Dagur - 17.01.1998, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGVR 17. JANÚAR 199 8
FRÉTTASKÝRING
Útivistarparadís í Nai
GUÐ-
MUNDUR
RÚNAR
HEIÐARSSON
SKRIFAR
Sjóböð og baðströnd
iiuian seilingar í Naut-
hólsvík. Á eftir að
veita Bláa lóninu
harða samkeppni um
hylli almennings og
ferðamanna. Strand-
verðir gæta öryggis
gesta.
„Það er alveg ótrúleg slökun sem
maður fær út úr því að fara úr
heitri gufu eða heitum potti,
synda síðan í köldum sjó og fara
svo að því loknu aftur í heitan
pott. Maður finnur nánast fyrir
hverjum vöðva,“ segir Gísli Arni
Eggertsson hjá Iþrótta- og tóm-
stundaráði.
Nýtt Hf
Aður en langt um líður geta
Reykvíkingar og aðrir landsmenn
spókað sig á góðviðrisdögum á
baðströnd, synt í volgum sjónum
og farið í heita potta í Nauthóls-
vík. Borgaryfirvöld stefna að því
að blása nýju lífi í Víkina og gera
hana að útivistarparadís sem
jafnvel getur orðið harður keppi-
nautur Bláa Iónsins um hylli al-
mennings og ferðamanna. Þarna
verður einnig aðstaða fyrir sigl-
ingamenn að ógleymdu
stríðsminjasafni sem ætlunin er
að setja á fót á svæðinu.
Hreinar fjörur
Það hefur löngum verið á dagskrá
borgaryfirvalda að endurvekja
Nauthólsvfkina sem útivistar-
svæði lyrir borgarbúa. Með til-
komu hreinsi- og dælustöðvar-
innar við Ananaust sem opnuð
var í vikunni verður stutt í það að
fjaran í Nauthólsvík og aðrar fjör-
ur á suður- og vesturströnd höf-
uðborgarsvæðisins verða lausar
við þá mengun og þann óþrifnað
sem fylgt hefur skólpi frá holræs-
um borgarinnar. Aðrar fjörur
verða síðan hreinar eftir tvö ár
eða um aldamótin þegar stöðin á
Laugarnesi tekur til starfa.
Vmsælt útivistarsvæöi
A sínum tíma eða á miðjum sjö-
unda áratugnum varð þessi
mengun til þess að borgarbúar
gátu ekki lengur stundað sjóböð í
Nauthólsvíkinni. A árunum þar á
undan eða frá byrjun sjötta ára-
tugarins naut hún ómældra vin-
sælda hjá öllum aldurshópum
sem útivistarstaður. A undan-
förnum árum hefur engu að síður
verið umfangsmikil starfsemi í
Nauthólsvíkinni á vegum Iþrótta-
og tómstundaráðs og nægir í því
sambandi að nefna siglingar. Þá
hefur svæðið notið sívaxandi vin-
sælda sem útivistarsvæði og alltaf
eitthvað um að fólk sjáist þar við
iðkun sjóbaða á góðviðrisdögum.
A þessu ári ráðgera borgaryfir-
völd að veija fimm milljónum
króna til skipulags- og undirbún-
ingsvinnu við svæðið. Þeir bjart-
sýnustu telja að Nauthólsvíkin
geti opnað á ný eftir jafnvel eitt
eða tvö ár. Miðað við þær yfirlýs-
ingar sem Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri hefur gefið, má
ætla að það geti orðið sumarið
2000. I það minnsta hefur hún
heitið því að synda yfir Nauthóls-
vikina klukkan 14 á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní það ár.
Ylvolgur sjór
Yngvi Þór Loftsson landslagsarki-
tekt sem unnið hefur að frum-
drögum að skipulagi fyrir Naut-
hólsvíldna fyrir borgina segir að
stefnt sé að því að sjóbaðstaður-
inn verði afgirtur. Það verður
annaðhvort gert með gijóthleðslu
eða flotgirðingu sem nær frá
gamla bryggjusporðinurn að Kýr-
hamrinum vestan við Víkina.
Gert er ráð fyrir að sjóbaðstaður-
inn verði 50 sinnum 100 metrar
að stærð, eða álíka stór og fót-
boltavöllur. Þangað verður svo
leitt heitt vatn með sérlögn úr
hitaveitutönkunum á Oskjuhlíð
svo sjórinn verður ylvolgur. Búist
er við að dýpið verði frá hálfum
metra og upp í tvo metra eftir því
hvernig stendur á sjávarföllum.
Upp af Víkinni er svo gert ráð fyr-
ir fyrir heitum pottum og aðstöðu
fyrir sólböð. Þar verður einnig
búningsaðstaða og böð. Síðast en
ekki síst verður baðströndin út-
búin hvítum skeljasandi þar sem
gestir geta flatmagað á heitum
sumardögum. Skjólsælt er í
Nauthólsvík og hitastig oft hærra
en á öðrum svæðum í borgarland-
inu.
Óvíst um kostnaö
I þessum frumdrögum að skipu-
lagi Nauthólsvíkur sem gert var
fyrir fjórum árum er ennfremur
gert ráð fyrir flotflekum út í sjó-
baðstaðinn. Út frá hugsanlegri
grjóthleðslu eða flotgirðingu
kemur sfðan flotbryggja. Handan
við það verður aðstaða fyrir þá
sem stunda siglingar á seglbrett-
um. Þar verða einníg bátanaust
og flotbryggja og aðstaða fyrir
siglingafólk. Ovíst er hversu
margir geta verið á sama tíma í
Nauthólsvíkinni þegar svæðið
verður tilbúið til notkunar. Þó er
ekki loku fyrir það skotið að
þarna geti verið aðstaða fyrir allt
að 2 þúsund manns. Sömuleiðis
er ekki vitað hvað uppbyggingin
muni kosta mikla íjármuni. Við-
búið er það muni kosta einhverja
tugi milljóna króna og jafnvel
meira. Það fer hinsvegar alfarið
eftir því hvað borgaryfirvöld eru
tilbúin að kosta miklu til við það
verk.
Strandverðir
Aftur á móti er einsýnt að ströng
öryggisgæsla verður á svæðinu
þar sem m.a. verður fylgst með
baðgestum úr turni. Það þýðir
væntanlega að borgarbúar muni
eignast sína strandverði þótt þeir
verði kannski ekki í líkingu við þá
sem landsmenn þekkja úr sjón-
varpinu. Það er þó aldrei að vita
nema íslensk útgáfa af Pamelu
Anderson muni sjást á svæðinu,
albúin til aðstoða Ianda í vanda.
Á síðari tímum verður væntan-
lega tekin afstaða til þess hvort
seldur verður aðgangur að svæð-
inu eða ekki og hvort það verður
girt af. Hinsvegar er viðbúið að
þar muni rfsa einhver veitingaað-
staða. Olfklegt er talið að borgin
muni sjá um rekstur þess. Þá er
einnig óvíst hver kostnaðurinn
verður við rekstur Nauthólsvfkur.
Þessi mál og önnur er varða fram-
tíð svæðisins eiga eftir að koma
til umræðu innan borgarkerfis-
ins.
Perluband
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar Reykjavíkur-
borgar, segir að búið sé að endur-
skoða þau skipulagsdrög sem
gerð voru árið 1994 fyrir Naut-
hólsvíkina. Hún segir að það
verði hægt að vinna eftir þeim
mjög fljótlega. Guðrún bendir
jafnframt á að í nýja aðalskipulagi
borgarinnar til ársins 2016 hafi
verið felldur niður vegurinn sem
átti að liggja á milli Oskjuhlíðar
og Nauthólsvíkur. Ef ekki þá
hefði þessi hraðbraut eyðilagt
töluvert mikið fyrir því andrúms-
Iofti sem borgaryfirvöld hyggjast
skapa með uppbyggingu Naut-
hólsvíkur og nágrennis.
„Með þessu erum við búin að
þræða útívistarsvæði borgarinnar
upp á samfellt perluband," segir
Guðrún Agústsdóttir.
Jákvætt og spennandi
Hún bendir á að með fyrirhugaðri
starfsemi í Nauthólsvík sé búið
að skapa útivistarsvæði borgar-
innar eina samfellu frá Seltjarn-
arnesi að Elliðavatni og uppí
Heiðmörk. Samfara því hafa
möguleikar borgarbúa til útivistar
aukist til muna, enda geta þeir
gengið, skokkað eða hjólað alla
þessa leið. Með tilkomu aðstöð-
unnar í Nauthólsvík skapast m.a.
tækifæri fyrir útvistarfólk og aðra
til að nýta sér þá möguleika sem
eru fyrir hendi. Þar geta menn
slappað af og haft það náðugt á
milli ferða sinna um útivistar-
svæði borgarinnar. Sjálf minnist
hún vel þeirra tíma þegar hún
sem unglingur lagði leið sína í
Nauthólsvík til að sleikja sólskin-
ið, sýna sig og sjá aðra.
„Ég held að allir séu mjög já-
kvæðir og spenntir gagnvart
þessu. Enda höfum við ekki get-
að nýtt okkur kosti strandarinnar
eins og vera ber. Það er sem bet-
ur fer að breytast til betri vegar,"
segir Guðrún Ágústdóttir.
hugsanlcg floigiröing
cöa grjólhlcösla
Ilot
Nauthólsvík
/ þessum drögum að skipulagi Nauthólsvíl
renna heitt vatn frá hitavatnstönkum úr Ösl
metrar. Baðströndin verður mt