Dagur - 17.01.1998, Side 11
LAUGARDAGUR 17.JANÚAR 1998 - 11
ERLENDARFRÉTTÍR
Frá miðborg Kaupmannahafnar: Færeyingar eru Dönum ævareiðir.
Færeyingar vom
hlunniamir
GUÐSTEINN
BJARNASON
skrifar
Gagnrýni á dönsk
stjómvöld er staðfest
í skýrsln rannsóknar-
nefndar um banka-
hneykslið.
Skýrsla rannsóknarnefndar um
færeyska bankamálið var birt í
gær og kemur þar fram áfellis-
dómur á hendur dönskum
stjórnvöldum, sem hafi
ekki veitt Færeyingum
réttar og fullnægjandi
upplýsingar um fjár-
hagsstöðu Færeyjabanka
þegar þeir tóku við
rekstri hans árið 1993.
Gagnrýnin beinist m.a.
að Richard Mikkelsen,
fyrrverandi seðlabanka-
stjóra Danmerkur, sem
stjórnaði samningavið-
ræðum, og danska
bankaeftirlitinu sem
sinnti ekki hlutverki
sínu sem skyldi.
fjögur síðdegis að dönskum
tíma.
Danska dagblaðið Jyllands-
Posten skýrði þó frá því strax í
gærmorgun að í skýrslunni
kæmu fram þungar ásakanir á
hendur ráðherrum í dönsku rík-
isstjórninni, einkum þó Mogens
Lykketoft sem var fjármálaráð-
herra í ríkisstjórn Pauls Schluter
þegar Færeyingar voru knúnir til
að taka við rekstri Færeyjabanka,
sem áður var í eigu Den Danske
Bank í Danmörku. I skýrslunni
segir að Lykketoft hafi í apríl
1993 skipað danska bankaeftir-
litinu að láta eiga sig að sinna
eftirliti með bankanum. Fjár-
hagsstaða bankans var þá mjög
erfið og skömmu síðar varð hann
gjaldþrota, en Færeyingar þurftu
Beðið í ofvæni
Lengi hefur verið beðið
eftir birtingu skýrslunn-
ar. Klukkan átta í gær-
morgun gekk formaður
rannsóknarnefndarinnar, Jörgen
Grönborg, á fund dómsmálaráð-
herra Danmerkur, Frankjensen,
og afhenti honum skjalatösku
með skýrslunni, sem er mikil
vöxtum.
Rúmlega klukkutíma síðar
gekk Vibeke Larsen, umboðs-
maður danska ríkisins í Færeyj-
um, á fund færeyska lögmanns-
ins, Edmund Joensen, og afhenti
honum eintak af skýrslunni.
Fjölmiðlar fengu svo ekki aðgang
að skýrslunni fyrr en klukkan
Den Danske Bank við ábyrgð á
fjárhagsstöðu bankans.
Mörgum þykja niðurstöður
skýrslunnar þó ekki nógu afger-
andi, og mögulegt sé að túlka
þær á ýmsa vegu eftir því hvað
hverjum og einum hentar best.
Af þeim sökum ógni skýrslan
ekki tilveru dönsku ríkisstjórnar-
innar.
Gagnrýni hefur einnig komið
fram varðandi vinnuna við gerð
skýrslunnar. Meðal annars
skýrði Berlingske Tidende í gær
frá því að ekki hefði verið rætt
við tvo ráðherranna í ríkisstjórn
Schlúters, Anne Brigitte Lund-
holt iðnaðarráðherra og Anders
Fogh Rasmussen skattamálaráð-
herra. Lyse Lyck, lektor við
Verslunarháskólann í Kaup-
mannahöfn, segir það
óeðlilegt að ekki hafi
verið rætt við alla ráð-
herrana vegna þess að
hlutverk nefndarinnar
hafi verið að fá heildar-
yfirlit yfir það sem gerð-
ist.
Edmund Joensen, lögmaður Færeyja, fékk skýrsluna i hendur
snemma í gærmorgun.
að taka á sig tap bankans, sem
nam um 13 milljörðum.
Ýmstr túllamarmöguleikar
Skýrslan þykir koma sér sérlega
illa fyrir Mogens Lykketoft fjár-
málaráðherra og eru kröfur um
að hann segi af sér. Hlutverk
nefndarinnar var að gefa heildar-
yfirlit yfir atburðarásina í tengsl-
um við bankamálið og meðal
annars svara því hvort danskir
ráðamenn hafi komið tapinu yfir
á Færeyinga og losað þannig
Færeyingar reiðir
Mikillar reiði og tor-
tryggni gætir í Færeyjum
gagnvart dönskum
stjórnvöldum vegna
bankamálsins, og munu
niðurstöður skýrslunnar
vafalaust ýta undir kröf-
ur um að Færeyjar segi
skilið við Danmörku.
Danir hafa þó margir
_ bent á að bankamálið
hafi komið í kjölfarið á
efnahagskreppunni í Færeyjum,
en sé ekki orsök hennar. Efna-
hagsstefna Færeyja á níunda
áratug aldarinnar, með gengdar-
lausum ofíjárfestingum í sam-
göngumannvirkjum og fiskiskip-
um, hafi verið eins óheppileg og
mögulegt var.
Undanfarið hefur efnahagur
Færeyja farið batnandi, aðallega
vegna góðrar fiskveiði, en nú eru
teikn á lofti um að Færeyjar séu
aftur á leið í efnahagsörðugleika
sem erfitt verði að sjá fram úr.
Atvinnulausir mótmæla meira
FRAKKLAND - Franskir atvinnuleysingjar héldu í gær áfram mót-
mælum sínum með sérstökum aðgerðadegi. Þrýstingur vex þar með
enn á forsætisráðherra landsins, Jospin, en tveir af stjórnarflokkun-
um í vinstri stjórninni, græningjar og kommúnistar, styðja kröfur at-
vinnulausra. Mótmælaaðgerðirnar hafa nú staðið yfir í fimm vikur,
og eru helstu kröfurnar þær að lágmarksatvinnuleysisbætur verði
hækkaðar og sömuleiðis verði bætur til atvinnulausra yngri en 25 ára
hækkaðar.
Starfsemi í japönskum kjamakljúf
stöðvuð
JAPAN - Kjarnaldjúf í japönsku borginni Kashiawazaki var lokað í
gær vegna gruns um að geislavirk efni hefðu lekið út. Aukin geisla-
virkni hafði mælst í einum kjarnorkuhverfli stöðvarinnar, en í ná-
grenni stöðvarinnar mældist þó ekkert óeðlilegt. Til öryggis var starf-
semi í ldjúfnum hætt og er nú verið að ganga úr skugga um hvort leki
hafi komist að stöðinni.
Kjamorkuviðskipti milli Bandaríkj-
anna og Kina
BANDARÍKIN - Bandarísk fyrirtæki geta hugs-
anlega innan skamms hafið útflutning á tækja-
búnaði fyrir kjarnorkuver til Kína. Bill Clinton,
forseti Bandarfkjanna, hefur þegar gefið grænt
ljós á slík viðskipti, en þingið hefur tveggja
mánaða frest til að andmæla. Þar sem Kínverj-
ar selji ekki kjarnorkubúnað til ríkja, sem grun-
uð eru um að hafa í hyggju að koma sér upp
kjarnorkuvopnum, lítur ríkisstjórn Bandaríkj-
anna svo á að Kínverjar hafi uppfyllt öll skilyrði
sem Bandaríkin hafa sétt til þess að unnt sé að
taka upp friðsamleg viðskipti við þá með kjarn-
orkuútbúnað.
Ritter fór frá írak
ÍRAK - Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna undir forystu
Bandaríkjamannsins Scott Ritter yfirgáfu í gær Irak eftir árangurs-
Iausar tilraunir til að sinna vopnaeftirliti undanfarna daga. Irakar
hafa neitað eftirlitsnefndinni um aðgang að stöðum þar sem leita átti
vopna, og báru því við að í nefndinni væru of margir Bandaríkjamenn
auk þess sem Ritter var sagður hafa gerst sekur um njósnir. Ritter
sagði að brottför eftirlitshópsins þýddi þó ekki neina stefnubreytingu
af hálfu Sameinuðu þjóðanna um að stunda ætti vopnaeftirlit í Irak.
„Við komum aftur," sagði Ritter.
STUNDUM VERÐUR ÞU AÐ TRÚA Á SJALFAN ÞIG
G.l. Jane sló rækilega í gegn í Bandaríkjunum og
sat 2 vikur á toppnum. Hasargellan Demi Moore
hefur aldrei verið flottari.
http://WWW.NET. IS/BORGARBÍÓ
Ccrevrbié
DIGITAL SOUND SYSTEM