Dagur - 24.01.1998, Page 10

Dagur - 24.01.1998, Page 10
10 - L A U G A R n A G II R 24. JANÚAR 199 8 ÞJÓÐMÁL Tíl vamar j eppuin SIGURÐUR HREIÐAR RITSTJÚRI SKRIFAR Það er lenska hér á landi að þeg- ar mengun ber á góma í fjölmiðl- um skal hún ævinlega mynd- skreytt með bílum. Þó er stað- reyndin sú að bílar hér á Iandi, og þá alveg sérstaklega einkabílar, eiga tiltölulega litla sök, innan við fjórðung miðað við heildar- brennslu á olíu og bensíni, á þeirri útblástursmengun sem hér er tíðast nefnd í samfloti með tískuorðinu gróðurhúsaáhrif. Þetta meinta loftfyrirbæri er í sjálfu sér vafasöm vísindi sem lík- lega eru sprottin af því að í ýms- um greinum vísinda eru til menn sem hafa enga afkomulöguleika af vísindum sínum nema geta búið til einhvern þann heimsendaboðskap sem líklegur er til að geta orðið þeim lífvæn- legur. Arni Benediktsson á þjóðmála- grein í Degi 9. janúar síðastlið- inn. Eg er honum sammála um margt, til að mynda ,að sendi- nefnd okkar í Kjótó hafi staðið sig vel og niðurstaðan sé viður- kenning á því hve framarlega við stöndum í nýtingu mengunar- lausrar eða -IitiIIar orku en ekki heimild til að menga meira en aðrir. Bensíneyðsla jeppa En það sem vakti mig til skrifta var sú staðhæfing Árna að með jeppakaupum væri stefnt í út- blástur „...frá allt að 25 lítrum af bensíni í 100 km akstri þar sem notandinn hefði komist vel af með útblástur frá 8-10 lítrum." Þarna hefði Árni betur fylgst með samtíðinni. Jeppar sem eyða allt að 25 lítrum á hundraðið flokkast sennilega flestir undir fornbíla núorðið. Ég hef átt nokkra jeppa um dagana og haft afskipti af fleiri. Eyðslufrekasti jeppinn sem ég hef átt fór með 15-18 lítra á hundraðið. Jeppinn sem ég átti í fyrra komst af með 9-11 lítra á hundraðið sem virðist nokkuð nærri óskastöðu Árna. Af góðri reynslu af þeim bíl fékk ég mér yngri og aflmeiri jeppa sömu teg- undar. Sá virðist mér fara með 10-12 Iítra á hundraðið. Báðir eru að sjálfsögðu búnir hvarfakút og valda mjög lítilli mengun. Allra stærstu nýir jeppar munu óbreyttir fara með upp undir 17 lítra að meðaltali þannig að Árni ýkir ekki nema rúmlega 30%. Mengun einkabílanna Þar komum við að talsvert stór- um kjarna málsins. Bættur vél- búnaður bíla, sem nýtir eldsneyt- ið mun betur en áður, ásamt góð- um megnunarvarnabúnaði, hefur gert það að verkum að mengun frá bílum (einkabílum) er hverf- andi þáttur í íslenskri umferð. Miðað við tölur um olíubrennslu hér á landi fara bílar sem brenna bensíni aðeins með um 20% olíu- brennslu. Vaxandi tjöldi þessara bíla er búinn hvarfakútum og mengun því hlutfallslega minni en brennslutalan segir til um. Samkvæmt tölum frá Skrán- ingarstofu, sem birtust í bílablaði DV 11. október sl. hafði CO í út- blæstri bensínbíla á Islandi minnkað um 20% á árunum 1991 til 1996. Og árið 1996 var áhrifa hvarfakúta ekki farið að gæta nema lítillega í útblásturs- mælingum, þar sem sá búnaður varð ekki að skyldu fyrr en ára- mótin 1995 og nýir bílar koma ekki til skylduskoðunar í íyrsta sinn fyrr en þriggja ára. Af þessum tölum má líka lesa Utför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu INGIBJARGAR VALDIMARSDÓTTUR, Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 27. janúar kl. 13.30 Hermann Stefánsson, Kristín Friðbjarnardóttir, Sigrfður Stefánsdóttir, Gunnar Pálmarsson, Bragi Stefánsson, Snæborg Stefánsdóttir, Birgir Stefánsson, Guðrún Leonardsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður FRÍÐU SÆMUNDSDÓTTUR, Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dval- arheimilisins Hlíðar fyrir frábæra umönnun. Stefán Hallgrímsson, Sigrún Bergmann, Lilja Hallgrímsdóttir, Baldur Frímannsson, Guðmundur Hallgrímsson, Anna G. Hugadóttir, Hafliði Hallgrímsson, Ragnheiður Árnadóttir. að 30% bíla í umferðinni eiga sök á 70% allrar útblástursmengunar. Vitað er að mestmegnis eru þetta gamlir bílar, flestir hverjir - mis- vel stilltir eyðsluhákar án megn- unarvarnabúnaðar. Þeir sem halda í þessa gömlu bíla eru þrenns konar: 1) metnaðarlausir bílasóðar sem hanga á gömlu druslunum sínum meðan þeir geta hökt milli staða, 2) fátæk- lingar sem eru að reyna að nota gamla greyið sitt af þvá þeir geta ekkert annað, 3) þeir sem hafa fest elsku við gamla bílinn sinn, gjarnan amerískt dollaragrín og eyðsluhák, Iangt umfram það sem skynsamlegt er, en ást spyr sjaldnast um skynsemi. Sumpart er þetta síðastnefnda líka vegna skammsýnnar neyslu- stýringar sem refsar þeim sérlega sem vdlja kaupa og geta keypt nýja bíla með stórar, aflmiklar vélar sparneytnari og vistmildari. Rekstrarleg hagkvæmni og vist- mildi hafa ekkert vægi í vöru- gjaldsákvörðunum, heldur þrá- heldni í verðmat eftir sprengi- rými véla. Lágbrunavélar með litla mengun (t.d. „hreinbruna- vélin“ frá Toyota) og GDI lág- mengunarvélar (t.d. nýja vélin frá Mitsubishi) eru í sama vöru- gjaldsflokki og aðrar með sama sprengirými sem sumar hverjar menga verulega miklu meira. Þeir sem vilja kaupa bíla með minnstu og sparneytnustu vél- arnar fá heldur í engu að njóta þess. Verðmunur á þessum minnstu bílum miðað váð næstu stærð fyrir ofan verður óeðlilega og óhæfilega lítill, fyrst og fremst vegna vörugjalds. Staðhæft hefur verið að með því sé verið að vern- da kaupendur þvá þeir séu svo hættulegir. Það er ósönnuð stað- hæfing og verður sífellt rangari með hverri nýrri kynslóð smábíla. Og því stærra hlutfall sem þeir yrðu af umferðinni, því rangari verður hún. Leiðir til úrbóta Mengun af útblæstri bíla getum við að verulegu leyti Iagað hér- lendis með tvennu: Verðlauna þá sem farga gömlu druslunum Sem menga mest, og þá sem láta sér duga að nota litla og eyðslugr- anna bíla. Þetta fyrra hafa marg- ar þjóðir þegar gert, t.d. Norð- menn. Hvað þá með aðra orkugjafa en þessa hefðbundnu, bensín og olíu? Nú þykir fínt að tala um rafbíla. Mengun af framleiðslu raforku er ekki vandamál á Is- landi. En eru rafbílar mengunar- lausir? Þeir þurfa að geyma orku- forða sinn í sér. Bíll af meðal- stærð þarf upp undir hálft.tonn af rafgeymum til þess að komast um 100 km. Er framleiðsla þess- ara rafgeyma mengunarlaus? Er eyðing þessara rafgeyma, sem yf- irleitt endast illa, mengunarlaus? Er sá bíll hagkvæmur kostur sem er nær fullhlaðinn af sjálfum sér og kemst ekki nema svo sem upp í Borgarnes á hleðslunni og þarf svo nokkurra klukkustunda „hvíld“ áður en hann getur tekið annan 100 km sprett? Vetni er einn möguleikinn. Það hefur líka verið vandamál hvern- ig eigi að geyma vetnið og hvern- ig eigi að koma þvá á farartæki til nýtingar. Kannski er þetta á réttri leið. Hún er ekki fýsileg enn sem komið er. Mér skilst að til að framleiða v'etni þurfi mikið raf- magn. Víðast í heiminum þýðir það milda mengun. Hvorar tveg- gja þessara aðferða, rafmagn eða vetni, er á heimsvísu ekki annað en tilflutningur á mengun. Til að framleiða rafmagn þarf víðast kol, olíu eða kjarnorku, og ekkert af þessu getur kallast mengunar- frítt. Fyrir utan augljósa Ioft- mengun má kannski nefna nöfn eins og Sellafield eða Dounreay. Eða hafa menn gleymt Tsér- nóbil? Eftir er að nefna metangas. Það má nota til að knýja sam- göngutæki. Það hefur að vísu þann galla að þurfa sérstaka geyma og afar stóra miðað við hefðbundið eldsneyti. Venjulegur fólksbíll þarf metangasgeymi sem fyllir nærri skottið. Þetta er þó sá kostur sem við Islendingar eigum líklega að skoða í alvöru, ekki síst af því að það puðrast nú þegar út í loftið uppi á Álfsnesi. Mengun- in er sem sagt fyrir hendi og því gæti verið skynsamlegt að láta hana koma að gagni í leiðinni. En fyrir alla muni, hættum að gefa í skyn að bílar séu mesti Ioft- mengunarvaldurinn. Birtum heldur myndir af skipum með heimsendafréttum um „gróður- húsaáhrif.“ Hættum að gefa í skyn að bítar séu mesti loftmengunarvaldurinn. Birtum heldur myndir afskipum með heimsendafréttum um „gróðurhúsaáhrif.“ Eru laiut heiinsius vanjjakkla'ti? VILHJALM URINGI ARNASON FORMAÐUR NEYTENDA- FÉLGAS AKUREYRAR, SKRIFAR í áratugi höfum við Akureyringar notið ágætrar þjónustu Flugleiða (Flugfélags íslands). Sú þjón- usta var reyndar dýru verði keypt í skjóli ríkisverndaðrar einokun- ar. Á meðan á einokuninni stóð, Ijáðu forsvarsmenn Flugleiða aldrei máls á því að hægt væri að lækka fargjöld almennings, - þvert á móti. Breyting til batnaðar Sfðastliðið sumar var einokun- unni loksins aflétt og önnur fé- lög gátu farið að keppa við Flug- félag Islands. Islandsflug hóf áætlunarllug með miklu lægri fargjöld en Flugfélag Islands. Flugfélag íslands sá sig þá nauð- beygt til að svara í sömu mynt og Iækkaði sín fargjöld til samræm- is. Loksins fékk frjáls samkeppni að blómstra og viðskiptavinirnir nutu ávaxtanna. Laun heimsins Nú skyldi maður ætla að Akur- eyringar væru Islandsflugi þakk- látir fyrir að stuðla að lækkuðu fargjaldi, og sýndu þakklæti sitt í verki með því að fljúga fremur með „félaginu sem gerði fleirum fært að fljúga“, ... nei öðru nær. Of margir Akureyringar virðast jafn skynugir og búpeningur sem röltir á sama gamla básinn sinn, á meðan tuggan þar sýnist svip- uð og á hinum staðnum. Is- Iandslflug hefur af þeim sökum ekki uppskorið farþegaljölda á Akureyri, í samræmi við þær samgöngu- og kjarabætur sem félagið hefur fært svæðinu. Vemm meövilaðir neytendnr Meðvitaðir neytendur stuðla að hagstæðum viðskiptum fyrir sig og sína, með því að nota þá skyn- semi sem þeim er gefin, til að bregðast við breytilegum að- stæðum. Akureyringar! til að tryggja góða flugþjónustu á Iág- marksverði, þurfum við a.m.k. tvö flugfélög. Við þurfum að stuðla að þva á meðvátaðan hátt, að það geti verið lífvænlegt fyrir bæði félögin að þjónusta okkur, og að þau veiti hvort öðru að- hald. Við hröktum verslunina Bónus burt af svæðinu með of Iitlum viðskiptum, Kaupfélag Eyfirðinga bætti okkur skaðann að nokkru, með því að halda áfram með „Bónusverð“ á Akur- eyri. Flugfélag Islands er ekki KEA.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.