Dagur - 13.02.1998, Síða 3

Dagur - 13.02.1998, Síða 3
FÖSTUDAGUR13. FEBRÚAR19 9 8 - 3 í>&ptr± FRÉTTIR Vill vera í efstu sæt- iiin eða ekki með Framsóknarmenn á Akureyri viröast vera sáttir viö að Jakob bæjarstjóri leiði lista þeirra, en það er alls ekki sátt um hverjir eigi að vera í hinum efstu sætunum. Oddur bæjarfuUtrúi Framsóknar á Akur eyri krefst þess að skipa eitt af þremur efstu sætuuum á framboðslista flokks- ins. Ef ekki, verður hann ekki með. Skipuð var í haust uppstillingar- nefnd til að gera tillögu um framboðslista Framsóknarflokks- ins, en ekki er eining um tillögur hennar. Framsóknarmenn eiga 5 bæjarfulltrúa og tók Oddur Helgi Halldórsson við sæti Guð- mundar Stefánssonar á síðasta ári, en hann hafði verið í 6. sæti í síðustu bæjarstjórnarkosning- um. Fulltrúaráð Framsóknarfélags Akureyrar hefur enn ekki verið boðað á fund til að fjalla um til- lögu uppstillingarnefndar, en Oddur Helgi hefur tilkynnt nefndinni að hann geri kröfu til þess að skipa eitt af þremur efstu sætum Iistans. Að öðrum kosti verði hann alls ekki á listanum. „Eg kæri mig ekkert um að vera aftar á Iistanum en sumir þeir sem ég hef unnið með í bæj- arpólitíkinni síðustu fjögur ár. Verði ekki fallist á þetta mun ég alvarlega íhuga sérframboð. Eg hef kannað jarðveginn fyrir slíku framboði og hann er frjósamur. Þetta verður ekki neitt BB-fram- boð, því það er einfaldlega spurning um hvort ég er nokkur framsóknarmaður, eða þá félagar mínir í bæjarstjórnarflokknum, þegar ég er á öndverðri skoðun við þá. Eg virðist koma úr öðru umhverfi og auk þess sjálfsagt mun róttækari,“ segir Oddur Helgi Halldórsson. Áttu þú ekki frekar samleið með Akureyrarlistanum? “Alls ekki, ég hef ekki orðið var við það að Alþýðubandalagið væri til vinstri. Þó ég reki fyrir- tæki í dag var ég alinn upp sem róttækur verkamaður, kannski í sósíalísku umhverfi. Ég er mikill jafnaðarmaður en spurning hvort ég sé nokkur krati. Ég hef verið spurður, aðallega af utan- flokkafólki, hvort ég muni fara f sérframboð, og ég hef ekki tekið því Ijarri ef ekki verður hlustað á mig í Framsóknarflokknum, en það verður undir merkjum óháðra, ekki háð neinum stjórn- málaflokki. Undir þeim merkjum mundi ég setja byggðamál á odd- inn, þ.e. Eyjafjarðarsvæðið gegn Reykjavík. Ég hef sett fram þá skoðun að rétt væri að gera allt svæðið frá Hrútafirði austur að Vopnafirði að einu sveitarfélagi, og það er langt frá þvf að vera óskynsamlegt, mun sterkara mótvægi við Reykjavík." — GG Þorsteinn Pálsson. Áfall íyrir lögreglima Þorsteinn Pálsson dómsmála- ráðherra segir það áfall fyrir lög- regluna í ReykjaHk að starfs- maður hennar skuli hafa tjáð sig opinberlega um aðdragandann að reynslulausn Franklins Steiner 1991. Sturla Þórðarson, sem var lög- fræðingur fíkniefnadeildarinnar þegar Franklin var veitt reynslu- lausn, sagði í DV í gær að hann og þáverandi yfirmaður deildar- innar hefðu beðið dómsmála- ráðherra um að láta Franklin lausan gegn upplýsingum um 2 stór fíkniefnamál. Þorsteinn sagði í Utvarpinu í gær að hann hefði tekið á sig pólitíska erfiðleika til að varð- veita trúnaðarsamband lögregl- unnar. Það væri áfall að starfs- menn hennar teldu sig geta rof- ið slíkan trúnað og hann óttaðist afleiðingarnar fyrir baráttuna gegn fíkniefnum. Tekist á um GuUin- brú í Grafarvogi Árni Sigfússon sagði á blaðamannafundi I gær að það þyrfti umhverfismat fyrir breikkun Gullinbrúar. Það eitt út af fyrir sig mundi tefja framkvæmd verksins um 2-3 mánuði. Borgarstjóri segir brúna ekki matsskylda samkvæmt staðfestu aðalskipulagi. - mynd: þök Skiptar skoðanir hvort umhverfismat þurfi fyrir breikkun GuIIinbrúar. Sjálf- stæðismenn telja svo vera en borgin ekki. „Ég er löngu hætt að skilja hvað þessum mönnum gengur til. Mér sýnist að sjálfstæðismenn á Alþingi, í ríkisstjórn og borgar- stjórn séu með öllum tiltækum ráðum að reyna að þvælast fyrir þessari framkvæmd," segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri. Arni Sigfússon, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem fram kom að breikk- un GuIIinbrúar í Grafarvogi yrði að fara í umhverfismat áður en hægt væri ráðast í þá fram- kvæmd. Það muni seinka verk- inu um allt að 2-3 mánuði. Þá sé ekki heldur búið að hanna breikkun brúarinnar. Af þessum sökum séu það hrein ósannindi hjá stjórnendum borgarinnar að breikkun brúarinnar sé forgangs- mál hjá þeim en ekki náð fram að ganga vegna andstöðu sam- gönguráðherra. Borgarstjóri bendir m.a. á að í samþykktu aðalskipulagi borgar- innar fram til ársins 2016, sem staðfest hefur verið bæði af um- hverfisráðherra og skipulagi rík- isins, er Gullinbrú ekki meðal þeirra framkvæmda sem eru matsskyldar. Á meðan annað kemur ekki í Ijós sé það skoðun borgaryfirvalda að það þurfi ekki að setja breikkun brúarinnar í umhverfismat. Ingibjörg Sólrún segir ekki úti- Iokað að þessi uppákoma sjálf- stæðismanna í borgarstjórn leiði til þess að krafist verði umhverf- ismats á breikkun brúarinnar. Það gæti orðið til þess að tefja málið. A meðan það kemur ekki í ljós munu borgaryfirvöld halda ótrauð sínu striki til hagsbóta fyrir íbúa Grafarvogs. — GRH Jákvæðir í Karphúsinu „Þetta var ágætlega jákvæður fundur og viðmót nianna allt annað og betra en áöur,“ segir Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Islands, en í gær var fyrsti sáttafundur á rnilli útvegs- manna og vélstjóra eftir að verk- falli sjómanna var frestað. Formaður vélstjóra segir að það hafi verið minna um nei hjá út- vegsmönnum en menn hafa átt að venjast á liðnum sáttafund- um. Hann segir ljóst af viðbrögð- um þeirra að þeir séu tilbúnir að ræða efnislegar um kröfur vél- stjóra. Þá eru vélstjórar einnig til viðræðu um kröfur útvegs- manna á hendur þeim, sem eru í sjö liðum. Þar er m.a. krafan um að útgjöld útgerða hækki ekki samfara fækkun í áhöfn. — GRH Sýknuð af ákæru uui fjárdrátt Fyrrverandi afgreiðslukona hjá Kaupfélagi Suðurnesja var í gær sýkn- uð í Hæstarétti af ákæru um að hafa dregið sér 717 þúsund krónur hjá KS. Konan hafði starfað hjá KS f tvo mánuði og vann aðeins endrum og sinnum við sjóðsvél þá sem peningarnir eiga að hafa horfið úr. Ákærða neitaði með öllu sök í málinu. Engin vitni sáu konuna taka fé úr sjóðsvélinni og rannsókn á fjárhag konunnar styrkti ekki grun um að hún hafi dregið sér fé. Hæstiréttur taldi auk þess útilokað að slá því föstu hvenær fé hafi horfið úr vélinni og þá hvort það var þeg- ar konan var við störf eða ekki. Þess má geta að Hæstarétti þótti skýr- ingar konunnar um mikilvægt atriði ótrúverðugar, en taldi að ekkert hefði nægjanlega sannast á konuna. Ekki bætti úr skák að engin gögn lágu fyrir um notkun sjóðsvélarinnar þá daga sem hún vann ein í versluninni, hvorki kassauppgjör né innri strimlar. — FÞG Hjördís kærir „Það er rétt að ég hef ákveðið að kæra veitingu dómsmálaráðherra á embætti ríkislögreglustjóra til kærunefndar jafnréttismála, sem og greinargerð sem ég óskaði eftir og fékk frá honum vegna emb- ættisveitingarinnar," sagði Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari í samtali við Dag í gær. Hún segist kæra vegna þess að hún telji að menntun og starfsreynsla sín sé ekki metin eins og vera ber við veitingu embættisins, sem hún sótti um við þriðja mann. Haraldur Johannessen var skipaður ríkislögreglustjóri. — S.DÓR KEA-Nettó fyrirtæki ársins Atvinnumálanefnd Akureyrar útnefndi í gær KEA-Nettó fyrirtæki ársins og er það í þriðja sinn sem þessi útnefn- ing fer fram. Aður hafa Sam- herji og Höldur hlotið viður- kenningu. Tilgangurinn er að vekja athygli á árangri akur- eyrskra fyrirtækja, á Akureyri sem athafnabæ og mikilvægi Hannes Karlsson, deildarstjóri matvöruverslun- nýsköpunar í framleiðslu og ar KEA, Júlíus Guðmundsson verslunarstjóri þjónustu. — GG °g Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri stoltir yfir viðurkenningunni. - mynd: bös

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.