Dagur - 02.04.1998, Side 8

Dagur - 02.04.1998, Side 8
U- FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 Thypr Dayur. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 - 9 FRETTASKYRING Reykjavík faer mest frá ríkinu HEIDUK HELGA DOTTIR SKRIFAR Fjölgun ríldsstarfs- maima hefur öll verið í Reykjavík imdanfar- in ár. Opinber starf- semi á landsbyggðiimi hefur þróast þveröf- ugt við stefnu og sam- þykktir Alþingis. „Þessi góðu áform Alþingis hafa ekki gengið fram - nema síður sé,“ sagði Egill Jónsson, stjórnar- formaður Byggðastofnunar. I stefnumótandi byggðaáætlun fyrir 1994-97, sem Alþingi sam- þykkti samhijóða árið 1994, seg- ir m.a.: „Opinber þjónusta og starfsemi opinberra stofnana verði aukin á landsbyggðinni en dregin saman á höfuðborgar- svæðinu að sama skapi.“ Reynd- in er þveröfug, samkvæmt nýrri skýrslu á vegum Byggðastofnun- ar, þar sem kannað var hvernig til tókst. Frá 1994 til 1996 fjölg- aði stöðugildum hjá ríkisstofn- unum í A-hluta um nær 240 í Reykjavík en fækkaði aftur á móti um nærri þrjá tugi í öllum öðrum kjördæmum samtals. Þannig fækkaði t.d. heilbrigðis- starfsfólki á landsbyggðinni um 110 Qölgaði hins vegar á annan tug í Reykjavík. Aðalfundur Aðalfundur Jökuls hf. verður haldinn í Hótel Norðurljósum, Raufar- höfn, laugardaginn 25. apríl 1998 og hefst kl. 14.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr. samþykkta félagsins. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum í félaginu. Önnur mál löglega upp borin. Ársreikningar fólagsins fyrir árið 1997 ásamt þeim tillögum sem liggja fyrir fundinum verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu fólagsins Aðalbraut 4-6, Raufarhöfn. Raufarhöfn 31. mars 1998 Stjórn Jökuls hf. Um 63% allra ríkisstarfs- mairna í Reykjavík Af næstum 24 þúsund stöðugild- um hjá ríkinu (A, B, C, D, og E hluta) eru um 15 þúsund (63%) í Reykjavík, en aðeins rúmlega 6 þúsund (26%) utan Reykjaness- kjördæmanna. Tekið skal fram að í skýrslunni er grunnskólinn ekki talinn með í fjölda stöðu- gilda, en meðtalinn í kostnaðar- tölum. I Reykjavík eru 142 stöðugildi á hverja 1.000 borgar- búa. Það þýðir að hátt í þriðj- ungur allra starfandi borgarbúa gæti fengið laun sín frá ríkis- stofnunum eða ríkisfyrirtækjum. A Iandsbyggðinni eru stöðugild- in hlutfallslega meira en helm- ingi færri, eða um 66 á hveija 1.000 íbúa, og aðeins 39 á hverja 1.000 íbúa í Reykjanes- kjördæmi. Fjölgun í öllum ráduneytum nema heUbrigðisráðuneyti Uttekt á fjölda og skiptingu stöðugilda á vegum ráðuneyta og ríkisstofnana f A-hluta ríkissjóðs sýnir að stöðugildum fjölgaði mest hjá ráðuneytum félagsmála (79), umhverfis (73) og dóms/kirkjumála (46). Fækkun varð einungis hjá heilbrigðis- ráðuneyti. Skýrslan sýnir sömuleiðis skiptingu rfkisútgjalda í A-hluta og hækkun þeirra 1994-96. Samsvarandi upplýsingar koma fram varðandi stofnanir, sjóði og fyrirtæki sem ríkið á að hálfu eða öllu leyti, sem teljast til B-, C-, D- og E-hluta ríkisins, sam- kvæmt nýjum lögum um íjár- reiður ríkisins. Þetta eru m.a. ríkisbankarnir og aðrar opinber- ar Iánastofnanir og sjóðir, Landsvirkjun og fleiri. Sérstök skoðun er gerð á stuðningi ríkis- ins við húsnæðiskerfið, ýmsar opinberar styrkveitingar og út- lánatöp ríkisbankanna og opin- berra sjóða 1994-96. Leitað var bréflegra upplýsinga frá 160 að- ilum fyrir skýrslugerðina, og bár- ust svör frá þeim öllum. Fjármagnið fylgir fólMnu - suður Egill Jónsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar, telur skýrsl- una einkum staðfesta tvennt: I fyrsta lagi hreki hún það að landsbyggðin dragi til sín óhóf- lega mikið fjármagn, jafnvel síst þau kjördæmi sem eiga í vök að verjast í byggðalegu tilliti. Það Vísbending Lestu bladið og taktuþdtt íleiknum! 550 oooo Þú greiðir ekkert umfram venjulegt simtal Stöðugildi Utgjöld Ibúatala 8,0% 34% 3,7% || 9,2% 9^/o I r ÍE 8’4% 7,6% Reykjanes- ' Vesturland : Vestfirðir 1 Norðurland ' Norðurland ' Austurland > Suðurland kjördæmi vestra eystra Myndin sýnir hvernig stöðugiidi og ríkisútgjöld hjá A-hluta ríkissjóðs dreifast hlutfallslega milli kjördæma og h/utfall landsmanna í hverju kjördæmi. Sjá má að stöðugildi eru lægra hlutfall en íbúarnir í öllum kjördæmum nema Reykjavlk, sem nýturlangsamlega stærstu bitanna af þessum „ríkisins gæðum". ayir gagnstæða komi í ljós í skýrsl- unni, m.a.s. þótt miðað sé við íbúatölu. „Hin meginniðurstað- an er sú, að fjármagnið eltir fólk- ið. Fólksstraumurinn utan af landi kallar eftir viðbrögðum hér í Reykjavík. Það kemur m.a. fram í auknum Ríkisútgjöldum. Eg hef ekki séð það lagt fyrir með eins skjTum hætti í öðru til- viki og þessari skýrslu." Ódýrara aö nýta fjárfestrng- araar á landsbyggðinni? Egill segir skýrsluna þess vegna afar mikilvæga. „Niðurstöður hennar hljóta að beina huganum að því hvort ekki sé ódýrara að skapa aðstæður fyrir fólk til að búa við sínar eigur og við þá fjár- festingu sem lögð hefur verið í landsbyggðina. Það teljum við að hægt sé að gera og bendum á margar leiðir í þeim efnum í nýrri ályktun um stefnumótandi byggðaáætlun, sem við höfum gengið frá og afhent forsætisráð- herra og væntum að verði Iögð fram á Alþingi innan fárra daga. Sú ályktun hefur metnaðarfull áform fyrir hönd okkar verkefnis og dreifðra byggða landsins. Hún er meðal annars byggð á því fyrirheiti, að fólki fari nú á nýjan leik að fjölga úti á landsbyggð- inni.“ Ætlunin er að skýrslan verði framvegis endurskoðuð á tveggja ára fresti til að fylgjast með þróuninni. Viðbótin að mestu tU Reykjavíkur Ríkisútgjöldin skiptast eftir svip- uðu munstri og stöðugildin. Af alls 127 milljarða ríkisútgjöldum í A-hluta 1996 fór drjúgur helm- ingurinn til Reykjavíkur og enn hærra hlutfall af nærri 40 millj- arða útgjöldum stofnana og fyr- irtækja í C-, D- og E-hluta eða rúmlega 60%. Milli 1994 og 1996 hækkuðu ríkisútgjöld í A- hluta (reiknuð á föstu verðlagi) um rúmlega 10 milljarða króna. Af þeim fóru rúmlega 6 milljarð- ar til Reykjavíkur, þar sem 39% landsmanna eru búsett, en ein- ungis rúmir 2 milljarðar til allra landsbyggðarkjördæmanna, utan Reykjaness, þar sem 35% lands- manna búa, þannig að munur- inn var næstum þrefaldur. I raun var hann þó ennþá meiri því að sögn Egils stafaði stór hluti þessa útgjaldaauka til lands- byggðarinnar af því að greidd var upp 1,4 milljarða skuld við eitt fyrirtæki á landsbyggðinni. Rikisútgjöldin 845.000 kr. á mann í höfuðstaðnum Heildarútgjöld (167 milljarðar) ríkissjóðs og stofnana og fyrir- tækja í eigu ríkisins voru árið 1996 um 845.000 kr. á hvern íbúa í Reykjavík, rúmlega 600.000 kr. á íbúa í landsbyggð- arkjördæmunum og aðeins 300.000 kr. á hvern fbúa Reykjaneskjördæmi. Mismunur Höfundur skýrslunnar, Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur, bendir Iíka á athyglisverðan mis- mun í þessu sambandi. „Þau út- gjöld ríkisins sem skapa eftir- spurn, þ.e.a.s. þau útgjöld sem fara til greiðslu launa, þau Ienda að stórum hluta í Reykjavík. Ut- gjöldin sem ekki skapa eftir- spurn, til dæmis jarðgangagerð, þau lenda úti á landi - væntan- lega til að bæta búsetuskilyrðin. En á sama tíma fækkar þó fólki sem starfar í undirstöðugreinun- um úti á landi.“ Af hverju eru öU ný fyrir- tæki vestan EHiðaáa? Dreifing starfa á höfuðborgar- svæðinu er annað sem Haraldi finnst umhugsunarvert. „Maður spyr; af hverju er alltaf verið að staðsetja allar opinberar stofn- anir í Reykjavík. Af hverju hefur nýjum stofnunum (Fjárfesting- arbankanum t.d.) ekki verið komið fyrir í Kópavogi, Hafnar- firði eða Mosfellsbæ - og nýta þannig fjárfestingu á þessum svæðum betur en gert er - í stað þess að velja öllum nýjum stofn- unum stað í gömlu borgarhverf- unum í Reykjavík og beina þar með allri umferðinni niður í miðbæinn í Reykjavík, sem kall- ar á fleiri og dýrari umferðar- mannvirki.“ Þeir Egill og Haraldur töldu líka afar athyglisvert hvað Góð áform Alþingis i byggðamálum hafa ekki gengið eftir, nema siður sé, segir Egill Jónsson, þingmaður og for- maður Byggðastofnunar. Reykjaneskjördæmið er afskipt við útdeilingu ríkisins gæða, jafnt stöðugilda (innan við 12%) og ríkisútgjalda (tæp 13%), þeg- ar litið er til þess að rúmur fjórð- ungur landsmanna býr í kjör- dæminu. ----- - ... . ... Um 45% vaxtabótanna og 83% húsaleigubótanna Skýrsluhöfundur kannaði sér- staklega stuðning ríkissjóðs við húsnæðiskerfið, bæði eignar- og leiguíbúðir. Og eins og flest ann- að fer hann að hlutfallslega stærstum - og vaxandi - hluta til Reykvíkinga. Þeir fá 45% allra vaxtabóta, yfir 40% af vaxtanið- urgreiðslum í félagslega íbúða- kerfinu, um 83% allra húsaleigu- bóta sem greiddar eru af ríkinu. Þessi stuðningur nam um 4,7 milljörðum árið 1996. Þar af fengu Reykvíkingar rúmlega 2,1 milljarð (20.000 kr. á íbúa), Reyknesingar 1,3 milljarða (18.600 kr. á íbúa) en íbúar Iandsbyggðarinnar liðlega 1,2 milljarða (aðeins 13.200 kr. á íbúa), þ.e. þriðjungi minna en höfuðstaðarbúar. Öll lands- byggðarkjördæmin fengu mun Iægra hlutfall þessara „húsnæð- isstyrkja" heldur en nemur hlut- fallslegum íbúaQöIda þeirra. Vísindin cru Hka „borgarböm“ Af 355 milljóna styrkveitingum úr Vísinda- og tæknisjóði 1996 fóru 80% til aðila með póstfang í Reykjavík en innan við 10% út á land. Um 97 milljóna st)Tkir til jöfnunar á námskostnaði dreifð- ust aftur á móti allir til annarra kjördæma en Reykjavíkur. FRÉTTIR AKUREYRI Rauði krossinn hefur gefið Fjórð- ungssjúkrahúsinu fullkomna dúkku til að nota við kennslu og þjálfun I endurlífgun. - mynd: bös Sjukrahúsið fékk dúkku Rauði krossinn á Akureyri færði Fjórðungssjúkrahúsinu nýlega að gjöf dúkku til kennslu og þjálfunar í end- urlífgun. Dúkkan er af mjög full- kominni gerð og hefur komið að góð- um notum við þjálfun starfsfólks FSA og sjúkraflutningamanna, m.a. í notkun á hálfsjálfvirku rafstuðtæki sem komið er í sjúkrabíla Rauða krossins. Dúkkan er í umsjá hjarta- læknis á lyflækningadeild sjúkrahúss- ins. Rauði krossinn hefur einnig gefið barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri ferðafósturkassa, en það er gjörgæslumódel fyrir nýbura með öndunarvél og ýmsum aukabúnaði. Ópólitísk stefnuskrá Oddur Halldórsson, sem stefnir að sérframboði á Ak- ureyri undir nafni L-listans, segir í drögum að stefnu- skrá að rödd hins almenna borgara verði að heyrast inn í bæjarstjórn Akureyrar. Hann leggur áherslu á að framboðið sé ópólitískt, þar sem að leiðarljósi verði haft að gera góðan bæ betri. I drögunum segir m.a. að áhersla verði lögð á upp- byggingu skólahúsnæðis. Strax verði ráðist í byggingu nýrrar álmu við Síðuskóla og Lundarskóla og þær teknar í notkun haustið 1999. Þá sé þörf á að einfalda stjórnkerfið. L-listinn styður allar tilraunir til samein- ingar sveitarfélaga og vill að Akureyri taki frumkvæði í viðræðum. — BÞ Oddur Halldórs- son, bæjarfulltrúi Akureyri. Athugasemd Að gefnu tilefni sér undirritaður, lyfsali í Akureyrar apóteki, ástæðu til að leiðrétta verðsamanburð sem fram kom í kynningargrein sem birt- ist hér í blaðinu í tilefni opnunar Lyfjabúðar Hagkaups. Þau viðskipti sem um er rætt áttu sér stað í Akureyrar apóteki og hljóðuðu sam- kvæmt greininni upp á 6.284 kr., voru ekki aðeins lyf heldur nokkrar vörutegundir til viðbótar og var því umræddur verðsamanburður óraunhæfur. Það er fullvíst að Lyíjabúð Hagkaups mun bjóða upp á lágt lyljaverð en við í Akureyrar apóteki munum gera okkar ítrasta til að bjóða upp á samkeppnisfært verð og þjónustu á öllum sviðum. F. h. Akureyrar apóteks, Böðvar Jónsson. Aths. blaðamanns: Aréttað skal að blaðið hafði eftir viðmælanda sín- um upplýsingar um verðsamanburðinn. Þá kom nafn Akureyrar apó- teks ekki fyrir í fréttinni. Bjöm Þorldksson. REYKJAVIK Milljónir íyrix ráðgjöf Á kjörtímabilinu hefur borgarsjóður greitt rúmar 183 milljónir króna vegna aðkeyptrar ráðgjafar við gerð úttekta og greinargerða vegna stjórnsýslu borgarinnar. Þetta kemur fram í svari borgarritara sem lagt hefur verið fram í borgarráði við fyrirspurn sjálfstæðismanna. Að frá- dregnum endurgreiddum virðisaukaskatti af brúttókostnaði nemur þessi kostnaður borgarsjóðs um 150-156 milljónum króna. Lánayfirtaha hjá Félagsíbúðum Félagsíbúðir hafa yfirtekið eldri Ián borgarsjóðs fyrir 861 millj. króna. Ný lán vegna íbúðarkaupa sem fóru í gegnum borgarsjóð á sl. ári og Félagsíbúðir yfirtóku nema samtals um 86 milljónum króna. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn sjálfstæðismanna og bókun frá sl. mánuði hversu mikið skuldir borgarsjóðs hefðu lækkað vegna yfirtöku Félagsíbúða á skuldum sem áður tilheyrðu borgarsjóði. Undirkjörstjóm á KjáLamesi Borgarráð hefur samþykkt að yf- irkjörstjórn í Reykjavík fari með framkvæmd sveitarstjórnarkosn- inganna í heild, en kjörstjórn í Kjalarneshreppi fari með fram- kvæmd kosningarinnar þar og starfi sem undirkjörstjórn. Þá þykir rétt að kjörstjómin í Kjal- arneshreppi sjái um framkvæmd kosninga í samstarfsráð hrepps- ins ásamt sveitarstjórn. I sam- þykkt um sameiningu borgar- innar og Kjalarneshrepps eiga íbúar hreppsins að kjósa þrjá fulltrúa og annað eins til vara til setu í samstárfsráði Kjalarness, en borgarstjórn skipar tvo -fulltrúa og aðra tvo til vara. Reykvikingar og Kjalnesingar samþykktu að sameinast i fyrra og i vor kjósa þeir sér sameiginlega borgarstjórn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.