Dagur - 21.02.1998, Blaðsíða 9
rD^ir
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 - 9
• tálbeitur
Auðbrekku i Kópavogi. - mynd: e.ól
ég hef sinnt störfum mínum í
deildinni og leitað var logandi
Ijósi að hugsanlegum brotum, en
ekkert fannst,“ sagði Arnar.
-Hvaðan eru ásakanir sem þess-
ar sprottnar. Kannski úrfíkniefna-
heiminum sjálfum?
„Það hefur komið fram í rann-
sókn Atla Gíslasonar sem ég hef
auðvitað kynnt mér sem sakborn-
ingur, að heimildarmenn, fólkið
með ásakanirnar, hafa verið fyrst
og fremst fólk úr fíkniefnaum-
hverfinu sjálfu. Við þekkjum vel
stríðið í þeim heimi. Þar eru öll
hugsanleg meðul notuð til að
klekkja á andstæðingum. Ríkis-
saksóknari komst að þeirri niður-
stöðu að ásakanir þingmanna í ut-
andagskrárumræðu í mars í fyrra
hafi verið órökstuttar. Þær urðu
þó til þess að hafin var lögreglu-
rannsókn.11
-Og hvar stendur ávana- og
fíkniefnadeild í dag? Er ekki kom-
in upp óskastaða þeirra sem standa
í fíkniefnaviðskiptum?
„Ef ég væri dópdíler, innflytj-
andi, þá væri ég auðvitað himin-
sæll yfir því að vígtennurnar væru
dregnar úr starfsemi lögreglunn-
ar. Við stöndum uppi í dag með
deild sem þarf töluverðan tíma til
að vinna sig upp í fyrri styrk, það
tel ég alveg ljóst. ég fagna orðum
flestra þeirra þingmanna sem til
máls tóku á þingi um þetta mál í
fyrradag, að nú væri nóg komið,
enda ýmsar aðgerðir hafnar sem
miða að því að laga það sem bet-
ur má fara við rannsóknir fíkni-
efnamála," sagði Arnar.
Óeðlilegt álag, stutt viðvera í
deildinni
-Álagið á örfáa starfsmenn deildar-
innar hlýtur að verða óeðlilega
mikið?
„Jú, álagið er gífurlega mikið.
Vinnutíminn helgast af því hvað
Iögreglumenn eru að rannsaka.
Þú getur ekki ákveðið hvernig þú
ætlar að vinna á morgun. Starfs-
menn deildarinnar og yfirmenn
lögreglunnar stóðu sífellt frammi
fyrir því að velja á milli mála, en
það hefur alla tíð verið ógjörning-
ur að sinna öllum þeim upplýs-
ingum um fíkniefnaviðskipti sem
borist hafa. Það voru erfiðar
ákvarðanir að velja á milli.“
Amar, þú hvarfst af vettvangi
fikniefnanna eftir 6 ára staif árið
1990. Það er ekki langur tími.
Hvers vegna? Varstu biíinn af fá
nóg af þeim sálarlausa ógeðslýð
sem stundar viðskipti með eitur
handa æskunni i landinu?
„Þegar ég hætti var ég satt að
segja búinn að fá nóg. Það var
ekld þannig að ég væri neitt yfir
mig þreyttur líkamlega eða and-
lega, bara Jsreyttur á þessum
málaflokki. Eg vildi breyta til, bú-
inn að fá nóg. Þetta eru krefjandi
rannsóknir og þær reyna á. Þetta
eru spennandi mál og vinnan
skemmtileg með góðum sam-
starfsmönnum. A þessum tíma
margfaldaðist málafjöldinn og
starfsmönnum fjölgaði. En það er
rétt, það var Iéttir að skipta um
starf.“
-Það hlýtur að setja mark sitt á
menn að vinna við sEk mál...?
„Já, því er ekki að neita að það
setur mark sitt á menn að vinna
við þau skilyrði sem ég var að lýsa
hérna áðan, þessu mikla álagi,
óreglulegum vinnutíma sem við-
gengst í þessari deild, þessari
mannlegu brenglun, sem menn
eru stöðugt að eltast við, eldd síst
vegna óöruggs lagaumhverfis
varðandi óhefðbundnar rann-
sóknaraðferðir. Þetta hefur sett
mark sitt á margan góðan mann-
inn sem að málunum hefur kom-
ið. Dæmin eru mörg, og ending
fólks í starfi hjá ávana- og fíkni-
efnadeild er yfirleitt ekki löng.
Menn verða þreyttir og þurfa að
losna úr streitunni," sagði Arnar.
-Hverjir eru það sem flytja inn
og dreifa ftkniefnum á Islandi?
Eru það stereótýpurnar í bíómynd-
unum, sem sitja ósnertanlegir í
glæsihöllum sinum? Oft heyrist
fólk orðað við fíkniefnasölu ef það
efnast hratt. Er eitthvað hæft í
slíkum áburði?
„Nú hef ég ekki fylgst með í ná-
vígi síðustu árin. En það var mín
reynsla að þarna væri enginn einn
stór og mikill aðili á ferðinni. Við
erum Iítið þjóðfélag. Um leið og
einhver verður stærri en aðrir veit
lögreglan um það mjög fljótlega
með samböndum sínum inn í
þetta umhverfi. Það er oft að upp-
Iýsingar berast um nýríkt fólk,
ábendingar um að líldegt sé að
fólkið hagnist á dópsölu. Það
reyndist oftast nær enginn fótur
fyrir slíku. Þessu kynnist ég líka í
núverandi starfi mínu, oft er þetta
öfundartal."
Lögreglumenn sem lifa og
hrærast innan um fíkniefnafólk
eiga líka ýmislegt á hættu. Til
dæmis hótanir um limlestingar,
jafnvel morðhótanir. Arnar Jens-
son segist kannast við þetta. Sjálf-
ur hafi hann orðið fyrir slíkum
hótunum og það hafi félagar sínir
líka gert. Ekkert hafi orðið úr
framkvæmd þeirra, en óþægilegt
sé það engu að síður að verða fyr-
ir þeim. „Það kom í ljós að þeir
sem hótuðu höfðu jafnvel kynnt
sér heimilisaðstæður, börn, skóla,
leikskóla og svo framvegis. Ég
þekki svona dæmi og það var tek-
ið mjög alvarlega."
Alþingi skoðar
ríkissaksóknara
-Nú hefur þú og aðrir þeir sem
fengu þann vafasama stimpil
„grunaður", fengið eins konar
sýknun eftir miklar rannsóknir.
Þið hljótið að fagna þvi?
„Jú vissulega. En það er nú svo
skrítið að þegar ríkissaksóknari
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að við höfum engin afbrot framið
í starfi okkar, þá skilst mér að alls-
herjarnefnd Alþingis ætli að fara
ofan í rannsóknarniðurstöðurnar
og þá jafnframt niðurstöðu ríkis-
saksóknara og velta þessu öllu
upp aftur. Er það nú ekki alvar-
legt ef ríkissaksóknari kemst að
niðurstöðu í sakamáli sem þing-
mönnum líkar ekki, að hann skuli
eiga það yfir höfði sér að þeir taki
málið inn í þingið til enn einnar
skoðunar? Tilgangurinn held ég
að hljóti að vera af pólitískum
toga, alla vega í þessu máli.“
Vísindin, hassiö og
brennivínið
-Á leiðinni hingað til þín i Kópa-
voginn mátti heyra i morgunfrétt-
um ríkisútvarpsins sagt frá hávís-
indalegri niðurstöðu í virtu vís-
indablaði. Hún er á þá leið að
kannabis sé snöggtum skárra en
tóbak og áfengi, löglegu vímuefn-
in. Finnst þér þetta ekki skrítin
vísindi, Arnar? Eða voruð þið að
vinna ógagn með því að fletta ofan
af hasssmyglurum?
„Þetta heyrist af og til. En það
hefur verið ákveðið af yfirvöldum
að hass sé ólöglegur vímugjafi þar
sem áfengi er löglegur. Ég held
að ef áfengi og tóbak væru að
koma fyrst fram í dagsljósið nú,
þá væru bæði þau efni á listum
yfir bönnuð fíkniefni. Menn geta
svo deilt um hvort sé verra. En
þróunin er sú, og það get ég full-
yrt, að þeir sem eru farnir að
sprauta sig reglulega, fólk sem er
komið á botninn, hefur gjarnan
byrjað ungt að drekka áfengi.
Næsta stig er oft hass, síðan leið-
ir eitt af öðru þangað til spraut-
unni er náð, - og þar með botni
mannlífsins."
-Hvar stendur unga fólkið i dag,
er öll tilveran eitruð?
„Nei, ekki er það nú. En of
margir unglingar lenda í þessari
gryfju, oft fólk frá brotnum heim-
ilum, eða með Iéleg samskipti við
foreldra. En þetta er þó alls ekki
einhlítt. I dag stendur unga fólkið
frammi fyrir miklu flóknara vali á
vímuefnum en áður. Það er líka
hrikalegt að sjá að aldur þeirra
sem reykja, drekka og neyta vímu-
efna færist stöðugt neðar.
Dalsraut 1 • 600 Akureyri
Símí461 1188
Óskum eftir að ráða starfsmann í
pússningu og sprautuvinnu.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar á staðnum.
AKUREYRARBÆR
ÚTBOÐ
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd
bæjarsjóðs Akureyrar óskar hér með eftir tilboðum í
gatnagerð og lagnir í áfanga III B í Giljahverfi.
Tilboðið nær til gerðar 150 lengdarmetra af
götum og 300 lengdarmetra af stígum ásamt
tilheyrandi holræsa- og vatnslögnum.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt úr götum 5.000 m3
Lagnaskurðir 280 m
Lengd fráveitulagna 470 m
Lengd vatnslagna 170 m
Fylling 3.500 m3
Skiladagur meginhluta verksins er 29. maí 1998,
en alls verksins 12. júní 1998.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Tæknideildar
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri frá og með
þriðjudeginum 24. febrúar 1998 á 4.000 kr.
Opnun tilboða fer fram á sama stað
fimmtudaginn 12. mars 1998 kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
— EIMSKIP —
AÐALFUNDUR
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu
fimmtudaginn 12. mars 1998
og hefst kl. 14.00.
--------- DAGSKRÁ ---------
1. Adalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagssins.
2. Tillaga félagsstjórnar um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum, verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá
4. mars til hádegis 12. mars.
Reykjavík, 28. Janúar 1998.
STJÓRIM HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS