Dagur - 24.01.1998, Side 8
8- LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998
FRÉTTASKÝRING
ro^tr
SOFFÍA
SIGURÐAR
DÓTTIR
SKRIFAR
Hverju breytir samein-
ing sveitarfélaga í
fjárhagslegn og
þjónustulegu tiUiti?
Eftir tvær vikur verður kosið um
sameiningu Selfoss, Sandvíkur-
hrepps, Eyrarbakka og Stokkseyr-
ar í eitt sveitarfélag.
Kosning mun fara fram laugar-
dag 7. febrúar og verður þá kosið
um nafn á nýja sveitarfélagið um
leið. Ef sameiningin verður sam-
þykkt, verður kosið til nýrrar
sveitarstjórnar á sama tíma og
annars staðar í vor og hún tekur
svo við völdum um leið og form-
leg sameining á sér stað 7. júnf. I
þessum sveitarfélögum bjuggu
5.472 íbúar 1. des sl. og yrði
þetta því þriðja stærsta sveitarfé-
Iagið utan höfuðborgarsvæðisins.
Þær spurningar sem fólk veltir
fyrir sér eru einkum þrjár: Hvern-
ig breytist Ijárhagsstaðan, hvernig
breytist þjónustan og eflist bú-
setusvæðið? Svo skiptir nafnið
líka máli.
Nýtt nafn
Nú hafa verið valin 4 nöfn sem
fólk fær að kjósa um fyrir hið
væntaniega sveitarfélag. Nöfnin
eru Arborg, Árbvggð, Flóabær og
Flóinn. Niðurstaðan verður bind-
andi, það nafn sem fær flest at-
kvæði verður fyrir valinu. Margar
fleiri hugmyndir komu fram, en
nefndin telur ekki ástæðu til að
gefa þau upp, því úr þessum verði
valið. Þessi fjögur sveitarfélög eru
öll hluti af Flóa, ásamt 3 sveitar-
hreppum öðrum. Þá hefur þetta
svæði ásamt Hveragerði, Olfusi
og Þorlákshöfn oft verið kallað
Arborgarsvæðið.
Fjárhagsstaðan
Sandvíkurhreppur er eina sveitar-
félagið þar sem peningaleg staða
er talin jákvæð og er það upp á
1,6 milljónir króna. Það stafar af
því að hreppsnefndinni þótti
Vegagerð ríkisins ekki nógu rösk í
vegavinnunni og tóku sig til og
malbikuðu sjálfir vegarspotta í
sveitinni. Þar sem um þjóðvegi er
að ræða, telst þetta vera inneign
upp á 4 milljónir króna hjá Vega-
gerð ríkisins, sem greidd verður
einhvern tíma þegar viðkomandi
vegarspotti kemst inn á vegaáætl-
un. Hin sveitarfélögin eru öll
með neikvæða peningalega stöðu.
I yfirliti frá þeim eru tilgreindar
peningalegar eignir sveitarsjóðs,
skuldir, lífeyrissjóðsskuldbinding-
ar og ábyrgðir, félagslega íbúða-
kerfið og eigið fé Selfossveitna
bs. Alis mun þá hið nýja sveitarfé-
lag standa með neikvæða pen-
ingalega stöðu upp á rúmar 170
milljónir, eða um 32 þúsund á
hvern íbúa. Þetta telst nokkuð
Eftir hálfan mánud greiða Selfyssingar og nágrannar þeirra I Sandvíkurhreppi og á Stokkseyri og Eyrarbakka atkvæði um hvor
og velja því nafn i leiðinni.
góð staða miðað við önnur sveit-
arfélög.
Skattar
Mjög lítill munur er á útsvarsá-
lagningu milli sveitarfélaganna
og verður útsvarið allsstaðar það
sama eftir sameiningu. Yms sér-
gjöld eru hins vegar misjöfn. Þau
halda sum hver áfram að vera
misjöfn, því ekki er hægt að rukka
um sömu þjónustugjöld, nema
sama þjónusta sé veitt. Þannig er
t.d. um vatnsskatt og holræsa-
gjöld, en líka um fasteignagjöld.
Lögum samkvæmt er heimilt að
innheimta mismunandi fast-
eignagjöld í sama sveitarfélagi
eftir þvf hvort öll þjónustan sé sú
sama á svæðinu. I hinu nýja sveit-
arfélagi munu verða bæði þétt-
býlissvæði og bændabýli. Gert er
ráð fyrir að fasteignagjöld verði
lægri á sveitabæjum. Þá eru með-
altekjur fólks hæstar á Stokkseyri
og Eyrarbakka, en lægstar í Sand-
víkurhreppi og skatttekjur af
hverjum íbúa í samræmi við það.
En þegar saman er komið verður
niðurstaðan sú sama og meðal
skatttekjur af íbúum Selfoss eru
nú.
Leiðir þetta til eflingar?
Sameiningarnefndin heldur því
fram að sameiningin muni leiða
til öflugra sveitarfélags sem muni
fá til sín aukinn fólksfjölda og
aukinn atvinnurekstur. Það má
nú segja manni hvað sem er, en
býr eitthvað haldfast á bak við
þessi orð? Það sem menn sjá er
að á sama tíma og fólki hefur ver-
ið að fækka á landsbyggðinni,
þ.m.l. á Suðurlandi, hefur orðið
fólksfjölgun á öflugum þéttbýlis-
stöðum og þ.m.t. á Selfossi. A
þessu svæði er nú þegar fjölbreytt
félags- og menningarlíf. Félagsleg
þjónusta er líka góð. Búsetu-
möguleikar eru fjölbreyttir í sveit,
sjávarþorpum og þéttbýli. Stutt er
til höfuðborgarsvæðisins og ná-
grannabyggða sem auka enn á
möguleika í atvinnutækifærum,
þjónustu og afþreyingu. Mun
Hverju breytir samemingm fyrir
íbúa þessara sveitarfélaga?
Sandvíkurhreppui:
- Skóli, leikskóli, íþróttahús og
félagsheimili, allt var þetta á
Selfossi og verður áfram, auk
þess sem aðgangur opnast að
þessum stöðum í sjávarþorp-
unuin.
-•Hreppsskrifstofa var ekki til og
flyst nú frá eldhúsborði ein-
stakra manna í Stjórnsýsluhús
á Selfossi.
- Peningaleg staða sveitarsjóðs
verður neikvæð, en velta og
ráðstöfunarfé stóreykst.
- Utsvar hækkar örlítið, fast-
eignaskattar og þjónustugjöld
verða svipuð framanaf, en
munu hækka til jafns við það
sem gerist annars staðar með
aukinni þjónustu.
Stokkseyri og Eyrarbakki:
- Ekki er gert ráð fyrir breytingu
á skólum, en líklegt er að fólk
nýti sér frekar að geta valið
milli leikskóla niðurfrá eða á
Selfossi.
- Aðalskrifstofa hreppsins flyst á
Selfoss, en gert er ráð fyrir
þjónustustöðvum á bæði
Stokkseyri og Eyrarbakka.
- Peningaleg staða sveitarsjóðs
verður minna neikvæð, en
velta og ráðstöfunarfé eykst.
- Skattar verða mjög svdpaðir og
áður.
Selfoss:
- Fjölbreyttari búsetumöguleik-
ar opnast með því að haida
samt allri sömu þjónustu og
áður.
- Stjórnsýsla og allar þjónustu-
stofnanir verða óbreyttar.
- Peningaleg staða sveitarsjóðs
versnar, en skatttekjur aukast
líka og neikvæð peningaleg
staða eykst í hlutfalli af skatt-
tekjum úr 40 í 55%.
- Skattar verða óbreyttir.