Dagur - 02.04.1998, Page 4

Dagur - 02.04.1998, Page 4
4 -FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 Dagur FRÉTTIR Dagbjört leiðir D-listaim Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri, skipar 1. sæti D-listans á Húsavík. I 2. sæti er Mar- grét María Sigurðardóttir lögfræðingur. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem konur skipa 2 efstu sætin á framboðslista á Húsavík. Sigurjón Benediktsson, bæjarfulltrúi, skipar 3. sætið og kemur nokkuð á óvart, því fyrirfram var reiknað með að Sigurjón ieiddi listann. „Við getum sagt að þetta sé baráttu- sætið og við ætlum okkur stóra hluti í komandi kosn- þorvarðardóttir. ingum og teljum okkur hafa unnið fyrir því með ---- verkum okkar,“ sagði Sigurjón við Víkurblaðið. I 4. sæti er Gunnlaugur Hreinsson, framkvæmdastjóri, og vekur það nokkra athygli þvf hann gaf kost á sér í skoðanakönnun Húsavík- urlistans fyrir skömmu. Rannveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, er í 5. sæti, Sigurgeir Höskuldsson, matvælafræðingur, í 6. og Aðalgeir Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, í 7. sæti. Breski sendiherraim gaf bækur Sendiherra Breta á Islandi, James McCulloch, kom fær- andi hendi og afhenti bókagjaf- ir í Borgarhólsskóla og Fram- haldsskólanum á Húsavík í fyrri viku. Hann sagði tilgang ferðarinnar að styrkja vináttu þjóðanna og stuðla að aukinni þekkingu íslenskra nemenda á F.v. Guðmundur Birkir, James McCul/och, Bretlandi og bresku þjóðlífi. Margaret og Andrew McCulloch, Janice Guðmundur Birkir Þorkelsson Dennis og André Fournier kennarar. afhenti gestum góðar gjafir, glæsilega hvali sem nemendur í verknámi höfðu unnið, og lýsti sendiherrann mikilli ánægju með gjafirnar og lofaði listfengi nemenda. INNLENT Laxveiöi minnkar Nýtt veiðitímabil hófst í gær og byijar að venju í sjóbirtingsám. Við úrvinnslu veiðiskýrslna fyrir lax- og silungsveiði 1997 kemur fram að í stangveiði voru skráðir 28.640 lax- ar. 1.558 var sleppt þannig að landaður afli var 27.082 laxar. Þetta er 2,7% minni afli en árið á undan og stangveiðin er 19,3% minni en meðaltalsveiði áranna 1974-1996. Flestir laxar veiddust á Vesturlandi eða 13.411. Af ein- stökum ám voru Rangárnar aflahæstar (2.960) Norðurá í öðru sæti (1.899) og þriðja sætinu deildu Þverá og Kjarrá (1.633 laxar). Skráðir voru í veiðiskýrslur 51.970 silungar í fyrra, 22.490 urriðar og 29.480 bleikjur. Af einstökum ám veiddust flestir urriðar í Laxá í Þingeyjarsýslu ofan Brúa, 4005, og flestar bleikjur í Eyjafjarðará. Skráð silungsveiði var svipuð og árið á undan en eitthvað vantar á að öll silungsveiði sé skráð. Mjólkurbú Flóamanna í góðum málum Hagnaður af rekstri Mjólkurbús Flóamanna varð 146 millj. kr. á sl. ári, á móti 115 millj. kr. hagnaði árið 1996. Hagnaður ársins fyrir fjármagnsliði var 111 millj. kr. Heildartekjur MBF námu 2.352 millj. kr og jukust um 7,2% milli ára. Innlögð mjólk var 38,3 millj. lítra og jókst um 1,8 millj. lítra frá árinu áður. Aukningin skýrist að mestu leyti með því að 1. janúar 1997 stækkaði samlagssvæðið allt austur að Þvottá í Alftafirði í Suður-Múlasýslu. Innleggjendur MBF um sl. áramót voru 444 talsins og hafði þá fækkað um 25 á árinu. í frétt frá MBF segir að afkoma sl. árs sé betri en gert hafi verið ráð fyrir - og þrátt fyrir birgðasöfnun eftir verkfall hjá MS í ársbyijun. Hagræð- ingaraðgerðir af ýmsum toga geri það að verkum að hægt sé að greiða framleiðendum 51 millj. kr.' arð. — SBS Gísli Sverrir efstur Gísli Sverrir Arnason, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðarbæjar, hlaut bindandi kosningu í efsta sæti Kríulistans í prófkjöri sem fram fór um sl. helgi. Hann hlaut 150 atkvæðí í efsta sætið, af 189 atkvæðum alls. Kosningu í 2. sæti fékk Eyjólfur Guðmundsson, Sigrún I. Svein- björnsdóttir var kosin í 3. sæti, Þorbjörg Arnórsdóttir í 4. og Kristín Gestsdóttir í 5. Kosning f fimm efstu sætin var bindandi. I 6. sæti lenti Björg Svavarsdóttir, Gísli Siguijón Jónsson f 7. og Þorkell Kol- beins í 8. sætinu. Halldór Árnason, framkvæmdastjóri Borgeyjar á Höfn. Stjórnendur fyrirtæk/sins reyna hvað þeir geta til að styrkja hráefnisöflun fyrirtækisins sem mátti þola mörg boðaföll í fyrra. Aföll hjá Borgey Ríflega 200 milljóna króna tap hjá Borgey á Höfn. Engum sagt upp. Loönufrysting fjórfaldaðist. Millj- arða kvóti. „Það er enginn af okkar fasta starfsfólki sem missir vinnuna sérstaklega út af þessu. Hinsveg- ar eru starfsmenn mismargir eft- ir árstímum og vertíðum,“ segir Halldór Arnason, ffamkvæmda- stjóri Borgeyjar á Höfn í Horna- firði. Um 290 milljóna króna halli varð á reglulegri starfsemi Borgeyjar í fyrra. Sé tekið tillit til sölu eigna og áhrifa dótturfélags nam tapið 209 milljónum króna. Aftur á móti er búist við að 45 milljóna króna hagnaður verði á rekstri fyrirtækisins á þessu ári þótt áætlanir geri ráð fyrir 30 milljóna króna tapí á fyrri helm- ingi ársins. Tapreksturinn má rekja til þess að fyrirtækið varð fyrir áfalli í nær öllum greinum sem það leggur stund á. Síðasta ár byrj- aði með gæftaleysi og illa gekk að afla loðnu til frystingar á Jap- ansmarkað. Þá brást humarver- tíðin alveg í fyrra og sömuleiðis síldveiðar á haustvertíð. A sama tíma var lítið verkað f salt vegna lítils afla frá netabátum. Til að treysta hag fyrirtækisins er m.a. unnið að því að styrkja hráefnis- öflun þess. Þá verða áfram kann- aðir möguleikar á samruna út- gerða við Borgey þótt þau áform hafi ekki gengið upp um sl. ára- mót. Kvóti fyrir 2,5 miHjarða króna Bókfært eigið fé Borgeyjar rýrn- aði úr 567 milljónum króna í árs- byrjun 1997 f 346 milljónir króna f lok ársins. Kvóti fyrir- tækisins er bókfærður á 431 millj. króna en markaðsverð hans er hinsvegar metið á 2,5 milljarð króna. Hjá Borgarey starfa að jafnaði um 200 manns en fastir starfsmenn eru um 100. — GRH Vilja sendiráð í Japan og Kanada Nefnd sem kannaði hvemig efla megi ut- anríkisþj ónustuua lagði íram tiUögur sem kosta niimu 300 miUjónir króua á ári verði þær samþykktar. Nefnd sem falið var að kanna hvernig efla megi utanríkisþjón- ustuna leggur til að skrifstofur utanríkisráðuneytisins hér heima verði styrktar, starfs- mönnum þess verði fjölgað, tæknivæðing aukin, samstarf ráðuneyta eflt, verkefnum for- gangsraðað og viðskiptaþjónust- an þróuð enn frekar. Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra skýrði frá þessu á Alþingi í fyrra- dag. Halldór Ásgrimsson. Einnig er lagt til að opnuð verði tvö ný sendiráð, annað í Kanada og hitt í Japan. Jafn- framt að opnuð verði fastanefnd hjá Oryggis- og samvinnustofn- un Evrópu f Vínarborg, sem einnig yrði sendiráð í Austurríki og nágrannaríkjum þess. Þá er lagt til að kjörræðismönnum verði veittur meiri stuðningur. Kostnaðuriim 300 milljónir Breytingar þessar eru taldar kosta a.m.k. 300 milljónum króna á ári, miðað við að allar tillögurnar komi til fram- kvæmda. Það þýðir um fjórð- ungsaukningu á fjárveitingum til utanrfkisþjónustunnar. Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, sagði í sinni ræðu að hún teldi starf og tillögur nefndarinnar að- eins yfirlit yfir stöðu mála eins og hún er nú. Gerð hafi verið til- raun til að kortleggja hvað þurfi að bæta. Mikið starf sé óunnið í utanríkisþjónustunni og skýrsla nefndarinnar aðeins upphafið. - S.DÓR Afkoma KEA batnar Rekstur Kaupfélags Eyfirðinga og dótturfélaga skilaði 19 millj- óna króna hagnaði á sl. ári sem er um 100 milljóna króna minni hagnaður en árið 1996. Rekstur móðurfélagsins batnaði þó veru- Iega á árinu. Tap dótturfélaga KEAjókst hins vegar úr 18 millj- ónum króna 1996 í 75 milljónir króna á sl. ári. Brúttóvelta KEA nam 10.531 milljónum króna og jókst um 12% milli ára. Rekstrartekjur námu 9.717 milljónum króna en rekstrargjöld 9.465 milljónum króna. Rekstrartap samstæðu fyrir hlutdeild nam 25 milljónum króna en hreinn rekstrarhagnað- ur nam 19 milljónum króna. Rekstrartekjur móðurfélagsins námu 7.316 milljónum króna og lækkuðu um 67 milljónir króna milli ára. Rekstrargjöld námu 7.052 milljónum króna og lækk- uðu um 246 milljónir króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 64 milljónum króna. Arið 1997 var ár mikilla breytinga hjá KEA sem gerir samanburð nokk- uð erfiðan. Móðurfélagið flutti starfsemi sína í sjávarútvegi yfir í dótturfélagið Snæfell og auk þess sameinuðust Gunnarstind- ur, Snæfellingur, Njörður og Út- gerðarfélag Dalvíkinga Snæfelli. - GG i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.