Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 1
Undirbúa stórverk- smiðju á Sudurlandi Nokkur stórfyrirtæki á Suðurlandi eru að undirbúa stofnuu kj ötmj öls verksmiðj u sem viiiiiur úr slátur- íirgangi á svæðinu og stefnt að útflutningi a kjotmjoli. Verið er að undirbúa stofnun kjötmjölsverksmiðju á Suður- landi til að vinna úr sláturúr- gangi. Að því standa Atvinnuþró- unarsjóður Suðurlands, Slátur- félag Suðurlands, Höfn, Þrí- hyrningur, Reykjagarður, Fóður- stöð Suðurlands, Sorpstöðin og Heilbrigðiseftirlitið. Hagkvæmnisathuganir hafa sýnt að þetta sé álitlegur kostur, en verð á bæði kjöt- og fiskimjöli er nú mjög hátt erlendis. Stefnt er að því að flytja bæði mjöl og lýsi á markað erlendis og einnig að nýta það innanlands. Eitt ESB-Ijón liggur þó á útflutnings- veginum. Þar er um að ræða væntanlega nýja reglugerð um innflutning á kjötmjöli, sem taka á gildi 1. apríl. Er þar búist við mjög hertum kröfum í kjölfar kúariðu. Haft hefur verið samráð Hagkvæmt er talið ad vinna kjötmjöl úr sláturúrgangi og Sláturfélag Suðurlands og fleiri fyrirtæki á Suðurlandi eru að undirbúa stofnun kjötmjölsverksmiðju. við bæði yfirdýralækni og Land- læknisembættið um heilbrigðis- og reglugerðarþáttinn og gera menn sér góðar vonir um að hægt verði að komast framhjá reglugerðarvandamálinu. Leitað að húsnæði Verið er að leita að hentugu hús- næði og stað fyrir verksmiðjuna. Þar eru hafðar í huga flutnings- vegalengdir og orkukostnaður. Enn sem komið er, er aðeins horft til vinnslu sláturúrgangs frá Suðurlandi, en til greina kemur líka að taka á móti slátur- úrgangi víðar að. Hægt er að nýta allar tegundir af sláturúr- gangi, bæði af ferfætlingum og i fiðurfé. Á hverju ári eru vigtuð um 4100 tonn af sláturúrgangi til urðunar frá sláturhúsum á Suð- urlandi. Ef af rekstri kjötmjöls- verksmiðjunnar verður, ætti hún að geta tekið við öllum þessum úrgangi og urðun hans þar með að verða algjörlega hætt. Ur þessu magni ættu að fást 11- 1200 tonn af kjötmjöli og um 5- 600 tonn af dýrafitu. Mjölið og fituna er hægt að nota til fram- Ieiðslu á fóðri fyrir loðdýr og gæludýr. — SS Gudrún úr stjóm Aflvaka Guðrún Péturs- dóttir, sem tekið hefur níunda sætið á fram- boðslista sjálf- stæðismanna í Reykjavík, ætlar að segja sig úr stjórn Aflvaka, en hún situr þar skipuð af borgar- stjóra. „Meðal starfs- reglna hjá Aflvaka er að sveitar- stjórnarmenn sitji ekki í stjórn- inni. Því er eðlilegt að þegar ég nú fer í framboð til borgarstjórn- ar segi ég mig úr stjórn Aflvaka," segir Guðrún í viðtali við Dag. Hún staðfestir að henni hafi sérstaklega verið boðið að taka áttunda sætið á framboðslista sjálfstæðismanna. „Þegar svo kjörnefnd Ieitaði ákveðið eftir því við mig, með fullum stuðningi flokksforystunnar, að ég tæki sæti á listanum, hlaut ég að íhuga alvarlega þá málaleitan ásamt fjölskyldu minni og vinum og öðrum ráðgjöfum sem ég leit- aði til. Það varð síðan ofan á að ég þægi sæti á listanum og ég stakk upp á 9. sætinu." Sjá Efst á baugi á bls. 4. Goshver í Öskjúhlíð Prufukeyrsla fór fram á manngerðum goshver f gær sem ísleifur Jónsson hefur hannað. Hverinn stendur i Öskjuhlíðinni og hefur formaður veitustofnana, Alfreð Þorsteinsson, ákveðið að hverinn muni gjósa á þriggja mínútna fresti á afmælisdegi forsætisráðherra á morgun. - mynd: þök Rættum sameiuingu í Rangár- þingi Hreppsnefnd Vestur-Eyjafjalla- hrepps í Rangárvallasýslu hefur sent frá sér bréf til fjögurra ná- grannasveitarfélaga þar sem kannaður er vilji manna til sam- einingar þessara sveitarfélaga. Sveitarfélögin sem hér um ræðir eru, auk Vestur-Eyjafjallahrepps, Fljótshlíðarhreppur, Vestur- Landeyjahreppur, Austur-Land- eyjahreppur og Austur-Eyja- fjallahreppur. Ibúafjöldi þeirra allra er um 200 manns og Iand- búnaður uppistaðan í atvinnulífi þeirra. Að sögn Sveinbjörns Jónssonar í Stóru-Mörk, oddvita Vestur-Ey- fellinga, er þess óskað að menn gefi svör um áhuga sinn á mál- inu fyrir 20. janúar. „Það er alltaf spurning hve langt á að ganga, en \dð ákváðum að opna málið svona,“ segir hann - en bætir við að umræða hafi verið um að sameina alla sýsluna í eitt sveit- arfélag. Það sé þó nokkuð sem hann sjái ekki fyrir sér að rætist í bráð. Útflutningur menntafólks bætir ekki viðskiptajöfnuð íslands við önnur lönd. 15 dagar í prófkjör Reykjavíkurlistans Premium miðlarar BIACK&DECKER Handverkfæri SINDRIS -sterkur í verkl B0RGARTUNI 31 • SÍMI 562 7222 • BREFASÍMI 562 1024

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.