Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 1
Segir 14 milljarða
útlánatap eðlilegt
Fiimiir lngólfsson
gagnrýnir ekki ríkis-
banka fyrir utlánatap.
Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ASÍ,
spyr hver veðin séu og
hann segir málið
hreinlega galið.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Degi tapaði Landsbankinn 10,6
milljörðum króna á árunum
1993 til 1997. Búnaðarbankinn
tapaði 3,1 milljarði og sam-
kvæmt upplýsingum frá banka-
eftirlitinu tapaði Islandsbanki
6,3 milljörðum króna þetta sama
tímabil. Og til að átta sig á um-
svifum bankanna voru niður-
stöðutölur efnahagsreiknings
Landsbankans árið 1996 110
milljarðar, Islandsbanka 69,4
milljarðar og Búnaðarbanka
54,4 milljarðar króna. Hlutfalls-
lega er því tap Landsbanka og Is-
landsbanka svipað en Búnaðar-
bankans lang minnst.
„Fjórtán milljarðar króna er
vissulega há upphæð og ekki
nema von að fólki bregði í brún
þegar það horfir á það að þetta fé
sé tapað. En til þess að geta gert
sér grein fyrir því hvort þetta er
hátt eða lágt tap þá þarf að gera
samanburð á því hvernig þetta er
hjá öðrum þjóðum. Það er þum-
alputtaregla hjá bönkum um all-
an heim að taka þá áhættu að
tapa 1% af útlánum. Ég hef að
vísu ekki nákvæma tölu en 14
milljarðar eru ekki mikið yfir 1 %
af útlánum bankanna þessi 5
umræddu ár,“ sagði Finnur Ing-
ólfsson viðskiptaráðherra, þegar
álits hans var leitað á 14 millj-
arða króna útlánstapi Lands-
banka og Búnaðarbanka árin
1993 til 1997, sem skýrt hefur
verið frá. „Það sem nú er aftur á
móti að gerast er að úr þeim hef-
ur stórlega dregið. Það sem
bankarnir setja nú til hliðar í af-
skriftir er komið talsvert niður
fyrir 1% af heildarútlánum á
sama tíma og erlendir bankar
láta 1% í sína afskriftasjóði. Það
Bankamálaráðherra segir útlánatap rík-
isbanka ekki óeðlilega mikið.
er aldrei hægt að horfa á málin
þannig að þegar lánaðir eru út
peningar séu menn hundrað
prósent öruggir á að fá þá alla til
baka aftur. Menn eru alltaf í
ákveðnum áhætturekstri,“ sagði
Finnur
Engar skýringar
„Þetta eru ótrúlega háar tölur og
hér er um langan tíma að ræða.
Þess vegna hlýtur maðurinn á
götunni að spytja sjálfan sig af
hverju þurfti þetta að vera svona.
Þeir sem stjórna þessum bönk-
um, bæði pólitískt og fram-
kvæmdalega, fá gríðarlega vel
greitt fyrir og greiðslurnar eru
varðar með því að þeir beri svo
milda ábyrgð. Síðan týnast millj-
arðar og maður fær engar skyn-
samlegar skýringar fyrir ástæð-
unni,“ sagði Ari Skúlason, hag-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Islands.
Hann segir að vissulega hafi
árferði verið erfitt á hluta þess
tíma sem útlánatöpin ná yfir. En
á móti komi að bankar á Islandi
hafi aldrei lánað einstaklingum
krónu án þess að trygg veð væru
til staðar.
„Þess vegna hlýtur maður að
spyrja hvar voru tryggu veðin í
þessum tilvikum öllum saman.
Af hveiju er þetta svona? Þegar
maður horfir á þessar tölur hlýt-
ur venjulegum manni að þykja
þetta galið," sagði Ari Skúlason.
- S.DÓR
Forseta-
hjónin fyr-
ir austan
Forsetahjónunum, Olafi Ragnari
Grímssyni og Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur, var forkunnarvel
tekið í gær þegar þau komu ak-
andi yfir í V-Skaftafellssýslu.
Fyrirmenni og Iúðraveit tóku á
móti forsetahjónunum í heldur
kuldalegu veðri en heldur hlýn-
aði eftir því sem á leið. Guðrún
Katrín kom við í Hrífunesi þar
sem hún var sex sumur í sveit en
á þessum slóðum á hún mikinn
frændgarð. Hún sagði blaða-
manni Dags að hún hefði margt
nytsamlegt lært í sveitinni.
Heimsóknin er sú fyrsta í V-
Skaftafellssýslu hjá forseta Is-
lands allt frá tímum Asgeirs As-
geirssonar. Víða mátti sjá fána
við hún og í Vík beið fólk og
veifaði. - JBP
Forsetahjónunum var vei fagnað við komuna til V-Skaftafellssýslu. Eins og sjá má á myndinni var sýslumaðurinn Sigurður
Gunnarsson í fullum einkennisklæðum og hátíðarstemmning i allra hjörtum. - mynd: jbp
Páll van-
hæfur?
Páll Pétursson
lætur kanna hvort
hann sé vanhæfur
í Húnaþingsmál-
inu.
„Ég vil sem
minnst um mál-
ið segja á þessu
stigi. Ég læt
skoða það hvort
ég er vanhæfur
og þurfi að víkja
sæti í málinu en
það er ekki al-
veg komið að
þessu,“ sagði
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra um
Húnaþings-
nafnið sem sent hefur verið til
hans til úrskurðar.
Um er að ræða að nýja sam-
einaða sveitarfélagið í V-Húna-
vatnssýslu leggur til að nýtt nafn
á sveitarfélagið verði Húnaþing.
Þessu hafna A-Húnvetningar al-
farið og hafa sent málið til fé-
lagsmálaráðherra til úrskurðar.
Og hugsanleg vanhæfni Páls
Péturssonar byggist á því að
hann er frá Höllustöðum sem
eru í austursýslunni. — S.DÓR
Hálendið
helgað
Allsheijargoð-
inn Jörmundur
Ingi mun helga
allt hálendi Is-
lands til ævar-
andi eignar og
notkunar allra
Islendinga, nú
um helgina. Til-
efni þessarar
helgunar eru
hálendisfrum-
vörp ríkisstjórn-
arinnar. Höfuðástæðuna fyrir
helguninni segir allsherjargoði
vera lögfræðilega. Lögfræðingar
segi sér að með þessu geti hann
að íslenskum lögum átt formlega
aðkomu að málinu á svipuðum
grundvelli og sveitarfélögin og
forsætisráðherra.
I samtali við Dag sagði Jör-
mundur að helgunarathöfnin
myndi fara fram sem næst miðju
hálendisins, helst við Beinakerl-
ingu á Sprengisandi. Hann sagði
athöfnina verða nokkuð stutta
en tilkomumikla þar sem kveikt
yrði bál og farið með þulur.
Alls verður farið á fimm bílum
inn á hálendið og þess gætt að
spilla ekki landi. BBC sjónvarps-
stöðin hefur haft samband við
Jörmund vegna málsins og mun
reyna að dekka það á einhvern
hátt. - BG
Jörmundur Ingi
hyggst helga
þjóðinni hálendið.
Handverkfæri
SINDRI ^
-sterkur í verki 1
BORGARTLINI 31 • SÍMI 562 7222
T