Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 9
FÖSTVDAGUR 16. JANÚAR 1998 - 9
T>npir
Ragnhildur Helgadóttir, bóka-
safns- og upplýsingafræðingur,
hefur starfað með Kvennalistan-
um í nokkur ár. Hún var á lista
flokksins í Reykjavík fyrir siðustu
alþingiskosningar.
Sólveig Jónsdóttir er útgáfu- og
kynningarfulltrúi starfsmannafé-
Iags Reykjavíkurborgar. Hún hef-
ur starfað talsvert með Grósku,
en hefur ekki til þessa verið áber-
andi í starfi með Kvennalistan-
um.
Enginn ðruggui
Sem fyrr sagði ríkir mikil óvissa
um úrslit prófkjörsins og þeir
sem Dagur ræddi við voru allir
heldur varfærnir í spám og reynd-
ar flestir sammála um að enginn
væri öruggur. Ovissan um fylgi
flokkanna virðist ekki alveg jafn
mikill og um einstaklingana. Al-
þýðubandalagið er talið sterkast,
þá Framsókn og svo Alþýðuflokk-
urinn og nokkuð öruggt þykir að
Kvennalistinn fái minnst fylgi.
Þetta veltur hins vegar mjög á því
hvernig fylgismenn flokkanna
skila sér í prófkjörið.
Steinunn efst
Nokkuð víst er talið að Steinunn
V. Oskarsdóttir verði efst hjá
Kvennalistanum en um röð
hinna treysta fáir sér til að spá.
Helgi Hjörvar er helst talinn
geta ógnað borgarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins, en það er þó
talið fremur ólíklegt að hann velti
Arna eða Guðrúnu. Hins vegar er
talið víst að hann fái góða kosn-
ingu. Hann er sagður sækja tals-
vert fylgi til ungliða í öðrum
flokkum, ekki síst meðal krata, en
virðist umdeildari í eigin flokki.
Óvissa hjá krötum
Líkt og hjá Alþýðubandalaginu
virðast flestir veðja á að borgar-
fulltrúar Framsóknar haldi sínu.
Alfreð lenti í neðsta sæti í kosn-
ingu í fulltrúaráðinu og mun hafa
hrokkið illa við og setti allt í gang.
Sigrún er einnig sögð vinna ötul-
lega að framboðsmálunum, en
skiptar skoðanir eru um hvort
þeirra er sterkara. Óskar Bergs-
son er talinn líklegastur til að ná
þriðja sætinu.
Óvissan virðist meiri hjá Al-
þýðuflokknum. Líklegast er talið
að þar verði Pétur Jónsson og
Hrannar Arnarson efstir. Framan
af var rætt um Hrannar sem höf-
uðandstæðing Péturs, en nú er
talað um bandalag á þeim bæn-
um.
Búist er við að Helgi Pétursson
fái góða kosningu. Hann er sagð-
ur vinsæll í Alþýðuflokknum, en
þær raddir heyrast einnig að
hann megi ekki fá OF góða kosn-
ingu, því það kunni að styggja
framsóknarmenn. Stefán Jóhann
er einnig talinn geta komið sterk-
ur út. Hann er að vísu Iítt þekkt-
ur, en kom sá og sigraði í kosn-
ingum í fulltrúaráði krata og er
sagður njóta stuðnings forystu-
manna flokksins.
Allir eru þessi spádómar með
miklum fyrirvörum og eins og í
venjulegum prófkjörum veltur
mikið á því hversu mikla vinnu
frambjóðendurnir Ieggja í að
kynna sig. Ymsir hafa áhyggjur af
því að konur geti komið illa út úr
prófkjörinu, en það yrði að teljast
mikið áfall fyrir Reykjavíkurlist-
ann, sem hefur hælt sér sérstak-
Iega fyrir að vera jafnréttissinnað-
ur listi og núið sjálfsstæðismönn-
um því um nasir að vera það ekki.
il