Dagur - 05.05.1998, Blaðsíða 4
4 -ÞRIBJUV'AGUR s: MAÍ 199'8
D^ur
FRÉTTIR
Biiist vid málarekstri
Hið mikla aldamótavandamál í tölvukerfinu var til
umræðu á Alþingi vegna fyrirspurnar Hjörleifs Gutt-
ormssonar um stöðu málsins. Fram kom í svari for-
sætisráðherra að margt hefði verið gert til að mæta
vandamálinu. Þar kom fram m.a. að eigandi kerfis eða
búnaðar, hvort sem hann er einkaaðili eða opinber
stofnun, muni bera kostnað af lagfæringum á forritum
og nauðsynlegum breytingum vegna ártalsins 2000.
Hið sama á við um hugsanlegar rekstrartruflanir í eig-
in rekstri vegna vanrækslu eða mistaka við breytinguna. Forsætisráð-
herra sagði að hvort rekendur kerfa verða ábyrgir gagnvart þriðja að-
ila væri erfitt að segja til um og ef til vill verði dómstólar að lokum
að skera úr um það.
Hjörleifur
Guttormsson.
Verkmenntaskóimn á Akureyri er einn þeirra framhaldsskóla sem eytt hafa meira en þeim var heimilt samkvæmt fjárlögum, að þvi er fram
kemur í skýrslu um ríkisfjármál.
Nefnd endurskoðar geðheilbrigðismál
Ingibjörg Páimadóttir heilbrigðisráðherra sagði í fyrir-
spurnartíma á Alþingi að starfandi væri nefnd til að
endurskoða allt varðandi geðheilbrigðismál og sagðist
hún vænta niðurstöðu hennar bráðlega. Hún sagði að
heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið væru
að vinna að því í sameiningu að finna leið til að auka
Ingibjörg Pálma- meðferðarúrræði barna og unglinga. I fyrra leituðu
dóttir. 260 unglingar eftir aðstoð á Vogi.
Lögfræðingar iimlieimta komugjöld
Ogmundur Jónasson spurði heilbrigðisráðherra að því hvort svo væri
komið að heilsugæslustöðvar væru farnar að Iáta innheimtulögfræð-
inga annast innheimtu á komugjöldum sjúklinga. Nefndi hann dæmi
um að komugjald var komið upp í 7.743 kr. í meðförum lögfræðings.
Ingibjörg Pálmadóttir taldi heilbrigðisyfirvöld sýna mikla tillitssemi
varðandi komugjöld sjúklinga. Allir fengju læknisþjónustu sem eftir
henni Ieituðu burtséð frá efnahag. Hún sagði að dæmið sem Og-
mundur nefndi hlyti að vera einsdæmi. Kristinn H. Gunnarsson
sagði svo ekki vera. Yfir 2 þúsund manns hefði fengið slíkar rukkan-
ir vegna komugjalda. -S.DÓR
Happdrættin kæra hvert airnað
Happdrætti Háskóla íslands og Vöruhappdrætti SÍBS hafa kært
hvort annað til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga. Samkeppn-
isráð hefur í framhaldi af því bannað Happdrætti háskólans að birta
auglýsinguna „Milljónavinningar 1997“ vegna villandi upplýsinga í
henni. Auk þess var happdrættinu bannað að fullyrða að „hægt sé að
tryggja sér tugi milljóna króna fyrir 700 kr. hjá happdrættinu því það
er rangt." Einnig hefur Vöruhappdrætti SIBS verið bannað að bera
saman hvað það kosti að eiga von um hæstu vinninga í happdrættum
eins og gert var í auglýsingu þeirra. Báðir aðilar hafa þannig fengið
stuðning Samkeppnisráðs við kærumál sín.
EHert Borgax leiðir
Hafnarij arðarlistann
Ellert Borgar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, er efstur á Hafnarfjarðarlistanum sem
kynntur var fýrir helgi. Jóhann G. Bergþórsson er ekki
á listanum, en er upphafsmaður hans og stuðnings-
maður.
Arni Hjörleifsson, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, er
heldur ekki á listanum, en eins og Dagur hefur greint
frá var rætt við hann óformlega um að vera með.
I næstu sætum á eftir Ellert Borgari koma Birgir
Finnbogason kennari og framkvæmdastjóri, Helga
Ingólfsdóttir skrifstofumaður og Magnús Kjartansson hljómlistar-
maður, en í heiðurssætinu er Páll V. Danfelsson fv. bæjarfulltrúi.
- FÞG
Homsteinn að NesjavaUa-
virkjim
Ingibjörg Sójrún Gísladóttir, borgarstjóri, lagði
hornstein að nýju raforkuveri Nesjavallavirkjunar
um helgina en það verður tekið í notkun í haust.
Raforkuverið á að geta framleitt um 60 MW af
rafmagni. Til að byija með fer orkan öll til stór-
iðju en 1. mars 2001 hefst sala til Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Kostnaður við nýju virkjunina stefnir f 4,2
milljarða króna, sem er talsvert lægra en upphaf- Ingibjörg Sólrún Gísla-
leg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Með virkjun- dóttir, borgarstjóri.
inni er brotið blað í raforkusögu Reykjavíkur því
Framhaí dsskóí ar
fram úr fjárlögiun
Fj ármálar áöuneyti
segir ljóst að mennta-
málaráðimeyti þiiríi
að grípa til róttækra
aðhaldsaðgerða vegna
fjármála framhalds-
skóla.
Útgjöld framhaldsskóla fóru
rúmlega 230 milljónum, eða um
5% framúr fjárlögum á síðasta
ári. „Geiðslustaða nokkurra
skóla er mjög slæm, m.a. vegna
uppsafnaðs rekstrarhalla fyrri
ára,“ segir í nýlegri skýrslu fjár-
málaráðherra um ríkisfjármál
árið 1997. Af þeim eru nefndir
Menntaskólinn í Kópavogi, Verk-
menntaskólinn á Akureyri og
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
Raunar sé Menntaskólinn við
Hamrahlíð nær eini skólinn sem
sýnt hafi bætta greiðslustöðu á
árinu. „Ljóst er að ráðuneytið
þarf að grípa til róttækra að-
haldsaðgerða vegna framhalds-
skólanna,'1 segir í skýrslunni.
Eðlilegar skýringar
„Það er verið að fara yfir stöðu
skólanna hvers og eins og í mörg-
um tilvikum eru eðlilegar skýr-
ingar á þessu,“ svaraði Orlygur
Geirsson, skrifstofustjóri
menntamálaráðuneytisins.
Hann segir það aðallega tvennt
sem enn hafí ekki verið til lykta
leitt. „I fyrsta lagi áhrif kjara-
samninga, sem við erum ekki viss
um að hafi verið að fullu bætt. I
annan stað segir þetta eingöngu
til um stöðu skóla gagnvart ríkis-
sjóði um áramót. Líti maður t.d.
á Menntaskólann í Kópavogi þá
er þar um að ræða breytingu á
skóla sem á tveim árum fer úr
400 nemendum í nærri 900, en
fjárveitingar hafa ekki fylgt eftir.
Hjá Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri var ákveðin 20 milljóna
neikvæð staða gagnvart ríkis-
sjóði, en á sama tíma átti skólinn
álíka upphæð á bankabókum,“
segir Örlygur.
Þurfa að taka sig á
- Er þörfin fyrir róttækar að-
haldsaðgerðir vegna framhalds-
skólanna ekki eins mikil og
skýrsluhöfundar í fjármálaráðu-
neytinu halda fram?
„I einstaka tilvikum þarf að
taka á og skólastjórar vita það.
En skýrslan sýnir bara greiðslu-
stöðuna gagnvart ríkissjóði á til-
teknum tímapunkti en ekki end-
anlega stöðu skólanna,11 segir Or-
lygur, sem telur þarna óþarflega
djúpt í árinni tekið. -HEI
Ráðherra vígir brú og
stóðhestastöð
Smíðuð hefur verið 36 metra
Iöng reiðbrú á Eyjafjarðará aust-
an Melgerðismela að landi Guð-
rúnarstaða sem tengir reiðvega-
kerfið að austan við mótssvæðið
á Melgerðismelum samkvæmt
aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar.
Byggingarkostnaður er 6 milljón-
ir króna en brúin er kostuð af
Vegagerð ríkisins. Bifreiðaum-
ferð verður beint að svæðinu að
vestan.
Sigfús Helgason, fram-
kvæmdastjóri Melgerðismela,
segir að samið verði við Eyja-
íjarðarsveit um byggingu stóð-
Undirbúningur landsmóts hestamanna að
Melgerðismelum i Eyjafirði gengur sam-
kvæmt áætlun, segir Sigfús Helgason.
réttar á Melgerðismelum og með
tilurð brúarinnar þjónar hún
fleirum en ella mundi vera. Und-
irbúningur landsmóts hesta-
manna sem hefst í byrjun júlí-
mánaðar gengur samkvæmt
áætlun og er nýlokið byggingu
stóðhestahúss. Stefnt er að
vígslu reiðbrúarinnar og stóð-
hestahússins 9. maí nk. og það
mun Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra gera með því að ríða yfir
hana fyrstur manna. — GG
Milljónadómar á Tryggingasto£aun
Hæstiréttur dæmdi Trygginga-
stofnun til að greiða Ingólfi Lilli-
endahl lyfsala rúmar 5,6 milljón-
ir króna með dráttarvöxtum. Auk
þess er stofnuninni gert að
greiða Ingólfi 400 þúsund krón-
ur í málskostnað fyrir héraðs-
dómi og Hæstarétti. Þá var stofn-
unin dæmd til að greiða Wilhelm
H. Lúðvfkssyni nokkuð á þriðju
milljón króna í samskonar máli.
Málavextir voru m.a. þeir að
Iyfjaverðlagsnefnd hafði ekki
heimild í lögum til að mæla fyrir
skerðingu á greiðslum til tiltek-
inna lyfjaverslana miðað við
veltu þeirra. Af þeim sökum var
Tryggingastofnun því ekki heim-
ilt að skerða endurgreiðslur til
viðkomandi lyfsala. Hæstiréttur
telur einnig að Ingólfur hafi ekki
glatað rétti til að fá fulla greiðslu
Iyfjareikninga sinna, þótt hann
hafi ekki haft uppi sérstaka fyrir-
vara við móttöku hverrar
greiðslu. Jafnframt var þeirri
skoðun stofnunarinnar hafnað
að krafan um endurgreiðslu væri
að hluta til fyrnd.
Nokkur mál af sama toga eru
til meðferðar á lægra dómsstigi
og nema kröfur apótekaranna
samanlagt á þriðja hundrað millj-
ón króna. -GRH