Dagur - 02.04.1998, Síða 12
12-FIMMTUDAGUR 2.APRÍL 1998
Xfc^wr
ÍÞRÓTTIR
Slagurinn hefst í kvöld
Undanúrslit íslandsmótsins í karlaflokki hefjast I kvöld þegar KA-menn taka á móti Val. Leikir þessara Hða hafa verið tvísýnir á
undanförnum árum og ekki er ástæða til annars en að ætla að svo verði einnig í kvö/d. Myndin er tekin úr lokaumferð deildar-
keppninnar, en þá ski/du liðin jöfn að HHðarenda. mynd: Pjetur sig.
KA stendur best að
vígi í baráttiiiiiii iini
íslandsmeistaratitil-
inn. Meistarahefðin er
með Valsmönnum.
Fram hefiir verið í
stöðugri framför síð-
an á síðasta ári. Lee
þarf að verja tuttugu
skot ef FH ætlar
áfram.
Undanúrslit Islandsmótsins í
handbolta hefjast í kvöld. Meist-
arar KA og bikarmeistarar Vals
hefja slaginn á Akureyri. Annað
kvöld mæta síðan meintir bikar-
meistarar Fram Hafnarfjarðar-
stórveldinu FH í Safamýrinni.
KA og Valur unnu andstæðinga
sína í átta liða úrslitunum 2-0 en
Fram og FH þurftu þrjá hörku-
leiki til að útkljá viðureignir sín-
ar, Fram við Eyjamenn og FH við
nágranna sína í Haukum. Odda-
leikur Hafnarfjarðarliðanna í
Kaplakrika er tvimælalaust ein-
hver mest spennandi leikur sem
fram hefur farið á þessari leiktíð
og jafnframt sá erfiðasti fyrir
Ieikmennina. FH sigraði með
tveggja marka mun, eftir fram-
lengingu, fyrir framan 2500
áhorfendur, troðfullan Krikann.
Leikur liðanna var Handbolta-
leikur með stóru Hái og vonandi
fyrirboði þess sem koma skal í úr-
slitunum.
Dagur fékk Einar Þorvarðar-
son, þjálfara Fylkis og fyrrum
landsliðsmarkvörð, til að greina
liðin í undanúrslitunum.
Aldurinn vininir með Fram
„Það er engin spurning að Fram
hefur verið að leika hvað jafnast í
vetur,“ sagði Einar. „Þeir voru
með bikarmeistaratitilinn í hönd-
unum en klúðruðu honum. Þeir
voru Iíka með deildarmeistaratit-
ilinn í höndunum og klikkuðu
þar líka. Framliðið er aldurslega
mjög gott. Liðið hefur verið að
þroskast í þrjú ár og bætt við sig
allan tímann. Ekkert bakslag hef-
ur komið í liðið og að þessu leyti
eru Framarar betur staddir en
FH. Eg tel að ef viðureignir
þeirra fari í þrjá leiki standi Fram
betur að vígi þvf leikmannahópur
liðsins er yngri en FH. Þeir ættu
því að þola mikið álag betur.
Einnig hafa þeir heimavöllinn
með sér í oddaleiknum. Fram
hefur tapað mjög fáum leikjum í
Safamýrinni sem kemur til með
að hjálpa þeim mjög mikið.
Reynsluleysi gæti þó orðið
Fram að falli. Þeir hafa brugðist
þegar mest á reynir og báðir titl-
arnir, sem þeir höfðu komið
annarri höndinni á, runnu þeim
úr greipum. Þeim gengur illa að
ná sínu besta fram þegar mest
ríður á.“
Markvarsla og vöm sterkasta
vopnFH
„FH er lið sem í raun hefur náð
Iengra en búist var við í vetur.
Juventus lagði Monaco 4:1 í
fyrri leik liðanna í undanúrslit-
um í Evrópukeppni meistaraliða
í knattspyrnu, sem háður var í
Torino í gærkvöld. Allessandro
Del Piero var í aðalhlutverki hjá
Juventus en hann skoraði þrjú
mörk í leiknum og Zidane Zida-
ne eitt. Mark Monaco skoraði
Da Costa.
Leik Real Madrid og Borussia
Dortmund var ekki lokið þegar
blaðið fór í prentun en spánska
liðið leiddi 1:0 í leikhléi með
marki Morientes.
Kristjáni hefur tekist mjög vel
upp með liðið. Hann hefur feng-
ið gömlu jaxlana inn aftur í mun
betra formi en þeir voru í á síð-
asta ári. Guðjón Arnason er
prímus mótor í þessu Iiði og það
Einar Þorvarðarson hallast helst að því
að annað hvort Valur eða KA hreppi
íslandsmeistaratitilinn.
stendur dálítið og fellur með því
hvernig hann stjórnar sóknarleik
þeirra. FH liðið byggist þó fyrst
og fremst upp á mjög sterkum
markmanni og góðri vörn, sem
Kristján hefur bundið saman.
Þessir þættir leiða til þess að lið-
Víkmgur lagði
Haukana
Víkingur lagði Hauka 22:19 í
fyrsta leik liðanna í undanúrslit-
um í úrslitakeppni kvenna, en
leikurinn fór fram í íþróttahús-
inu við Strandgötu. Haukar
Ieiddu í leikhléi 9:8, en Víkings-
stúlkur náðu að snúa Ieiknum
sér í hag snemma í síðari hálf-
leiknum og uppskáru sigur. Vík-
ingur getur tryggt sér sæti í úr-
slitaleiknum með sigri í Víkinni
annað kvöld.
Valur og Stjarnan leika annan
leik sinn í úrslitakeppninni í
kvöld Id. 20, en Ieikið er að
Hlíðarenda.
ið er að skora átta til tólf mörk úr
hraðaupphlaupum sem er þeirra
aðalvopn í dag. Til þess að FH
vinni Fram í einvíginu þarf Lee
að verja 20 skot og þeir þurfa á
mörgum hraðaupphlaupum að
halda.“
Hefðtn með Valsmöiimim
„Valur er það lið sem hefur hefð-
ina með sér. Þeir hafa mesta
skólann í úrslitakeppnum og það
kemur þeim til góða. Einkenni
Vals er að liðið vex með verkefn-
unum sínum. Liðið spilar best
þegar mest á reynir og ungu
mennirnir þeirra virðast þola
pressuna betur en leikmenn ann-
arra liða. Ungir leikmenn hjá Val
þroskast mjög snemma. Þegar
þeir koma inn í meistaraflokkinn
leika þeir eins og fullorðnir leik-
menn með mikla reynslu.
Uppbygging yngri flokka hjá
Val hefur skilað félaginu mörgum
titlum og hefðin hefur komið því
á þann stall sem það er á. Valur
kann að leika úrslitaleiki."
KA með besta heimavöUinn
„KA er núverandi Islandsmeistari
og nýkrýndur deildarmeistari.
Oddaleikjarétturinn er þvf með
þeim alla leið sem skiptir ekki
litlu máli þar sem heimavöllur
þeirra er sá erfiðasti á Iandinu.
Þeir eru því með pálmann í
höndunum að þessu leyti. Þeir
eru einnig það lið sem mest hef-
ur komið á óvart í vetur og hafa
verið að leika mjög vel seinni
hlutann af mótinu. KA-liðið er
líkt Val að því leyti að ungu strák-
arnir hjá félaginu hafa staðið sig
mjög vel undanfarin ár og unnið
titla á hverju ári. Þá hafa KA
menn ágæta hefð með sér í úr-
slitaleikjum undanfarið. Liðið
hefur Ieikið til úrslita bæði í Is-
Iands- og bikarmótum undanfar-
in ár, stundum við Val, og því
þekkja þeir vel þessa baráttu.
Metnaðurinn er mikill hjá KA og
leikmenn liðsins sætta sig ekki
við neitt annað en að vinna.
KA og Valur eru því um margt
svipuð Iið. Það sem hugsanlega
kemur til með að ráða úrslitum í
viðureign þeirra er heimavöllur-
inn. Hann vinnur með KA.
Það var erfitt fyrir KA að missa
Vladimir Goldin en nú er hann
kominn aftur sem er mikill plús
fyrir liðið. Hann hefur verið að
leika mjög vel, eins og á móti
Stjörnunni. Þá er markmaðurinn
ungi, Hafþór Einarsson, mjög
efnilegur. Hann átti frábæran
leik á móti Stjörnunni. Allt hjal
um markmannsvandræði á Is-
landi hefur slokknað með til-
komu þessa stráks. KA verður því
Valsmönnum ekki auðveld bráð.“
íslandsmeistarar
Þegar úttekt Einars á liðunum er
skoðuð nánar er ekki fráleitt að
draga þá ályktun að sigurvegari í
viðureign íslandsmeistara KA og
bikarmeistara Vals eigi mesta
möguleika á titlinum í þetta sinn.
Þessi lið hafa verið bestu lið
Iandsins undanfarin ár. Bæði Iiðin
hafa misst fjölda góðra leikmanna
en skörð þeirra hafa verið fyllt
upp, mest með heimalningum á
Akureyri og að Hlíðarenda. Metn-
aðarfullt starf félaganna hefur
skilað sér vel hingað til og fátt
sem bendir til annars en í Iokin
skili það enn einum stórum titli í
glerskáp, annað hvort í KA-heim-
ilinu eða að Hlfðarenda. - GÞÖ
SUMARSTÖRF
Starfsfólk óskast til almennra hótelstarfa á Hótel Eddu
Akureyri frá miðjum júní til ágúst loka.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Flugleiðahótelanna
í Reykjavík, sími 5050900.
Stjórnarkjör
Verkalýðsfélagið Eining auglýsir hér með eftir listum eða
tillögum um menn í stjórnarsæti varðandi kjör stjórnar
og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 1998/1999 að viðhafðri
allsherjaratkvæðagreiðslu.
Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni,
varaformanni, ritara og gjaldkera ásamt 50 manns í trún-
aðarráð, tveimur skoðunarmönnum og einum til vara
eða tillögur um menn f eitthvert, einhver eða öll stjórnar-
sætin, sem kjósa skal til. Hverjum framboðslista eða till-
lögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félags-
manna.
Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins
Skipagötu 14 eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi
fímmtudaginn 16. apríl 1998.
Akureyri 1. apríl 1998.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
Stórsigur
Juventus