Dagur - 06.02.1998, Page 6

Dagur - 06.02.1998, Page 6
22-FÖSTUDAGUR 6.FEBRÚAR 1998 Djí^ur" LÍF OG FJÖR Kaffi í Þjóðleikhúsinu Leikritið Kaffi eftir Bjarna Jónsson verður frumsýnt á Litla sviðinu í Þjóðleik- húsinu i kvöld. Þetta er fyrsta verk höfundar sem sýnt er í atvinnuleikhúsi, en höfundur er meðal okkar efnilegustu leikritahöfunda af yngstu kynslóðinni. I leikritinu leika bæði yngsti og elsti leikari Þjóðleikhússins, þeir Atli Rafn Sig- urðarson og Róbert Arnfinnsson, en þeir leika feðga. Höfundur leikmyndar og búninga er Helga T. Stefánsdóttir, Ásmundur Karlsson hannar lýsingur og leikstjóri er Viðar Eggertsson. Flamencokvöld í Kaffileikhúsinu í kvöld verður Spænskt menningar- og flamencókvöld í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpan- um, Vesturgötu 3. Þar koma fram nokkrir íslenskir listamenn, en einnig gesturfrá Andalúsíu, flamenco dansarinn Franca Zuin. Hún hefur dansað flamenco í 14 ár og lærði í Sevilla og Madrid. Hún verður einnig gestakokkur kvöldsins. Aðrir sem koma fram eru Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona ásamt hljómsveitinni Hringnum og Vilborg Harðardóttir leikkona. Dagskráin hefst kl. 20.00 með Ijúffengum kvöldverði. Börn sóíar- innar sýnd að nýju Nemendaleik- húsið tekur nú til sýninga leik- ritið Börn sólar- innar eftir Max- im Gorkí. Fyrsta sýníngin að þessu sinni er á sunnudagskvöld í Lindarbæ og leikstýrir Guðjón Pedersen verkinu. Leikritíð var frumsýnt í nóvember sl. og sýnt fyrir fullu húsi fram að jólafríi, en þar sem útskriftarár- gangur Leiklistarskólans hefur að undanförnu unnið að gerð íslenskrar sjónvarps- myndar, hefur ekki unnist tími til að sýna verkið. Mambo Kings í Loft- kastalanum Rík hefð er fyrir því hjá Verzlunarskóla ís- lands að setja upp glæsilega leiksýningu á Nemendamóti skólans og nú í ár er mótið haldið í 66. sinn. Leikritið Mambo Kings varð fyrír valinu að þessu sinni, en það er byggt á kvikmynd Arne Glimcher sem gerð var eftir metsölubókinni „The Mambo Kings Play Songs of Love.“ Ásdís Kjartansdóttir formaður nemenda- mótsnefndar Verzlunarskólans segir að um 100 manns komi að þessari sýn- ingu. Stefnt er að því að sýna að minnsta kosti sex sinnum, en reynslan hefur sýnt að oft þarf að bæta við sýn- ingum vegna mikillar aðsóknar. Sýnt verður í Loftkastalanum og var frumsýn- ingin í gærkvöld. Næstu sýningar opnar almenningi verða á sunnudag og þriðju- dag kl. 20.00. Nykurheimar Á laugardag opnar Álfheiður Ólafsdóttir sýningu á olíumálverkum í Gallerí Listakoti á Laugavegi 70. Sýningin nefnist „Nykurheimar" en Álfheiður sækir hugmyndir sínar í ís- lensku þjóðsögurnar. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 12.00 - 18.00 og frá kl. 10.00 - 16.00 um helgar. Kvíkmyndir helgariimar Um þessa helgi er ekki hægt að hrósa sjónvarpsstöðvunum fyrir kvikmynda- val. Meðalmennskan hefur völdin með einni undantekningu þó. Á laugardags- kvöldið er á dagskrá Sýnar ein frægasta mynd Marilyn Monroe, Seven Year Itch (Grái fiðringurinn). Þessi bráðskemmti- lega gamanmynd er í leikstjórn meistara Billy Wilder og Monroe var aldrei meira heillandi en hér í hlutverki hinnar hjarta- hlýju en einföldu Ijósku. Þetta er mynd sem enginn ætti að láta frámhjá sér fara. The Presido (Herstöðin) er ekki ein af betri myndum Sean Connery en þó þol- anleg afþreying hafi menn ekki annað við að vera. Mótleikkona Connery í myndinni er Meg Ryan og leikstjóri er Peter Hyams. Myndin er á dagskrá RÚV i kvöld. mœ/ir meh .. ... mátulegri blöndu af ró- legheitum og skemmtun- um um helgina. Hér kem- ur uppskrift að góðri dag- skrá: farið í líkamsrækt á Iaugardagsmorgni, róleg- heit heima yfir daginn og kannski gönguferð og svo þorrablót um kvöldið. A sunnudaginn sofa foreldr- arnir út eða fara með krökkunum f sunnudaga- skólann og svo er þrjúbíó eðlilegur hápunktur dags- ins. Góð helgi fyrir alla, konur sem kalla, krakka með skalla og ... Góða helgi! Silly Budget inc. Á laugardag opnar sam- sýning Silly Budget inc. í myndlistarsal Norræna hússins. Á þessari sýn- ingu eru verk eftir sex unga listamenn. Sýningin stendur yfir til 15. febrúar og er opin þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14 .00 - 18.00. Björg Þorsteinsdóttir lærði i Reykjavík, Stuttgart og Paris. Hún hefur tekið þátt i fjöida samsýninga, bæði hér og erlendis. Vatnslitamyndir í Hafnarborg í Sverrissal Hafnarborgar í Hafnarfirði opnar Björg Þorsteinsdóttir sýningu á laugardag kl. 14.00. Björg hefur aðal- lega unnið vatnslitamyndir að undan- förnu og í rhyndum hennar gætir áhrifa frá náttúru, einkum hafi og strönd. Sýn- ingin stendur til 23. febrúar og er opin frá kl. 12.00 - 18.00 alla daga nema þriðjudaga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.