Dagur - 17.01.1998, Side 9
rD^tr
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 - 9
FRÉTTIR
L.
ithólsvik
j-rj uþplýsijc^skiltí
lcikvðllur
Lyngberg
Mlaníiusl
iunhvctfisl'r«ðsl»
Fossvogsbakkar
scglbrctli
stglinear
flotbryggja
bryggja
;ur er gert ráð fyrir 50x100 metra sjóbaðslaug, sem er álíka stór og fótboltavöllur. í hana mun
'<juhlíð sem gerir sjóinn yivolgan. Dýpið fer eftir sjávarföllum en verður þó aldrei meira en tveir
;ð hvítum skeljasandi. Þarna verða einnig heitir pottar, búningsaðstaða og sólböð.
Ráðuneytið bauð á
kostnað fyrirtækjanna
Samgönguráðimeytið
sendi erindi til Al-
þingis og bauð sam-
göngunefnd til Bruss-
el. Formanni sam-
göngunefndar finnst
ekkert athugavert við
að fara í boði íyrir
tækja til útlanda.
„Eg þekki það ekki að nefndir Al-
þingis fari í boði fyrirtækja til út-
landa. Okkur barst boð frá sam-
gönguráðuneytinu um að það
byði samgöngunefnd Alþingis til
Brussel og það var þegið enda
þótt að það sé afar sjaldgæft að
ráðuneytin bjóði þingnefndum í
ferðalög. Ég hygg að telja megi
slík boð á fingrum annarrar
handar. Reglan er sú að fari þing-
nefndir til útlanda er það á veg-
um og kostnað Alþingis,“ sagði
Friðrik Olafsson, skrifstofustjóri
Alþingis, vegna ferðar samgöngu-
nefndar til Brussel á kostnað
Landssíma Islands hf. og Islands-
pósts hf., sem mjög er umdeild.
„Ákvörðunin um að bjóða þing-
nefndinni í þessa ferð var tekin
fyrir áramót, áður en ég tók sæti
sem stjórnarformaður Landssíma
íslands hf. þannig að ég kýs að
svara ekki fyrir þetta," sagði Þór-
arinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSI og stjórnarfor-
maður Landssfma íslands, í sam-
tali við Dag um þetta mál.
„Þetta var þannig að sam-
gönguráðherra kom að máli við
samgöngunefnd og bauð okkur til
þessarar ferðar til að kynna okkur
þær mikJu breytingar sem eru að
verða í fjarskiptamálum í Evrópu
og hafa þegar haft og munu enn
frekar hafa mikil áhrif hér á landi.
Ég vissi ekki að ferðin yrði kostuð
af Landssíma íslands hf. og ís-
landspósti hf. Ég tel hins vegar að
það hefði engu breytt um ferðina
hefðum við vitað það. Það er svo
spurning hvort það sé óeðlilegt að
ferðin sé kostuð af ríkisfyrirtæki.
Ég tel ekkert óeðlilegt við það.
Ferðin er farin á þeim forsendum
að verið er að fjalla um málin
með faglegum hætti en ekki á for-
sendum einhverra fyrirtækja.
Þess eru mörg dæmi að bæði
fréttamönnum, og jafnvel ráð-
herrum, séð boðið í ferðir á for-
sendum fyrirtækjanna sem bjóða.
Þar má nefna sem dæmi ef Flug-
leiðir hf. opna nýja flugleið,"
sagði Einar K. Guðfinnsson, for-
maður samgöngunefndar Alþing-
ÍS. - S .DÓR
SSByggir
býst viö
sektuin
Sigurður Sigurðsson hjá SS-
Byggi á Akureyri telur að mán-
aðarseinkun á verkhluta við
Giljaskóla teljist ekki alvarlegt
frávik. Tafirnar hafi orðið vegna
þess að gluggar bárust of seint
til landsins og svo hafi það
seinna komið til að gler brotnaði
þegar gámur valt. Allar aðstæður
hafi orðið á þann veg að fresta
hafi þurft verkinu og Sigurður
vísar því alfarið á bug að hags-
munir fyrirtækis hans hafi orðið
til þess að fresta því að börnin í
Giljaskóla kæmust í viðunandi
húsnæði. „Ég nenni ekki að taka
þátt í neinni kosningabaráttu og
vil sem minnst tjá mig um
þetta,“ segir Sigurður.
Eins og Dagur hefur fjallað
um hafa foreldrafélög Giljaskóla
og leikskólans Kiðagils gefið í
skyn að annar verkhluti Gilja-
skóla hafi tafist vegna annarra
verkefna og hafi verktakinn, SS-
Byggir, sætt færis vegna þess að
Akureyrarbær innheimti aldrei
dagsektir. En á Sigurður von á
að þurfa að greiða dagsektir
vegna þess að skiladagur um-
rædds verkhluta við Giljaskóla
dregst frá 15. des. ‘97 til I. febr-
úar ‘98. „Það verður örugglega
reynt að beita mig dagsektum en
ég mun Iíka reyna að sporna
gegn því. Umræðan hefur beinst
í þá átt að ég verði að greiða
sektir þótt ekki hafi ráðist við
þetta.“ — BÞ
Sjö sóttu um ríkislögreglustióra
Sjö sóttu um embætti ríkislögreglustjóra en umsólínarfrestur rann út
þann 15. janúar. Það eru Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögreglu-
skóla ríkisins; Georg Kr. Lárusson, sýslumaður í Vestmannaejjum,
Haraldur Johannessen, varalögreglustjóri í Reykjavík, Hjördís Björk
Hákonardóttir, hérðasdómari, Stefán Hirst, skrifstofustjóri Iögreglunn-
ar í Reykjavík, Valtýr Sigurðsson, hérðasdómari og Þórir Oddsson,
varalögreglustjóri.
Bogi Nilsson, sem verið hefur ríkislögreglustjóri frá því embættið var
stofnað um mitt síðasta ár, hefur sem kunnugt er verið skipaður rílds-
saksóknari í stað Hallvarðs Einvarðssonar sem hætti fyrir aldurs sakir
urn áramót.
Mega uröa í FífLholtum
Guðmundur Bjarnason, umhverfisráherra, hefur staðfest úrskurð
skipulagsstjóra frá því í haust og fallist á fyrirhugaða urðun úrgangs í
landi Fíflholta eða Jörfa á Mýrum. Leyfið er þó háð ákveðnum skilyrð-
um, m.a. er þess krafist að efni verði aðeins tekið á tilgreindum svæð-
um og að gengið verði þannig frá við það að aldrei verði ófrágengin sár
í landinu sem eru stærri en sem nemi eins árs efnistöku. Einnig er þess
krafist að gerð verði áætlun um endurheimt votlendis þannig að bætt
verði þau svæði sem skerðast vegna sorpurðunarstaðarins.
Barist gegn viðskiptabanni
Almennur borgarafundur verður í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag vegna al-
þjóðlegs baráttudags gegn almennu viðskiptabanni á Irak. Tilgangur-
inn er að hvetja til samstöðu um að refsiaðgerðum gegn almenningi í
Irak verði hætt, en samkvæmt upplýsingum frá NICEF hafa 600 þús-
und börn látist af völdum viðskiptabannsins. Meðal ræðumanna á
borgarfundinum verða Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, Kristján
Árnason, verkamaður, og Ogmundur Jónasson, þingmaður.
Tekinit meö fíkniefni
íslendingur sem var að koma heim frá Amsterdam var í \ikunni tekinn
á Keflavíkurflugvelli með 130 g af amfetamíni. Maðurinn bar fíkniefn-
ið innvortis. Málið er upplýst.