Dagur - 02.04.1998, Síða 2
2 -FIMMTUDAGUR 2.APRÍL 1998
Djg^ttr
FRÉTTIR
„Sennilega er þarna um að ræða veikt fóik sem gerir svona nokkuð, eða einhvern sem er illa við ketti. Þetta er óhugguiegt mál," sagði Sigríður um
kattadrápin að undanförnu.
Tugir katta verið
drepnir imdanfarið
Um tuttugu kettir hurfu
frá sömu götu í Mosfells-
bæ, - og uúna hverfa kettir
úr Sundahverfi svo tugum
skiptir.
Tugir katta hafa horfið sporlaust á höf-
uðborgarsvæðinu undanfarnar vikur
og mánuði. Telja má víst að margir
þeirra hafi verið drepnir. Tveir kettir
fundust drepnir í Sundahverfinu í
Reykjavík um síðustu helgi og hafði
verið troðið ofan í öskutunnur. Áður
hefur borið á dularfullu kattahvarfi í
hverfinu. Ekkert hefur verið upplýst
varðandi kattadrápið að sögn Geiijóns
Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykja-
vík, í gær, en málið er lögreglumál og
verður rannsakað.
Fjórir frá sömu fjölskyldu horfnir
Kettirnir sem fundust dauðir um helg-
ina eru frá sömu fjölskyldu í Vogunum.
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þaðan
hverfa kettir. Tveir hurfu í fyrra og
komu aldrei fram. I næstu húsum hef-
ur sama gerst. Kettir hverfa í sífellu,
nærri 30 á stuttum tíma. Og enginn
verður vitni að kattamorðum. Á heim-
ilunum ríkir mikill ótti vegna þessara
voðaverka og harmur ríkir hjá börnun-
um og reyndar hinum fullorðnu líka.
Kattadráp eru tilkynnt Dýraspítalan-
um en síðan eru dýrin krufin á til-
raunastöðinni að Keídum. Ekki feng-
ust upplýsingar þar í gær um hvernig
dýrin voru drepin.
Katrín Harðardóttir dýralæknir sagði
í gær að kattadráp og misþyrming á
köttum kæmi alltaf fyrir annað slagið.
„Hingað komu með stuttu millibili
tveir kettir í vetur sem virtust hafa ver-
ið skornir á háls. Okkur tókst að bjarga
báðum, tókst að sauma þá aftur,“ sagði
Katrín. Köttunum hafði verið mis-
þyrmt með viku millibili í miðborginni.
Katrín sagði að furðulegt mætti telja
að menn gætu drepið ketti eða mis-
þyrmt þeim án þess að sæi á fólkinu.
Kettir verðust grimmilega.
Óhuggulegur kattahani
Frá heimilum í götunni Hamratanga í
Mosfellsbæ hurfu í lok síðasta árs yfir
20 kettir. Frá sama heimilinu fóru þrír
kettir að heita má sama daginn að sögn
Sigríðar Heiðberg hjá Kattholti.
„Mér sýnist að núna hafi horfið ótrú-
lega margir kettir frá heimilum í Sund-
unum í Reykjavík, Skipasundi, Efsta-
sundi, Kleppsvegi og Langholtsvegi.
Þetta eru að mér sýnist nærri þrjátíu
kettir. Eflaust er lögreglan að skoða
málið,“ sagði Sigríður Heiðberg.
„Sennilega er þarna um að ræða veikt
fólk sem gerir svona nokkuð, eða ein-
hvem sem er illa við ketti. Þetta er
óhuggulegt mál,“ sagði Sigríður.
„Svona nokkuð gerist auðvitað ekki
öðruvísi en að einhver utanaðkomandi
láti kettina hverfa. Hjá fólki sem stend-
ur í svona nokkru, er áreiðanlega ekki
allt í góðu lagi, jafnvei þótt kettir geti
valdið einhverju ónæði í umhverfi, þá
eru takmörk fyrir öllu,“ sagði Helga
Finnsdóttir dýralæknir í gær, en hún
rekur stofu í hverfinu þar sem ósköpin
hafa átt sér stað undanfarið. -JBP
Skagfirskir pottverjar eru famir
að bollaleggja um eftirmann Stef-
áns Guðmundssonar eftir að
fréttist að hann væri á útleið úr
landsmálapólitíkinni og hyggðist
leggja sveitarstjómarmál fyrir
sig. Hefð er fyrir þvl að í Norður- Árni Gunnars-
landskjördæmi vestra eigi Fram- son' a„dstoda.r~
J ° maður heil-
sóknarflokkurinn tvo þingmenn; brigðisráðherra.
einn Húnvetning og amian Skag-
firðing. Búist er við að Húnvetningurinn frá
Höllustöðum, Páll Pétursson, muni sitja áfram
svo nú vantar Skagfirðinga. Tvö nöfn þing-
mannsefna heyrðust nefnd í gær, nöfn Herdísar
Sæmundsdóttur á Sauðárkróki og Áma Gunn-
arsson frá Flatatungu á Kjálka, aðstoðarmanns
Páls á Höllustöðum. Reyndar hefur Ámi oft
áður verið nefndur í þessu samhengi og næsta
víst að hann er ekki fráleitt þingmannsefni að
margra mati.
Ekki fer sögum af heimboði Helga Hjörvar til
Áma Sigfússonar um að hittast og ræða kappræð-
umar. Þeir hljóta að ná saman fyrir kosningar.
Karl Th. Birgis-
son
Karl Th. Birgisson er hættur sem
ritstjóri Mannhfs, sem seint ætl-
ar að verða friður um. Við skýrð-
um frá þvl um daginn að Hall-
dóri Blöndal hefði ekki verið
skemmt útaf umfjöllun um
meinta koníaksdrykkju hans
áður en hann ók í gegnum Hval-
fjaröargöngin. Ekki stóð á þvi að
ritstjóramir vildu bæta fyrir, þvl aðdróttunin
var ah svakalegri en efni stóðu til. Þetta mál fór
lúns vegar ekki gegnum þá, heldur aðalritstjóra
Fróða sem var í útlöndum og fékk þar símtal frá
ekki minni mönnum en nefndum Halldóri, og...
merkilegt nokk, Sfyrmi Gunnarssyni ritstjóra
Moggans. Þar í blaði birtist svo yfirlýsing og
Karli Th. þótti yfir sig valtað og kvaddi.
Ákvað að verða við ósk
fjölniargra Skagfirðmga
Stefán Guð-
mundsson
alþingismaður.
Eftir tuttugu áraþing-
mennsku hefurStefán Guð-
mundsson áhveðið að láta af
því starfi á næsta ári en gefa
kost á sér í sveitarstjómar-
málin í Skagafirði í vor.
Hann segir ótímahært að
ræða það hvorthann verði
bæjarstjóraefni B-listans í
Skagafirði í vor.
- Hvers vegna tókstu þd dkvörðun að
láta af þingmennsku að ári?
„Ég ákvað að verða við þeirri ósk fjöl-
margra heima í Skagafirði að taka 3. sætið á
lista Framsóknarflokksins við sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor. Þá um leið tók ég þá
ákvörðun að gefa ekki kost á mér til þing-
mennsku áfram eftir næstu kosningar.
- Ertu bæjarstjóraefni flokksins ef þið
myndið meirihluta?
„Eg var spurður þessarar sömu spurning-
ar í morgun og svaraði því þá og svara enn
að það mál hefur ekkert verið rætt hjá okk-
ur og er ekki á dagskrá að ræða það á þess-
ari stundu. Fyrst þarf að telja upp úr köss-
unum áður en menn fara að ræða um bæj-
arstjóramál."
- Þið háðuð harða keppni um 1. sætið á
lista Framsóknarflokksins á Norðurlandi
vestra, þú og Páll Pétursson, við síðustu
kosningar. Þú beiðst lægri hlut. Spilar
það eitthvað inn í þá ákvörðun þína að
hætta?
„Nei, alls ekki, ekki á nokkurn hátt. Eg er
ekki þeirrar gerðar að geta ekki tekið ósigri
eins og maður.“
- Veistu hvaða starf þú tekur þér fyrir
hendur þegar þú hættir þingmennsku?
„Þetta er nú svo nýtilkomið að ég hef ekki
verið að velta neinu slíku fyrir mér. Eg hafði
nokkra daga til að svara því hvort ég vildi
taka sæti á Iistanum í vor og notaði þá til að
gera upp hug minn um það eit,t en um
meira hefur ekki verið hugsað."
- Hvenær komstu fyrst inn á þing?
„Eg kom fyrst inn sem varamaður 1978
en var svo kjörinn þingmaður 1979 og hef
því setið slétt 20 ár á Alþingi þegar ég hætti
á næsta ári. Mér hefur líkað þingmanns-
starfið afar vel og það er vissulega eftirsjá að
því að láta af því starfi. Mér finnst líka ég
geta litið sáttur um öxl þegar upp verður
staðið. Mér finnst ég hafa orðið víða að liði
og komið að mörgum góðum málum. Auð-
vitað er það alltaf svo að eitthvað er eftir,
annað væri óeðlilegt."
- Hvaða mál sem þú hefur leitt í gegn-
um þingið ertu ánægðastur með?
„Þessari spurningu er auðvitað ekki auð-
velt að svara því maður hefur komið að fjöl-
mörgum málum. Eg var formaður sjávarút-
vegsnefndar þegar Halldór Ásgrímsson var
sjávarútvegsráðherra og lögin um stjórn
fiskveiða (kvótalögin) voru samþykkt á Al-
þingi. Ég hef líka komið ýmsum málum í
gegnum Alþingi sem voru til hagsbóta bæði
fyrir mitt kjördæmi og á landsvísu og er
ánægður með þau. Ég hef verið formaður
iðnaðarnefndar þetta kjörtímabil. Það hefur
mikið verið um að vera á því sviði og ég hef
haft gaman af þeim málum. Sjálfur er ég
menntaður iðnaðarmaður, húsasmíðameist-
ari, og stofnaði sem ungur maður Trésmiðj-
una Borg á Sauðárkróki, þannig að ég hef
vissulega haft gaman af að starfa í iðnaðar-
nefnd."
- Áttu þetta fyrirtæki enn?
„Hann er nú orðinn lítill hluturinn minn
í fyrirtækinu. Eftir að við stofnuðum tré-
smiðjuna, þrír saman, var ég framkvæmda-
stjóri í 10 ár. Síðan tók ég við sem fyrsti
framkvæmdastjóri Utgerðarfélags Skagfirð-
inga og sinntí því þar til ég var kjörinn á
þing 1979. Jafnframt framkvæmdastjóra-
starfinu var ég bæjarfulltrúi á Sauðárkróki
frá 1966 og er því ekki ókunnugur þeim
málum.“ -S.DÓR