Dagur - 13.02.1998, Side 12
12- FÖSTUDAGUR 1 3.FEBRÚAR 1998
ÍÞRÓTTIR
NAGANO
19 9 8
QQ9
Fékk gullið að nýju
Kanadíski snjóbrettakappinn
Ross Rebagliati, sem sigraði í
stórsvigi, féll á lyfjaprófi sem
kunnugt er og var gert að skila
verðlaunapeningnum, þegar í
ljós kom við rannsókn að hann
hafði neytt marijuana. Akveðið
hefur verið að Kanadamaðurinn
fái að halda verðlaunum sínum
eftir að áfiýjunarnefnd komst að
þeirri niðurstöðu að óheimilt
hefði verið að Ieita að marijuana
í blóði keppenda. Forráðamenn
alþjóða skíðasambandsins sögð-
ust í gær vera ánægðir með úr-
skurð nefndarinnar.
Rekinn fyrir veisluhöld
Útlagaímynd hefur lengi loðað
við keppendur á snjóbrettum, en
kannski er hægt að segja að
keppendur í þeim greinum séu
lífsglaðari en aðrir. Sum uppá-
tækin vekja þó litla hrifningu og
bjórveisla sem Martin Freina-
demetz, keppandi í austurríska
hópnum, stóð fýrir á hóteli þvf
sem snjóbrettamenn gista á í
fyrrakvöld, var í þeim flokki.
Freinademetz varð það á að
skemma fullkomið símaskipti-
borð og hann hefur nú verið rek-
inn úr hópnum og er á heimleið.
Enn er frestað
Það virðist ætla að ganga erfið-
lega fyrir mótshaldara í Nagano
að halda brunkeppni karla, en
keppninni var frestað í þriðja
sinn í gær. Astæðan fyrir því var
lítið skyggni, sem helgaðist af
slyddu og þokuslæðingi. Keppn-
in hefur verið sett á næstu nótt.
Dæhlie á spjöld söguimar
Norðmaðurinn Björn Dæhlie
komst á spjöld sögunnar í fyrra-
dag, þegar hann varð fyrsti karl-
maðurinn til að vinna sex gull-
verðlaun á vetrarólympíuleikum.
Dæhlie hreppti gullið í tíu kíló-
metra göngu með hefðbundinni
aðferð, en hann sigraði einnig í
þeirri grein í Lillehammer. Tvær
konur hafa hlotið sex gullverð-
laun á vetrarólympíuleikum, en
það eru þær Lydia Skoblikova í
skautahlaupi og skíðagöngukon-
an Lyubov Egorova.
INNLENT
Breytmgar hjá Keflavík
Knattspyrnudeild Ungmennafé-
Iags Keflavíkur heldur aðalfund
sinn um helgina. Reiknað er
með að töluverðar breytingar
verði á stjórn deildarinnar. Jó-
hannes Ellertsson, formaður
deildarinnar, ætlar að hætta for-
mennskunni og snúa sér að öðr-
um störfum fyrir félagið, m.a. að
uppbyggingu á hinu stórglæsi-
lega íþróttasvæði á Iðavöllum.
Þá mun Kjartan Másson hætta
sem framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildarinnar og snúa sér
að öðrum störfum fyrir félagið.
Ingvar Guðmundsson, íþrótta-
kennari í Njarðvík, hefur verið
fenginn til að taka við af honum.
Mikill hugur er í forráða-
mönnum knattspyrnudeildar-
innar þrátt fyrir að hafa misst
marga góða leikmenn frá síð-
ustu Ieiktíð. Þeir eru nú í óða
önn að stoppa upp í götin, með
aðkomumönnum og ekki síður
með heimastrákum sem hafa
staðið sig mjög vel í yngri flokk-
unum á síðustu árum. — GÞÖ
Viallitekur
við Chelsea
Áskrífendur að
bikarúrslituni
Stjórnarmenn enska úrvalsdeild-
arliðsins Chelsea ákváðu í gær-
kvöld að slíta samstarfi sínu við
Ruud Gullit, framkvæmdastjóra
félagsins, og ráða Italann Gí-
anluca Vialli í hans stað. Ohætt
er að segja að uppsögn Gullit
hafi komið mjög á óvart, en grip-
ið var til hennar, þegar ljóst var
að Gullit, sem var samnings-
bundinn til vors, mundi ekki
samþykkja tilboð Chelsea um
nýjan samning.
„Þegar Ijóst var að Ruud yrði
ekki með okkur á næsta tímabili,
ákváðum við að hætta frekara
samstarfi og Gianluca Vialli er
nýr spilandi stjóri hjá félaginu,"
sagði Colin Hutchinson, stjórn-
armaður hjá Lundúnaliðinu,
þegar hann tilkynnti um breyt-
inguna.
Viðræður enska félagsins við
Gullit um nýjan samning, stóðu í
nokkra mánuði en þær strönd-
uðu á launakröfum Hollendings-
ins, auk þess sem enska félagið
vildi gera lengri samning en til
tveggja ára og að GuIIit hætti að
spila og einbeitti sér að þjálfun-
inni.
„Við teljum að sá samningur
sem við höfðum upp á að bjóða,
hefði gert Ruud að tekjuhæsta
framkvæmdastjóra úrvalsdeildar-
innar, en við vorum ekki tilbúnir
til að verða við kröfum hans. Bil-
ið var of breitt til að hægt væri að
halda áfram tilgangslausum
samningaviðræðum og okkur var
ljóst að við þyrftum að leita að
eftirmanni hans. Gianluca var
boðið starfið í gærkvöld og hann
tók tilboði okkar, eftir fimm mín-
útna umhugsunarfrest," sagði
Hutchison og bætti því við að
hann hefði trú á því að Vialli yrði
frábær þjálfari. „Við höfum feng-
ið að kynnast honum og skoðun-
um hans á knattspyrnu á síðast-
liðnum átján mánuðum."
Gullit verður á launaskrá
Chelsea, þar til samningur hans
rennur út þann 30. júní, en Vi-
alli, sem er 33 ára og kom til
Chelsea frá Juventus, er með
samning við Lundúnaliðið til
vors á næsta ári.
Keflavík eða ÍS hafa
tekið þátt í 19 af 23
bikanLrslitaleikjiun
frá upphafi bikar-
keppni kvenua. Þau
mætast í fyrsta sinn í
úrslitum á laugardag-
inn. Keflavík hefur
unnið hikarinn átta
sinnum. Stúdínur
hafa hampað bikarn-
um fímm sinnum.
Bikarúrslita-
leikur Keflavík-
ur og IS er
merkilegur við-
burður. I hon-
um mætast þau
lið, í fyrsta
skipti, sem oft-
ast hafa unnið
sér rétt til að
Ieika til úrslita.
ÍS lék fyrst til
úrslita 1978 en
Keflv'íkingar
stigu fyrst á
fjalir Hallarinn-
ar árið 1987.
Saga þessara
liða hefur ekki
átt mikla sam-
leið á undan-
förnum árum.
Keflavík hefur verið með yfir-
burðalið í kvennakörfunni hér á
landi síðasta áratuginn. A þeim
tíma hefur gengið á ýmsu hjá
Stúdínunum en nú lítur út fyrir
að þær séu að koma upp með
gott lið sem ætti að geta velgt
þeim bestu vel undir uggum
næstu árin.
Leikur áxsins
Bikarúrslitaleikur er að sjálf-
sögðu stærsta hátíð allra íþrótta-
greina. Keflvíkingar, sem verið
hafa áskrifendur að titlum í
kvennaflokki svo lengi sem elstu
menn muna, eru orðnar hagvan-
ar í Höllinni. Hvort ætli þær
leggi meira upp úr að vinna bik-
arinn eða verða Islandsmeistar-
ar?
„Það er náttúrulega rosalega
gaman að vinna báða þessa
titla,“ sagði Anna María Sveins-
dóttir, þjálfari og einn besti mað-
ur Keflvíkinga síðastliðin fjórtán
ár. „Það er meiri vinna sem ligg-
ur að baki því að verða Islands-
meistarar. Þar kemur til úrslita-
keppnin. Það er samt alltaf viss
stemmning að verða bikarmeist-
ari. Það er ótrúlega skemmtilegt
að koma í Höllina og sjá og finna
stemmninguna. Það er ekkert
eins skemmtilegt og að vinna
bikarinn enda er þetta stærsti
leikur hvers keppnistímabils,"
sagði Anna María og Erla Reyn-
isdóttir tók undir hvert orð með
þjálfara sínum.
Haukamaðurinn Pétur Ingv-
arsson þjálfar Stúdínurnar.
Hann sagði að sitt lið mætti vel
stemmt til leiks. Allir leikmenn
væru heilir og nú væri verið að
æfa hvernig ætti að fagna í leiks-
lok.
Það lítur því út fyrir að laugar-
dagurinn verði mikil körfubolta-
veisla. Leikur IS og Keflavíkur
hefst klukkan 15:00 og að hon-
um loknum stíga Isfirðingar og
Grindvíkingar á fjalirnar og berj-
ast til úrslita í karlaflokki. — GÞÖ
Hverjir sigra í bikarúrslitaleik
Grindavíkur og KFÍ á laugardaginn?
Guniiar
Sverrisson,
þjálfari Þórs:
„Eg á von á ein-
um skemmti-
legasta úrslita-
leik í bikar-
keppni í mörg
ár. Margír há-
vaxnir og sterk-
ir leikmenn
verða á vellinum eins og David
Bevis, Friðrik Stefánsson og
Grikkinn Tsartsaris.
Einnig eru til staðar margar
góðar skyttur í báðum liðum og
þessi blanda ætti ekki að klikka.
Eg tel samt sem áður að á endan-
um muni Grindavíkurliðið
hampa bikarnum en það er helst
vegna þess að Darryl Wilson
kannast við þessa „stóru“ Ieiki og
ætti að vera vel stemmdur á laug-
ardag.“
ITiðrik Ingi
Rúnarsson,
þjálfari
Njarðvxkur:
„Ég hallast að
því að Grinda-
víkurliðið sigri.
Það spilar hins
vegar margt inn
í t.d. heppni,
dagsformið og
byrjunin. Grindavíkurliðið er
með sterkasta bakvarðapar deild-
arinnar, Wilson og Helga Jónas.
Það er hins vegar Grikkinn há-
vaxni sem hefur verið að gera út-
slagið í leikjum þeirra hingað til.
KFI á tvo mjög sterka leikmenn,
Friðrik Stefánsson og David Bev-
is, en lykillinn þeirra er Guðni
Guðnason, þjálfari. Hann þarf að
spila 20-25 mínútur í leiknum til
að þeir eigi von og geri hann það
ætti leikurinn að verða hin mesta
skemmtun."
Guðjón
Skúlason,
leikmaður
Kellavíkur:
„Grindavík ætti
að taka þetta.
Síðan verðum
við að átta okk-
ur á því að Isa-
fjörður er að
spila í höllinni í
lyrsta sinn og það skiptir miklu
máli. Helgi Jónas og Darryl Wil-
son eru þeir sem eiga eftir að
gera útslagið í leiknum. Bakverð-
ir ísafjarðar verða í miklum vand-
ræðum með þá og því ættu þeir
að standa uppi sem sigurvegarar.
Samt má ekki gleyma David Bev-
is hjá ísafirði en verði hann í
ham þá gætu Grindvíkingar Ient í
vandræðum. Ég á hins vegar von
á mjög skemmtilegum leik enda
tvö Iið með nokkra frábæra leik-
menn innanborðs að mætast.“
Linda Stefáns-
dóttir,
landsliðskona
úrKR:
„Ég á von á frá-
bærri skemmt-
un í höllinni á
laugardag. Það
er gaman að
nýtt lið sé komið
inn í þetta og
verður gaman að fylgjast með
því. Leikurinn á eftir að verða
æsispennandi og úrslitin ráðast
vonandi ekki fyrr en á síðustu
mínútunni og vonandi fáum við
framlengingu. Ég tel hins vegar
að lið Grindavíkur hafi þetta á
endanum en allt getur gerst enda
bikarúrslitaleikur." -jj