Dagur - 16.01.1998, Blaðsíða 2
2 - F Ö S T U I) A G U n 1 6. J ANtiAR 1 9 9 8
FRETTIR
Samkeppnisyfirvöld hafa margitrekað bannað dreifingu á bæklingi um Kyoiic hvitlauk, sem ekki samræmdist samkeppnisreglum, en fyrirtækið sem
gaf hann út hefur hunsað bannið.
Hirnsa lög og
s amkeppnisreglur
mest seldi hvítlaukur veraldar"!!!!
Loford - en allt í plati
Þessum „stórasannleik" og öðrum var
dreift í þúsundatali í tvö ár áður en
Verðlagsstofnun skrifaði Logalandi ít-
rekað 1992, þar sem „þeim eindregnu
tilmælum er beint til fyrirtækisins að
það hætti að auglýsa á þennan hátt...
svo ekki þurfi að koma til frekari að-
gerða verðlagsyfirvalda.“ Verðlags-
stofnun hefur líklega treyst því að
Logaland færi að þessum tilmælum,
því þau virðast ekki ítrekuð af Sam-
keppnisstofnun fyrr en í desember
1995 og aftur í nóvember 1997, eftir
ábendingu um að enn lægi bæklingur-
inn góði frammi í Blómavali.
Logaland lofaði að eyða þeim u.þ.b.
2000 eintökum sem eftir væru og biðja
dreifingaraðila um hið sama - en allt í
plati. Því enn fann Samkeppnisstofn-
un bæklinginn m.a. í mörgum apótek-
um á höfuðborgarsvæðinu í óformlegri
könnun 18. desember. - HEI
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
Hunsi ni eim öH tilmæli,
hótanir og úrskurði Sam-
keppnisráðs um að hætta
röngum og viHandi upp-
lýsingum virðast þeir
komast upp með það næst-
um endalaust.
„Logaland gaf út auglýsingabækling
um Kyolic hvítlauk árið 1990. Þrátt
fyrir margítrekuð tilmæli Verðlags-
stofnunar um að hætta dreifingu bæk-
lingsins og tilmæli Samkeppnisstofn-
unar sama efnís 1995, er bæklingurinn
enn í umferð. Það er ljóst að bækling-
urinn fer víða og hefur augljóslega ver-
ið dreift til söluaðila allt frá þvf hann
var fyrst gefinn út árið 1990“ (í 25.000
eintökum), segir í nýjum úrskurði
Samkeppnisráðs, sem enn einn gang-
inn hefur bannað dreifingu bæklings-
ins og krafist innköllunar hans fyrir
15. febrúar 1998.
Skaðað aðra
Samkeppnisráð telur dreifingu bæld-
ingsins skaða samkeppni. „Því má telja
að keppinautar hafi orðið af umtals-
verðum viðskiptum vegna dreifingar
bæklingsins,11 segir Samkeppnisráð -
sem saklausir neytendur hafa haldið að
ætti að vernda þá, jafnt og löghlýðna
seljendur fyrir því að óprúttnir sölu-
menn geti árum saman dreift rakalaus-
um fullyrðingum um ótrúlegt ágæti
vöru sinnar.
Og það er ekkert smáræði sem bækl-
ingurinn Iofar, í þeim 10 fullyrðingum
sem Verðlagsstofnun gerði athuga-
semdir við og Logaland gat ekki rök-
stutt eða sannað að hennar mati.
Nokkur dæmi: „Eini alveg lyktarlausi
hvítlaukurinn." „Enginn samjöfnuður
undir sólinni - gæði, heilnæmi, holl-
usta.“ „Kælivinnsla sem á engan sinn
líka í veröldinnni." „ÖII önnur hvít-
Iauksmeðferð veraldar notar hitameð-
ferð - hiti eyðileggur hvata og virk
efnasambönd í hvítlauk og ónýtir
heilsubætandi áhrif hans.“ „Kyolic er
í heita pottinum eru menn miMð
að spá í frammistöðu Ólafs
Skúiasonar biskups í þætti Ingó
og Áma í vikunni. Flestir telja að
Ólafur hafi komist vel frá þessu,
neina hvað sumir pottverjar
voru óhressir með að hann
skyldi ekki upplýsa hverjir
„fréttafrændurnir þrír“ væru
sem hefðu einkum lagst gegn honum á sínum
tíma. Þó biskupinn hafi ekki viljað upplýsa
hverjir þetta voru, stóð ekki á þeim upplýsing-
um í pottinum. Þar segja menn að „fréttafrænd-
umir þrír“ séu bræðumir Illugi og Hrafn Jök-
ulssynir, sem störfuðu á Alþýðublaðinu og RÚV,
og svo Þór Jónsson, fréttamaður á Stöð 2. Þeir
em bræðrasynir....
Ólafur
Skúiason.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra upplýsti á fundi með
framsóknarmönnum á Akureyri í
íýrradag að hann hefði verið dá-
lítið utangátta í umræðunni um
þessa nýju ökupunkta, sem allir
væm að tala um. Halldór sagðist
hafa um skeið staðið í þeirri
inemingu að þetta væri enn ný
tegund af fcrðapunktum eða frípunktum frá
Fluglciðum, jafnvcl frá hílaleigu Flugleiða.
Eftir að farið var að spá í framkvæmdastjóra-
stöðuna hjá RÚV hér í heita pottinum hafa sí-
fellt verið að bætast við iiöfii í púkkið. Nýjasta
nafnið er Margrét Oddsdóttir sem nú stýrir
menningunni hjá útvarpinu og sagt er að bæði
hún og Sigurður G. Tómasson verði í hópi um-
sækjenda. Amar Páll Hauksson er hins vcgar al-
veg dottinn út úr umræðunni hvað þetta varð-
ar.
V_
Haiidór
Ásgrimsson.
Ámi Sigfússon
leiðtogi sjálfstæðismanna í
Reykjavút
Sókmrfæri okkar eru góð
etida eru bæði reynsla og
ferskleiki í okkarlista.
Hann erlíka að mínum
dómi heilstæðari og kraft-
nteirí, 16-mannahópurínn
nú en síðast, án þess að ég
sé að gera lítið úr þeim sem
áður voru í honum.
Sterkari nú en síðast
„Ég er ánægður með þennan lista og tel
hann mjög sterkan. Hann byggir á niður-
stöðu prófkjörsins eins og sést á því að í 8
efstu sætunum eru þeir sem fengu sterk-
ustu kosninguna í prófkjörinu, þar sem á
sjöunda þúsund sjálfstæðismenn völdu. Síð-
an hefur kjörnefnd leitað til margra sem
tóku þátt í prófkjörinu, þótt þeir fengju ekki
bindandi kosningu, um að taka sæti á Iist-
anum, auk nýrra einstaklinga eins og Guð-
rúnar Pétursdóttur. Þetta allt þýðir að list-
inn er öflugur og sterkur."
-Hvað Uíti þann pirring sem kotnið hefur
fram hjá Helgu Jóhannsdóttur og Snorra
Hjaltasyni vegna þess að þau voru færð
aftar á listann en niðurstaða próflijörsins
gerði ráð jj rir?
„Ég skil vel að þeir sem hafa lagt sig fram
í prófkjöri séu ekki allskostar sáttir við að
vera færðir til. Hins vegar gera jiessir ein-
staklingar, eins og aðrir, sér grein fyrir því að
þetta breytir engu um væntingar sem við
gerum til þeirra í borgarstjórnarflokknum
og sem ég geri til þeirra. Ég þekki hæfileika
þeirra og eiginleika, þannig að röðin í borg-
arstjórnarflokknum breytir engu. Þar er
einn maður eitt atkvæði og ef við náum
meirihluta mun þetta fólk veljast til mikil-
vægra starfa í hinum ýmsu nefndum borgar-
innar. Sú tilfærsla sem átt hefur sér stað
breytir því engu um stöðu þeirra sem ein-
staklinga í hópnum."
-Er eðlilegt að kona sem lenti fyrir aft-
an Helgu t prófkjörinu sé færð frattt fyrir
hana við uppstillingu á listann?
„Það er ekkert vantraust á Helgu í þessu
og ef hún lítur á þetta sem vantraust er það
vantraust á alla sem færðir eru til. Ég geri
mér hins vegar fulla grein fyrir því að það er
viðkvæmt að færa fram einstakling sem hef-
ur tekið þátt í prófkjöri og fengið lakari
stöðu. Það þarf ekki að mótmæla því en hér
var um ákvörðun kjörnefndar að ræða. Ég
þekki Bryndísi Þórðardóttur og veit að hún
er mjög hæfur einstaklingur. En eins og ég
sagði, það skiptir ekki megin máli fyrir okk-
ar vinnu í hvaða röð rnenn koma inn í borg-
arstjórnarflokkinn."
-Stðast tapaði D-listinn fyrir Reykjavík-
ur-listanum með litlum mun. Samkvæmt
skoðanakönnunum er tnunurinn áfram
li'till. Heldur þú að sá listi sem þú leiðir
nti sé sigurstranglegri en sá listi setn þú
leiddir fyrir 4 árutn?
„Já, ég tel það vera. I fyrsta lagi erum við
reynslunni ríkari og fyrir fjórum árum kom
ég inn í þetta 70 dögum íyrir kosningar og
var falið að leiða listann. Þá var staðan slík,
um svipað leyti og nú, að við vorum með
36% fylgi í skoðanakönnunum. Okkar verk-
efni var að vinna okkur yfir helminginn. Við
náðum 47,3%. Nú er staðan sú að Iistarnir
eru með svipað fylgi í skoðanakönnunum.
Einnig þykir mér athyglisvert að mælingar á
persónufylgi borgarstjóra eru ekki sterkar.
Ef við berum saman fyrri borgarstjóra, eins
og Da\að Oddsson, sem var gjarnan að fá
70-80% mælingu á persónufylgi, þó að
flokkurinn væri að mælast rétt um 50% þá
er staða R-listans ekki sterk. Þess vegna tel
ég að sóknarfæri okkar séu góð enda er
bæði reynsla og ferskleiki í okkar lista.
Hann er líka að mínum dómi heilstæðari og
kraftmeiri, 16-manna hópurinn, nú en síð-
ast án Jiess að ég sé að gera Iítið úr þeim
sem áður voru.“
-S.Dóit