Dagur - 05.05.1998, Blaðsíða 12
12 -ÞRIÐJVDAGUR 9. MAÍ '19 9 8 '
X^iir
ÍÞRÓTTIR
Arsenal meistari
í eilefta siim
Dennis Bergkamp.
Herdís Sigurbergsdóttir, Stjörnunni, og Oleg Titov, Fram, voru valin bestu leikmenn
íslandsmótsins.
Herdís og Tltov
leikmeim ársins
Ellefti meistaratitill
Arsenal í höfn.
Þrenna hjá Klins
mann á sex mínútum.
Bolton heldur enn í
vonina iim úrvals-
deildarsætið. Owen
með stórleih fyrir
Liverpool. Bamsley
samferða Palace í
fyrstu deildina.
Það vantaði ekki mörkin í ensku
úrvalsdeildinni um helgina. Þrjá-
tíu og átta mörk voru skoruð á
laugardaginn og Arsenal bætti
fjórum mörkum við, gegn Ev-
erton, á sunnudaginn og stuðn-
ingsmenn félagsins fögnuðu
langþráðum Englandsmeist-
aratitli. Fögnuðurinn var ekki
minni hjá stuðningsmönnum
Tottenham þegar Ijóst var að lið-
ið hafði forðað sér frá falli í
fyrstu deild. Liðið fékk 8 þúsund
miða á völlinn á Shellhurst Park
og þeir sem ekki komust þangað
sáu leikinn á breiðtjaldi á White
Hart Lane.
Bolton - Crystal Palace 5 - 2
Blake 2. Fish 20. Phillips 30.
Thompson 70. og Holdsworth
79. - Gordon 8. Bent 16.
Leikmenn Bolton, undir for-
ystu Guðna Bergssonar, sýndu
frábæran baráttuvilja er liðið rót-
burstaði Crystal Palace á heima-
velli sínum á Iaugardaginn.
Heimamenn byrjuðu betur en
eftir 16 mínútur höfðu gestirnir
náð forystu. Baráttan fyrir úr-
valsdeildarsætinu átti hug
heimamanna sem skoruðu fjögur
síðustu mörkin og eiga nú í al-
vöru góða möguleika á að halda
sér í deildinni.
Coventry - Blackbum 2 - 0
Dublin 19. Boateng 34.
Allt hefur gengið á afturfótun-
um hjá Blakburn á endasprettin-
um. Eftir að markvörður þeirra,
Tim Flowers, var rekinn af leik-
velli átti Coventry í litlum vand-
ræðum að hala inn sigur. Gordon
Strachan hefur unnið frábært
starf á Higfield Road og elstu
menn muna vart betra gengi hjá
Coventry.
Leicester - Bamsley 1 - 0
Zagorakis 57.
Martin O’NeiI hefur ekki unn-
ið síðra starf hjá Leicester en fé-
Iagi hans hjá Coventry. Leicester
hefur náð mun betri árangri í
vetur og kórónaði leik sinn á
laugardaginn með því að setja
kistulokið )Tir Barnsley sem þar
með kvaddi úrvalsdeildina eftir
árs dvöl.
Liverpool - West Ham 5 - 0
Owen 4. McAteer 21. 25. Le-
onhardsen 45. Ince 61.
Eftir skammarlega útreið gegn
Chelsea á dögunum tók Rauði
herinn sig saman í andlitinu og
skoraði fimm mörk hjá West
Ham. Michael Owen átti stórleik
með Liverpool og skoraði fyrsta
markið eftir aðeins fjórar mínút-
ur. Hann hefði getað bætt marki
við stuttu seinna er gott skot fór
í hliðarnetið. Því næst lagði hann
upp mark, ásamt Norðmannin-
um Leonhardsen, fyrir Jason
McAteer sem skoraði sitt fyrsta
og annað deildarmark fyrir Liver-
pool í leiknum.
Haukur Ingi Guðnason var í
fyrsta sinn á leikskýrslu Liver-
pool í deildarleik á laugardaginn.
Hann er greinilega inni í mynd-
inni hjá Roy Evans.
Glenn Hoddle, landsliðsein-
valdur Englands, var á Anfield og
að sögn breskra fjölmiðla fékk
hann að sjá að erfitt verður að
ganga fram hjá táningnum þegar
HM-hópurinn verður endanlega
valinn. Annar táningur, Rio
Ferdinand hjá West Ham, hefur
einnig verið í enska landsliðinu
undanfarið. Hann átti afleitan
leik í vörninni og má þakka fyrir
ef hann hefur ekki spilað sig út
úr hópnum.
Newcastle - Chelsea 3 -1
Dibizas 39. Lee 42. Speed 59. -
Di Matteo 77.
Bæði þessi lið eiga stórleiki
fyrir höndum. Newcastle í bik-
arnum og Chelsea í Evrópu-
keppni. Munurinn á Iiðunum á
Iaugardaginn lá í hungri heima-
manna í Newcastle. Þeir börðust
fyrir sæti sínu í úrvalsdeildinni
og gulltryggðu það með sigrin-
um. Chelsea, sem niðurlægði
Liverpool um síðustu helgi, tap-
aði þriðja sæti deildarinnar aftur
til Liverpool sem varla sleppir því
héðan af.
SheMeld Wednesday - Aston
ViHa 13
Sanetti 89. - Yorke 21. Hendrie
25. Joachim 50.
Aston Villa náði sér aftur á
strik eftir smá gangtruflun síðast.
Nú var það Sheffield Wednesday
sem mátti kyngja ósigri á heima-
velli sínum. Villa hefur verið í
góðum málum síðan stjóraskipt-
in fóru fram og flest gengur lið-
inu nú í haginn.
Southampton - Derby 0 - 2
Jim Smith og lærisveinar hans
hjá Derby hafa jafnað sig eftir
martröð síðustu helgar. Þeir fóru
með stigin þrjú frá Southampton
og geta vel við unað. Sout-
hampton átti litla möguleika eft-
ir að bakvörðurinn Francis
Benali var rekinn af Ieikvelli eftir
gróft brot á Dean Sturridge.
Þetta var 11. rauða spjald Benali
á ferlinum.
Winxbledon-Tottenham 2-6
Fear 21. 30. - Ferdinand 18.
Klinsmann 41. 54. 58. 60. Saib
79.
Eftir að Wimbledon náði að
komast yfir, 2 - 1, á móti Totten-
ham, tók það Jurgen Klinsmann
aðeins 18 mínútur að skora fjög-
ur mörk og gera út um leik lið-
anna. Þrjú síðustu mörk sín skor-
aði hann á aðeins sex mínútum
sem er nálægt þrennumetinu í
ensku efstu deildinni. Robbie
Fowler skoraði þrennu á sjö mín-
útum fyrir nokkrum árum á móti
Arsenal og það var þá næst fljót-
asta þrennan í efstu deild.
Arsenal - Everton 4 - 0
Bilic, sm á 6. Overmars 28. 57.
Adams 89.
Arsenal afgreiddi Everton
snyrtilega á sunnudaginn, skor-
aði Ijögur mörk og ýtti Everton
með annan fótinn í fyrstu deild-
ina. Englandsmeistararnir höfðu
yfirburði frá upphafi til enda
leiks og það var við hæfi að
fyrirliðinn, Tony Adams, skoraði
síðasta markið rétt áður en hann
tók við meistarabikarnum. Til
hamingju Arsenal stuðnings-
menn.
Man. United. - Leeds 3 -0
Giggs 6. - Ervin 31. - Becham 50
Man. United sýndi loks
klærnar þegar þeir unnu Leeds
sannfærandi á heimavelli sínum
og björguðu þar með andlitinu
eftir hremmingar undanfarinna
vikna. - GÞÖ
FII og Valitr hafa imn
ið flesta titla á tíma-
hiliiiu. FH iiigar með
sjö íslandsmeist-
aratitla og tvo í brkar.
Handknattleiksvertíðinni er nú
nýlokið og úrslit liggja fyrir í öll-
um flokkum og deildum hand-
knattleiksins. Lokahóf fór fram
sl. fimmtudag og handknattleiks-
fólk hefur valið bestu og efnileg-
ustu leikmenn tímabilsins. Þau
Oleg Titov, Fram og Herdís Sig-
urbergsdóttir, Stjörnunni, voru
valin bestu Ieikmenn úrvals-
deildarinnar og einnig voru vald-
ir bestu varnar- og sóknarmenn,
markmenn, þjálfarar og bestu
dómararnir.
Dagur hefur gert úttekt á úr-
slitum tímabilsins í öllum flokk-
um karla og kvenna, bæði í Is-
landsmóti og bikarkeppni.
Greinilegt er að gömlu stórveld-
in FH og Valur eru að ná bestum
árangri allra liða á tímabilinu.
FH-ingar unnu sjö íslandsmeist-
aratitla og tvo í bikar, en Valsarar
tvo Islandsmeistaratitla og fjóra í
bikar.
Hér á eftir fara niðurstöðurnar
og val á bestu leikmönnum:
Meistaraflokkur karia - Úrvalsdeild:
Deildarmeistaran
1. KA
2. Fram
íslandsmeistaran
1. Valur
2. Fram
Bikarmeistarar:
1. Valur
2. Fram
Meistaraflokkur kvenna - Úrvalsdeild:
Deildarmeistaran
1. Stjaman
2. Haukar
Islandsmeistarar:
1. Stjaman
2. Haukar
Bikarmeistaran
1. Stjaman
2. Víkingur
Meistaraflokkur karla - 1. deild:
íslandsmeistarar
1. Selfoss
2. Grótta/KR
2. flokkur karia:
Islandsmeistaran
1. ÍR
2. KA
Bikarmeistaran
1. Fram
2. FH
2. flokkur kvenna:
Islandsmeistaran
1. Víkingur
2. Stjaman
Bikarmeistarar:
1. FH
2. Valur
3. flokkur karia:
Islandsmeistaran
1. Fram
2. Valur
Bikarmeistarar:
1. Valur 1
2. Valur 2
3. flokkur kvenna:
Islandsmeistarar:
1. FH
2. Valur
Bikarmeistarar:
1. FH
2. Fram
4. flokkur Itaria A-Iið:
Islandsmeistaran
I. Valur
2. KA
Bikarmeistaran
1. Valur
2. Þór, Ak.
4. flokkur karia B-lið:
Islandsmeistarar:
1. KA
2. FH
4. flokkur kvenna A-lið:
Islandsmeistaran
1. Fylkir
2. FH
Bikarmeistarar:
1. Valur
2. FH
4. flokkur kvenna B-lið:
Islandsmeistarar:
1. Fylkir
2. FH
5. flokkur karia A-lið:
Islandsmeistaran
1. FH
2. Haukar
5. flokkur karia B-lið:
Islandsmeistarar:
1. Haukar
2. KR
5. flokkur karia C-lið:
1. FH
2. KA
5. flokkur kvenna A-lið:
Islandsmeistaran
1. FH
2. Víkingur
5. flokkur kvenna B-lið:
Islandsmeistaran
1. FH
2. Stjaman
6. flokkur karia A-lið:
Islandsmeistaran
1. Fram
2. FH
6. flokkur karia B-Iið:
Islandsmeistaran
1. FH
2. Fram
6. flokkur karia C-Iið:
Islandsmeistarar:
1. KA
2. FH
6. flokkur kvenna A-Iið:
Islandsmeistarar:
1. Haukar
2. ÍBV
6. flokkur kvenna B-lið:
Islandsmeistarar:
1. Fram
2. Haukar
Valið á lokahófl HSÍ:
Úrvalsdeild karia:
Besti leikmaður: Oleg Titov, Fram
Besti markvörðurinn: Suk Hyung Lee, FH
Besti sóknarmaður: Jón Kristjánsson, Val
Besti vamarmaður: Oleg Tltov, Fram
Efnilegasti leikmaður. Halldór Sigfusson, KA
Markahæsti leikmaðun Zoltán Belánýi, ÍBV
Besti þjálfarinn: Jón Kristjánsson, Val
Úrvalsdeild kvenna:
Besti leikmaður: Herdís Sigurbergsdóttir, Sq'öm-
unni
Besti markvörðurinn: Vaiva Drilingate, FH
Besti sóknarmaður: Brynja Steinsen, Val
Besti vamarmaður: Herdís Sigurbergsdóttir,
Stjömunni
Efnilegasti leikmaður: Dagný Skúladóttir, FH
Markahæsti leikmaður: Halla María Helgadóttir,
Víking
Besti þjálfarinn: Aðalsteinn Jónsson, Stjömunni
I. deild karia:
Islandsmeistarar:
1. Selfoss
2. Gróttíi/KR
Besti leikmaðun 1. Páll Gíslason, Þór, Ak.
Markhæsti Ieikmaður: 1. Halldór Guðjónsson,
ÍH
Besti þjálfarinn: 1. Einar Þorvarðarson, Fylld
íslands- oj{ bikamieistanitítL’in
íslandsm. Bikarm.
FH 7 2
Valur 2 4
Fram 3 1
KA 2
Fylkir 2
Haukar 2
Stjaman 1 1
Víkingur 1
ÍR 1