Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 11

Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 19 9 8 - 11 Thypr. ERLENDAR FRÉTTIR Indónesía: Upplausn yfírvofandi í Qölmiðlum fer ýmsum sögum af kreppunni í Austurlöndum fjær. Þvx' sést haldið fram að þar séu menn komnir yfir það versta í þeim efnum, en samkvæmt öðr- um fréttum fer ástandið í efna- hagsmálum versnandi í a.m.k. sumum ríkja þessara. Indónesía er e.t.v. verr á sig komin af völdum kreppu þessarar en nokkurt ríki annað. Horfur eru á að þarlendis læsi kreppan sig inn í stjórnmálin og að af því leiði alvarlega ókyrrð í eyjaríki þessu miklu, sem er fjórða íjöl- mennasta ríki heims með yfir 200 milljónir íbúa. Rúpían hriðfellui Haji Mohamed Suharto, fyrrum hershöfðingi, hefur verið forseti ríkis þessa frá því að hann og her- inn rændu völdunum fyrir 32 árum. Við það tækifæri var um hálf milljón raunverulegra og meintra kommúnista drepin, en herinn taldi kommúnistaflokk landsins þá helsta keppinaut sinn um völdin. Síðan hefur efnahags- lífið verið á skriði fram á við og honum stundum allhröðum, svo að landið hefur verið talið með efnahagsundralöndum Austur- og Suðaustur-Asíu. Lítið hefur verið þar um lýðræði og mann- réttindi, en því tóku Iandsmenn Iengi vel með þolinmæði, vegna þess að lífskjör margra þeirra bötnuðu við vöxtinn £ efnahagslíf- inu. Og stjórn Suhartos hefur verið fljót að berja niður af hörku alla þá, er hún hefur grunað um óþægð. Niðurstaðan af þessu öllu varð sú að Indónesía fékk á sig orð ekki aðeins sem land efna- hagsgrósku, heldur og stöðug- leika, með þeim árangri að er- lendir fjárfestar sóttu þangað og það átti greiðan aðgang að er- lendum og alþjóðlegum lána- stofnunum. En nú hefur slegið í bakseglin. Skógareldar bættu stórvandræð- um ofan á vandræði þau er kreppan olli, en þau eru orðin ærin. Gjaldmiðill Iandsins, rúpí- an, hefur fallið um 70% gagnvart dollarnum frá því að kreppan hófst sl. ár. Sögusagnir um að al- gert efnahagslegt hrun og félags- Ieg upplausn standi fyrir dyrum hafa orðið til þess að fólk hamstr- ar matvörur og annan varning hver sem betur getur. Tvær millj- ónir manna hafa misst atvinnuna af völdum kreppunnar og grann- löndin Malasía og Taíland, einnig hart leikin af kreppunni, hóta að reka úr landi tæplega milljón Indónesa, sem eru í vinnu í lönd- um þessum. I þessum heimshluta sem víðar hafa menn ekki tamið sér þá nærgætni við innflytjendur sem nú þykir sjálfsögð á Vestur- Iöndum. 75% cfnahagslífsins Ofan á þetta gengur orðrómur um að heilsa Suhartos, sem er rúmlega hálfáttræður, sé að bila. Það er alvarlegt mál eins og á stendur, þar eð karlinn er eftir Baksvið Gremja beinist gegn Kínverjum, sem stjór- na efnahagsmálunum að mestu, og bömum Suhartos forseta, sem græða á tá og fingri í skjóli föður síns. langa valdatíð sína og velgengni í efnahagsmálum orðinn stöðug- Ieikatákn, burtséð ífá því hvernig fólki annars líkar við hann. Hann lætur kalla sig Bapak Pembang- unan, sem útlagt er „Þróunarfað- ir.“ Margra mál er að stjórn Suhartos hafi brugðist f viður- eigninni við kreppuna, geri sér ekki ljóst hve alvarleg kreppan sé og dragi því á langinn ráðstafanir til bóta. Þetta hefur leitt til þess að í fyrsta sinn frá því að Suharto tók völd hafa svo heitið geti heyrst innanlands kröfur um að hann segi af sér. En óvíst er hvað þá tæki við. Suharto hefur yfir- höfuð ekkert um það sagt hvern- ig hann vilji að stjórnarfarið verði í landinu eftir sinn dag. Samfara öryggisleysinu beinist óánægja og reiði í hraðvaxandi mæli að tveimur aðilum: börnum og öðru venslafólki Suhartos og kínverska þjóðernisminnihlutan- um, sem er 3-4% landsmanna. Þessir aðilar hafa gert með sér bandalag. Kínverjarnir, sem margir eru snjallir í Ijármálum og kaupsýslu, eru sagðir hafa um 75% efnahagslífsins í sfnum höndum. Suharto hefur hlaðið undir Kínveijana, gegn því að íjölskylda hans fái dijúgan skerf af kökunni sem efnahagslífið gef- ur af sér. Fjögur af sex börnum forsetans eru a.m.k. í orði kveðnu aðalráðamenn í stærstu fyrir- tækjasamsteypum landsins. Indónesía er yfirlýst fijálshyggju- land í efnahagsmálum, en það hefur ekki komið í veg fyrir að ríkisvaldinu væri beitt til að greiða fyrir atvinnurekstri barna og tengdabarna Suhartos. I raun er þetta kannski þannig að kín- verskir aðilar reka fyrirtækin, þótt manneskjur í forsetafjölskyldunni ráði þeim að nafninu til og hafi gríðarháar tekjur af þeim. Megawati Sukarnoputri Indónesar eru almennt ekki mjög velviljaðir kínverskum löndum sínum og telja að ítök Kínverj- anna í efnahagsmálum séu úr hófi mikil. Skandinavískur frétta- skýrandi kemst svo að orði að í Indónesfu fari saman vanþroski í stjórnmálum, ofbeldishefð og veruleg þykkja milli þjóða og trúflokka. Landsmenn eru svo margskiptir eftir þjóðerni og trú að varla er hægt að segja að nein indónesísk þjóð sé til. Ur þessu geti orðið háskaleg blanda, ef kreppan Ieiði til verulegrar félags- legrar ókyrrðar, er sagt. Af þeim sem Iíklegir eru til að keppa um völdin \ið Suharto og hershöfðingjana er einna vænleg- ust til árangurs talin Megawati Sukarnoputri, aðsópsmikil dóttir Sukarnos, upphaflegs landsföður Indónesíu. Hún hefur harma að hefna á Suharto, sem á sínum tíma dró völdin úr höndum föður hennar. Evrópuráðherrar til Alsír í næstu víku ALSÍR - Stjórnvöld í Alsír féllust í gær á að taka á móti sendinefnd frá Evrópusambandinu í næstu viku að því tilskildu að nefndin verði skipuð ráðherrum nokkurra Evrópulanda. Sendinefnd frá Evrópu- sambandinu, sem átti að fara til Alsír í dag, var neitað um aðgang að landinu á þeim forsendum að í henni væru engir ráðherrar heldur að- eins háttsettir embættismenn. Nefndin á að ræða við stjórnvöld í Al- sír um fjöldamorðin þar í landi undanfarið. Spenna eykst milli tsraelsmauna og Palestínumanna ISRAEL - Israelskir og palestínskir hermenn beindu byssum sínum hvorir að öðrum í gær og ísraelskir hermenn skutu á palestínskan leigubíl. Spenna milli Israelsmanna og Palestínumanna hefur vaxið verulega síð- ustu daga, rétt áður en fundir Jassers Arafats, forseta Palestínumanna, og Benja- mins Netanjahu, forsætisráðherra Israels, með Bill Clinton Bandaríkjaforseta eiga að fara fram. Arafat sagði viðræðurnar sem fram eiga að fara í Washington 20.-22. jan- úar verða vendipunkt, ekki bara í samskipt- Jasser Arafat. um ísraels og Palestínu heldur í málefnum Austurlanda nær almennt. Hann sakaði jafnframt ísraelsmenn um að spilla fyrir viðræðunum og leggja allar hugsanlegar hindranir í veg fyrir að þær geti borið árangur. Þorrablót Arnarneshrepps. verður haldið í Hlíðarbæ laugardaginn 24. janúar kl. 20.30. Hreppsbúar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Brottfluttir velkomnir. Miðapantanir í símum 462 6071 Signý, 462 6887 Róbert og 462 2460 Sigrún fyrir miðvikudaginn 21. janúar. Nefndin. m Framsóknarflokkurinn Ungt framsóknarfólk athugið! Samband ungra framsóknarmanna gengst fyrir opnum stjórnar- fundi laugardaginn 17. janúar í húsnæði Framsóknarfélaganna að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Fundurinn stendur yfir frá kl. 10-16. A fundinum verður rætt um sveitarstjómarmál og undirbúning sveitarstjómarkosninganna í maí og einnig um 60 ára afmæli SUF, en samtökin verða 60 ára í júní á þessu ári. Allt áhugasamt ungt framsóknarfólk er hvatt til að mæta. Nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562-4480. Framkvæmdastjórn SUF SKÓLASTJÓRI Staða skólastjóra við Svalbarðsskóka í Þistilfirði er laus til umsóknar frá og með 1. ágúst nk. Upplýsingar veita Elfa Benediktsdóttir formaður skólanefndar í síma 468 1305 og Jóhann Sigfússon oddviti í síma 468 1107. Umsóknir skulu berast fyrir 15. febr. nk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.