Dagur - 05.05.1998, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDA'GUS 5. MAÍ 19'9 8 - 13
ÍÞRÓTTIR
Forsetafrúin, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, sæmir Ingiberg Sigurðsson Grettisbeltinu.
Ingibergur glímukdngur
Ingibergur Sigurðsson, glímu-
kappi úr Víkverja, varði glímu-
kóngstitil sinn í 88. Islands-
glímunni, sem fram fór í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans um
helgina. Ingibergur hlaut sam-
tals 7,5 vinninga og tapaði ekki
einni einustu glímu. Þetta er
þriðja árið í röð sem Ingibergur
vinnur titlinn glímukóngur Is-
lands, en að hans sögn mun
hann nú taka sér frí frá
glímunni. Hann mun nú ein-
göngu snúa sér að keppni í júdó,
en það hefur hann einnig stund-
að með góðum árangri og vill
gefa því meiri tíma.
Alls tóku tíu glímumenn þátt í
Islandsglímunni og varð Olafur
Sigurðsson, HSK, í öðru sæti
með 6,5 vinninga og Jón B. Vals-
son, KR, í því þriðja með 5,5
vinninga. Athygli vakti að Krist-
ján Ingvarsson, HSÞ, setti met,
með því að taka í 19. sinn þátt í
Islandsglímunni, en sonur hans,
Olafur H. Kristjánsson, var
einnig meðal keppenda.
Stabæk í gdðum málunt
íslendingar voru ekki meðal
markaskorara í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu um helg-
ina. Fjórða og fimmta umferðin
var leikin á fimmtudag og
sunnudag. Eftir fimm umferðir
er Rosenborg í efsta sætinu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson lék
allan leikinn með Strömgodset á
sunnudaginn þegar liðið gerði
jafntefli við Haugasund og fékk
4 í einkunn. Valur Fannar Gísla-
son var varamaður og kom ekki
við sögu í Ieiknum.
Bjarki Gunnlaugsson lék síð-
ustu níu mínúturnar með Molde
er liðið vann Bodö/GIimt, 0-2.
Auðunn Helgason heldur
áfram að gera það gott með Vik-
ing frá Stavanger. Hann átti góð-
an leik, fékk einkunina 4, gegn
Sogndal þegar Viking vann „litla
liðið" 1 -2 í Sogndal á sunnudag-
inn. Auðunn hefur verið í byrj-
unarliði Vikinga í öllum leikjum
liðsins og verið meðal bestu
manna Iiðsins sem er í toppbar-
áttu deildarinnar. Ríkharður
Daðason, sem skorað hefur tvö
mörk fyrir Viking, hefur tapað
sæti sfnu í byrjunarliðinu en
kom inn á sem varamaður á 59.
mínútu. Hann stóð sig ágætlega,
fékk 4.
Brynjar Gunnarsson kom inn
á sem varamaður hjá Válerenga
þegar Iiðið tapaði sínum þriðja
Ieik á tímabilinu. Gengi Váler-
enga hefur verið langt frá því
sem búist var við fyrir mótið.
Vörnin hefur verið veikasti hluti
liðsins enda hefur liðið fengið á
sig tólf mörk í fimm leikjum. Nú
var það Stabæk sem skellti Ósló-
arliðinu, 2-0. Helgi Sigurðsson
hefur ekki leikið vel með Stabæk
í vor og kom ekki við sögu í
leiknum. Stabæk var ekki spáð
góðu gengi fyrir tímabilið en hef-
ur nú plantað sér með efstu lið-
um.
Lilleström, lið Rúnars Krist-
inssonar og Heiðars Helgusonar,
tók á móti Tryggva Guðmunds-
syni og félögum í Tromsö og
sigraði, 2-1. Rúnar er enn ekki
farinn að leika með liðinu á
þessari leiktíð þar sem hann er
að jafna sig eftir uppskurð.
Heiðar hefur ekki átt góðu gengi
að fagna til þessa og kom ekki
við sögu í leiknum. Tryggvi Guð-
mundsson, sem hefur leikið
ágætlega með Tromsö í vor, lék
allan leikinn og hlaut 4 í
einkunn.
Norðmenn eru mjög sparir á
tölur þegar einkunnir eru gefnar
fyrir frammistöðu leikmanna.
Þess má geta að enginn leikmað-
ur fékk hærri einkunn en 6 í
fimmtu umferðinni.
Moss vann Kongsvinger 2-0 og
er enn með í toppbaráttunni.
5. umferðinni lauk í gærkvöld
með markalausu jafntefli Rosen-
borgar og Brann.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Rosenborg 5 4 0 0 14-2 13
Molde 5 3 2 0 12-5 11
Stabæk 5 3 1 1 8-5 10
Moss 5 3 1 1 6-3 10
Viking 5 3 0 2 12-7 9
Tromsö 5 2 2 1 7-6 8
Bodö/Glimt 5 2 1 2 7 6 7
Válerenga 5 2 0 3 8-12 6
Lillestr"m 5 2 0 3 6-16 6
Kongsvinger 5 1 2 2 6-6 5
Sogndal 5 0 3 2 4-8 3
Strömsgodset 5 0 3 2 6-12 3
Brann 5 0 2 2 6-8 3
Ilaugesund 5 0 1 4 6-12 1
- GÞÖ
KR og ÍA í undanúrslitujii
KR sigraði Eyjamenn í deildar-
bikarnum í knattspyrnu, 3 - 2 í
rokleik, á Tungubakkavelli í
Mosfellsbæ. Fyrstu fjögur mörk-
in voru skoruð á fimm mínútna
kafla í fyrri hálfleik. Sigþór Júlí-
usson og Björn Jakobsson skor-
uðu fyrir KR á tveggja mínútna
kafla og þrem mínútum síðar
hafði Streingrímur Jóhannesson
jafnað fyrir Eyjamenn. Guð-
mundur Benediktsson skoraði
sigurmark KR úr vítaspyrnu sem
Egill Már, ágætur dómari leiks-
ins, gaf KR-ingum. Menn töldu
að þessi gjöf Egils væri til þess
að forða leikmönnum, dómurum
og stuðningsmönnum frá því að
þurfa að standa af sér framleng-
ingu í rokinu og rigningunni sem
gekk á í seinni hálfleik. Með
sigrinum tryggði KR sér sæti í
undanúrslitum deildabikarsins.
Aður höfðu Valsmenn tryggt
sér sæti í undanúrslitunum með
því að vinna Stjörnuna 4 - 1 í
sögufrægum leik þar sem fjórir
menn Iitu rauða spjaldið. Sigur-
björn Hreiðarsson skoraði tvö
marka Vals, Hörður Már Magn-
ússon og Arnar Hrafn Jóhannes-
son skoruðu sitt markið hvor.
Veigar Gunnarsson skoraði mark
Stjörnunnar.
FH-ingar lögðu ÍR að velli, 3 -
1, Arnljótur Davíðsson skoraði
mark ÍR en Guðmundur Svav-
arsson, Jónas Garðarsson og
Hörður Magnússon skoruðu fyr-
ir FH.
Þá sigruðu Skagamenn Leift-
ur, 7 - 6, eftir framlengingu og
vítaspynukeppni. Eftir venjuleg-
an leiktíma var staðan 0-0. Lið-
in skoruðu sitt hvort markið í
framlengingunni en Skagamenn
höfðu betur f vftakeppninni.
FH og Valur mætast í undan-
úrslitum á Asvöllum í kvöld kl.
18.30 og KR og ÍA mætast á
Tungubakkavelli kl. 19.00 á
fimmtudaginn. — GIH)
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavík, s. 464 1300.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina á
Raufarhöfn, fimmtudaginn 14. maí 1998 ki. 14.00:
HU-015
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
4. maí 1998.
Halia Bergþóra Björnsdóttir, fulltrúi.
Sýslumaðurinn á
Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavík, s. 464 1300.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina á
Húsavík, miðvikudaginn 13. maí 1998 kl. 14.00:
GP-789 KU-029 LG-382 NJ-801 R-78366
R-8587 S-2954 S-608 Þ-467 Ö-2729
Greiðsia við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
4. maí 1998.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, fulltrúi.
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavfk, s. 464 1300.
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boðnir upp við lögreglustöðina á
Húsavík, miðvikudaginn 13. maí 1998 kl. 14.00:
Haglabyssa Baikal Y09035 einhleypa,
haglabyssa CBC Remington nr. 1160403 einhleypa,
haglabyssa CBC Remington nr. 1160436 einhleypa,
haglabyssa Fabarm nr. 235263 pumpa,
haglabyssa Fabarm nr. 489606 hálfsjálfvirk,
haglabyssa Fabarm nr. 649818 pumpa,
haglabyssa Glenfield nr. 19806175 einhleypa,
haglabyssa Lamber 323109 hálfsjálfvirk,
haglabyssa Nikko J 25712 hálfsjálfvirk,
haglabyssa R.F. Belgia nr. 8074 einhleypa,
haglabyssa Rausti Stefano A11684 tvíhleypa,
haglabyssa Remington nr. M34917 hálfsjálfvirk,
haglabyssa Remington P210517 hálfsjálfvirk,
haglabyssa Suhl Buhag, Simson nr. 860027 tvíhleypa og
haglabyssa Winchester L559607 pumpa.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með
samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
4. maí 1998.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, fulltrúi.
HEILBRIÐGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ —
REYKJAVÍK
Embætti héraðslæknis
í Reykjavík
Embætti héraðslæknis í Reykjavík er hér
með auglýst laust til umsóknar.
Héraðslæknir er sérstakur ráðunautur heilbrigðisstjórnar um
hvaðeina er við kemur heilbrigðismálum héraðsins. Héraðs-
læknar skulu fylgjast með því að framfylgt sé lögum og reglum
um heilbrigðismál í héraðinu.
Samkvæmt lögum nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu skipar
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra héraðslækni í Reykjavík
til fimm ára í senn. Héraðslæknir skal vera embættislæknir eða
hafa aðra sérfræðimenntun ásamt
víðtækri reynslu á sviði stjórnunar.
Kjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, send-
ist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
150 Reykjavík, eigi síðar en 1. júní nk.
Embætti héraðslæknis í Reykjavík verður
veitt frá og með 1. janúar 1999.
Nánari upplýsingar um embættið veitir ráðuneytisstjóri í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í síma 560 9700.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Reykjavík, 30. apríl 1998.