Dagur - 17.01.1998, Síða 5
LAVGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 - S
FRÉTTIR
Bíllaus heimili hehningi
fleiri en fyrir finim árnm
Heimilum með ör-
hylgjnofn og mynd-
handstæki fjölgaði
gríðarlega síðustu tíu
árin en híllausum
heimilum fjölgaði
líka um helming.
Fjöldi bíllausra heimila tvöfald-
aðist frá árinu 1990 til 1995,
þegar 9. hvert heimili í landinu
var án bíls, eða næstum eins
mörg eins og tíu árum áður, þ.e.
fyrir „bílakjarasamningana"
1986. Heimili án þvottavéla voru
jafn mörg og þau bíllausu og
fjölgaði í sama hlutfalli. Gríðar-
Ieg aukning hefur hins vegar
orðið í annarri tækjavæðingu
heimilanna í landinu. Fjöldi ör-
bylgjuofna hefur t.d. meira en
fimmfaldast, myndbandstæki 2-
3 faldast og uppþvottavélin \irð-
ist loks að r^’ðja sér til rúms.
Þróunin í tækjavæðingu heim-
ilanna er meðal athygliverðra
upplýsinga sem neyslukannanir
Hagstofunnar leiða í ljós. Sú síð-
asta 1995, náði til nærri 1.400
heimila af öllum stærðum og
gerðum, einnig þeirra sem búa
einir í heimili.
Helmingi fleiri með vídeó en
nppþvottavél
Orbylgjuofninn var enn fremur
sjaldgæfur á heimilum (12%)
árið 1985, en nú er aðeins þriðj-
ungur heimila án hans. Þá var
heldur ekki myndbandstæki
nema á þriðja hverju heimili, en
núna á 80% allra heimila. Enda
virðast ótal margir sætta sig bet-
ur við uppþvottaburstann og
„viskustykkið" en að vera án „víd-
eós“. Því uppþvottavélar voru á
helmingi færri heimilum en
myndbandstæki fyrir áratug - og
eru enn.
Sjaldgæfastur er þó þurrkar-
inn, sem einungis er á innan við
Uppþvottavélar eru þarfaþing, en þær
eru á helmingi færri heimilum en
myndbandstæki.
þriðjungi heimila. Seljendur
heimilistækja virðast því enn
hafa óplægðan akur í sölu upp-
þvottavéla og tauþurrkara. Tekið
er fram að þurrkarar í sameign í
fjölbýlishúsum eru ekki meðtald-
ir og sama á við um þvottavélar,
sem skýrir kannski hvað þeim
hefur fækkað, þannig að níunda
hvert heimili (12%) er nú án
þessa þarfaþings.
FrystiMsttun/skápum aflur
að fækka
Sölumöguleikar margra annarra
heimilistækja einskorðast hins
vegar næstum við endurnýjun
tækja vegna bilana, eða stofnun
nýrra heimila. Utvarp, sími og
kæliskápur hafa Iengi verið eins
algeng á heimilum eins og sjálf
eldavélin, þ.e. á næstum hverju
einasta heimili. Svipað er með
sjónvarpið, sem einungis vantar
á innan við 3% heimila, en samt
þrisvar sinnum fleiri en 1990. Þá
vekur athygli að frystiskáp-
um/kistum hefur fækkað umtals-
vert á síðustu fimm árum
(kannski vegna minni sláturgerð-
ar?) og finnast nú aðeins á 70%
heimila. — HEI
Flugraös
inaiiiii hótað
Haukur Hauksson aðstoðarflug-
málastjóri hótaði Gunnari Hilm-
arssyni flugráðsmanni, því að
birta tvær ótilteknar yfirlýsingar
sem ekki er vitað hvað innhalda,
ef hann drægi ekki ummæli sín í
Degi til baka. Þetta kemur fram í
fundargerð Flugráðs.
Gunnar hafði í viðtali við Dag
talað um tugmilljóna króna vönt-
un á tekjum Flugmálastjórnar.
Haukur og samgönguráðherra
túlkuðu þetta sem aðdróttun um
ólögmætt athæfi, þótt skýrt hefði
komið fram að Gunnar hafði átt
við vöntun á tekjum vegna þess
að Flugleiðir sleppa að mestu við
að greiða eldsneytisgjald. Ráð-
herra hefur einnig sagt að Gunn-
ar hafi síðan dregið ummæli sín
til baka, en hann kannast ekki
við það.
Dagur stendur við sína frétt og
Gunnar Hilmarsson hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem hann
segir m.a.
„Eg hef engin ummæli mín
dregið til baka. Hins vegar mátti
misskilja orðalag fréttar í Degi ...
enda kjósa aðilar máls að gera
það þrátt fyrir leiðréttingar bæði
f blaðinu og í FIugráði.“
I öðru Iagi segir Gunnar að
hann hafi engum „brigslað um
misferli í starfi af þessari stærð“
eins og samgönguráðherra hafi
haldið fram. „Menn hafi hins
vegar kosið að reyna að afgreiða
málið um eldsneytisgjaldið á
þennan hátt og það segir ef til
vill meira en mörg orð.“ — VJ
Ruslahaugur Gáms t Straumsvik meö Hafnarfjörð í baksýn. Húsið er fullt afsorpi og ruslahaugar blasa við frá Reykjanesbraut..
Rakið rottubæli, sagöi Ijósmyndarinn. mynd: pjetur
FuHt hús af sorpi selt
á nauðungarapphoði
Nýtísku sorpflokkim-
arfyrirtæki, Hring-
henda Gámur, lognað-
ist út af. Nýi Fjárfest-
ingabanki atvinnu-
lífsins keypti eignina
á nauðungarupphoði
Fasteignin Reykjanesbraut 950
var nýlega slegin hæstbjóðanda á
nauðungaruppboði á 14 milljón-
ir króna. Húsið er risastórt með
mikilli lofthæð, 11.991 fermetri
á leigulóð með leigusamning
sem rennur út 2005. Húsið hef-
ur um margra vikna skeið verið
ómannað, en fullt af fyrirtækja-
sorpi, og á útisvæði eru einnig
sorphaugar. Ibúar í Hafnarfirði
hafa í samtali við Dag látið í ljósi
ótta um að rottur kæmu sér
þarna á legg og gætu hugsanlega
valdið rottuplágu í bænum.
Eigandi fyrirtækisins sem
þarna starfaði, Hringhendu
Gáms, var Guðjón Þorbjörnsson.
Fyrirtækið lenti í kröggum og
lauk því svo að Fiskveiðisjóður
íslands óskaði eftir uppboði.
Fjárfestingabanki atvinnulífsins
mun nú leita að aðila til að reka
fyrirtækið eða yfirtaka húsnæð-
ið, en sérhæfðar vélar þess
munu farnar af staðnum. Eig-
andi fyrirtækisins mun dvelja er-
Iendis. Hringhenda Gámur var
stofnað í því skyni að fínflokka
sorp og hafði til þess geysistórt
húsnæði þar sem áður fyrri átti
að starfa fiskeldisstöð en auk
þess góðan vélbúnað.
Heilbrigðisfulltrúinn í Hafnar-
firði, Guðmundur Einarsson,
sagði að ekki væri hætta á rottu-
gangi frá athafnasvæði Hring-
hendu Gáms. Ymsir íbúar bæjar-
ins bafa Iátið í ljós ugg vegna
þess arna í samtölum við Dag.
Guðmundur sagði að ekki hefðu
borist neinar kvartanir til emb-
ættisins vegna hugsanlegs rottu-
gangs eða óþrifa frá svæðinu.
Embættið fylgdist vel með gangi
mála þarna.
„Þarna er ekki vandamál á
ferðinni um hávetur þó það taki
nokkrar vikur frá uppboði og
þangað til sýsiumaður hefur
gengið frá málinu. Það gerist
ekkert á þessum tíma,“ sagði
Guðmundur Einarsson heil-
brigðisfulltrúi í gær.
Magnús Jón Arnason, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, kom með
fyrirspurn í bæjarstjórn í fyrra-
dag vegna þessa máls. „Eg var
nú bara að spyrjast fyrir um hvað
þarna væri á seyði. Við vorum að
ræða um þetta mál fyrir jólín.
Skemman þeirra er troðfull af
sorpi. Þetta átti að vera mjög
flott flokkun á sfnum tíma en
ekkert gengið eftir. Það átti Iíka
að hirða timbur og kurla það,
jafnvel að senda það til húshit-
unar í Eyjum. En það hefur þess
í stað verið urðað. Frá jólum hef-
ur ekkert gerst hjá þessu fyrir-
tæki og mér sýnist full þörf á að
fylgst sé með þessu,“ sagði
Magnús Jón Arnason. — jbp
HREINSIÐ LJÓSKERIN
REGLULEGA
yUMFERÐAR
RÁÐ
AKUREYRI
Engar breytingar
hjá FÍ
Fulltrúar Flugfélags Islands, Sig-
urður Aðaisteinsson stjórnarfor-
maður og Páll Halldórsson fram-
kvæmdastjóri, komu á fund bæj-
arráðs og gerðu grein fyrir starf-
semi FI á Akureyri, flugsam-
göngum frá Akureyri út um land
og til Grænlands. Ekki er fyrir-
huguð nein grundvallarbreyting
á starfseminni á Akureyri þrátt
fyrir nokkrar aðgerðir sem gerðar
hafa verið eða kunna að verða
gerðar í hagræðingarskyni.
Minnihlutinn
gegn hækkun
leikskolagj alda
Lagt var fram brét frá foreldrafé-
lögum leikskólanna í bænum
varðandi fyrirhugaða hækkun
leikskólagjalda og eins lagði
fræðslumálastjóri fram blöð með
samanburði á gjaldskrám Ieik-
skóla í nokkrum sveitarfélögum.
Bæjarráðsmaður Sigríður Stef-
ánsdóttir óskar bókað að bæjar-
fulltrúar minnihlutans stóðu
ekki að síðustu hækkun leik-
skólagjalda og töldu hana of
mikla. Hún leggur til að íyrir-
huguð hækkun verði dregin til
baka meðan raunverulegar
kostnaðarhækkanir við leikskóla
og samanburður við önnur sveit-
arfélög eru skoðuð nánar. Tillög-
unni var vísað til bæjarstjórnar
(næsti fundur 20. janúar).
Mótun
uinhverfisstefnu
Með vísan til samþykktar bæjar-
ráðs 10. desember sl. og bæjar-
stjórnar 16. desember sl. um
átak í umhverfismálum vísar
bæjarráð til bæjarstjórnar kosn-
ingu 5 aðalmanna og 5 vara-
manna í nefnd til að hafa yfir-
stjórn með verkefninu. Bæjarráð
telur eðlilegt að grunnurinn að
mótun umhverfisstefnu verði sú
stefnumótun sem þegar hefur
komið fram í vinnu \áð endur-
skoðun aðalskipulags Akureyrar.
Akureyrarbær
kaupir Þiugvelli
Akureyrarbær hefur samþykkt að
kaupa fasteignina Lækjargötu 6,
íbúð á 2. hæð, ásamt tilheyrandi
Ieigulóðaréttindum, sbr. bókun
bæjarráðs 6. febrúar 1997, af
Búnaðarbanka íslands fyrir 3,1
milljón króna. Einnig hefur verið
samþykkt að kaupa fasteign og
erfðafestuland býlisins Þingvalla
við Norðurlandsbraut af Sigur-
laugu Njálsdóttur, Sigurði F. Sig-
urðssyni og Lilju Osk Sigurðar-
dóttur fyrir 7 milljónir króna.
Umsókn um
hlutafé í Skugga
Sælgætisverksmiðan Skuggi hef-
ur sótt um hlutafjárframlag til
framkvæmdasjóðs Akureyrar að
upphæð 5 milljónir króna. Bæj-
arráð vísaði á fundi sínum 15.
janúar erindinu til umsagnar at-
vinnumálanefndar. — GG