðu
verkfalli sinna félagsmanna, þá
geta þeir það ekki án samþykkis
útvegsmanna.
Benedikt Valsson, fram-
kvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambandsins, segir
ótímabært að tjá sig um málið
fyrr en niðurstaða er fengin í at-
kvæðagreiðslu LIÚ.
„Þetta er bara til samræmis við
það sem þeir hafa gert áður.
Þannig að þetta kemur mér sfður
en svo á óvart,“ segir Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélagsins.
Fundað í Karphúsinu
Samninganefndir LÍÚ og vél-
stjóra eru boðaðar til fundar hjá
ríkissáttasemjara í dag, þriðju-
dag. A þeim fundi er líklegt að
vélstjórar tilkynni frestun á boð-
uðu verkfalli á 80 stærstu skip-
um flotans fram undir mánaða-
mót. Gangi það eftir verður það í
annað sinn á skömmum tíma
sem vélstjórar fresta þessu boð-
aða verkfalli sem upphaflega átti
að koma til framkvæmda í árs-
byrjun. Fundurinn er boðaður
klukkan 11 en líklegt er talið að
vélstjórar fari fram á að honum
verði frestað til klukkan 13 en
þeir hafa boðað til blaðamanna-
fundar klukkutíma seinna, eða
klukkan 14.
Þá hefur ríkissáttasemjari boð-
að samninganefndir Farmanna-
og fiskimannasambandsins, Sjó-
mannasambandsins og Alþýðu-
sambands Vestfjarða til samn-
ingafundar á morgun, miðviku-
dag klukkan 14. — GRH
Jólatré hafa fokið um götur
Reykjavikur að undanförnu.
Logandi
jðlatré
Allur tiltækur mannskapur hjá
Reykjavíkurborg var kallaður út
í gær til að smala saman jóla-
trjám í Reykjavíkurborg og átti
að vinna fram á kvöldið. Til
vandræða horfði vegna íkveikja í
jólatrjám á götunum. Útköll
slökkviliðs voru farin að skipta
tugum og eitthvert eignatjón
varð, einkum þegar biðskýli SVR
váð Bústaðaveg brann.
„Það er ekki nýtt að kveikt sé í
tré og tré, en núna greip um sig
einhver múgæsing og mildu
meira af íkveikjum en áður hef-
ur gerst og útköll slökkviliðs
orðin 30 heyri ég. Það er óvenju
þurrt þessa dagana, en í venju-
legu árferði er ekki auðvelt að
kveikja í trjánum,“ sagði gatna-
málastjórinn í Reykjavík, Sig-
urður Skarphéðinsson, í samtali
við Dag í gær. — JBP
Bifreið fór út af veginum neðan Bakkaselsbrekku i Öxnadal og á myndinni er verið að undirbúa drátt á bifreiðinni
aftur upp á veginn. - mynd: björn
Ofærð vegna sand-
byls og snjókomu
Vetur konungur heimsótti Norð-
lendinga, þó aðallega Eyfirðinga,
í gær og varð víða illfært á vegum
í nágrenni Akureyrar. Oxnadals-
heiði tepptist um tíma, bíll sat
fastur á heiðinni og önnur bif-
reið rann út af veginum í hálku
og stormi. A Norðurlandi var
snjórinn fyrst og fremst í Eyja-
firði, t.d. var nær snjólaust f
Skagafirði. Flug lá niðri til Akur-
eyrar fram eftir degi en síðan
opnaðist glufa um kvöldmatar-
leytið.
Spáð er norðvestan stinnings-
kalda og allhvassri norðvestanátt
um allt Iand í dag og á Norður-
og Austurlandi má búast við élja-
gangi eða snjókomu eða slyddu
og allt að 7 stiga frosti. A Öxna-
dalsheiði og Víkurskarði var í
gær snjókoma og skafrenningur
og lokaðist Öxnadalsheiði um
tíma en opnaðist aftur síðdegis,
en færi var leiðinlegt. Þegar
heiðin opnuðust komust menn
niður sem höfðu verið fastir þar
frá því í fyrrakvöld. I gærkvöld
var mikill skafrenningur á Víkur-
skarði og mjög blint að aka. A
Vestfjörðum voru víða hálku-
blettir á heiðum, snjókoma og
skafrenningur og ófært um
hæstu heiðarnar en á Austfjörð-
um var krap á vegum og þung-
fært um Skriðdal vegna
skafrennings. Stórhríð var á
Möðrudalsöræfum og ófært í
Jökuldal en kannað verður með
mokstur af Vegagerðinni f dag ef
einhver uppstytta verður.
A Mýrdalssandi og Skeiðarár-
sandi var ófært í gær vegna sand-
foks og á sunnanverðu Snæfells-
nesi var mjög varahugavert
ferðaveður. Veturinn hefur því
áþreifanlega minnt á sig. — GG
Maður stórslasast í háspeimumastri
Maður slasaðist mjög alvarlega í gærmorgun þegar hann féll 10
metra niður úr háspennustaur við spennustöðina skammt frá Korp-
úlfsstöðum. Talið er að hann hafi fengið í sig um 11.000 volta straum
þegar hann tók um vír sem hann hélt að ekki væri straumur á. Mað-
urinn var í gærkvöld enn í bráðri lífshættu þar sem hann lá á gjör-
gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hann brenndist mjög illa á hand-
leggjum, hlaut áverka á brjósti og hryggbrotnaði. Hann gekkst undir
aðgerð síðdegis í gær.
Holræsagjaldið lækkar árið 2000
Tímamót urðu í umhverf-
ismálum er Hreinsi- og
dælustöðin við Ánanaust
tók til starfa. Hreinsuðu
og síuðu skólpi er þar
dælt 4 km á sjó út. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að hægt
verði að lækka holræsa-
gjaldið verulega árið
2000 þegar framkvæmd-
um \áð hreinsistöðina við
Héðinsgötu verður lokið.
Þetta kom fram í ræðu
borgarstjóra við gang-
setningu Skolpu, hreinsi-
og dælustöðvarinnar við
Ananaust, í gær.
„Með þessari stöð hef-
ur verið stigið eitt stærsta skrefið í hreinsun umhverfis. Með því hef-
ur verið tekin ótvíræð forusta í umhverfismálum sem vonandi verður
höfð til eftirbreytni um land allt á næstu árum,“ segir Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri.
Ingibjörg Sóirún Gísladóttir borgarstjóri
gangsetti nýju hreinsi- og dælustöðina við
Ánanaust við formlega athöfn í gær að viðstöddu
fjölmenni. Rekstrarkostnaður stöðvarinnar, sem
hlotið hefur nafnið Skolpa, er áætlaður um 50
milljónir króna á ári. - mynd: hilmar
KR semur við Sigurö Öm
KR hefur samið við Sigurð Orn Jónsson, landsliðsbakvörð til þriggja
ára. Fleiri leikmenn hafa skrifað undir á liðnum vikum til þriggja ára,
eins og segir í frétt frá KR: Einar Þór, Guðmundur Ben., Bjarni Þor-
steinsson og Þorsteinn Jónsson. Stjórn knattspyrnudeildar KR lýsir
jTir ánægju með að hafa tryggt sér „þjónustu“ þessara leikmanna, eins
og segir orðrétt.