Dagur - 13.02.1998, Side 1
Valþór ekki með
á Kópavogslista
Flosi Eiríksson verð-
ur í fyrsta sæti Kópa-
vogslistans. Valþór
Hlöðversson, liæjar
fulltrúi Alþýðnbanda-
lagsins, verður bæjar-
stjóraefni listans, en
ekki í framboði sjálf-
ur.
Gengið var frá lista sameiginlegs
framboðs Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks, Kvennalista og
óháðra í Kópavogi í gærkvöld og
vekur athygli að Valþór
Hlöðversson, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins, er ekki á list-
anum. Það þýðir hins vegar ekki
að hann sé að hætta afskiptum
af bæjarmálum því á fundinum í
gærkvöld samþykktu flokkarnir
að bjóða Valþór fram sem bæjar-
stjóraefni Kópavogslistans.
„Við vildum gjarnan hleypa
nýju fólki að og erum ekki sann-
færð um að það sé gott að bæjar-
stjórinn sé jafnframt bæjarfull-
trúi,“ segir Flosi Eiríksson, húsa-
smiður og nemi, sem verður í
fyrsta sæti Kópavogslistans.
Alþýðubandalagið á fyrsta og
fjórða sæti listans, kratar 2. og 5.
sæti, Kvennalistinn það þriðja og
óháðir sjötta sætið. Flokkarnir
tilnefndu hins vegar ekki sjálfir
fólk í þessi sæti heldur gékk
sameiginleg uppstillingarnefnd
frá tillögum sem samþykktar
voru á fundinum í gærkvöld.
„Það hélt enginn fast í sitt.
Nefndin reyndi að koma saman
lista sem væri spennandi val-
kostur. Það var líka eitt af mark-
miðunum að fjölga konum og
það tókst,“ segir Flosi.
Jafnt kynjaMutfall
Hlutfall kynja í efstu sætum er
jafnt. Kristín Jónsdóttir arkitekt
Kópavogslistinn stefnir á meirihluta í
næstu kosningum, segir Fiosi Eiriksson
sem veröur í fyrsta sæti á iistanum.
er í 2. sæti á listanum, Sigrún
Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur í
3. sæti, Birna Bjamadóttir, bæj-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins, í
4., Guðmundur Oddsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, í 5.,
Vilmar Pétursson í 6., Magnús
Norðdahl lögfræðingur í 7.,
Birna Sigurjónsdóttir aðstoðar-
skólastjóri í 8., Yr Gunnlaugs-
dóttir verslunarmaður í 9., Berg-
ur Sigfússon menntaskólanemi í
10., Helga Jónsdóttir leikskóla-
stjóri í 11. og Garðar Vilhjálms-
son, skrifstofustjóri Iðju, verður í
12. sæti.
Sjálfstæðismenn eru með 5
bæjarfulltrúa í Kópavogi og
Framsókn einn og mynda þeir
meirihluta í bæjarstjórn. Félags-
hyggjuflokkarnir hafa 5 fulltrúa
samanlagt, en Flosi segir að
Kópavogslistinn stefni á meiri-
hluta í kosningunum í vor. „Það
eru verulegar líkur á að það tak-
ist að snúa við blaðinu hér í
Kópavogi," segir Flosi Eiríksson,
oddviti Kópavogslistans. - vj
Gefa Færey-
ing uiii eíni
í skóg
Nemendur í Grandaskóla voru
fúsir til að leggja sitt af mörkum
til að Færeyingar geti eignast
skógarlundi sér til skjóls og
ánægju. Trjágróður er afar lítill
á eyjunum. Undir handleiðslu
starfsmanna Garðyrkjustjórans í
Reykjavík notuðu níu ára krakk-
ar í Grandaskóla hádegishléið
sitt í gær til að klippa græðlinga
af alaskavíði á skólalóðinni, sem
ætlunin er að senda Færeying-
um, að þeirra ósk. Að sögn Guð-
rúnar Benediktsdóttur Iangar
Færeyinga til að búa sér til úti-
vistarskóga, eitthvað í líkingu við
þann sem Reykvíkingar eiga f
Óskjuhlíðinni. Þeir hafi áður
fengið prufu af alaskavíði og
hann hafi reynst vel í Færeyjum.
Og alaskavíðirinn hefur líka
þann góða kost að vera fljót-
sprottinn. Guðrún segir það í
ágætu lagi að taka græðlinga um
þetta leyti árs, enda hafi tíðin
verið ágæt í vetur. - HEI
Wwl*
I | Æ
l : fkMm \ [ W: . /'A F,Wk u ) MM
Þær báru sig fagmanniega að í gær þessar stúlkur úr Grandaskóla, sem ásamt skólafélögum sínum kiipptu græðlinga í skóg
handa Færeyingum. - mynd: bg
BiamiP.
8 mán-
aða dóm
Bia
fékk
Bjami P. Magn-
ússon, fyrrver-
andi sveitarstjóri
Reykhólahrepps,
var í gær dæmd-
ur í átta mánaða
fangelsi af
Hæstarétti fyrir
Ijárdrátt. Hæsti-
réttur vísaði
hins vegar frá
dómi ákæru um
að Bjarni hefði sem sveitarstjóri
dregið sér Iífeyrissjóðsiðgjald af
launum sínum og eiginkonu,
vegna þess hversu óskýr ákærulið-
urinn þótti.
I undirrétti var Bjarni sakfelld-
ur fyrir að hafa dregið sér andvirði
tveggja skuldabréfalána Bygginga-
sjóðs verkamanna til Reykhóla-
hrepps, samtals upp á 5,8 milljón-
ir króna. Greiðslur hreppsins
vegna lánsins voru 6,8 milljónir,
en 1995 endurgreiddi Bjarni
hreppnum 6,2 milljónir. Bjarni
var einnig sakfelldur fyrir að
halda ekki eftir af launum sínum
hjá hreppnum opinberum gjöld-
um upp á 618 þúsund krónur og
hefur hann ekki gert skil á þeim
íjármunum. Hæstiréttur leit til
þess að brotin voru fleiri en eitt
og öll framin í opinberu starfi. Þá
herðir Hæstiréttur refsingu und-
irréttar með því að hafa fangelsis-
dóminn allan óskilorðsbundinn
og er Bjarna gert að greiða allan
málskostnað. - FÞG
Töpuðu
Möðrufells-
málinu
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Norðurlands eystra í
máli hreppsnefndar Eyjaíjarðar-
sveitar gegn þeim Matthíasi Eiðs-
syni og Hermínu Valgarðsdóttur
og fleirum. Hreppsnefndin hafði
krafist þess að úrskurður land-
búnaðarráðuneytis frá því í okó-
ber sl. um að neyta forkaupsréttar
að jörðinni Möðrufelli í Eyjafjarð-
arsveit yrði felldur úr gildi, svo og
ákvörðun ráðuneytis að sveitar-
stjórn hafi glatað rétti sinum að
neyta forkaupsréttar. Hæstiréttur
dæmdi hreppsnefndina til að
greiða hinum stefndu 500 þús. kr.
í málskostnað. Hjörtur Torfason
hæstaréttardómari skilaði sérat-
kvæði og sagði að ýmsa galla væri
að finna á málsmeðferð hrepps-
nefndar. - SBS/GG
GabrioW
(höggdeyfar)
varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703
Premium
miöiarar
wuol
Perfecta o
Neysluvatnsdælur
SINDRI %
ÉUUfl
-sterkur í verki
SIMI S62 7222 • BREFASIMf 562 1024