Dagur - 13.02.1998, Side 4
4-FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998
rDwpur
FRÉTTIR
L
Frystigeta Búlandstinds auidn
Frystigeta Búlandstinds hf. hefur verið
aukin umtalsvert, bæði á Djúpavogi og
Breiðdalsvík, og geta frystihúsin nú
fryst um 100 tonn á sólarhring hvort
um sig. Settir hafa verið upp tveir nýir
flokkarar og kostar sú framkvæmd um
25 milljónir króna. Megináherslan hef-
ur þó verið á bræðsluna en afkastageta
hennar hefur verið aukin úr 350 tonn-
um í 600 tonn og að fara úr eldþurrkun
í gufuþurrkun. Eldþurrkunin hentar ekki lengur vegna aukinna
krafna í umhverfismálum, en hún er mjög mengandi. Að meðtalinni
stækkun á hráefnistönkum og nýjum löndunarbúnaði nemur kostn-
aðurinn um 400 milljónum króna.
FlygiU í DjúpavogsMrkiu
Vígður hefur verið nýr flygill í Djúpavogskirkju og voru haldnir sér-
stakir tónleikar nýverið af því tilefni. A flygilinn léku við það tækifæri
Daníel Arason, Agúst Ármann og Guðný Gréta Eyþórsdóttir,
kirkjukórar Djúpavogs- og Norðfjarðarkirkju sungu. Kirkjukór
Djúpavogskirkju stendur að kaupunum á flyglinum sem kostar lið-
lega eina milljón króna. Djúpavogskirkja hefur fengið viðurkenningu
fagfólks sem mjög gott tónleikahús.
Grískur bragur á Samkór Suðurfjarða
Samkór SuðurQarða, sem telur um 50 manns, hefur sungið inn á
geisladisk níu Iög eftir gríska tónskáldið Teodorakis, allt lög sem ekki
hafa verið flutt áður hérlendis af blönduðum kór. Einnig verða á
diskinum norsk og íslensk þjóðlög, dægurlög, rokklög og tvö frum-
samin lög eftir þá Thorvald Gerde og Garðar Harðarson. Allir frum-
samdir textar á diskinum eru eftir heimamenn og einsöng á diskin-
um annast einnig heimamenn, þau Helga Geirsdóttir, Olafur Egg-
ertsson og Garðar Harðarson. Kórfélagar koma frá svæðinu frá
Þernunesi í Reyðarfirði suður að Starmýri í Alftafirði, en milli stað-
anna eru 180 km.
i
4
Frá Djúpavogi.
Hótel BláfeH höfðar til laxveiðiuiauua
Unnið er að stækkun Hótels Bláfells á Breiðdalsvík og verður reist
430 fermetra bjálkahús á einni hæð frá Finnlandi eða Eistlandi sem
mun hýsa koníaksstofu, matsal, gufubað auk 10 tveggja manna gisti-
herbergja og verður þá hægt að taka á móti 47 manns. Kostnaður er
áætlaður 30 milljónir króna. Hótelstjórinn segir að þessi viðbót sé
ekki síst hugsuð með erlenda laxveiðimenn í huga, markaðurinn sé
vaxandi en Vihjálmur Waltersson hótelstjóri og Þröstur Elliðason
hafa Ieigt ána til sjö ára.
Ami Isleifsson hlaut
„Þorraun66
Arni ísleifsson hlaut Þorrann, sem er viðurkenning
til þeirra sem hafa skarað fram úr í atvinnulífi
Egilsstaðabúa. Árni fær viðurkenninguna fyrir að
halda úti Djasshátíð Egilsstaða sl. 10 ár. Þetta er í
Ijórða sinn sem viðurkenningin er veitt. Arni segir
það vafamál hvað verði um Þorrann, þegar nýtt
sveitarfélag hefur séð dagsins Ijós, kannski dagi
verðlaunagripurinn bara uppi hjá honum. — GG
Arni ísleifsson.
Aðgerðir á ári hafsius
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögur starfshóps sjávarútvegsráðherra
um hvað gert skuli hér á landi í tilefni þess að árið 1998 er ár hafs-
ins hjá Sameinuðu þjóðunum. Tillögurnar miða að því að fá sem
flesta til að horfa til hafs og velta tyrir sér mikilvægi þess í umhverfi
okkar. Mikilvægt þykir að vekja áhuga barna og unglinga á hafinu og
hefur verið samþykkt að 12. september nk. verði sérstaklega helgað-
ur hafínu. Tilmælum er beint til fyrirtækja sem tengjast hafinu að
hafa þá opið hús fyrir almenning.
VerðmerMugum
áhótavant
Samstarfsverkefni ASÍ, BSRB og Neyt-
endasamtakanna krefst úrbóta í verð-
merkingum á vörum. Verðmerkingum
er víða ábótavant og á það við um flest-
ar tegundir verslunar og þjónustu skv.
könnunum aðila. Kvartanir vegna
skorts á mælieiningarverði eru sérlega
tíðar, t.d. á hárgreiðslustofum.
Rekstri meðferdarheimilis fyrir unglinga á Bakkaflöt f Skagafirði verður hætt I vor, en Barnaverndarstofa hefur samið um
byggingu nýs heimilis i iandi Garðhúsa skammt frá Varmahiið.
Nýtt meðferðar-
heimili í Skagafirði
Frá og með vorinii
leggst starfsemi
Bamavemdarstofu af
á Bakkaflöt í Skaga-
firði. Nýtt og öflugra
meðferðarheimili
senu tekið í notkuu
skammt frá Varma-
hlíð.
Nýtt meðferðarheimili verður
tekið í notkun í september í
landi Garðhúsa skammt frá
Varmahlíð í Skagafirði. Bragi
Guðbrandsson, forstöðumaður
Barnaverndarstofu, segir að búið
sé að gera samning við Héraðs-
nefnd Skagfirðinga um byggingu
á heimilinu og mun þá starfsem-
in sem verið hefur að Bakkaflöt í
Lýtingsstaðahreppi verða flutt.
Fram til þessa hefur Barna-
verndarstofa leigt af eigendum
Bakkaflatar en þeir ætla frá og
með vorinu alfarið að snúa sér
að ferðaþjónustu. „Við erum af-
skaplega glöð með þann velvilja
sem heimamenn sýna þessari
starfsemi," segir Bragi.
Kcrfið sprangið
AUs verða 6 rými á nýja heimil-
inu en starfið verður öflugra en á
Bakkflöt að sögn Braga, enda er
nauðsynlegt að mæta þeim
breyttu þörfum sem hækkun
sjálfræðisaldursins kallar á.
„Kerfið okkar er í raun sprungið
en áhrifin kom þó ekki að fullu
fram fyrr en á næstu tveimur
árum þannig að að við höfum
smá aðlögunartíma,“ segir Bragi.
Móðurstöð Barnaverndarstofu
er Stuðlar í Grafarvogi og þar fer
greining fram á þeim börnum og
unglingum sem eiga í erfiðleik-
um. Síðan eru sum barnanna
send út um landið þar sem þau
fá viðhlítandi meðferð. Mót-
þróafyllstu einstaklingarnir
munu verða í Skagafirði áfram
eins og verið hefur. Auk Bakka-
flatar eru meðferðarheimili í Ár-
bót í Aðaldal, Varpholti í Eyja-
fírði, eitt í Biskupstungum og
annað á Rangarvöllum þar sem
börn yngri en 12 ára eru vistuð.
Nýtt heimili mun svo bætast við
fyrir árslok. Staðsetningin er
ekki endanlega ákveðin en \áð
höfum skoðað bæði hús í Borg-
arfírði og vestur á fjörðum. Með
nýrri fjárveitingu vonumst \ið til
að geta hafið rekstur nýs heimil-
is í lok ársins,“ segir Bragi. — BÞ
Vildi fara í
haráttusætíð
Sigurður J. Sigurðs-
son, oddviti sjálfstæð-
ismaima á Akureyri,
segist hafa átt fruui-
kvæðið að þvi að
skipa 4. sætið á lista
flokksius í kosniug-
luiuui í vor.
„Þetta er að mínu mati og
margra annarra sú staða sem er
sterkust fyrir okkur sjálfstæðis-
menn á Akureyri," segir Sigurður
J. Sigurðsson, sem skipar 4. sæt-
ið á lista Sjálfstæðisflokksins í
næstu bæjarstjómarkosningum,
en hann hefur leitt Iistann und-
anfarin ár. I fyrsta sætinu verður
sem kunnugt er Kristján Þór Júl-
íusson, fyrrverandi bæjarstjóri á
Isafirði. „Við munum leggja of-
urkapp á það að ná fjórða sæt-
inu, og ég mun leggja mitt af
mörkum til þess að það gangi
eftir."
Sigurður segir að í próíjöri fyr-
ir síðustu kosningar hafi fáar
konur tekið þátt og m.a. þess
vegna hafi verið ákveðið að hafa
ekki prófkjör nú. „Við vildum
reyna að ná til fólks sem sýndi
málum áhuga en var ekki tilbúið
að fara í prófkjörsslag. Það tókst
vel og þannig náðuin við m.a. að
auka hlut kvenna. Eg er þó ekki
viss um að þetta sé dauðadómur
yfir prófkjörum þó þeim hafí
fylgt ýmsir fylgikvillar sem hafa
komið illa við okkur.“
Sigurður segir að nauðsynlegt
sé að breyta um stjórnarhætti á
Akureyri „og það gerist ekki
nema við Sjálfstæðismenn
myndum meirihluta með Akur-
eyrarlista eða Framsóknarflokki
næsta kjörtímabil." — GG