Dagur - 28.02.1998, Síða 9
8- LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
Forréttur: Laxajn-enna
Nýr, grafinn og reylitur.
Aðalréttur: Glóðarsteikt kjötjjrenna á teini.
Lamf), naut og svín á hrísgrjónabeði.
Desert: ísjjrenna.
Vanilluís, súkk ulaðiís og jarðarberjaís.
Kaííi Verðkr. 1.650,-
Okkar vinsæla
kaffiblaðborð
alla sunnudaga.
LinJin Leiruvegi s. 4Ó1 3008
AKUREYRARBÆR
LEIKSKÓLAKENNARAR
Akureyrarbær óskar eftir að ráða leikskólakennara
við eftirtalda leikskóla:
Leikskólinn Árholt
50% staða (eftir hádegi) leikskólakennara með deildarstjórn,
4 heilar og 1 hálf staða almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Jónína Hauksdóttir, leikskólastjóri, sími 462 3676
Leikskólinn Iðavöllur
1 heil staða leikskólakennara með deildarstjórn,
3 heilar stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Kristlaug Svavarsdóttir, leikskólastjóri,
sími 462 3849
Leikskólinn Lundarsel
1 heil staða leikskólakennara með deildarstjórn og
stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Erla Böðvarsdóttir, leikskólastjóri, sími 462 5883
Leikskólinn Flúðir
50% (eftir hádegi) staða leikskólakennara með deildarstjórn,
4 heilar stöður almennra leikskólakennara,
3 hálfar stöður (eftir hádegi) almennra leikskólakennara,
1 hálf staða (fyrir hádegi) almenns leikskólakennara,
Upplýsingar veitir Elva Haraldsdóttir, leikskólastjóri, sími 462 6602.
Leikskólinn Síðusel
2 heilar stöður almennra leikskólakennara og
3 hálfar (eftir hádegi) stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Snjólaug Pálsdóttir, leikskólastjóri,
sími 462 3034.
Leikskólinn Holtakot
1 heil staða aðstoðarleikskólastjóra,
1 heil staða leikskólkennara með deildarstjórn,
3 heilar stöður almennra leikskólakennara,
Upplýsingar veitir Sigríður Gísladóttir, leikskólastjóri,
sími 462 7081.
Leikskólinn Páimholt
3 heilar stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Sigrún Jónsdóttir, leikskólastjóri, sími 462 3911.
Leikskólinn Krógaból
2 heilar stöður almennra leikskólakennara og
2 hálfar (eftir hádegi) stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Anna R. Árnadóttir, leikskólastjóri,
sími 462 7060.
Leikskólinn Klappir
3 heilar stöður almennra leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Aðalheiður Hreiðarsdóttir, leikskólastjóri, sími 462
7041.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra leikskólakennara eða
STAK við Launanefnd sveitarfélaga. Upplýsingar um kaup og kjör
veitir starfsmannastjóri í síma 462 1000.
Umsóknum skal skilað til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar Geisla-
götu 9 á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 1998.
Starfsmannastjóri
/-----------------------------------\
RAUTT LjÓS þif&in- RAUTT IffÓS
yUMFERÐAR
RÁÐ
\____________________________________/
-Dj&pr
'-MWVÍvO"
rDgptr—
FRÉTTASKÝRING
Laitgar mest til að skjóta þá!
í fjðrða skipti er verið
að taka mál fyrir dóm-
stólum þar sem Alfreð
Magnússon öryrki leit-
ar réttar síns. Fagaðil-
ar styðja frásögn hans,
en allt hefur komið
fyrir ekki.
Alfreð Magnússon, íbúi í Grund-
arfirði og fyrrum skipstjóri, er ör-
yrki á sjötugsaldri og hefur staðið
í tæplega 13 ára baráttu við dóms-
kerfið eftir að hann slasaðist við
vinnu sína. Hratt hefur gengið á
fé Alfreðs og fjölskyldu eftir slysið
og er hann furðu lostinn yfir
fjandsamlegum dómstólum sem
fimm sinnum hafa hafnað kröfum
hans. I mars nk. verður mál Andr-
ésar gegn fyrrum vinnuveitanda
tekið fyrir öðru sinni í Hæstarétti
og benda umsagnir fagaðila til að
hann eigi loks möguleika á sigri.
Lítil þúfa
Þáttaskil urðu í Iífi Alfreðs 8. maí
árið 1985 þegar hann var 54 ára
gamall. ITann var þá við störf hjá
fýrirtækinu Sæfangi í Grundar-
firði sem ökumaður á vörubíl, auk
þess sem hann greip í önnur störf.
Alfreð var þennan dag beðinn um
að standsetja vörubíl fyrir aðal-
skoðun en felguró hafði vantað
um skeið á hægra framhjólið. Fól
verkstjórinn honum, samkvæmt
frásögn Alfreðs, að herða nýja ró
sem teldn hafði verið af bifreið
sömu tegundar sem lagt hafði ver-
ið skammt frá til niðurrifs. „Vél-
stjórinn kom með hana til mfn ol-
íuborna og burstaði boltann á
felgunni. Eg fór að herða en eftir
skamma stund gaf allt eftir, ég
datt og þríbraut á mér löppina,
opið brot. Eg fór á sjúkrahúsið í
Stykkishólmi og var frá í 7-8 mán-
uði en byrjaði þá að vinna. Það
reyndist mér erfitt og mér hrakaði
ört, fékk alltaf sár á fótinn. I stór-
um dráttum hætti ég svo alveg
vinnu í mars 1993 og hef ekkert
starfað síðan,“ segir Alfreð.
Ásakaður um þjösnaskap
Alfreð fær bætur sem 30% öryrki í
dag og fékk gagngert eftir slysið
um 600.000 kr. í heildarbætur.
Það er hins vegar ekki mikil fjár-
hæð þegar tekið er tillit til um-
skiptanna á lífi Alfreðs og þegar
ljóst varð hvað stefndi í, sótti
hann mál gegn vinnuveitanda sín-
um, enda segir Alfreð að forstjóri
Sæfangs hafi sagt, að hann fengi
ekkert út úr þeim án þess að fara
í mál. Alfreð hélt þvi fram að van-
ræksla hefði verið orsök slyssins
og átti sýslumaðurinn í Stykkis-
hólmi, Jón Magnússon, að dæma
í málinu. Hins vegar hafði Alfreð
verið viðriðinn löggæslustörf í
Grundarfirði og var sýslumaður
því talinn vanhæfur. Málið var
flutt til Reykjavíkur og lauk með
tapi Alfreðs. „Mér var alfarið
kennt um og sagt að ég hefði beitt
; M O -
v *N"Í' ' i
.
Alfreð Magnússon er enn með sár á hægri fótlegg eftir vinnuslys sem hann lenti I árið 1985. Hann segir kerfið með eindæmum óvilhallt sér. - myndir: ohr
afli og sprengt róna með þjösna-
skap. Eg vildi ekki una þessu og
vfsaði málinu til Hæstaréttar en
hann komst að sömu niðurstöðu
og Héraðsdómur árið 1994.“
Illa ranusakað mál
Þegar hér var komið sögu telur Al-
freð að fyrir utan vinnutapið hafi
hann verið búinn að greiða um
hálfa milljón króna í kostnað
vegna málarekstrarins, þannig að
hann var nánast á sléttu. Hann
hafi verið nálægt því að gefast upp
en vegna sérálits eins af dómend-
um Hæstaréttar hafi lögmaður
hans séð að málið var ekki nógu
vel rannsakað. Róin sem brast
hefði nefnilega aldrei verið full-
könnuð með tæknilegum aðferð-
um.
Sannarlega gölluð ró
Lögmaður Alfreðs fór því með
róna til Iðntæknistofnunar og lét
rannsaka hana. Samkvæmt vott-
orði stofnunarinnar kom í ljós að
róin hafði verið gölluð. Með þess-
ar nýju upplýsingar bað Alfreð um
upptöku málsins fyrir Hæstarétti
en því var neitað. Alfreð sendi
róna einnig til Rannsóknastofn-
unar byggingaiðnaðarins og þeir
athugðu hve mikið átak þyrfti til
að brjóta gallalausa ró. 28 tonn
þurfti til og er því ekki á mann-
legu valdi að sprengja slíkan grip
öðruvísi en eitthvað sé athuga-
vert, skv. frásögn Alfreðs.
Verkalýðsfélagið blandar sér í
leikinn
Verkalýðsfélagið í Grundafirði
ákvað nú að styðja við bakið á Al-
freð og hefur síðan rekið mál
hans. Félagið skrifaði Hæstarétti
bréf og bað aftur um upptöku en
fékk synjun líkt og Alfreð. Þá var
ákveðið að fara í persónulegt mál
gegn verkstjóranum sem skipaði
honum að \ánna verkið á sínum
tíma. Það tapaðist fyrir Héraðs-
dómi Vesturlands en var skotið til
Hæstaréttar þar sem ákvörðun
liggur fyrir innan tíðar eins og fyrr
segir. lngólfur Þorbjörnsson frá
Iðntæknistofnun mun m.a. hafa
vitnað í þessu máli og staðhæft að
gömul sprunga með mikilli tær-
ingu hafi verið í rónni.
Langar að draga fram
haglabyssuna
Alfreð Mrtist þokkalega stemmdur
í viðtalinu við blaðið þrátt fyrir
allt, en hann er reiður. Hann á
konu og fimm uppkomin börn og
lífið hefur verið erfitt síðari ár fyr-
ir mann sem áður bauð Ægi byrg-
inn og gætti laga og réttar þess á
milli. Fjárhagslegir erfiðleikar
hafa magnast. „Eg átti húsið nán-
ast skuldlaust þegar þetta gerðist
en nú skuldum við rúmar þrjár
milljónir og höfum þó sýnt að-
hald. Ætli þetta endi ekki með því
að ég missi allt. Eg get ekki sagt
að ég sé hrifinn af þessu kerfi sem
við búum við. Mig langar mest til
að draga fram haglabyssuna og
skjóta þessa menn, þótt ég yrði í
tugthúsinu það sem eftir væri æv-
innar,“ segir Alfreð, en hlær þó að
orðum sínum. Frelsissviptingin er
honum þungbær. Hann hefur
skipstjórnarréttindi og reyndi að
fara á sjóinn eftir slysið, en gafst
upp. Krafa Alfreðs er rúmar 4.8
milljónir fyrir dómstólum, en
hann er líka að reyna að endur-
heimta virðingu sína.
Sæver hefur fengið nýtt nafn en
stjórnarformaður þess vildi ekki
ræða málið, enda kæmi það þeim
ekki lengur viö. Fymerandi verk-
13 ára kerfisbaráttu Alfreðs og fjölskyldu lýkur á næstu dögum. Vinnuslys gerði hann stjóri Alfreðs sagði einnig að ekk-
að öryrkja og ef stríðsgæfan gerir ekki vart við sig, segist Alfreð stefna igjaldþrot. ert væri um málið að segja.
Eiginkona hans er Kristín Friðfinnsdóttir.
vooi- o r tj o n mm uc mmu i - TTrvr
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998 - 9
AKUREYRARBÆR
Búsetu og öldrunardeild
Deildarstjóri
heimahjúkrunar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra heimahjúkrunar.
Deildarstjórinn starfar á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, en í
nánu samstarfi við aðra stjórnendur heimaþjónustu bæjarins.
Hlutverk hans er að skipuleggja og stjórna heimahjúkrun í um-
dæmi Heilsugæslustöðvarinnar. Heimaþjónusta hjá Akureyrar-
bæ er hluti af reynsluverkefnum skv. samningi við Heilbrigðis-
ráðuneytið og er því hér um þróunarverkefni að ræða.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi með reynslu af heilsugæslu
og/eða stjórnun, sem er tilbúinn að taka þátt í uppbyggingar-
og þróunarstarfi. Áhersla er lögð á mikla lipurð í mannlegum
samskiptum.
Um er að ræða fullt starf sem veitist frá 1. apríl 1998. Laun
skv. kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri Margrét Guðjóns-
dóttir í síma 460-4600 og upplýsíngar um kaup og kjör veitir
starfsmannastjóri í síma 462-1000.
Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1998.
Starfsmannastjóri
EYÞING
Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum - Strandgötu 29 - 600
Akureyri - Sími 461 2733 - Fax 461 2729 kt. 561192-2199 - Netfang:
eything@nett.is
Framkvæmdastjóri
EYPING - Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
óskar að ráða framkvæmdastjóra. Skrifstofa framkvæmdastjóra er
staðsett á Akureyri. Starfið er laust frá 1. maí næstkomandi.
Umsóknir sendist til Eyþings fyrir 20. mars 1998.
Upplýsingar um starfið veitir Sigfríður Þorsteinsdóttir, stjórnarfor-
maður í síma 462-4031 og Hjalti Jóhannesson, framkvæmdastjóri í
síma 461-2733.
EYÞING, Strandgötu 29, 600 Akureyri
Vinabæjavika í Álesund
20.-27. júní 1998
Helstu viðfangsefni á vinabæjavikunni verða:
• Söguskoðun - kynning á sögu eigin bæjar og að kynna
sér á staðnum sögu Álesund.
• Útilíf fyrir ungt fólk - þar verður m.a. tekið þátt í tveggja
daga ferð þar sem skiptast á ferðir á sjó og í fjöllum, með
gistingu í tjöldum.
Þátttaka í báðum þessum hópum er miðuð við fólk á aldrin-
um 16-20 ára. Dagskráin fyrir hópana er lögð upp þannig
að fatlaðir hafi möguleika á þátttöku.
Öll dvöl í Álesund er þátttakendum að kostnaðarlausu og
ferðastyrkir eru veittir bæði af Álesund og Akureyrarbæ.
Kostnaður fyrir hvern almennan þátttakanda verður því ein-
ungis 8.000 kr.
Umsóknarfestur er til mánudagsins 9. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í framhaldsskólunum,
Kompaníinu, Hafnarstræti 73 og á skrifstofu Akureyrarbæj-
ar, Glerárgötu 26.